Helgarpósturinn - 30.07.1987, Blaðsíða 31
fEÍins og fram hefur komið í
Helgarpóstinum hafa mál Ólafs
Sigurgeirssonar, aðalfulltrúa
Borgarfógetaembættisins verið
til rannsóknar hjá Rannsóknar-
lögreglunni frá því í desember síð-
astliðnum. Eftir grein í blaðinu fyrir
tveimur vikum virðist málið hins
vegar hafa tekið nýja stefnu. Ólafur
hefur nú endursent lögmönnum all-
ar þær vörslusviptingarbeiðnir er
hann hafði til meðferðar og lamast
við það allt fjárnám í lausafé á
Reykjavíkursvæðinu. í bréfi sínu
segist Ólafur gera þetta vegna kæru
er Jón Oddsson, hæstaréttarlög-
maður, sendi tii ríkissaksóknara í
desember. Skjót viðbrögð hjá
Ólafi. ..
|Ekki munu allir lögmenn vera
kátir yfir því að Borgarfógetaemb-
ættið hafi hætt við vörslusviptingu.
í lögum er kveðið á um að vörslu-
svipting skuli fara fram innan
ákveðins tíma frá fjárnámi. Ef engin
vörslusvipting er gerð dettur fjár-
námið dautt niður. Einhverjir lög-
menn munu nú vera að hugsa með
sér að kæra embættið fyrir að sinna
ekki opinberum skyldum sínum.
Það er nú fyrir löngu orðið almennt
viðurkennt að engum sé heimil
vörslusvipting nema fógeta og því
hefur þessi ákvörðun embættisins í
raun lamað allar innheimtuaðgerð-
ir lögmanna. Engin furða þó þeir
tapi gleði sinni. . .
| næstkomandi nóvember á að
flytja olíumalarstöðina Hvamms-
vík úr íbúðarhverfinu í Garðabæ,
þar sem hún hefur verið starfrækt
um langt skeið. íbúar hverfisins
fengu þetta í gegn eftir langa mæðu.
Ástandið var á tíðum þannig að ekki
var hægt að hengja út þvott, án þess
FISHER
---— BORGARTÚNI 16
REYKJAVÍK. SÍMI 622555
sjönvarpsbDdin
BÍLEIGENDUR
BODDÍHLUTIR!
ÓDÝR TREFJAPLASTBRETTI O.FL. Á FLEST-
AR GERÐIR BÍLA, ÁSETNING FÆST Á
STAÐNUM.
BILPLAST
VbgnhöM* 19, «<m< 688233.
PóttMndum.
Ódýrir nurlubotnar.
Tökum aö okkur trefjaplastvinnu.
VWjiö Manakt.
að hann yrði þegar svartur af olíu-
mengun. En það er ekki víst að þeir
Hvammsvíkurmenn þurfi að hafa
fyrir því að flytja. Að kröfu sænsks
fyrirtækis hefur verið gert fjárnám í
vélum og tækjum stöðvarinnar
vegna um fimm milljón króna
skuldar. Svíarnir töldu ekki ráðlegt
að gera fjárnám í fasteignum fyrir-
tækisins þar sem þær eru lítils virði
eins og ástandið er í dag. Eigendur
Hvammsvíkur eru þekktir menn úr
verktakabransanum: Finnbogi
Kjeld, Leifur Hannesson og Hali-
dór Hermannsson...
Vasaútvarp fyrir verslunarmannahelgina
SÍMI 29800
Myndbandsspólur
Einstök tæki
Einstakt verð
Mest seldu
bíltækin á íslandi
KLW-MW-FM Stereo-sjálfvlrk stöövaleitun og minni á 18 stöðvar-Digital klukka-nætur-
lýsing-hraðspólun áfram/afturábak á kassettu auk sispilunar báðum megin ofl. ofl.
SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN HF
50 Watt
Síðumúla 2 - Símar: 39090 og 689090
VERÐ
AÐEINS
KR.
11.890,-
Aðrir útsölu-
staðir:
Öll kaupfélög
og stærri versl-
anir í landinu
auk Esso oliu-
stöðvanna.
HELGARPÓSTURINN 31