Helgarpósturinn - 30.07.1987, Side 8

Helgarpósturinn - 30.07.1987, Side 8
HÓTEL SPRETTA UPP EINS OG GORKÚLUR NÝTT FJÁRFESTINGARÆVIF Óhætt er að fullyrða að íslendingar séu framkvæmda- glaðir menn. Stórhugur okkar á sviði framkvæmdanna hefur oft síðar verið kenndur við ævintýramennsku og má þar nefna síldarævintýrið, skuttogaraævintýrið og Kröfluævintýrið. Bjarni Sigtryggsson, markaðsstjóri hjá Hótel Sögu, sagði að í uppsiglingu væri nýtt skuttogara- ævintýri á sviði fjárfestinga fyrsta flokks hótelbygginga á Reykjavíkursvæðinu. í vor var tekin í notkun stækkun Hótels Sögu og í gær var formlega opnað nýtt hótel, Holi- day Inn. Að auki er fyrirhugað að reisa tvö önnur hótel á næstu árum. Misjafnlega virðist hafa gengið að fylla hótelin í sumar. Þannig frétti HP af því að óvænt hefði komið hingað hópur 100 Þjóðverja og hefði hópurinn allur getað fengið inni fyrirvaralaust á 4 hótelum í Reykjavík. Ekki fylgdi sögunni hvort þeir komu hingað um helgi eða í miðri viku en þó hefur HP hermt að, í sumar hafi ekki öll hótel- in getað náð fullri nýtingu yfir helg- ar. FERÐAMÖNNUM FJÖLGAR Fyrstu 6 mánuði ársins fjölgaði ferðamönnum um 22,6% frá árinu í fyrra, en síðasta ár var metár. Pó svo að ferðamönnum hafi fjölgað síð- ustu árin hefur ekki verið gerð könnun á því hvort meiri hluti þeirra ferðamanna vilji dvelja á fyrsta flokks hótelum í Reykjavík. Magnús Oddsson markaðsstjóri Arnarflugs segir að mun meiri skortur sé á annars konar gistirými en lúxushótelum. — Lítum aðeins á hvernigferðamenn koma hingað til lands. A sumrin kemur hingað fólk sem vill skoða landið. Það dvelur í Reykjavík í stuttan tíma en heldur síðan í ferðir um landið. Stór hluti þessara ferðamanna kjósa mjög ódýra gistingu á meðan dvalið er í borginni og fer því auðvitað ekki inn á fyrsta flokks hótel. Aðrir hópar í skipulögðum ferðum velja góð hótel í þennan stutta tíma. Á vet- » urna fá svo hótelin gesti utan af landi, funda- og ráðstefnugesti. Helsti ferðamannatíminn er sumar- ið, svo forsvarsmenn hótelanna hafa aðallega einbeitt sér að því að halda góðri nýtingu yfir vetrarmánuðina, sem geta oft verið langir og erfiðir. Gera má ráð fyrir að á höfuðborg- arsvæðinu séu fimm fyrsta flokks hótel: Saga, Holt, Holiday Inn, Loft- leidir og Esja. Alls hafa hóteiin á að skipa 720 hótelherbergjum en þar af voru um það bil 160 herbergi tek- in í notkun nú í sumar. Flestir við- mælendur HP voru sammála um að ekki væri þörf fyrir fleiri hótel á þessum markaði á næstu árum og voru margir sömu skoðunar og Birgir Þorgilsson hjá Ferðamálaráði, að of hratt hefði verið farið í fram- kvæmdir nú þegar. Þegar Einar Olgeirsson, hótelstjóri Loftleiða, var spurður um þetta tók hann sér orð Steinars Steinarr í munn: „Húsameist- ari ríkisins, ekki meir, ekki meir.“ Tvö hótel er fyrirhugað að taka í notkun á næstu árum. Annað þeirra byggir Ólafur Laufdal í Ármúla 9. ! samtali við HP sagði hann það rúma 120 herbergi og yrði það tekið í notkun á næsta ári, jafnvei næsta vor. Hann sagðist vera mjög bjart- sýnn á að vel tækist til og markaður væri fyrir hótel af þessari stærð í ná- inni framtíð. Jón Ragnarsson, eigandi Regn- bogans, hyggst einnig byggja stórt fyrsta flokks hótel. Hótelið verður staðsett í Kringlunni og byrja fram- kvæmdir við það næsta vor. Áætlað er að hans hótel rúmi um 150 til 200 ' herbergi. Af þessu má sjá að á næstu árum fjölgar herbergjum í fyrsta flokks hótelum um 270—320 og verða því um þúsund herbergi í þessum gæðaflokki á boðstólum. DÝRAR BYGGINGAR Hótelframkvæmdir eru mjög dýr- ar. Gera má ráð fyrir því að hvert hótelherbergi samsvari verði 2 her- bergja íbúðar. Ef þessi regla er not- uð, má reikna með að 120 herbergja hótel kosti um 360 milljónir, og 150—200 herbergja hótel á bilinu 450—600 milljónir. Tölurnar gefa auðvitað aðeins grófa hugmynd um hvaða fjármuni hér er um að ræða. Flest stóru hótelin hafa góða ráð- stefnuaðstöðu og búast má við því að eftir nokkur ár verði 6 hótel sem keppi um ráðstefnur og stóra fundi. Þetta verður að teljast nokkuð mik- ið framboð til að þjóna ekki stærri markaði. Ef harðnar á dalnum á hótelmarkaðnum er viðbúið að samkeppnin milli þeirra harðni, undirboð taki við og tekjur af er- lendum ferðamönnum minnki. I vetur var mikil samkeppni milli hótelanna og voru dæmi þess að verð á herbergjum færi niður í 500 krónur sem er langt fyrir neðan markaðsverð. Dæmin frá síðasta vetri segja hugsanlega til um hvað koma skal á næstu árum. í viðskiptalífinu þykir góð regla að fyrirtæki aðlagi sig að þeim mark- aði sem fyrir er. í auknum mæli hafa menn í ferðamannaþjónustunni vilj- að selja ísland sem dýrt ferða- mannaland, það er að segja að reyna að fá hingað ferðamenn sem eru tilbúnir til að borga fyrir góða þjónustu og skilja eftir miklar gjald- eyristekjur. Ef hægt verður að stækka þennan markað mikið er vissulega þörf fyrir aukið gistirými á fyrsta flokks hótelum. Engar kannanir hafa verið gerðar sem sýna að þetta sé þróunin næstu ár. Magnús Oddsson sagði að ekki væri hægt að halda áfram að byggja upp þjónustu og búast við því að mark- aðurinn lagi sig að framboðinu. AÐ LOKNUM LEIÐTOGA- FUNDI Eftir leiðtogafundinn á síðasta vetri fylltust menn bjartsýni um að ísland yrði nú mjög eftirsótt ferða- mannaland, en bjartsýnin má ekki vera raunsæinu yfirsterkari. í sam- 8 HELGARPÓSTURINN eftir Salvöru Nordal

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.