Alþýðublaðið - 19.01.1939, Síða 1
LISTINN- er
okkar listí i
Dagsbrðn
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XX. ÁRGANGUR
FIMTUDAGINN 19. JAN. 1939
15, TÖLUBLAÐ
B
LISTINN
hrindir hinni
kommúnist-
isku óst'jórn í
Dagsbrún
Dað er barizt um framtíð Dagsbrúnar.
Kommúnistf sk ústjérn í 1 ár enn þýð
ir fyrtrsjáanlega npplausn félagsins
------.....
Bjargið stærsta verkalýðsfélaginn á land-
Inn með pvi að kjósa D-Ustann!
—.---—— -------
T\ AGSBRÚNARKOSNINGARNAR standa aðeíns í dag og á
^ morgun. í kvöðd vertSur kosið tii kl. 10 og á morgun ki.
9 f. h. til kl. 10 að kvöldi. ð gær kusu aöeins 343 félagar, og
er það von kommúnista að andstæöingar þeirra veröi seinni
tilf svo að meirihluti þeirra veröi viss.
En ef andstæðingar þeirra, ef fylgismenn B-listans, þeir verkamenn, sem vilja binda
enda á það, að stærsta verkalýðsfélag landsins sé pólitískur vettvangur hinna komm-
únistiskú æsingamanna, mæta vel, þá er sigur B-listans viss. Ef B-Iistinn fær jafnmörg
atkvæði nú> og andstæðingar kommúnista fengu í haust, þá hafa kommúnistar tapað.
Það er því áríöandi, að hver DagsbrúnarmaÖur greiöi at-
kvæöi nú þegarf geymi það ekki til morguns, og krossi viö
B á báðum seðlunum.
Nokkrir af beatu starfsmönnum Dagsbrúnar hafa nú í dag sent Dagsbrúnarmönnum svo-
hljóðandi ávarp:
Félagi!
Okkur er kunnugt um, að kommúnistarnir, sem standa að A-listanum við stjórnarkosninguna
í Dagsbrún, hafa sent út rógbréf um B-listann, verkamannalistann, sem studdur er af Alþýðu-
flokknum, og um baráttu Alþýðuflokksmanna yfirleitt innan Dagsbrúnar á umliðnu ári.
Tilgangurinn með þessu rógbréfi kommúnistanna er vitanlega enginn annar en sá, að reyna
að fæla þig frá því að kjósa B-listann, því þeir vita, sem er, að sigri B-listinn, er yfirráðum
þeirra í Dagsbrún lokið og sundrungarstarfsemin, sem þeir byggja alla sína tilveru á, kveðin
niður í félaginu.
Þú veizt, hvernig ástandið hefir verið innan Dagsbrúnar þetta eina ár, sem kommúnistar
hafa farið þar með stjórn. Þeir hafa sóað sjóðum félagsins í pólitíska æsingafundi, pólitíska
blaðaútgáfu (Nýtt land) og pólitískar sendiferðir fyrir kommúnistaflokkinn út um land (Gvendur
Ó.) og haft tvo og þrjá starfsmenn á launum samtímis, auk hjálparmanna, við innheimtu fé-
lagSgjalda. Það hefir ekki gengið á öðru en brottrekstrum úr félaginu, sem hófust með brott-
rekstri Jóns Baldvinssonar í fyrra vetur og enduðu í haust með brottrekstri tveggja manna.
sem kosnir voru í fyrra við allsherjaratkvæðagreiðslu í stjórn félagsins, og nokkurra annara af
þektustu og beztu starfskröftum þess, af því að þeir reyndu að hamla upp á-móti óstjórn þeirra
og klofningsfyrirætlunum. Og Sigurð Guðmundsson ráku þeir frá störfum í félaginu til þess að
geta óáreittir ráðið yfir fjármunum félagsins flokki sínum til framdráttar. Fjölda Alþýðuflokks-
manna, sem.um mörg ár hafa verið félagsmenn, hafa þeir með lögleysum og ofbeldi svift félags-
réttindum til þess að tryggja sér sigur í atkvæðagreiðslum innan félagsins. Og að endingu hafa
þeir tekið höndum saman við íhaldið til þess að kljúfa Dagsbrún út úr heildarsamtökum verka-
lýðsins í landinu, Alþýðusambandi íslands, undir því yfirskini, að þeir ætluðu að stofna nýtt,
„óháð“ og ,,ópólitískt“ verkalýðssamband.
Árangurinn af þessari „ópólitísku“ starfsemi er nú orðinn sá, að Dagsbrún logar nú öll í
pólitískum illdeilum og kommúnistar og íhaldsmenn eru aftur komnir í hár saman og stilla nú
sínum listanum hvor.
Þessu ömurlega ástandi, 'sem kommúnistar hafa leitt yfir Dagsbrún, viljum við gera enda
á. Og við trúum ekki öðru en að þú sért okkur sammála um að brýn nauðsyn beri til þess, ef
félagið á ekki að verða lagt í rústir. Við skorum því á þig, að taka höndum saman við okkur
og aðra þá Dagsbrúnarmenn, sem sjá í hvert óefni er komið. Og með því einu, að sem allra
flestir fylki sér um B-listann og skapi honum sigur við stjórnarkosninguna, fæst þessu ófremd-
arástandi breytt.
Það er þýðingarlaust að kjósa íhaldslistann fyrir þá, sem vilja binda enda á óstjórn komm-
únista í félaginu. Til þess hefir hann alt of lítið fylgi. Og hverju atkvæði, sem hann fær, er á glæ
kastað-
Haldi kommúnistar áfram völdum í félaginu, þýðir það fyrirsjáanlega upplausn
þess á örstuttum tíma og stórtjón fyrir verkalýðssamtökin í landinu í heild sinni.
Sigur B-listans, verkamannalistans, sem studdur er af Alþýðuflokknum, er því eina leiðin
til þess að bjarga Dagsbrún og skapa aftur frið, festu og fyrirhyggju í starfsemi hennar.
Við treystum því að þú mætir á kjörstað, í Hafnarstræti 21, og greiðir atkvæði bæði stjórn
og trúnaðarráði B-listans. - V- ^ !
Stefán Sigurðsson. Sig. Guðmundsson, Freyjugötu 10. Felix Guðmundsson. Þórður Gíslason.
Sigurbjörn Maríusson. Haraldur Guðmundsson. Ólafur Friðriksson. Ágúst Jósefsson.
Kjartan Ólafsson. Jón Arason. Ásgrímur Gíslason. Jón S. Jónsson.
Felix Guchmmdsson
flytto’ ©rfmidi' í últvtarpjilö í (da|g
kl. 8,15 é. h. iU'm sijúknasaimlög.
ísfisksiala.
Gyllir (siel-di í Hiull í gær 2062
væit'ir fyrír 928 iStfM-
AðtaManzleik
hidlidtajr Kvemnadeild Siysavarn-
aféliaigsi Isfanidis í OddMlowhús-
inlu anniaíð kvölid kl. 10 síödegis.
Danzmærin Bána Siguirjóinsldiótt-
ir skemtlr.
Chamberlain og Daladier neita
að hjálpa Eareelonastjórninni.
-- » -—
Verðnr Daladier steypt al fulltrda*
deild Vranska pjéðpingsins f dag?
Chamberlain og Daladier, mennirnir, sem í dag ráða stefn-
unni á Englandi og Frakklandi. — Myndip var tekin þegar
Chamberlain kom til Parísar L haust.
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun.
T-nAÐ er nú víst, að hvorki enska né franska stjórnin vill
breyta um afstöðu til borgarastyrjaldarinnar á Spáni
af ótta við það, að ekki aðeins bein íhlutun í því skyni að
hjálpa Barcelonastjórninni, heldur meira að segja afnám
vopnasölubannsins til Spánar, myndi leiða til Evrópu-
styrjaldar.
Það er kunnugt, að Ítalía hefir undanfarna daga dreg-
ið saman mikið lið í Libyu, ítölsku nýlendunni á norður-
strönd Afríku, við landamæri Tunis, og ítölsk blöð hóta
aídráttarlaust stríði, ef Frakkland geri nokkra tilraun til
þess að styðja Barcelonastjórnina.
Viðsjárnar milli Frakklands og Ítalíu hafa farið stór-
kostlega vaxandi við viðburði þessara síðustu daga. Franski
flotinn, sem nú er að mestu leyti saman kominnn í Mið-
jarðarhafi, hefir fengið skipun um að safnast saman við
norðurströnd Afríku, í orði kveðnu til þess að æfa sig, en
raunverulega til þess að svara liðsafnaði Ítalíu við landa-
mæri Tunis.
Chamberlain neitar að kalla
enska þingið saman á fund.
Hljóinsvieit Reykjaivikiur
sýn'ir Meyjasfeemimiuna annaö
fevöld M. 8V2.
Dnottiningln
fóir frá FæneyjlUim í gærkvöMi
áloiöis til Kaupmaapiahafnar.
Kröfur verkalýðsflokkarma
og frjálslyndu flokkaima á
Englandi og Frakklandi um
stuðning við Barcelonastjórn
ina og að minsta kosti áfnám
vopnasölubannsins til Spánar
eru stöðugt að verða háværari.
Attlee, leiðtogi enska AI-
þýðuflokksins á þingi, skrifáði
Chamberlain í gærmorgun bréf
í nafni flokks síns, þar sem
hann krafðist þess, að enska
þingið yrði kallað saman tafar-
laust til þess að ræða og taka
ákvörðun um afstöðu Englands
til síðustu viðburðanna á Spáni.
Attlee segir í bréfinu, að þjóð-
arheiður og þjóðarhagsmunir
Breta séu í veði, ef lialdið sé
áfram að neita spænsku stjórn-
inni um réttinn til þess að
kaupa og flytja inn vopn sér til
varnar gegn uppreisnarmönn-
um og hinum erlenda hjálpar-
her þeirra.
Chamberlain svaraði þessu
bréfi að afloknum ráðuneytis-
fundi í London í gær og neit-
aði að verða við kröfu Alþýðu-
flokksins um að kalla þingið
saman að svo stöddu. Hann
færði þá ástæðu fyrir því í
svari sínu, að Englaud væri
bundið af hlutleysissamningn-
um og myndi fylgja hlutleysis-
stefmmni gagnvart borgara?
styrjöldinni á Spáni eftir sem
áður, enda myndi afnám vopna-
sölubannsins til Spánar fyrir-
sjáanlega hafa hinar alvarleg-
ustu afleiðingar í för með sér
og að öllum likindum verða til
þess, að styrjöldin á Spáui
breiddist út um alla Evrópu.
Hvað gerir fransks
Btnglð ?
í París var einnig haidmn
ráðimeytisfundur í. gær til þess
að taka afstöðu til síðustu við-
burðanna á Spáni og kröfunnar
um stuðning við Barceloua-
stjórnina.
Það er fullyrt, að stjórnin
hafi ákveðið fyrir sitt leyti að
halda fast við hina svokölluðu
hlutleysispólitík og leyfa enga
yopnasajlu frekar en áður til
Spánar. En þar sem umræður
standa yfir um utanríkismálin í
fulltrúadeild franska þingsius,
er búizt við að utanríkismála-
ráðherrann Bonnet, muni gera
grein fyrir afstöðu stjórnarinn-
ar í fulltrúadeildinni í dag, og
Daladier forsætisráðherra síð-
an fara fram á traustsyfirlýs-
ingu þingsins. Og það er talið
mjög vafasamt, hvernig sú
atkvæðagreiðsla kunni að fara,
(Frh. á 4. síðu-)
ALÞÝÐUBLADIÐ
Neðanmálsgreinin í dag.
Jón Gunnarsson.
Jón Gunnarsson skrifar neð-
anmálsgreinina í Alþýðublaðið
í dag um gufubaðstofur. Gerir
hann grein fyrir ýmis konar
gufubaðstofum og skýrir frá
reynslu sinni í þeim efnum.