Alþýðublaðið - 06.02.1939, Qupperneq 1
Happdreettisumboðið í Al-
þýðuhúsinu.
Gengið inn frá Hverfis-
götu.
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XX. ÁRGANGUR
MÁNUDAG 6. FEBR. 1939
30. TÖLUBLAÐ
HAPPDRÆTTISUM-
BOÐIÐ:
ALÞÝÐUHÚ SINU.
Gengið inn fré Hverfis-
götu.
Sýníngarskálinn að utan, vallarmegin.
Islandsdeíldin á heímssýn-
ingunni i New York i vor.
Skýrsla sýningar
ráðsins um und-
irMnmghennar.
SÝNINGARRÁÐ íslands-
deildarinnar á heims-
sýningunni í New York kall-
aði blaðamenn á fund sinn í
dag og skýrði þeim frá fyr-
irhuguðu fyrirkomulagi ís-
landsdeildarinnar.
Fer útdráttur úr skýrslu sýn-
ingarráðsins hér á eftir:
Skálinn er sambyggður við
hús 4 annara ríkja, og er að
stœrð um 31 m. á lengd, 15. m.
á breidd, og hæðin er 21 m.
Önnur hliðin snýr að Friðarvell
inum, en hin að hringbraut sýn-
ingarinnar, sem er mjög breið
gata, sett trjám. Það má segja,
að inngangurinn í skálann sé
jafngóður frá báðum götum-
Vallarmegin er Leifsstyttan
framan á skálanum, Hefir verið
gerð sérstök útbygging á skál-
ann, sem skagar um 3 m. fram,
og fyrir framan hana stendur
styttan á stalli og er því mjög
áberandi úr fjarska, enda er
styttan og fótstallurinn jafn
stórt og líkneskið hér. Höfum
vér einir fengið þau sérstöku
hlunnindi að hafa svo stóra og
aberandi styttu framan á skála
vorum. Útbyggingin nær 3Vá
pa. upp fyrir þak, og mun þar
íslenzki fáninn gnæfa við him-
iri. Sennilega verður sýningar-
merki íslands, sem er skjöldur,
er sýnir sigfingaleið Leifs og
hnattstöðu Islands, haft yfir
styttunni.
Hinum megin við innganng-
inn er stór veggflötur- Á miðj-
um reitnum er komið fyrir upþ-
Wfyptp korti §f íslandi. físpgrii
megín, í efra horninu, er
skjaldarmerki íslands, í neðra
horninu til vinstri víkingaskip,
hvorttveggja upphleypt, pg
verða þessar myndi.r allav íuáh
aðar í litunt.
Yfir dyrunum er sylla, og of-
an á henni stendur Iceland með
stórum stöfum.
Fyrir framan þina Wiðma,
sem snýr að Hringbraut, er lík-
neski Þorfinns Karlsefnis. Ér
þetta afsteypa úr brpnze af
myndinni, sem hér §r á listaa
safninu. Upphaflega er mynd
þessi gerð fýrir Philadelphia, og
er þetta samskonar mynd og
þar er. Efst á þakbrúninni er
einnig nafnið Iceland með stór-
um stöfum.
Að innan er skálanum þann
veg fyrir komið, að svalir ganga
fram eftir endilöngum salnum
og fram um miðjan skálann í
um 9 m, hæð.
Þegar inn er komið, vallar-
megin, verður fyrst fyrir gest-
inum upplýsingaskriístofa, sem
stendur í sambandi við skrif-
stofu skálans, sem er þar fyrir
innan. Þegar litið er til vinstri,
blasir við heill veggur- Verður
gestinum fyrst starsýnt á kort
eitt mikið, sem er 8 m. breitt
og 8 m. á hæð og sýnir hnatt-
stöðu íslands og siglingaleiðina
milli íslands og Vínlands. Enn-
fremur sýnir önnur lith'na flug-
leið Lindberghs frá Ameríku til
íslands.
Kortið takmarkast beggja
megin af útbygingu, og er ann-
ars vegar að neðan fyrir komið
innibyggðri bogamynd, er sýn-
Sýningarskálinn að innan.
ir Leif taka land vestan hafs,
víkingaskip hans og föruneyti-
Hinum megin í sömu haeð er
jafnstór bogarpynd af lendingu
Lindberghs við Reykjavík. —
Fyrir ofan þessar myndir báð-
um megin eru innbyggð tjöld
fyrir kvikmyndasýningar. Verð
ur þar daglega sýnd íslands-
kvikmynd.
Gegnt þea$um vegg eru tveir
stórir bogamyndaðir sýningar-
básar. í öðrum þeirra er sýndur
sjávarútvegurinn, en í hinum
landbúnaðurinn. Sjávarútvegs-
sýningunni verður þannig fyrir
komið, að í sýningarbásnum eru
5 bogadregnar myndir. Stærsta
myndin, í miðjum básnum, sýn-
ir skip að veiðum við austur-
strönd íslands, og eru þar bæði
togarar og mótorbátar, en í
fjarska blasir landið við með
fjöllum og jöklum,
Hafflöturinn er táknaður með
glerjum og vatni á milli, og
undir haffletinum sjást veiðar-
færi skipanna, hafsbotninn og
lífið í sjónum.
Næst þessari mynd verður
öðrum megin mynd af síldveið
um og síldariðnaði, en hinum
megin verður sýnd meðferð og
verkun þorskins.
I landbúnaðarbásnum er fyr-
ir miðju stór bogamynd, er
sýnir íslenzkt landslag til
sveita. Á myndinni er stór f jár-
hópur að renna fram dal, og í
horni myndarinnar sést ís-
lenzkur sveitabær. Fremst á
myndinni er komið fyrir þrem
kindum, er valdar voru norðan
úr Þingeyjarsýslu sl. haust —
fluttar út og stoppaðar erlend-
is.
Sitt hvorum megin við þessa
mynd eru tvær bogamyndir.
Önnur sýnir nýtízku mjólkur-
bú, nokkuð í framtíðarljósi, en
hinum megin er sýnd notkun
jarðhita til blóma- og grænmet-
isræktar, með gróðri og hús-
um. Yzt í básnum til beggja
handa eru bogamyndir, öðrum
megin mynd af Hvanneyri, og
er þar sýnd kúahjörð og hey-
annir með nýtízku tækjum. —
Hinum megin er sýndur dalur
og fjöll með stóðrekstri og ríð-
andi mönnum.
í báðum þiesis.um básum vierður
fyrir komið alimiklu af ljósmynd-
lim,
Á þiestetuin sama vtegg er bogd-
dnegmin veggur. Á þiestsum vegg
vierSiur Istlaud sýni siem ferða-
mannatend- Fynir miðjum veggn-
Utm er stórt kort af Isilantdi, og
pru á það teiknuð ýms merki-
leg ná'ttúmfyrirbæri. Kort þietta
er því lekki venjutliegt laindabréf,
huldur eru sjálf náttúmifyriiifbæriin
máluð á kortið, svo siean vatns<-
Frh. á 4. síðu-
Sprengjiiárásir fyrirhugað-
ar á konungshðllina í London
---».—.
Upplýsingar, sem vekja mikinn óhug á Englandi
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins
KHÖFN í morgun.
C PRENGJUÁRÁSIRNAR
á opinberar byggingar
á Englandi vekja vaxandi ó-
hug meðal manna um alt
landið, og það er búist við,
að ný og ennþá alvarlegri
hermdarverk en hingað til
séu í aðsigi.
Þannig hefir lögreglan
komist á snoðir um það, að
illræðismennirnir hafi í
hyggju að gera sprengjuá-
rásir bæði á konungshöllina
í London, Buckingham Pa-
lace, og Windsorkastalann.
Það hefir af þessum ástæð-
um verið settur öflugur lög-
reglu- og hermannavörður
við báðar þessar byggingar;
einnig við þinghöllina í
London.
Afhjúpim þessara síðustu
fyrirætlana sprengjumannanna
hefir vakið mikinn kvíða í
London, Það þykir augljóst, að
sjálf konuiigsfjöliskyldan, ráð-
herrarnir og þingmennirnir séu
ekki lengur óhultir fyrir þess-
um dularfullu sprengjuárásum-
Það hefir þrátt fyrir allar til-
raunir leynilögreglunnar og
fjölda margar handtökur ekki
ennþá tekist að hafa upp á ill-
ræðismönnunum, en við rann-
sókn á sprengjunmn, sem not-
aðar hafa verið, hefir það kom-
ið í Ijós, að það eru sprengjur,
sem stolið hefir verið í enskum
skotfæraverksmiðjum.
Hðtunarbréf frð Irska
lýðveldishernum?
— i#'' 1
Það hefir nú einnig verið
upplýst. að Halifax lávarður,
utanríkismálaráðherra Breta,
hafi þ. 13. janúar síðastliðinn
fengið bréf, undirritað af írska
lýðveldishernum, leynifélags-
skap hinn æstustu sjálfstæðis-
manna á írlandi, þess efnis, að
enska stjórnin mætti gera ráð
fyrir óvæntum og alvarlegum
atburðum, ef hún hefði ekki
kallað alla enska hermenn
heim frá írlandi innan ákveðins
tíma. En þegar hinn tiltekni
tími var liðinn hófust
spreng j uárásimar.
Margir vilja túlka þetta bréf
þannig, að það sé írski lýðveldis-
herinn, sem stendur að baki
sprengjuárásunum, en aðrir
benda á það, að bréfið geti ver-
ið fölsun, og skrifað aðeins í
þeim tilgangi að leiða gruninn
frá þeim, sem raunverulega séu
sekir. Það er ekki talið óhugs-
andi, að það séu raunverulega
nazistar, sem standa að illræð
isverkunum, og þau séu jafn-
vel framin að undirlagi er-
lendra ríkja-
50 krónurnar
í happdrættinu á danzleik
skemtiklúbbsins Carioca hlaut
Aðalbjörg Jóhannsdóttir, Þver-
vegi 6, Skerjafirði.
Þorvaldur Brynjólfsson.
þurfi að reyna stjórn þeirra,
svo að þeim verði ljós afleið-
jlngin af starfsemi þeirra.
Kommúnistar tapa Fé-
lagi lárniðnaðarmanna
Af 116 löglegum félögum mættu
103 féiagar á aðalfundlnum.
------------» —
Kommúnistablaðið hellir svívirðingum
yfir formanninn, Þorvald Brynjólfssone
Tl OMMÚNISTAR biðu
algeran ósigur við
stjórnarkosningu, sem fram
fró í Félagi járniðnaðar-
manna í gær. Var aðalfund-
ur félgsins haldinn í baðstofu
iðnaðarmanna og hófst kl. 2.
Mun það vera fátítt, að svo
geysileg fundarsókn hafi verið
í nokkru félagi og var á þessum
fundi. Af 116 hugsanlegum,
löglegum félögum, mættu 103.
vitað var um 4 veika félaga og
5 úti á sjó-
í formannssæti voru tveir
menn í kjöri, Alþýðuflokksmað-
urinn Þorvaldur Brynjólfsson
og kommúnistinn Ingólfur Ein-
arsson. Var Þorvaldur kosinn
með 52 atkvæðum, en Ingólfur
Einarsson fékk 48. í ritarasæti
var kosinn Ingólfur Einarsson,
fjármálaritari Sveinn Ólafsson.
Varaformaður Sigurjón Jóns-
son og vararitari Theódór Guð-
mundsson.
í dag er blað kommúnista
sárreitt yfir þessum úrslitum
og lætur fjúka mikið af ill-
yrðum í garð Þorvaldar Brynj-
ólfssonar. Reynir blaðið að
draga þá, sem kosnir eru, í póli-
tíska dilka, eins og hér væri
um algerlega pólitískt félag að
ræða, Skilgreining þess á póli-
tískum skoðunum þeirra, sem
kosnir voru í stjórn félagsins er
alröng, en það skifti ekki miklu
máli. Aðalatriðið er það, að Fé-
lag járniðnaðarmanna er ekki
lengur pólitískt verkfæri
kommúnista, eins og það var
oft áður til óbætanlegs tjóns
fyrir jámiðnaðarmenn- Þeim
ósönnu sögum og illyrðum, sem
blað kommúnista birtir í dag
um Þorvald Brynjólfsson og á-
reiðanlega eru höfð eftir Ing-
ólfi Einarssyni, sem virðist á-
líta það aðalatriði, að kommún
istastimpillinn sé á stéttarfélags
skap járniðnaðarmanna, mun
Þorvaldur Brynjólfsson svara
hér í blaðinu einhvern næstu
daga.
Með stjórnarkosningunni nú
í járniðnaðarmannafélaginu, —
kemur sama reynslan í ljós
sem gengið hefir eins og rauður
þráður gegn um hinar komm-
únistisku sögu verkalýðshreyf-
ingarinnar — og er sjálfsagt að
benda á það. Þegar kommúnist-
ar hafa náð tökum á félagsskap
og hafa stjórnað honum í nokk-
ur ár, missa þeir tökin á honum,
en það er eins og hvert félag
Nazistarnir í Stokk-
hóLni afhjúpaðir
sem margfaldir inn-
brotspjöfar.
Olæpamannasaiutðh, en
ekki pólitiskur flokkur,
segir Iöpegian.
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins
KHÖFN í morgun.
VIÐ rannsókn innbrotsins,
sem sænskir nazistar
frömdu hjá róttæka mennta-
mannafélaginu Clarté í Stokk-
hólmi, hefir það nú verið upp-
lýst, að innbrotsþjófunum muni
hafa tekist að koma einhverju
af þeim skjölmn, sem þeir
stálu, undan og að öllum lík-
indum sent þau til Þýzkalands-
Það hefir sannast, að einn
nazistanna ferðaðist rétt eftir
innbrotið, frá Stokkhólmi til
Kaupmannahafnar og þaðan til
Hamborgar, og er álitið, að
hann muni hafa haft skjölin
meðferðis.
Rannsóknin hefir ennfremur
leitt í ljós, að nazistarnir, sem
stóðu að innbrotinu hjá Clarté,
hafa framið mörg önnur innbrot
og gert sig seka um þjófnað í
mörgum tilfellum, sem hingað
til hafði ekki tekist að upp-
lýsa.
Lögreglan lætur svo um
Frh. á 4. síðu-