Alþýðublaðið - 15.02.1939, Page 1
KVENFÉLAG
ALÞÝÐUFLOKKSINS:
Aðalfundur annað kvöld
í Alþýðuhúsinu.
ALÞÝÐUFLOKKS-
KONUR!
Sækið aðalfundinn
annað kvöld
í Alþýðuhúsinu!
XX. ÁRGANGUR
MIÐVIKUDAG 15. FEBR. 1939
37. TÖLUBLAÐ
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
Verkamannafélag! lafnarfjarðar stefsað
með á nriðja hundrað meðlimnm fir fllif.
' r ! —....■^J^rrTnTii ..■——mtf «->
Margir fleiri verkamenn, sem ekki gátu mætt
á stofnfundinum munu einnig verða stofnendur.
——■ ■ —
Stjóra Hlffar á siðasta ðri endurkosin
stjóra bins nýja félags verkamanna.
Þórður Þórðarson,
Alþingi var sett kl.
1 f dag.
ALÞINGI var sett kl. 1 í dag.
Hófst þaS meS guSsþjón-
ustu í dómkirkjunni, eins og
venja er til, og predikaSi Sigur-
geir Sigurðsson biskup.
Höfinin:
Balldur og Tryggvi komu frá
Englaindi í gær, Ijýskur togtari
kotn í gær til viðgerðar. tvteir
enskir to^rar komu í gær, aun-
ar til þess að taika fiskilóðs.hinn
til vi'ðgerða'r. *■
VERKAMANNAFÉLAG HAFNARFJARÐAR var stofn-
að í gærkveldi af á 3. hundrað meðlimum úr verka-
mannafélaginu Hlíf. Var undirbúningur hafinn að stofnun
þessa félags laust eftir miðjan dag í gær, og voru undir-
tektir þegar í stað svo góðar, sem raun bar vitni.
Víst er> að margir félagar, sem ekki gátu mætt á stofn-
fundinum í gærkveldi. eru þess albúnir að taka þátt í
stofnun félagsins, svo að þegar framhaldsstofnfundurinn
verður haldinn, einhvern næsta dag, verði stofnendur orðnir
allmiklu fleiri.
Þessi stóri höpur hafnfirzkra
verkamanna er kjaminn úr
Hlíf, svo að scgja allir stofn-
endur félgsins, sem á lífi eru,
alljir jnenn, sem hafa gtegnt
trúnaðarstörfum fyrir félagið
fram á síðustu tíma og allir
duglegustu og þroskuðustu
verkamennirnir.
Það kom í Ijós í gærkveldi á
hinum myndarlega stofnfundi
Verkamannafélags Hafnarfjarð-
ar, að bæði kommúnistar og
ekki síður íhaldsmenn hafa all-
mjög tapað fylgi á samvinnu
þessara flokka, og á það þó eft-
ir að koma betur í ljós.
Verkamennirnir fylkja liði.
Löngu áður en fundurinn í
gærkveldi átti að hefjast, en
hann var haldinn í Bæjarþings-
salnum, fóru verkamenn að
streyma á fundarstaðinn og kl.
8Vi var húsið orðið troðfult út
úr dyrum- Það var auðséð á
verkamönnunum, að þeir vissu
hvað þeir vildu og að þeir ætl-
uðu sér að svara hnefahöggi
kommúnista á viðeigandi hátt.
AðalMor verkakvenna-
félagsins Framsókn i gærkv.
Stjórnin var öll endurkosin með 138-
141 atkv.Kommúnistar fengu 18-21 atkv.
AÐALFUNDUR Verka-
kvennafélagsins Fram-
sóltn var haldinn í gærkveldi.
Var fundurinn vel sóttur af fé-
lagskonum.
Auk ýmsra félagsmála, sem
rædd voru, fór fram kosning á
stjórn fyrir félagið.
Formaður var endurkosinn,
Jóhanna Egilsdóttir með 138 at-
kvæðum. Frambjóðandi komm-
únista, Kati-ín Pálsdóttir, fékk
aðeins 21 atkvæði.
Varaformaður var kosin
Jóna Guðjónsdóttir.
Ritari Hólmfríður Ingjalds-
dóttir.
Fjármálarit. Sigríður Hann-
esdóttir.
Kommúnistar höfðu haft
mikinn viðbúnað undir þennan
fund, en útkoman varð ekki
glæsilegri en þetta. Við kosn-
Jóhanna Egilsdóttir.
ingarnar á aðalfundinum í fyrra
fengu kommúnistar 34 atkvæði.
Með þessari kosningu hafa
verkakonurnar gefið klofnings-
mönnum hæfilegt svar.
Emil Jónsson setti fundinn
og kvaddi til fundarstjóra
Björn Jóhannesson, en fundar-
ritara Guðmund Gissurarson.
Síðan hóf Emil Jónsson um-
ræður. Hann lýsti ástæðunum
fyrir því, að til fundarins væri
boðað. „Ég var ekki ráðinn í
því, hvernig svara skyldi of-
beldisverkum kommúnista fyrst
í stað, en þegar ég heyrði kröf-
ur ykkar verkamannanna, sá ég
að það var ekki nema eitt að
gera. Það varð að skapa hafn-
firzkum verkalýð nýtt vígi.
Hlíf er horfin og fallin, orðin
einskis nýt og til skaða. Það er
ekki sársaukalaust fyrir verka-
menn að sjá þannig komið fyrir
félagsskapnum, en við því er
ekkert að gera annað en að
hefjast handa að nýju.“
Kjartan Ólafsson talaði um
ástæðurnar fyrir burtrekstrin-
um og sýndi fram á hve fráleit-
ar þær væru. „Samkvæmt
þessu ætti að reka t. d. þá sjó-
menn úr sjómannafélögunum,
sem leggja hlut í báta o. s. frv.“
Hann sýndi fram á það, að
þetta félag væri stofnað undir
betri kringumstæðum en flest
önnur verkalýðsfélög. Þetta fé-
lag erfir alt það bezta úr Hlíf,
en alt hið versta og skaðlega
verður eftir. Hann minti á það.
að kommúnistar hefðu verið að
halda afmælishátíð á sunnudag-
inn. Sama sunnudag í fyrra of-
sóttu þeir Jón Baldvinsson, eins
og illfrægt er orðið.
Bjöm Jóhannesson kvað kom
múnistana og íhaldsmennina,
sem nú starfa saman að skemd-
arstarfi í bæjarfélaginu, hafa
fengið vitlausa útkomu í reikn-
ingum sínum. „Við svörum fast
og ákveðið og það er þegar ó-
þarfi að spyrja um leikslokin.
Þau eru fyrirsjáanleg. Þetta fé-
lag okkar er þegar orðið öflugra
en Hlíf. Það er nú strax orðið
hið ráðandi félag og á eftir að
verða enn öflugra- Á þessum
fundi hafa ekki getað mætt all-
ir þeir verkamenn, sem hafa
tekið afstöðu gegn spillingar-
starfi kommúnista og þess
hluta íhaldsins, sem styður þá.“
Gunniaugur Kristmundsson:
„Það er ekki sársaukalaust að
sjá merkið falla í hendur óvin-
anna, en það væri sárara ef við
værum ekki menn til að halda
uppi hugsjónum okkar og láta
troða á þeim. Við tökum merkið
upp að nýju og höldum barátt-
unni áfram þar til sigur er
unninn.“
Félagið stofnað.
Nokkrir fleiri tóku til máls
Frh. á 4. síðu.
Flett ofan af landráðum
og fyrirhugnðnm glæp»
um nazlsta f Stokkhólml
-—-■■ -■»■ - -———
Njósnir í þágu Þýzkalands, innbrot,
þjófnaðir og sprengjuárásir á alþýðuhús.
Per Albin Hansson, forsætisráðherra sænsku Alþýðuflokks- og
Bændaflokksstjórnarinnar, sem með sinni gætnu en framsýnu
umbótapólitík hefir gert Svíþjóð að fyrirmynd lýðræðisins um all-
an heim. En nazistar virðast eiga erfitt með að sætta sig við það.
Danðadðmar Francos
bjrrjaðír i Barcelona.
-—---«------
Dómsstjórinn í Iierrétti lýðveldisstjórn
arinnar var dæmdur lil dauða í gær.
-— -o-— --- •
LONDON í toorguu. FO.
PPREISNARMENN á
Spáni hafa sett á laggirn-
ar herrétt í Barcelona, og hefir
fjöldi manns verið dreginn fyr-
ir hanu.
í gær var dæmdur til daúða
Senor Barrio. sem verið hefir
dómstjóri herréttar stjórnar-
innar þar í borginni. Var hon-
um gefið að sök að hafa sent
marga saklausa menn í dauð-
ann,
ChamberJain forsætisráBlierra
Iofaði me’ðri mákitofu briezka
þingsias því í gær, að þing'iiniu
síkyldi vierða skýrt frá því við
fyrsta tækifæri, ef stjórnin kæm-
isit að' nokkurri niðurstöð'u um
það, hvort viðupkeuna skyldi
sitjórn Franoos, og að hainn
myndi láta umræðu fara fitaim
um málið, ef þingið ósikaði þiess.
Sendiherra Brieta í Pariis fóff í
gær á fund Boinmeí'S utanríkis-
málaráðherra, og er talið fulk
víist, að þeir hafi rætt uan Spán-
annálin.
Pöllanð oi HoIIand yfir-
vega að vlðurkenna
Franeo.
Búi'S't er við, að Pólland viður-
klenini stjórn Franoos innan eins
eða tvieggja dqgta, og sömluleiðis
er sagt, að stjórn Hollaaids sé að
íhuga málið. Utanríkismájarað-
hierra Hollands er nú staiddur í
London og hiefir átt viðtal við
Halifax lávarð.
Hannes ráðherra
að detta í M.
EF sjór gengur niður í dag
verður ef til vill hægt að
komast að togaranum Hannesi
ráðherra seinni partinn í dag og
ná úr honum því, sem fémætt
er, en eins og á stóð um hádeg-
ið, þegar Alþýðublaðið átti tal
við Ólaf í Brautarholti, var ó-
mögulegt að komast að skipinu.
Ölafur í Brautiarholti fór út í
Mú ar.e.vk'eUn um lágsævi i trnorg-
un, kl. 9 og voru þá aðeius 50
nxtrar milli hans og skiþsins.
Sagði hann að fnamhliutinn virt-
ist vera að gliðna í sundur, en
afturhlutinn héldi sér betur.
Sagði hann, að sér virtist sem
ekki þyrfti nema ofurlítið britoi
til þess áð skipið dyttí alveg í
tvent.
Skipið hallast á stjórnborðu
um lágsævi, en þegar flæðir
(Frh. á 4. síðu.)
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins
KHÖFN í morgun.
LÖGREGLAN í Stokk-
hólmi hefir nú við
rannsóknina á innbrotsþjófn
aði nazista hjá félagi rót-
tækra mentamanna, ,Clarté‘,
þar í borginni flett ofan af
víðtæku samsæri sænsku
nazistanna með njósnir fyrir
erlent ríki, innbrot og stór-
kostleg hermdarverk fyrir
augum.
Það er talið, að það sé
handtöku nazistanna, sem
stóðu að innbrotsþjófnaðin-
um hjá „CIarté“, einni að
þakka, að þessar fýrirætlanir
komu ekki til framkvæmda.
Leyoiskjalið, sem afhjfip-
aði samsætfð.
Við rannsókn lögreglunnar á
innbrotsþjófnaði nazistanna hjó
„Clarté“, komst hún yfir leyni*
legt skjal, sem hafði inni að
halda nákvæmar upplýsingar
um fyrirætlanir þeirra.
Samkvæmt þessu skjali
höfðu sænsku nazistarnir feng-
ið fyrirskipanir um það frá
Þýzkalandi, að reka stórfeldar
njósnir um víggirðingar Stokk-
hóhnshorgar, taka myndir af
þeim og kortleggja þær.
Þá höfðu þeir og gert áætlun
um innbrot og skjalaþjófnað
hjá landssambandi sænsku
verkalýðsfélaganna í Stokk-
hólmi, en að því húnu var ætl-
unin að gera stórkostlegar
sprengjuárásir á flestöll al-
þýðuhús — samkomuhús
verkalýðsfélaganna og Alþýðu-
flokksins — í Svíþjóð með það
fyrir augum að eyðileggja þau.
Þá hafði leyniskjalið og inni
að halda áætlun um innbrot hjá
hinni svonefndu „Rauðu hjálp“
kommúnista í Stokkhólmi, og í
samkunduhús Gyðinga þar í
borginni, og virðist tilgangur-
inn með innbrotinu í hið síðar-
nefnda hafa átt að vera sá, að
fremja helgispjöll og önnur
hermdarverk í guðshúsi Gyð-
inga.
Amerísfcar glæpamanoa-
aðferðir.
Að endingu ber leyniskjal
sænsku nazistanna það með sér,
að þeir höfðu fyrirhugað, að
ráðast á Wallenberg banka-
stjóra í Stockholms Enskilda
Bank, hafa hann á brott með
sér og neyða hann til þess að
leysa sig út með stórkostlegum
fjárútlátum. Þannig virðist
hafa átt að standast fjárhags-
(Frh. á 4. síðu.)