Haukur - 30.05.1900, Page 9

Haukur - 30.05.1900, Page 9
III. 4—6. HAUKUR. 21 Saint Alba gat el^ki varizt bálfgerðum hrolli, og andlit hans varð enn þá, gulara, en það hafði verið. En hann náði sjer fljótJega aftur, og varð stilltur og rólegur, eins og ekkert væri um að vera. »Hafið þjer skipun til að taka mig fastan?« spurði hann og glotti hæðnislega. »Ef þetta er sagt í gamni, þá verð jeg að segja, að það er vægast sagt grátt gaman, og þjer megið reiða yður á það, að jeg læt yður ekki hafa mig fyrir leiksopp«. »Það sje fjarri mjer, að gera að gamni mínu«, svaraði Brusel, — því að þetta var hann —. »Hjerna er sem sagt varðhaldsúrskurðurinn, og þjer getið sjálfur gengið úr skugga um það, hvort hann muni vera falsaður. Annars verð jeg að biðja yður að hafa gát á því, hvað þjer segið, því að það verður allt bókað og notað i málinu gegn yður. Herra yflrlög- regluþjónn, þjer gerið svo vel, að gera skyldu yðar, ef þess gerist þörf!« Yflrlögregluþjónninn gaf sig fram, og nam staðar beint frammi fyrir Saint Alba. Saint Alba kipptist við, varð náfölur í framan og tautaði í hálfum hljóðum: »Power læknir«. En einnig nú var hann fljótur að ná sjer aftur^ og mælti: »Mjer er ómögulegt að botaa í því, hvað þetta á að þýða. Viljið þjer ekki gera svo vel, læknir góð- ur, að segja ,mjer hvernig í þessu liggur?« »Jeg er ekki læknir lengur. Jeg er yflrmaður í lögregluliðinu á Jörfa«. »Nú og þjer segizt vera kominn til að taka mig fastan, vegna þess að jeg sje grunaður um —- hvað var það nú aftur, sem þjer sögðuð?« mælti Saint Alba, og sneri sjer að Brusel. »Grunaður um, að hafa myrt kvennmann, er hjet Madeleine Faure, nóttina milli þess 24. og 25. þ. m«. »Þakka yður fyrir. Það er svo gaman, að vita falla grein á hverju sem er. Og þjer, læknir, lög- regluþjónn, eða hvað þjer nú eruð, hvað hafið þjer í hyggju að gera við mig?« Saint Alba tók þessum boðskap með slíkri rósemi og tiiflnningarleysi, að Brusel fór að verða hálf-óþolin- móður. »Við verðum að biðja yður að koma með okkur á lögreglustöðvamar. Vagninn bíður hjer fyrir utan dyrnar, og þjer viljið sjálfsagt helzt, að þetta gangi allt svo fljótt og friðsamlega, sem hægt er«. »Þjer þurfið alls ekki að taka neitt tillit til þess, hvað- jeg vil«, mælti Saint Alba með fyrirlitningar- svip, »því að jeg er mjög hræddur um, að þið sjeuð ver komnir, að þvi er þetta mál snertir, heldur en jeg. En með því að varðhaldsúrskurðurinn virðist Vera i góðri reglu, ætla jeg auðvitað að hlýða lögun- ám, og fara með ykkur. Viljið þið ekki senda eftir yfirhöfninni minni og hattinum mínum? Jeg ímynda tnjer, að þið haflð ekkert á móti því, að jeg skrifl honunni minni nokkur orð um þetta æfintýri okkar«. Þjónn var þegar sendur eftir yfirhöfn og hatti Saint Albas. »Jeg ímynda mjer«, mælti Saint Alba, og sneri ®jer að Robert Power, »að jeg eigi þessa vingjarnlegu heimsókn yður að þakka. Það er leiðinlegt, að at- v'k, sem engan veginn getur haft þægilegar afleið- ingar fyrir yður, skyldi verða til þess, að endurnýja kunningsskap okkar«. Power svaraði engu. Honum blátt áfram. ofbauð þessi dæmalausa geðstjórn og stilling. Ep þeir Brusel og hann höfðu ekki heldur langan tíma til íhugunar, því að nú kom kvennmaður hlaupandi og fleygði sjer i fangið á Saint Alba. Það var ljoshærð kona, föl í andliti, og leit út fyrir að vera rúmlega þrítug. Hún faðmaði Saint Alba að sjer og mælti kjökrandi: »Charles! Charles! Hvað gengur á?« Power varð svo forviða, er hann sá hana, að hann gat ekki varizt þess að segja hálf-hátt: »Frú Galló!« »Þarna sjerðu, góða mín«, mælti Saint Alba, »gaml- an vin okkar og kunningja, Power læknir — jeg bið afsökunar — lögregluþjón átti jeg að segja«. Þegar konan heyrði nafn Powers, leit hún á hann, og fjell t sömu svifum í ómegin. Saint Alba ljet sem ekkert væri, ogmælti: »Þetta grunaði mig. Þetta var ágætt. Nú raknar hún ekki við aftur, tyr en jeg er búinn að sanna sakleysi mitt, og er kominn heim aftur.« Honum skjátlaðist samt sem áður í þessu, því að Power gleymdi nú allt í einu öllu öðru en því, að hjer var sjúklingur, sem þurfti á læknishjálp að halda. En Saint Alba bandaði honum frá og mælti: »Jeg leyfi ekki neinum, að snerta á konunni minni. Jeg hjúkra henni sjálfur. Svona, Mary«, mælti hann og hóf konu sína á loft, »vertu nú ekki óskynsöm, vertu staðföst«. Svo hristi hann hana, og hvíslaði einhverju í eyrað á henni. Lögreglumennirnir heyrðu ekki, hvað það var, en það hafði einhver kynja- áhrif á konuna, því að hún ópnaði allt í einu aug- un og fjekk þegar fulla meðvitund aftur. »Frú Saint Alba heflr nú náð sjer aftur«, mælti maðurinn hennar. »Farðu nú upp á herbergið þitt, góða mín, og kærðu þig ekkert um þetta. Svona, hálsar góðir. Nú er jeg tilbúinn. Nú skulum við halda af stað«. Nú var ekki annað eftir, en að stiga upp í vagn- inn og aka til lögreglustöðvanua. Hver sá, sem hefði getað virt þá Brúsél og Robert Power fyrir sjer, og borið þá saman við Sáint Alba, hefði hæglega getað ímyndað sjer, að það væri hann, sem væri að fara með þá í varðhaldið, þótt hið gagnstæða ætti sjer hjer stað. (Meira.)‘ Fljótandi loft. Eitt af nýjustu undrum vísindanna. — «:»— Þess hefir verið getið í blöðunum, að útlendum vísindamönnum hefði hepnazt; að breyta lofti í lög, en jeg man ekki eftir því, að jeg hafi neinstaðar sjeð þess getið, hverja verklega þýðingu þessi uppgötvun getur haít. »Haukur« mun smám saman skýra frá ýmsu þess konar, en til þess að byrja á byrjuninni skal hjer farið nokkrum orðum um uppgötvun þessa og hinar fyrstu tilraunir, sem gerðar voru, og er það að mestu tekið eftir »Kringsjaa«. Um langan tíma höfðu þeir, Englendingurinn Dewar og Pólverjinn Olszewski, þreytt við það hvor í sínu lagi, að reyna að þjetta hinar svo nefndu »stöðugu« eða »permanentu« lofttegundir, og smám saman færðust þeir nær og nær.takmarkinu, að breyta öllum lofttegundum í lög. Þessu takmarki er nú fyrir nokkru náð. Nú er engin sú lofttegund til, að ekki megi

x

Haukur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Haukur
https://timarit.is/publication/48

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.