Haukur - 01.02.1901, Qupperneq 12
KÓNOUKINn" 00 KOSNINGABNAB
hefir opinn reyktób&kspung fyrir framan sig, og er að
láta í pípuna sína. Glugginn, sem snýr út að garð-
inum, st.endur opinn, og á milli útihúsanna sjest yfir
kornakrana og flæðiengin niðri við sjóinn. Hins vegar
við sundið sjest ströndin á Fjóni í tæplega mílufjórð-
ungs fjarlægð. Þar sjást grænir skógar, hvítir bygg- -
akrar, og íbúðarhús með hvítum múrum og svörtum
trjegreypingum. Á einum st.að niðri við ströndina
sjest búgarður einn mikill með langri húsaröð. íbúðar-
húsið er með rauðu tiglþaki og fjórum hvítum reyk-
háfum; það sýnist umkringt dökkgrænum skógi, og
er þess vegna mjög álitlegt tilsýndar.
En nú er hurðinni allt í einu hrundið upp, og
unglingsmaður, hár vexti, kemur inn í stofuna. Hann
er i ljósgráum sumarfatnaði, og hefir stráhatt á höfði.
Marteinn bindur í snatri fyrir tóbakspunginn sinn, og
lítur forviða á komumanninn.
„Sæll vertu, faðir minn!“
„Komdu sæll, Niels! Hvernig stendur á þvi, að
þú ert á ferðinni núna á þessum tíma?“
„Það kemur nú ekki til af góðu. Jeg er búinn
að vera þarna yfir frá hjá honum Ristoft", svaraði
Niels, og benti á hvíta húsið með rauða þakinu og
hvítu reykháfunum, er sást hins vegar við sundið.
(Meira.)
Sfirítlur.
Jóhann: Regnið fellur jafnt yfir rjettláta sem
rangláta.
Pjetur: Satt að vísu, en sá rangláti nær venju-
lega í regnhlíf þess rjettláta, og hlífir sjer með henni.
Dómarinn: Eruð þjer sekur?
Fanginn: Það er víst yðar en ekki mitt, að
grafast fyrir það.
•
Anna : Ertu nú alveg viss um það, að hann elski
þig í raun og veru ?
Hanna: Já, það er jeg sannfærð um.
Anna: Hvað hefir þú fyrir þjer í því?
Hanna: Hann segist vilja láta lífið mín vegna,
ef þörf gerðist.
Anna: Slíkt geta allir sagt. Og jeg vil ráða þjer
til þess, að trúa honum ekki, fyr en hann hefir sýnt
það í verkinu.
Hún: fú sveikst mig illilega, þegar þú ginntir
mig til að eiga þig.
Hann: Jeg gerði meira en það; jeg sveik sjálfan
mig líka.
•
„Skelfing er að sjá yður, maður“, sagði írlending-
ur einn við mann, er var orðinn hvítur og horaður af
ofmikilli tóbaksnautn. „Þjer lítið út alveg eins og
þjer hefðuð risið npp úr gröfinni tii þess að kveikja
yður í vindli, og sjeuð nú í vandræðum með að finna
gröfina yðar aftur.
Faðirinn (alvarlegur): Hefirðu spurt hana mömmu
þína að því, hvort þtí mættir eiga þessa næpu?
Hans litli (þriggja ára): Já,' pabbi minn.
Faðirinn : Er það nú alvegvíst? Jeg skal spyrja
hana um það, og segi hún, að þú hafir ekki spurt
hana, verður þú barinn fyrir að segja ósatt. Nú-nú,
spurðir þú hana svo að því?
Hans litli: Já, faðir minn, jeg gerði það. (Eftir
nokkra þögn) En hún sagði nei.
iSdíur.
1.
Jeg þekki nafnorð með fimm stöfum. Taki jeg fjóra
þeirra, verða fimm eftir. En taki jeg fimm, verður heilt nafn-
orð eftir. — Hvaða orð er það?
2.
Jeg sá einu sinni nafnorð með átta stöfum. Jeg strikaði
fjóra stafi út, en samt urðu átta eftir. Jeg strikaði átta út, en þá
varð heilt nafnorð eftir. — Hvaða orð var það?
Stafagáta.
£
12. 5. 8. 4. 16.
Það ber öllum um það saman
Engin mær sje hýrri’ í framan
Þegar blundi brugðið hefur
14. 7. 5.
Býsna mörgum saðning gefur
14. 4. 13. 17.
Slæma árás ýmsum veitir
Eltir menn um fjöll og sveitir
Er þó harla hrumur fjandi
14. 7. 13. 10. 7. 1. 10. 7. 5. 18.
Heimili á Suðurlandi
10. 7. 6. 16. 14. 7. 18. 8.
A þessum átta Adams dætur
Einkum hafa fengið mætur
10. 16. 15. 14.
En þessa’ er öllum illur vani
Að iðka
7. 9. 6. 7. 10. 3. 15. 16. 10. 17.
Þúsund manna bani
16. 17. 14. 7. 2. 3. 4. 6.
Verður oft á voru landi
1. 10. 12. 16. 10. 7. 9. 10. 3. 4. 16.
Valdsmönnunum leiður fjandi
Þó að ýmsum öðrum veiti
Öflga liðsemd
11. 4. 9. 17. 6. 10. 7. 8.
Karlmannsheiti
14. 7. 2. 8.
Margir eiga’ af skornum skammti
Skatnar
9. 2. 4. 13. 7. 12. 6. 14. 4. 2.
Jörð í Suðuramti
1. 10. 13. 16.
Erfiðleika ýmsum veldur
Er ei laúst sem skrattinn heldur
Þótt geymi margra marka virði
3. 4. 17. 1. 10. 4. 9. 14. 17. 18. 11.
Meistari á ísafirði
13. 7. 9. 1. 9. 12. 8.
Pá menn oft á aumri bikkju
1.—18.
Orsök verstu sundurþykkju
RAðnlng
gátu þeirrar, er var í síðasta tölublaði „Hauks“.
7 kettir geta á 7 mínútum jetið 7 rottur; það er með
öðrum orðum: 7 kettir geta á 1 mínútu jetið 1 rottu. Sje
kattafjöldi sá, sem leitað er að, nefndur X, verður dæmið þannig:
X kettir eiga á 50 mínútum að jeta 100 rottur; með öðr-
um orðum: X kettir eiga á 1 mínútu að jeta 2rottur. Svar-
ið verður þá: 7 nettir
. = V2 Eða X kettir = 14 kettir.
X kettir
Útgefandi: STFFÁN BUNÓLFSSON, Pósthússtrœti 17.
lleyltjavík, 1901. — Aldar-prentBmiðja.
— 23 —
24 —