Haukur - 01.01.1910, Page 6

Haukur - 01.01.1910, Page 6
H A U K U R . um, að hann fann veginn ætíð fljótlega aftur. Þegar lýsti af degi blasti við þeim hrikalega fagurt útsýni. Risavaxnir, snætypptir fjallatindar gægðust hver upp yfir herðarnar á öðrum svo langt sem augað eygði. Og fjallveggirnir til beggja hliða voru svo brattir, að lævirkjatrjen og furutrjen, sem uxu í brekkunum, virtust svífa í loftinu yfir höfð- um þeirra, og það var varla hægt að hugsa sjer annað, en að þau hlytu að hrynja við hvað lítinn vindblæ sem væri. Og hættan á þessu var ekki imyndun ein, þvi að gljúfrarklauf þessi var alþakin trjástofnum og stórgrýti, er hrunið hafði ofan úr brekkunum, og meðan flóttamennirnir voru á ferð- inni, losnaði stóreflisbjarg efst uppi í annari brekk- unni, og hentist ofan með dunum og dynkjum, svo að bergmálaði í hömrunum og hestarnir fæld- ust og fóru á stökk, þótt vegurinn væri illur yfirferðar. Þegar sólin kom upp og hóf sig hægt og hægt á loft, roðaði hún fyrst liæstu jökultindana, og svo hvern þeirra af öðrum, eins og verið væri að kveikja ótal hátíðaljós, unz þeir voru allir orðnir glóandi rauðir, og ljómuðu hver í lcapp við annan. Það var eins og þessi óumræðilega fagra og dýrð- Iega sjón veitti nýjum hug og dug í hjörtu flótta- mannanna. Við straumharðan læk, er steyptist ofan úr gljúfri einu, námu þau staðar litla stund, til þess að brynna reiðskjótum sínum, og fá sjer ofurlítinn bita. Lucy og faðir hennar hefðu gjarn- an viljað hvíla sig lítið eitt lengur, en Jefferson Hope sýndi þeim enga vægð nje vorkunn. »Nú hljóta þeír að vera farnir að veita okkur eftirför«, mælti hann, »og þess vegna er nú allt undir því komið, að við hröðum ferð okkar nægilega. Ef við komumst heilu og höldnu til Carson, þá getum við hvílt okkur úr því alla okk- ar æfi«. Þau hjeldu nú áfram allan daginn, þótt erfitt gengi, gegnum kleifar og upp og ofan klungur- brekkur, og um kvöldið taldist þeim svo til, að þau hlytu að vera komin um eða yfir þrjátíu mílur vegar burtu frá óvinunum. Þau völdu sjer náttstað um kvöldið undir skúta einum, því að þar var skjól fyrir næturnepjunni, og til þess að halda á sjer hita, hjúfruðu þau sig fast saman og breiddu yfirhafnir sínar ofan á sig. Þarna sváfu þau fáeinar klukkustundir. En fyrir dögun voru þau aftur komin á kreik, og er þau höfðu jetið og drukkið lítið eitt, lögðu þau enn af stað. Þau höfðu ekki enn þá sjeð þess nein merki, að þeim væri veitt eftirför, og Jefferson Hope var farinn að vona, að þau væru algerlega sloppin úr klóm leynivaldsins ógurlega. Hann hafði þá eklci hug- boð um það, hversu langt það gat teygt járnhramma sina, og hvað þess var skammt að bíða, að það næðu tökum á þeim, og bæri þau ofurliói. Þetta var annar dagur þeirra á flóttanum. Síðari hluta dags, þegar þau ætluðu að fara að fá sjer bita, urðu þau þess vör, að nesti þeirra, sem hafði verið af skornum skammti, var alveg að þrotum komið. En Jefferson Hope setti það ekki fyrir sig, því að það var oftast gott til veiða þar á íjöllunum, og hann liafði oft áður orðið að — 11 — lifa eingöngu á því, sem hann gat aflað sjer með byssu sinni. Hann fór með þau inn í afkima einn milli tveggja kletta, safnaði þurrum viðargreinum, og kveikti bál, til þess að þau gætu vermt sig við það, því að nú voru þau hjer um bil fimm þús- und fetum hærra en sjávarmál, og loftið var nístandi kalt. Þegar hann því næst hafði bundið reið- skjótana á streng, og kvatt Lucy með kossi, lagði hann byssuna á öxl sjer, og hjelt af stað, til þess að skjóta til matar fugla eða dýr, er hann kæmist í skotfæri við. Þegar honum varð fyrst litið til baka, sá hann gamla manninn og unnustu sína sitja við eldinn og orna sjer, og reiðskjótana hreyfingarlausa. En þegar hann hafði lialdið nokkrum skrefuni lengra, bar klett á milli, svo að hann sá þau ekki lengur. Hann gekk sjálfsagt einar tvær milur vegar, eða meira, án þess að koma auga á nokkura veiði, jafnvel þó hann sæi það á berlci trjánna og fleiri merkjum, að það hlyti að vera mikið aí bjarndýr- um þar um slóðir. Þegar hann hafði leitað ár- angurslaust í fullar tvær klukkustundir, var hann farinn að hugsa um að snúa aftur við svo búið, og liætta við veiðina þann daginn, en þá varð hon- um litið upp fyrir sig, og þar sá hann sjón, er fyllti hann fögnuði. Á þverhniptri klettasnös, hjer um bil 3—4 hundruð fet fyrir ofan hann, stóð dýr eitt sem var að ýmsu leyti svipað sauðkind, en með tveimur ákaflega stórum hornum. »Stórhyrningurinn« — svo nefna veiðimenn dýr þetta — var auðsjáanlega á verði fyrir hóp, sem ekki sást þaðan sem Jeff- erson var. En til allrar hamingju sneri dýrið frá honum, og liafði ekki tekið eftir lionum enn þá. Hann lagðist flatur, studdi rifflinum við stórann stein og miðaði vandlega, áður en hann Ijet skotið ríða af. Dýrið tók viðbragð og hopp- aði upp í loftið, rambaði því næst eitt andartak á hamarbrúninni, og hrapaði svo ofan fyrir bjargið, alla leið að fótum veiðimannsins. Dýrið var svo stórt, að það var ekki til að tala um, að hann gæti borið það í heilu lagi, og varð hann því að láta sjer nægja, að taka annað lærið og nokkuð af bringunni. Með þessa byrði á bakinu sneri hann aftur, og hraðaði ferð sinni sem mest hann mátti, því að mjög var orðið á- liðið, og farið að skyggja af nóttu. En hann komst bráðlega að raun um, að það var enginn hægðarleikur að finna hina rjettu leið. Veiðihugurinn hafði verið svo mikill, að hann hafði hætt sjer miklu lengra, heldur en honuni voru leiðir kunnar. Dalurinn, sem hann var stadd- ur í, skiftist í ótal afdali, og úr þeim lágu svo aftur aðrir dalir til beggja handa, og allir voru dalir þessir svo líkir hver öðrum, að ómögulegt var fyrir ókunnugan að gera greinarmun á þeim. Hann hjelt lengi eftir einum þeirra, en að lokum rak hann sig á læk einn, er hann var viss um að hafa ekki sjeð áður. Hann sannfærðist því um það, að liann hefði tekið ranga stefnu, og reyndi því fyrir sjer í aðra átt, en það fór á sömu leið. Það tók óðum að skyggja, og var nærri orðið — 12 —

x

Haukur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Haukur
https://timarit.is/publication/48

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.