Haukur - 01.01.1911, Blaðsíða 4

Haukur - 01.01.1911, Blaðsíða 4
HAUKUR »Þekkirðu mig ekki, móðir mín?« spurði liann forviða. »Jeg á engan son framar! Eldri synir mínir Ijetu lífið fyrir ættjörð sína, en sá yngsti gerðist spæjari, og svívirti með því heiður og flekklaust nafn ættar sinnar«. »Keisari Frakklands mat starfsemi mína mik- ils, og launaði hana ríkulega«, stamaði Aribert út úr sjer. »Jeg fyrirlít þig!« svaraði móðir hans. »Jeg vildi óska, að jeg væri karlmaður, þá skyldi jeg lúberja þig eins og ralcka, meðan jeg gæti hreyft handleggina«. Aribert stóð forviða og starði á móður sína. »Njósnarmaður! Spæjari! ...........Sonur de Brettons hershöfðingja, njósnarmaður!« mælti hún með fyrirlitningarsvip. »En — móðir mín góða«, mælti Aribert, »skilurðu þá ekki.........?« »Láttu mig vera í friði, eða jeg kalla svo hátt að allir heyri: »Hjerna getið þið fengið að sjá löðurmenni, sem laum- ast inn í herbúðir óvin- anna og býður þeim verzlunarvarning undir vináttu-yfirskini, í stað þess að ganga framan að þeim á vígvellinum, og kenna þeim að bera virðingu fyrir vopnum Frakka«. »Heldurðu máske, að jeg hafi veitt óvinun- um lið?« stundi Aribert upp. »Hvort sem þú hefir gert vini eða óvini greiða með þessu, þá ertu það auvirðilegasta mannkvikindi, sem til er á guðs grænni jörð: Strokumaður og spæjari! Hvað er þá annað eftir, en þú verðir að lokum morðingi!« Frú de Bretton reigði sig og skundaði burt án þess að líta við syni sínum, er stóð sem liögg- dofa eftir — alveg yfirbugaður. Síðustu orð móður hans höfðu fengið mjög á hann. Orðið »morðingi« hljómaði fyrir eyrum hans, þar sem hann stóð og kreisti glas frúarinn- ar í hendi sjer. »Eitur!« tautaði hann fyrir munni sjer. »Morð- ingi!« Hann stóð lengi i sömu sporum, og starði á meðalaglasið litla. Fólk, sem leið átti um strætið, nam staðar og varð starsýnt á hann. Það hjelt hann annað hvort ölvaðan eða viti sínu fjær. Götustrákar söfnuðust utan um hann, og tóku að henda gaman að honum. Hann heyrði hvorki nje sá. Allar hugsanir hans snerust um síðustu orð móður lians. »Strokumaður!« »Spæjari!« »Morðingi!« Það var eins og liann vaknaði af draumi, þegar einn götustrákurinn togaði í frakkalafið lians. — 55 - Og honum varð svo hverft við, að glasið datt úr hendi hans á götuna og brotnaði. Hann litaðist um með flóttalegu augnaráði, og sá strákana, sem umkringdu hann og voru að hlæja að honum. Hann skundaði á brott, og flýtti sjer úr aug' sýn þessara forvitnu gárunga, sem voru að stinga saman nefjum um það, hvers vegna maðurinn myndi láta svona. Aribert hjelt áfram ferð sinni í hálfgerðri leiðslu, og öldungis ósjálfrátt stefndi hann til gisti' húss þess, er frúin hafði nefnl. Hann spurðist fyrir hjá dyraverðinum um það hvort þar væri til húsa Englendingur einn og dóttir hans. »Já, hann heldur til í herbergi nr. 7 á fyrsta lofti«, svaraði dyravörðurinn, Aribert hafði ekki enn þá gert sjer neina grein fyrir því, hvernig hann ætti að snúast í þessu máli. En nú ásetti hann sjer að vara þau feðgin við frúnni, og flýtti liann sjer því upp til þeirra. Hanu barði að dyr- um og fór inn. í herberginu voru þrjár persónur. Aribert leit á þær og hrökk for- viða aftur á bak. Wilmer námaeigandi var einn þeirra, sem inni voru, og var umhyggju- samlega búið um hani* í koddum í hægindastólir og ábreiða breidd yfir hnje hans og fætur. Auk hans voru þar inni Al' exander keisari og María dóttir Wilmers. Þau feðg- in þekktu Aribert und- ir eins og hann kom inn úr dyrunum. »Hver skollinn þó!« varð Wilmer að orði, og rjetti fram hönd sína vingjarnlega. »Er það ekki herra de Bretton, sem hlammast hjer inn til mín f Það var þó merkilegt uppálæki af forsjóninni!« (Framli.). VEL í SKINN KOMIÐ. »Hvað þú hefir náð pjer í fallega, elskuverða og sæl' lega konu, Jón slátrari!« »Sællega! Já, þú getur bölvað þjer upp á það, að í minni »forretningu« skulu aldrei neinir horskrokkar sjást. • »Hugsið yður bara, að nú eru bráðum liðin tvö ár síðan maðurinn minn dó, en samt sem áður kemur hann til mín í draumi á hverri nóttu«. »Viljið þjer þá ekki gera svo vel og minna liann á það einhverja nóttina, að hann skuldar mjer 10 krónur?<( • KVENNA-KÓR. Gunna litla (á söngskemtun við mömmu sína)t Segðu mjer, mamma, hvers vegna er maðurinn þarna uppi á pallínum allt af að ógna stúlkunum með priki? M a m m a : Þegiðu telpa mín, hann er ekki að ógna þeim. Gunna litla: Ekki það? En hvers vegna erli þær þá allt af að hljóða? — 56 —

x

Haukur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Haukur
https://timarit.is/publication/48

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.