Haukur - 01.01.1911, Blaðsíða 8

Haukur - 01.01.1911, Blaðsíða 8
HAUKUR. fjelag hefði látið myrða manninn. Jeg hjelt þess vegna, að það, sem gat komið mönnum í New York í vandræði, gæti einnig truílað menn hjer í Lundúnum og tafið fyrir þeim, og þess vegna deyf jeg fingrinum í blóðið úr sjálfum mjer og skrifaði þetta sama orð á vegginn. Svo fór jeg út og ofan á götuna, þangað sem vagninn var. Enginn maður sást enn þá á ferli, og veðrið var enn hið sama. Jeg hafði þegar ekið töluverðan spöl heim á leið, þegar jeg stakk hend- inni i vasa þann, sem jeg hafði ætíð geymt hring- inn í, og varð þess var, að hann var farinn. Jeg varð sem þrumulostinn, því að jeg hafði nú borið hann á mjer í tuttugu ár, og hann var það eina, sem jeg átti til minja nm Lucv sálugu. Mjer datt í hug, að jeg hlyti að öllum líkindum að hafa týnt honum, þegar jeg var að bogra yfir h'ki Drebbers, og þess vegna sneri jeg við, og ók aftur áleiðis til hússins. En þegar jeg var kominn í grennd við húsið, ók jeg yfir í þvergötu eina, og skildi vagn- inn þar eftir, og svo gekk jeg ótrauður áleiðis að garðshliðinu, því að jeg var reiðubúinn að leggja lífið i liættu fyrir hringinn, ef á hefði þurft að halda. En þegar jeg kom að hliðinu, rakst jeg þar á lögregluþjón, sem var að koma út úr húsinu, og þá flaug mjer það ráð í hug, að látast vera dauða-drukkinn, og á þann hátt komst jeg hjá því að vekja grun hans. Þessi varð aldurtili Enoch Drebbers. Og það, sem nú var næst fyrir hendi að gera, var það, að búa Stangerson sömu örlög, til þess að hefnd þeirri væri lokið, er jeg hafði lofað John Ferrier. Jeg vissí, að skrifari Drebbers beið hans í Halli- days Hotel Garni, og var jeg þvi á vakki þar í grendinni frá morgni til kvölds. En hann kom aldrei út. Jeg ímynda mjer, að hann hafi fengið einhvern illan grun, þegar hann sá að Drebber kom ekki eins og um hafði verið talað. Stanger- son var sem sje slægur og ætíð var um sig. En ef hann hefir haldið, að hann gæti losnað við mig með því að loka sig allt af inni, þá skjátl- aðist honum hrapallega. Jeg var fljótur að kom- ast á snoðir um það, hvar svefnherbergisglugginn hans var, og snemma næsta morgun tók jeg lang- an stiga, sem lá á bak við gistihöllina, og reisti hann upp að glugganum, og á þann hátt komst jeg inn til hans fyrir fótaferðartíma. Jeg vakti hann, og sagði honum, að nú væri loks komið að skuldadögunum — nú skyldi honum loks hefnast fyrir mannslíf það, sem hann hefði tekið fyrir tuttugu árum. Jeg lýsti dauða Drebbers fyrir hon- um, og gaf honum einnig kost á að velja hvora pilluna sem hann vildi. En í stað þess að nota þennan möguleika til að bjarga lifinu, stökk hann upp úr rúminu og flaug á mig og ætlaði að kyrkja mig. Jeg sá mitt óvænna, og til þess að forða lífi mínu, varð jeg að reka hann í gegn með hnífnum mínum. En hann hefði sjálfsagt ekki verið betur farinn, þótt hann hefði gleypt aðra pilluna, því að forsjónin hefði áreiðanlega ekki leyft þeirri hönd, sem flekk- uð var saklausu blóði, og velja annað en eitrið. — 63 — Jeg hefi nú ekki mikið meira að segja, og það er gott, því að jeg finn að það er bráðum úti um mig. Jeg hafði í hyggju að halda áfrain ökumannsstörfum mínum nokkurn tíma enn þá, til þess að safnu mjer peningum í fargjaldið til Ameríku aftur. Nú liafði jeg hvort sem var ekki annað að gera, en að stunda atvinnu mína. En í dag, þegar jeg stóð niðri á ökumannaportinu, þá kom þar tötralega búinn drengur og spurði, hvort þar væri ekki ökumaður, sem hjeti Jefferson Hope, og hvort hann vildi ekki koma með vagninn sinn, og aka til járnbrautarstöðvanna með mann, sem ætti heima í Bakarastræti nr. 221 B. Jeg ók þangað og átti mjer einskis ills von, og það næsta, sem jeg áttaði mig á, var það, að þessi ungi maður þarna setti handjárn um úlnlið- ina á mjer og læsti þeim svo fimlega og laglega, að það var unun að sjá það. Og nú er saga mín á enda, herrar mínir. Það er vel líklegt, að þið álítið mig morðingja, en í því get jeg ekki verið ykkur samdóma. Jeg hefi þá skoðun á sjátfum mjer, að jeg hafi verið verkfæri í hendi rjettvís- innar, — engu siður en þið, herrar mínir«. — — Saga mannsins hafði verið svo áhrifamikíl, og öll framkoma hans svo átakanleg, að við höfðuin setið steinþegjandi, og hlustað með athygli á hvert orð sem hann sagði. Jafnvel gömlu, þaulvönu leynilögreglumennirnir, sem glæpamálasögur eru þó ekki vanar að hafa mikil áhrif á, hlustuðu með gaumgæfni á þessa sögu, og virtust mjög hrifnir af henni. Eftir að hann hafði lokið sögunni, sátum við góða stund hljóðir og hugsandi, og heyrðist þá ekkert nema klórið í blýanti Lestrades, er var að Ijúka við að hraðrita söguna í minnisbók sína. »Það er eitt atriði enn þá, sem jeg hefði gjar- an viljað fá nánari vitneskju um«, mælti Sheríock Holmes að tokum. »Hver var þessi aðstoðarmað- ur yðar, sem kom eftir hring þeim, er jeg hafði auglýst í blöðunum?« Fanginn leit til fjelaga míns og brosti glettn- islega. »Jeg get sagt frá mínum eigin leyndarmálum út í hörgul«, mælti hann, »en öðrum mönnuin vil jeg ekki koma í nein vandræði. Jeg sá auglýs- inguna j'ðar, og hugsaði með mjer, að annaðhvort væri þetta gildra, eða þá að hringurinn hefði i raun og veru fundizt og væri fáanlegur. Vinur minn bauðst þá til að fara og grennslast eftir þessu. Jeg ímynda mjer að þjer verðið að játa, að hann hafi leyst hlutverk sitt vel af hendi«. »Snilldarlega, það verð jeg að játa«, svaraði Sherlock Holmes. »Nú, nú, herrar mínir«, mælti lögreglu-mn- sjónarmaðurinn, »nú verðum við að fara eftir fyr- irmælum laganna. Fanginn, sem þegar hefir í á- heyrn okkar játað sig sekan um tvö morð, verður nú lokaður inni í klefa sínum. Á fimmtudaginn verður haldið opinbert próf í málinu, og verður ykkur stefnt til að mæta þar s.em vitni«. Hann hringdi bjöllu meðan liann var að segja þetta, og komu þá tveir lögregluþjónar, og leiddu Jefferson Hope burt með sjer. En jeg og Sher- lock Holmes fengum okkur vagn og ókum heim til okkar. (Framh.). — 64 —

x

Haukur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Haukur
https://timarit.is/publication/48

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.