Haukur - 01.01.1912, Blaðsíða 6

Haukur - 01.01.1912, Blaðsíða 6
HAUKUR. góðgerðasemi, og ekki síður að vægð og mildi við glæpamenn þá, er hann hafði meðgerð með sem friðdómari. Skömmu eftir að jeg kom þangað á heimilið, sátum við einu sinni siðari hluta dags að lokn- um miðdegisverði, og höfðum fengið okkur sitt glasið hver af portvíni. Þá fór yngri Trevor allt í einu að tala um athuganir þær og ályktanir, er jeg hafði þá þegar sett í kerfi, jafnvel þótt mjer hefði þá alls ekki komið til hugar, að það gæti orðið mjer að atvinnuvegi. En gamli maðurinn hjelt auðsæilega, að sonur hans færi með ýkjur einar, er hann var að segja frá nokkrum ákaflega einföldum athugunum, sem jeg hafði gert. »Jæja Holmes«, mælti hann og brosti góðlát- lega, »viljið þjer þá reyna list yðar á mjer? Jeg er ágætlega vel fallinn til slikra tilrauna«. »Jeg er hræddur um að það sje ekki margt að athuga«, svaraði jeg, »en þó held jeg að mjer sje óhætt að fullyrða það, að þjer hafið á síðast- liðnu ári verið síhræddur um einhvers konar árás á sjálfan yður«. Hann hætti allt í einu að hlæja, og starði nú á mig undrandi. »Þetta er alveg satt«, mælti hann. »Þú manst eftir því, Victor«, mælti hann enn fremur, og sneri sjer að syni sínum, »að þegar við handsömuðum veiðiþjófana, sem gerðu mestan uslann hjerna í lijeraðinu, þá hótuðu þeir okkur hefnd, og nokkru síðar var svo ráðizt á Edvard Hoby. Síðan hefi jeg ætíð búizt við að verða fyrir því sama, en jeg skil sannarlega ekki, hvernig þjer getið vitað nokk- uð um það«. »Þjer eigið þarna mjög fallegan göngustak, svaraði jeg, »og á því, sem grafið hefir verið á hólkinn, sje jeg, að það er ekki meira en ár síðan þjer hafið eignazt hann. En þjer hafið gert yður töluvert ómak með að hola innan húninn og hella í hann blýi, til þess að geta notað hann yður til varnar. Jeg ályktaði, að þjer munduð ekki hafa gert þetta, nema því að eins að þjer hefðuð haft eitthvað að óttast«. »Er það fleira, sem þjer hafið tekið eftir?« spurði hann brosandi. »Þjer hafið lagt töluverða stund á hnefaleik á yngri árum yðar«. »Það er alveg rjett. Hvernig hafið þjer komizt að því? Er nefið á mjer máske brotið eða bækl- að undan höggunum?« »Nei«, svaraði jeg, »það eru eyrun á yður, sem sýna það. Þau eru flöt og þykk, eins og þau verða ætíð á hnefaleikamönnum«. »Er það nokkuð fleira?« »Þjer hafið fengizt töluvert við mokstur eða gröft, það sje jeg á höndunum á yður«. »Það er alveg satt. Jeg hefi grætt allar eignir inínar í gullnámum«. »Þjer hafið verið á Nýja-Sjálandi«. »Öldungis rjett«. »Og sömuleiðis í Japan«. »Satt er það líka«. »Og þjer hafið verið í nánum kunningsskap við einhvern, sem átt hefir stafina J. A. að fanga- — 11 — marki, og þjer hafið svo síðar gert yður mikið far um að gleyma þeim kunningsskap«. Trevor gamli stóð upp hægt og gætilega, og hvessti á mig augun hálf-reiðulega. Þannig stóð hann litla stund og starði á mig, en íjell því næst á grúfu niður á gólfið. Þjer getið sjálfsagt farið nærri um það, Wat- son, hve bæði mjer og syni hans varð bylt við þetta. En þetta flog stóð ekki lengi yfir, því að þegar við höfðum losað um hálsinn á honum og stökkt á hann köldu vatni úr vatnsflöskunni, þá sogaði hann í sig loftið tvívegis, og settist svo upp- »Jeg hefi þó víst ekki gert ykkur hrædda, drengir góðir?« mælti hann og reyndi að brosa. »Jafnvel þótti jeg sýnist hraustur, þá er jeg þó veill fyrir hjartanu, svo að það þarf ekki mikið til að leggja mig að velli. Jeg veit ekki hvernig þjer farið að þessu, Holmes, en það Iítur svo út sem þjer kunnið fleira en bænirnar yðar, og að allir leynilögreglumenn, bæði í lífinu og í skáld- sögunum, sjeu blátt áfram börn í samanburði við yður. Þjer ættuð að gera þetta að lífsstarfi yðar framvegis. Yður er óhætt að trúa því sem jeg segi, því að jeg er maður sem hefi sjeð og reynt margt í heiminum«. Jeg vissi að hann gerði of mikið úr hæfieik- um mínum, en þetta hrós hans varð samt fyrsta orsökin til þess, að jeg síðar fór að hugsa um að gera mjer að atvinnuvegi það, sem jeg áður hafði að eins haít mjer til skemmtunar og dægrastytt- ingar. En í svipinn gat jeg ekki um annað hugs- að, en þetta skyndilega aðsvif húsbóndans. »Jeg vona þó, að jeg hafi ekki hreyft við neinu, sem vakið hafi sárar endurminningar hjá yður«, mælti jeg. »Jú, það var einmitt viðkvæmur staður, sem þjer snertuð þarna. En má jeg nú spyrja yður, hvernig þjer gátuð vitað nokkuð um þetta, og hvað þjer í raun og veru vitið?« Hann sagði þetta í hálfgerðu gamni, en hræðslusvipurinn skein þó enn þá úr augum hans. »Málið er mjög svo einfalt«, mælti jeg. »Þeg- ar þjer v.oruð að innbyrða stóra silunginn um daginn, þá brettuð þjer upp skyrtuerminni, og þá sá jeg, að stafirnir J. A. voru inerktir ofan til á framhandlegginn á yður, en af því að þeir voru orðnir töluvert máðir, þótt þeir sæust enn þá, þá var það auðsjeð, að þjer höfðuð gert yður tölu- vert far um að má þá burt. Jeg þóttist þess vegna skilja það, að fangamark þetta hefði áður verið nákomið yður, en að þjer hefðuð síðar reynt að gleyma því«. »Það er meiri eftirtektargáfan, sem þjer eruð gæddur«, mælti Trevor gamli, og var eins og hon- um Ijetti mikið. »Þetta er einmitt alveg rjelt til getið lijá yður. En við skulum nú ekki tala meira um það. Af öllum vofum eru vofur gömlu unn- ustanna okkar verstar. Við skulum nú koma inn í knattborðsstofuna og fá okkur vindil«. Þrátt fyrir allan vingjarnleik Trevors gainb1 við mig, var þó eins og ekki væri Iaust við að hann tortryggði mig eitthvað eftir þetta. Og tor- tryggni lians varð meira að segja svo augljós, að — 12 —

x

Haukur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Haukur
https://timarit.is/publication/48

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.