Haukur - 01.08.1912, Blaðsíða 5

Haukur - 01.08.1912, Blaðsíða 5
HAUKUR. »Ef móður yðar hefir þótt vænt um yður, Maríublóm, þá mun hún aumka yður, fyrirgefa yður, og elska yður heitara en áður. En hafi hún aftur á móti útskúfað yður, og ekki viljað af yður vita, þá væri jafngott þótt hún fyndi til þess, 1 hverja eymd og niðurlægingu kaldlyndi hennar °8 i'æktarleysi hefi steypt yður. Það kæmi henni Þú í koll sem hæfileg hefnd«. »Hvaða gagn gæti jeg haft af hefnd? Og auk þess — — ef jeg hefndi mín á þeim, sem gert hafa á hluta minn, þá hlyti jeg að álíta, að jeg hefði ekki framar neinn rjett til þess, að lifa gæfu- súmu Hfi — þetta hefi jeg oft huggað mig við«. »Þjer liaflð alveg rjett fyrir yður. Við skulum ekki tala meira um þetta«. Þau voru nú komin út á sljettuna fram Undan St.-Ouen, áleiðis til St.-Denis. Jafnvel þótt 'andslagið væri tilbreytingalítið, var Maríublóm Þú svo hrifin.af útsýninu og fegurð náttúrunnar, að hún gleymdi raunum sínum í svipinn. Andlit hennar Ijómaði af saklausri, barnslegri ánægju. ^ún hallaði sjer út um vagngluggann, klappaði Saman lófunum og mælti: »Lítið þjer bara á, hr. Rúdólf, er það ekki yndislegt? Grænar ílatir á alla vegu!------Æ, má íeg ekki fara snöggvast ofan úr vagninum? Veðr- *ð er svo fagurt, og það væri svo gaman að hlaupa hjerna um sljettuna«. »Það getið þjer fengið barnið gott! — Staldrið þ)er við, ökumaður!« »Hvað þá? Ætlið þjer að fara að gegna þess- Uln dutlungum mínum, hr. Rúdólf?« »Já, mjer er sönn ánægja að því, að ganga úáfltið með yður«, svaraði Rúdólf. »Hvað þjer eruð góður, lir. Rúdólf!« Þau hjeldust í hendur og hlupu eins og börn hl og frá um sljettuna, þar til þau voru orðin sprengmóð. Fjöri og kæti Sólskríkjunnar verður VaHa með orðum lýst. Þau námu staðar öðru hvoru, og soguðu í sig hreina, heilnæma sveita- l°ftið; og þegar Sólskríkjan kom auga á eitthvað af blómum þeim, er lifað höfðu af fyrstu frostnæt- Urnar, gat' hún ekki að sjer gert, að æpa upp yfir Slg af fögnuði og taka hvert einasta blóm, sem hún Sa- Að lokum varð hún þreytt af hlaupunum, og fr'eðan hún kastaði mæðinni, settist hún á trjástofn einn, er stóð rjett við djúpan skurð, sem var fram úieð veginum. Hún var orðin rjóð í kinnum, og angun bláu Ijómuðu af ánægju og fjöri. Milli l’úsrauðra varanna skein í fallegar, mjallhvítar tennurnar. Brjóst hennar þandist sundur og sam- an af mæðinni, og hún lagði höndina á hjartað, eiI1s og hún væri að reyna að sefa hjartsláttinn, en nieð hinni hendinni rjetti hún Rúdólf hagablóm ^an> er hún hafði tínt. Það er naumast hægt að hugsa sjer neitt ynd- Jslegra, heldur en hreina ánægju- og sakleysis-svip- nn. sem skein á þessu fríða og einlægnislega andliti. Þegar Mariublóm hafði varpað mæðinni svo aú hún mátti mæla, sagði hún með klökkri röddu við Rúdólf: »Hvað guð er góður, að lofa okkur að lifa Svona inndælan dag!« — 129 — Rúdólf vöknaði um augu, þegar hann heyrði þennan veslings fyrirlitna einstæðing lofa skapar- ann fyrir það, að hún fjekk að njóta sólskinsins og sjá grasið og blómin .... Óvæntur atburður vakli Rúdólf allt í einu af þessum hugleiðingum hans. U 9. kapítuli. Óvcentur atburður. Eins og áður er skýrt frá, sat Sólskríkjan á trjástofni, er stóð á skurðbarmi einum. Allt í einu reis maður upp í skurðinum, hló hrottalega og hristí af sjer laufið og mosann, sem hann hafði falið sig undir. Sólskríkjan rak upp angistaróp, og leit til Rúdólfs. Þetta var Breddubeitir. »Vertu óhrædd!« kallaði hann, þegarhann sá, að Sólskríkjan spratt upp og flúði lafhræddd til förunauts síns. »Það var einkennileg tilviljun, að við skyldum hittast hjerna, hr. Rúdólf, eða er ekki svo? Þjer bjuggust vist ekki við því, og jeg ekki heldur. Takið þjer nú eftir, herra minn«, mælti hann alvörugefinn. »Mjer er sama, hvað menn segja um það, en það hlýtur að vera eitt- hvað þarna í loftinu uppi yfir okkur, sem hefir stjórnað för yðar hingað! — — Skrítið er það!« »Hvað ert þú að gera hjerna?« spurði Rúdólf forviða. »Jeg er á verði fyrir yður, herra minn .... En það var fjandans heppilegt, að þjer skylduð rekast hingað út að búgarðinum minum! Ja, það er sem jeg segi .... eitthvað er það . « »Jeg spyr þig aftur: Hvað ert þú að gera lijerna?« »Það skal jeg bráðum segja yður«, svaraði Breddubeitir, og hljóp yfir að vagninum, klifraði upp á vagnþakið, skimaði í allar áttir, og kom svo aftur hlaupandi til Rúdólfs. »Segðu mjer nú hvernig á þessu stendur«, mælti Rúdólf. »Bíðið þjer svolítið við, herra minn! Jeg þarf enn þá að spyrja yður að einu: Hvað er klukkan?« »HáIf eitt«,-svaraði Rúdólf. »Það er gott; þá höfum við nógan tíma. Uglan kemur ekki fyr en eftir hálfa klukkustund«. »Uglan?« mæltu Rúdólf og Sólskríkjan bæði í senn. »Já, Uglan!« svaraði Breddubeitir. »Jeg skal segja yður söguna með fáum orðum, herra minn: Þegar þjer voruð farinn burt úr kránni í gærkvöld, kom stórvaxinn karlmaður inn í krána, og með honum kvenmaður í karlmannsfötum. Þau spurðu mig um . . . . « »Jeg veit það; haltu áfram!« »Þau veittu mjer vín, og spurðu mig mikið um yður. En jeg sagði þeim ekkert, þvi að þjer hafið ekkert sagt mjer eða sýnt af leyndarmálum yðar, nema hnefahöggin, sem við munum eftir, og jafnvel þótt jeg hefði vitað eitthvað, þá hefði jeg ekki farið að lepja það í þau. Nei, við erum vinir — 130 —

x

Haukur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Haukur
https://timarit.is/publication/48

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.