Haukur - 01.08.1912, Síða 7

Haukur - 01.08.1912, Síða 7
„Dröfnótt band — (Framh.) Af því, sem jeg nú hefi sagt, getið þjer skilið það, að við Júlía systir mín lifðum mjög gleði- snauðu lifl. Að lokuin komst það svo langt, að ekkert af vinnufólkinu fjekkst til þess að vera kyrrt hjá okkur, svo að við systurnar urðum um lang- an tíma að sinna öllum heimilisstörfum. Veslings systir mín var að eins þrítug að aldri, þegar hún Ijezt, og þó var hár hennar orðið grátt, eins og mitt er nú farið að verða«. »Systir yðar er þá dáin?« »Já, það eru nú um tvö ár síðan hún dó, og það er einmitt um dauða hennar, sem mig lang- aði til að tala við yður. Eins og þjer skiljið sjálf- sagt, fengum við sjaldan tækifæri til að hitta jafn- aldra okkar og jafningja. Við eigum samt frænku, móðursystur okkar, sem er ógift. Hún heitir Honoria Westphall og á heima í grennd við Harrow. Við fengum einstöku sinnum að heimsækja hana. Fyrir rúmum tveim árum var Júlía hjá henni um jólin, og þar hitti hún ungan mann, höfuðsmann, Og trúlofaðist honum. Þegar hún kom heim, sagði hún stjúpa okkar frá trúlofuninni, og var ekki annað að lieyra, en að lionum líkaði vel. En hálfum mánuði áður en brúðkaupið átti að fara fram, gerðist sá hörmulegi atburður, er svifti inig Veslings systur minni, einu vinkonunni sem jeg átti«. Sherlock Holmes hafði hallað sjer aftur á hak í stólnum og lygnt aftur augunum. Nú opnaði hann þau til hálfs og leit á stúlkuna. »ViIjið þjer nú skýra nákvæmlega frá öllum atriðum málsins, smáum og stórum?« mælti hann. »Það er hægt að gera«, svaraði hún, »því að hvert einasta smáatvik þessa hörmulega atburðar stendur svo skýrt fyrir hugskolssjónum mínum, eins og þau hefðu skeð í gær. Stoke Moran er ákaflega gamall búgarður, eins og jeg hefi áður Sagt> og við búum að eins í annari álmu húss- ms. Svefnherbergin eru á neðstu hæð, en dag- stofan og borðstofan á næsta lofti. Næst dyrun- uni er svefnherbergi lir. Roylotts, þar næst svefn- herbergi systur minnar, og mitt innst. Á milli herbergjanna eru engar dyr, og lierbergisdyrnar vita allar út að sama ganginum. Segi jeg nógu gt'einilega frá?« »Já, mjög greinilega«. »Gluggarnir á svefnherbergjunum snúa út að garðinum. Kvöldið áður en þessi sorgaratburður Serðist, fór Roylott læknir snemma til herbergis sh)s; en við vissum, að hann fór ekki nærri strax að hátta, því að systir mín, sem þoldi illa tóbaks- reyk, hafði óþægindi af reyknum af sterku, ind- versku vindlunum, sem hann var vanur að reykja, og kom þess vegna yfir í mitt herbergi. Og við sátum góða stund saman, og spjölluðum um vænt- anlega giftingu hennar. Klukkan 11 stóð hún upp, og ætlaði að fara; en hún nam staðar í dyrunum og sneri sjer við. »Segðu mjer eitt, Helen«, sagði hún, »hefir þú aldrei heyrt eitthvert einkennilegt blístur á nóttunni?« »Nei«. »Og það getur víst ekki átt sjer stað, að þú blístrir upp úr svefninum?« »Nei, það er óhugsandi. En hvernig fer þjer að detta þetta í hug?« »Mjer datt það í hug vegna þess að jeg hefi nú á síðkastið heyrt eitthvert einkennilegt, lágt, en þó greinilegt blísturhljóð kringum kl. 5 á morgn- ana. Jeg sef ákaflega laust, og vakna ætíð við þetta hijóð. Jeg get ekki sagt um það með vissu, hvað- an það kemur — hvort það kemur úr næsta her- bergi, eða hvort það kemur neðan úr garðinum. Mjer fannst rjett að spyrja þig að því, hvort þú hefðir ekki heyrt það líka«. »Nei, jeg hefi alls ekki heyrt það. Það eru sjálfsagt ólukkans Zigeunarnir, sem hafa laumazt inn í garðinn«. »Já, það er sennilegt. En ef það kemur utan úr garðinum, þá er það undarlegt, að þú skulir ekki hafa heyrt það«. »Jeg sef miklu fastara en þú«. »Nú, þetta er sjálfsagt ekki sjerlega mikilsvarð- andi mál«, mælti hún brosandi, bauð mjer góða nótt, og lokaði dyrunum á eftir sjer. Og rjett á eftir heyrði jeg að hún sneri lyklinum í skránni á sínu herbergi«. »Svo —«, mælti Holmes, »voruð þið vanar að læsa herbergjunum ykkar á nóltunni?« »Já, það gerðum við ætíð«. »Og hvers vegna?« »Jeg hefi þegar sagt yður frá því, að bæði urðarköttur og api gengu lausir á lieimilinu, og þess vegna gátum við aldrei verið óhræddar, nema við læstum herbergjunum«. »Já, það er auðskilið. En gerið nú svo vel halda áfram«. »Jeg gat ekki sofnað um nóttina. Mjer fannst einhver hætta vofa yfir okkur, þótt jeg gæti enga grein gert rnjer fyrir því. Eins og þjer munið, vorutn við systurnar tvíburar, og þjer vitið, hve afar-næm og innileg bönd tengja saman svo ná- skyldar sálir. Veðrið var lika illt og ógcðslegt. Regnið buldi á gluggunum og storinurinn hvein á liúshliðinni. En gegnum allan þennan hávaða lieyrðist allt í einu nistandi angistaróp. Jeg heyrði, að það var rödd syslur minnar, og stökk þegar í stað fram úr rúminu, fieygði sjali yfir mig og hljóp — 133 — 134 —

x

Haukur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Haukur
https://timarit.is/publication/48

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.