Alþýðublaðið - 01.07.1939, Blaðsíða 4
LAUGABDAGINN 1. JOLI 1939.
■ QAMLA BIOBI
Lifa, elska
og læra.
Bráðskemmtileg og afar
fjörug amerísk skemmti-
mynd frá Metro-Goldwyn
Mayer,
Aðalhlutverkin leika hin-
ir skemtilegu og vinsælu
leikarar:
Robert Montgomery
og
Rosalind Russell.
Kaupum tuskur og strigapoka.
W Húsgagnavinnustofan “B8
Baldursgötu 30. Sími 4166.
VESTUR-ISLENDINGA DAGUR
Frh. af 1. síðu.
marga muni fýsa að taka þátt í
þessari fyrstu sameiginlegu há-
tíð íslendinga vestan hafs og
austan.
Kl. 8 í fyrramálið heí'jast bíl-
ferðirnar héðan úr bænum til
Þingvalla, og verður bezt fyrir
þá, sem því geta við komið, að
fara sem fyrst, því eflaust verð-
ur mikil þröng við bílana, þeg-
ar líða fer að hádegi.
Vegna þess að aðalhátíðahöld-
in fara fram alllangt frá Valhöll
þá verður á skemmtistaðnum
seld mjólk, rjómi, kaldir drykk-
ir, einnig geta þeir, sem þess
óska, fengið gefins heitt vatn.
Mun það vera allra ósk og
von, að þessi hátíðahöld megi
fara sem veglegast og verða til
þess að styrkja bræðraböndin
milli íslendinga vestan hafs og
austan.
PRJÖNLESSYNINGIN
Frh. af 1. síðu.
sýndir alls konar litir, unnir úr
íslenzkum jurtum, svo og jurt-
irnar sjálfar, lyng og ýmis konar
grös-
Sýnishornadeildinni svipar rnjög
til söludeildarinnar, en þó verða
þar ýmsir listofnir munir.
Er sýningin í heild öll hin
snotrasta og ber gleðilegan vott
um það, hvað hægt er að vinna
úr íslenzkri ull, þegar rétt er að
farið.. Sagði og frú Laufey, að
markmið þeirra, sem að þessari
sýningu standa, væri að koma
upp leiðbeiningarstarfsemi fyrir
allar þær konur, er vinna vildu
úr íslenzkri u!l, og vildu for-
stöðukonurnar með sýningu þess-
ari fyrst og fremst skapa áhuga
fyrir þeim þjóðlega heimilisiðn-
aði.
Drottningin
er væntanleg hingað annað
kvöld.
VestnannadagarinD.
Góðir íslendingar!
Allir, sem fáið því við komið, sækið hátíðahöldin á Þing-
völlum á morgun.
Þau hefjast klukkan 11 árdegis.
DAGSKRÁ:
1. Hátíðin sett í Almannagjá kl. 11: Sigfús Halldórs frá Höfnum.
2. Guðsþjónusta: Sigurgeir Sigurðsson biskup.
(Karlakór Reykjavíkur og Lúðrasveit Reykjavíkur aðstoða).
3. Fjallkonan og Miss Canada og Miss America ganga til sætis.
4. Ávörp og ræður:
Ávarp ríkisstjórnar (Ólafur Thórs atvinnumálaráðherra).
— Alþingis (Har. Guðmundsson forseti sameinaðs Alþingis).
-— Reykjavíkurbæjar (Pétur Halldórsson borgarstjóri).
— Fjallkonunnar. (Þjóðsöngurinn).
Minni Bandaríkjanna (Jónas Jónsson skólastjóri).
— Canada (séra Friðrik Hallgrímsson).
Vesturferðir (Jakob Kristinsson fræðslumálastjóri).
Vestmenn (Guð'mundur Finnbogason landsbókavörður).
Mesta ljóðskáld Vesturheims (Sigurður Nordal prófessor).
Kl. 4 síðdegis: Gengið á Lögberg við hljóðfæraslátt (Lúðrasveit
Reykjavíkur). Matthías Þórðarson þjóðminjavörður lýsir staðnum.
Kl. 8: Söngur í Valhöll (Stefán Guðmundsson — Karlakór Reykja-
víkur).
Dans í Valhöll.
Smardansleiknr.
í K. R. hiisinu í kvold.
Hljémsveit hússins - Mljóm-
sveit Hótei tslands.
Aðgðngumiðar seldir frá kl.
6 e. h.
Prjónlessýning sðlusýning
var opnuð I dag kl. 1. í Iðnskól"
anum.
Á sýningunni verða margir falleg*
ir munir unnir úr íslenzkri ull.
Anna Ásmundsdóttir. Lauf ey Vilh jálmsdóttir.
Kýtfzkn fiskverzlun
opnnð.
WT ÝJA fisksöluverzlun
opna n.k. þriðjudag Jón
& Steingrímur í nýjum húsa-
kynnum, er þeir hafa fengið
í Tryggvagötu 2.
Er verzlunin öll hin hreinleg-
ásta, en það hefir þvi miður
skort á hjá mörgum fisksölum.
Það ,sem sérstaka athygli vekur
þarna, er, að í stað hvítra flísa
eru veggir, gólf og borð steypt
með hvítu sementi. Er þetta nýj-
ung hér á landi, sem eflaust á
eftir að vinna hylli margra fyrir
það, að auðveldara er að halda
öllu hreinu og heilu heldur en
með flísunum, sem oft vilja falla
af og brotna.
I afgreiðslunni eru mörg steypt
hólf, þannig, að hver fisktegund,
sem á boðstólum er, hefir eigið
hólf, og getur viðskiftavinurinn
gengið á milli og valið það, er
hann óskar. í þessum hólfum á
fiskurinn altaf að geta haldist
hreinn og kaidur, og er sérstakur
kæliútbúnaður í hverju hólfi.
Fyrir innan afgreiðsluna er
pantanaafgreiðsla og í sambandi
við hana sérstakur símaklefi.
I sambandi við verzlunina
verður allstórt vinnupláss, þar
sem gert er að fiskinum, hann
hreinsaður, og það sem ekki telst
söluhæft tekið frá.
Er verzlunin öll hin snyrtileg-
asta, og vonandi líður ekki á
löngu, þar til allir fisksalar í
bænum hafa fengið sér svipaðar
afgreiðslur.
Skrípaleiknr.
■piNS OG MENN muna, lét
Héðinn Valdimarsson fylgis-
menn sína i Byggingarfélagi al-
þýðu samþykkja það á dögun-
uni, að félagið breytti því að eins
lögum sínum i samræmi við
bráðabirgðalögin um breytingar
á lögunum um verkamannabú-
staði, að uppfylt yrðu viss skil-
yrði af hálfu ríkisstjórnarinnar
og Byggingarsjóðs verkamanna,
iog var auk þess settur frestur
fyrir uppfyllingu skilyrðanna til
þessara mánaðamóta. Mun það
einsdæmi, að minsta kosti hér á
landi, að löglegur félagsskapur
hafi sett skilyrði fyrir þvi, að
hlýða landslögum.
En skrípaleikurinn er bersýni-
lega ekki á enda, þvi að í gær-
kveldi boðaði Héðinn Valdimars-
son og hin gamla stjórn hans í
Byggingarfélaginu til fundar á
ný. Fundarefnið var þó, þegar á
fundarstaðinn kom, ekkert annað
en það, að láta samþykkja að
fresturinn, sem ríkisstjórninni og
Byggingarsjóði verkamanna var
settur af Héðni til þess aÖ upp-
fylla skilyrði hans, skyldi fram-
iengdur til næsta aðalfundar í
félaginu.
Bíóið á því bersýnilega a'ð
halda áfram.
Ferðafélag Islands
biöur þá, sem ætla að fara
hringferðina kring um land með
es. „Súðin“ héðan 5. þ. m., að
taka farmiða á skrifstofu Kr. Ó.
Skagfjörðs, Túngötu 5, í allra
seinasta lagi fyrir kl. 12 á mánu-
dag, 3. þ. m.
Eimskip.
Gullfoss er á Tálknafirði,
Goðafoss er væntanlegur kl. 4Vs
í dag. Dettifoss er á leið til
Grimsby frá Vestmannaeyjum,
Brúarfoss fór frá Kaupmanna-
höfn í morgun áleiðis til Leith,
Sejfoss er á leið hingað frá Ant-
werpgn.
f DAC
Næturlæknir er Karl S. Jónas-
son, Sóleyjargötu 13, sími 3925.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
og Iðunnar-apóteki.
ÚTVARPIÐ:
19,45 Fréttir. 20,10 Veðurfregnir.
20,20 Hljómplötur: Kórlög. 20,30
Upplestur: „Útvarpið á Fossi“,
smásaga (Hjörtur Halldórsson).
20,55 Útvarpstríóið leikur. 21,15
Hljómplötur: Sónata í d-moll,
Op. 31, eftir Beethoven. 21,35
Danzlög. 22,00 Fréttaágrip. 24,00
Dagskrárlok.
MESSUR Á MORGUN:
I dómkirkjunni kl. 11, séra Bj.
Jónsson. Engin síðdegismessa.
1 fríkirkjunni kl. 5 séra Marinó
Kristinsson, sóknarprestur á ísa-
firði.
1 Hafnarfjar'ðarkirkju kl. 2, séra
Hálfdan Helgason.
JÖNAS GUÐMUNDSSON
Frh. af 1. síðu.
mál, að ekki hafi neinn staðið
nær því að taka við þessu starfi
en Jónas Guðmundsson. Hann
hefir síðan 1934, er hann var kos-
inn á þing fyrir Alþýðuflokkinn,
haft mikil afskifti af málefnum
bæjar og sveitarfélaganna. Þann-
ig var hann ásamt Páli Her-
mannssyni höfundur núgildandi
framfærslulaga. Hann var og
höfundur laganna um kreppu-
lánasjóð bæjar- og sveitarfélaga
(og var í stjórn hans meðan hann
starfaði, ásamt þeim Magnúsi
Guðmundssyni og Hilmar Stef-
ánssyni. Hann átti og sætiímilli-
þinganefnd með þeim Magnúsi
Guðmundssyni og Bernharð Stef-
ánssyni, er samdi og lagði fyrir
Alþingi mjög ýtarlegt frumvarp
um tekjustofna bæjar- og sveitar-
féiaga, þó ekki næði það sam-
þykki Alþingis þá.
Er J. G. lætur nú af ritstjóm
blaðsins og tekur við hinu nýja
vandasama starfi sem eftirlits-
maður sveitarstjórnarmálefna,
þakkar blaðið honum störfin við
blaðið og árnar honum heilla í
hinu nýja starfi.
LAUGARVATNSMÓTIÐ
Frh. af l. síðu.
og sungið. Var þetta mjög
skemtilegt og sjaldgæft hér.
Að því loknu flutti sænsk
kenslukona skemtilegt erindi um
sænskar bókmentir og las upp
Ijóð.
Þá var lesið blaðið „Laugar-
vatnspósturinn“ á Sænsku, og
lásu höfundarnir hver sína rit-
gerð. Því næst var skrautsýning,
og var hún mjög skemtileg. Að
lokum voru danzaðir sænskir
þjóðdanzar, og var það góð
skemtun. ,
I morgun flutti Árni Jónsson
alþingismaður erindi um fiski-
veiðar Islendinga. Var það fróð-
legt erindi.
Þá flutti Axel Sömme dósent
erindi um verzlun við Nor'ður-
sjóinn. Var það síðasta erindið
á mótinu.
1 kvöid verður skemtun, sem
móíið heldur. Þá talar Pálmi
rektor, stúlkur úr K. R. sýna
leikfimi og Kristján Kristjáns-
son syngur.
Á morgun verður farið að
Gullfossi og Geysi, á mánuáag
að Sogsfossum og til Þingvalla
og komið hingað til Reykjavíkur
á mánudagskvöld.
Lifa, elska og læra
heitir fjörug og skemtileg ame-
risk mynd, sem GamJa Bíó sýn-
ir núna. Aðalhlutverkin leika Ro-
bert Montgomery og Rosalind
Russell.
Fjrrirlestra nm
ðulspekl
flytur E. C. Bolt í húsi Guðspeki-
félagsins dagana 7.—11. júlí n. k.
Áskriftalistar í Bókaverzlun
Snæbjarnar Jónssonar, Austur-
stræti 3 og í rakarastofunni í
Eimskipafélagshúsinu, sími 3625.
Nánari upplýsingar á sömu stöð-
um. Öllum heimill aðgangur.
KYMfi Blð SP
Hetjnr skðganna.
Amerísk stórmynd frá
Warner Bros, samkvæmt
hinni víðlesnu sögu Gods-
Country and the Woman,
eftir James Oliver Cur-
wood.
Aðalhlutverkin leika:
George Brent, Beverly
Roberts, E1 Brendel o. fl.
Myndin sýnir spennandi
og ævintýraríka sögu, er
gerist á meðal skógar-
höggsmanna og öll tekin í
eðlilegum litum í hinni
töfrandi náttúrufegurð
Kanada.
Útbreiðið Alþýðublaðið!
Útbreiðið Alþýðublaðið!
HÖFUM FENGIÐ
sérlega gott úrval af
Karlmannafataefnum,
Káputauum e@
Dragtaefnuna.
Enn fremur nýjar
gerðir af
Karimannaském.
V erksmið j uútsalan
GEFJUN - IÐUNN
Aðalstræti.
Til Þtagvalla
þrjár ferðir á dag.
Til Þingvalla kl. ÍO1/^ árdegis, l1/^ og 4 síðdegis.
Frá Þingvöllum kl. IV2 - 5Va og 8 síðdegis.
Á laugardögum og sunnudögum aukaferðir eftir þörfum.
Stelndón
Símar: 1580, 1581, 1582, 1583, 1584. ^
Hið islenska garðyrkjuféiag fer
skemmtiferð dagana 7. og8. júlí.
um Akranes og Borgarfjörð. Áskriftarlistar liggja frammi
í Blómabúðinni Flóru og Litlu Blómabúðinni, einnig hjá
Ingimar Sigurðssyni, sem gefa allar upplýsingar. Félags-
menn fjölmennið.
STJÓRNIN.
Breyting á slmskeytaoB simtalaBjölðum tii útlanda.
Samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar hækka símskeyta-
gjöld til útlanda frá og með 1. júlí 1939 sem hér segir:
Belgía 76 aur. orðið. Ítalía 92 aur. orðið.
Danmörk 60 — — Noregur 71 — —
England 60 — — Pólland 98 — —
Finnland 94 — — Portúgal 99 — —
Frakkland 80 — — Rússland 129 — —
Færeyjar 36 — — Spánn 88 — —
Gibraltar 93 — — Sviss 87 — —
Holland 80 — — Svíþjóð 71 — —
írland (fríríkið) 67 — — Þýzkaland 87 — —
Frá sama tíma hækka einnig talsímagjöld til útlanda sem
hér segir:
Norðurlönd og Stóra-Bretland kr. 33.00 fyrir 3 mínútna
viðtalsbil.
Belgía, Frakkland og Holland kr. 47,25, Sviss kr. 61,50,
ítalía, Pólland, Portúgal og Spánn kr. 75,75, Þýzkaland 1. gjald-
svæði kr. 42,75, 2. gjaldsvæði kr. 45,00, 3. gjaldsvæði 51,30.
Póst- og símamálastjórniu, 30. júní 1980.