Alþýðublaðið - 08.07.1939, Blaðsíða 4
LAUGARDAG 8. JÚLÍ 193d
■ GAMLA BfiO
„Heimpráu
Framúrskarandi vel leikin
og efnismikil UFA-kvikmynd
gerð samkvæmt hinu pekta
leikriti: „Heimat" eftir Her-
man Sudermann.
Aöalhlutverkiö leikur hin
fagra sænska söng- og leik-
kona.
ZARAH LBANDER
1 siðasta sinn.
Útbreiðið Alþýðublaðið!
Þjóðviljinn
er áhyggjufullur í dag út af
pví að brá'ðabirgðalögin um
verkamannabústaði hafi verið
brotin við stjórnarkosningu í
Byggingarfélagi verkamanna, af
pví að fleiri hafi greitt atkvæði
en full réttindi höfðu. Þóðvilj-
inn getur veriö rólegur fyrir hönd
bráðabirgðalaganna. Það fóreng-
in atkvæðagreiðsla fram. Aðeins
einn listi kom fram, og stjóm-
armeðlimirnir voru pví sjálf-
kjörnir. /’
Hafsteinn
fer í dag á síldveáðar. Er pá
aðeins línuveiðarinn Gullfoss eft-
ir.
SnmardaDsleikir
í K. R.-liúsinu í kvöld.
Hljósnsveit K. R.- hússins
Hljómsveit Hótel Islands.
Aðgðngumiðar ú 2 kr. seldir
frá kl. 6. e. h.
Allir f K. R.~ húsið.
Austur
að Hveragerði, ölvesá,
Eyrarbakka og Stokks*
eyri verða ferðir eftir*
leiðis alla daga
tvlsvar á dag
frá Reykjavík 10,30 árd.
og 7 síðd., frá Stokks*
eyri kl. 8,30 árd. og kl. 4
sfðd. — Aukaferðir alla
laugardaga fcl, 2 e.b.d.
Alla sunnudaga auka~
kvðldferð að austan kl.
9,30 s. d.
Stelndór. Sfmi 1580.
Alltaf er Steindór beztnr.
Ódýr ferð á
Djéfsáriótið
Sætið kr. 8. fram og aftur.
frá Steindóri
f DAS
Eitt í dag, annað
á morgnn.
IGÆR flutti Þjóðviljinn í
grein eftir Benjamín Ei-
ríksson langan samanburð á Al-
þýðuflokknum hér á landi og
Alþýðuflokkunum í Noregi,
Svíþjóð og Danmörku, þar
sem þeir síðarnefndu voru lof-
aðir hástöfum fyrir afrek sín í
þágu verkalýðshreyfingarinnar,
lýðræðisins og heiðarleikans í
opinberu lífi. en Alþýðuflokk-
urinn hér á landi stimplaður
sem ofbeldisflokkur, fjandsam-
legur verkalýðnum og ein aðal-
stoð spillingarinnar í landinu.
Var það látið fylgja þessum
samanburði, að sænsku verka-
lýðsfélögin myndu hafa hugsað
sig tvisvar sinnum um, áður
en þau hefðu lánað Alþýðu-
flokknum hér heima fé, ef
þeim hefði verið kunnugt um,
hvernig hann væri!
En í dag er komið annað
hljóð í strokkinn í Þjóðviljan-
um. í leiðara sínum í morgun
þykir honum það alvarlegasta
atriðið við sænska lánið, að því
fylgi auðsjáanlega það skilyrði
frá sænsku verkalýðsfélögun-
um, að „reka hér á íslandi póli-
tík fjandsamlega einingu
verkalýðsins“!!
Á skammri stund skipast veð-
ur í lofti í Þjóðviljanum, ekki
síður en í náttúrunni. í gær
voru sænsku verkalýðsfélögin
þar fyrirmyndarsamtök verka-
lýðsins, sem bara af ókunnug-
leika höfðu glæpzt á því, að
lána spilltri klíku eins og Al-
þýðuflokknum hér, fjandsam-
legri verkalýðshreyfingunni,
stórfé. En í dag eru það sænsku
verkalýðsfélögin, sem eru að
nota sér lánið til þess að kúga
Alþýðuflokkinn til að reka hér
„pólitík fjandsamlega einingu
verkalýðsins“!
Og hvorutveggju er vesalings
lesendum Þjóðviljans ætlað að
trúa. Fylgismönnum Héðins því
fyrra. Fylgismönnum Brynjólfs
því seinna!
MÓTTÖKUSAMSÆTHE) f
ODDFELLOWHÚSINU.
(Frh. af 3. síðu.)
samsætinu allar þær mörgu og
fögru gjafir, sem þeir félagarn-
ir höfðu fengið á hinum ýmsu
stöðum, er þeir kepptu á.
Guðmundur Ólafsson, for-
1 maður K.R.R., bauð Fram í ræðu
sinni að keppa við úrvalsliðið,
sem keppti á móti Englending-
unum. Var þessu boði tekið með
miklum fögnuði, og má búast
við, að þessi kappleikur fari
fram í næstu viku.
Næturlæknir er Páll Sigurðs-
son, Hávallagötu 15, sími 4959.
Næturvörður er í Laugavegs-
og Ingólfs-apóteki.
ÚTVARPIÐ:
19,45 Fréttir. 20,10 Veður-
fregnir. 20,20 Hljómplötur: Lög
eftir Chopin. 20,30 Upplestur:
Sögukafli (ungfrú Þórunn
Magnúsdóttir). 20,55 Útvairps-
tríóið leikur. 21,15 Hljómplöt-
ur: a) Létt kórlög. b) Gamlir
dansar. 21,45 Danslög. (22
Fréttaágrip.) 24 Dagskrárlok.
Á MORGUN.
Helgidagslæknir er Daníel
Fjeldsted, Hverfisgötu 46, sími
3272.
Næturlæknir er Halldór
Stefánsson, Ránargötu 12, sími
2234.
ÚTVARPIÐ:
10,00 Messa í Dómkirkjunni.
Prestsvígsla: Ragnar Benedikts-
son cand. theol. vígður til Stað-
ar á Reykjanesi. 11,40 Veður-
fregnir. 11,50 Hádegisútvarp.
18,40 Útvarp til útlanda (24,52
m.). 19.30 Hljómplötur: Létt
lög. 19,40 Auglýsingar. 19,50
Fréttir. 20,10 Veðurfr. 20,20
John McCormack syngur. 20,30
Ávarp frá Læknafélagi íslands.
20,35 Sven Ingvar prófessor 1
Lundi flytur ávarp. 20,45 Er-
indi próf. Sven Ingvars: Fæða
úr dýraríkinu (flutt á íslenzku:
Magnús Pétursson héraðslækn-
ir). 21,15 Útvarpshljómsveitin
leikur alþýðulög. (Einsöngur:
Frú Elísabet Einarsdóttir.) 21,55
Kvæði kvöldsins. 22 Fréttaá-
grip. 22,05 Danslög. 24 Dag-
skrárlok.
MESSUR Á MORGUN:
í dómkirkjunni kl. 10 f. h.,
prestsvígsla,
Kvöldsöngur í fríkirkjunni í
Hafnarfirði annað kvöld kl. 81Ú,
séra J. Au.
Engin messa í Laugarnes-
skóla.
MESTUR HITI í 3000 ÁR.
Frh. af 1. síðu.
„Menn vita, að saga heimsins
hefir skipzt í kalda og heita
kafla. Margir eru á þeirri skoð-
un, að hitatímabilið fari að
styttast, en þetta er enn á hulda
— og má vera, a hitinn fari vax-
andi enn um alllangt skeið.“
Sölvi Jónsson,
bóksali, Óðinsgötu 24, á 69 ára
afmæli í dag.
Tðsku- og
vestisvasadésahníf
fá allir þeir gefins, sem kaupa fiskbollur frá S. í. F.
Biðjið kaupmann yðar um dósahníf frá S. í. F.
um leið og þér kaupið S. í. F. fiskbollur.
Hnífarnir eru mjög hentugir til ferðalaga.
Kominn heim
Ófeigur J ðfeigsson
læknir.
Útbreiðið Alþýðublaðið!
Eimskip:
Gullfoss er á leið til Leith
frá Vestmannaeyjum, Goðafosser
á Akureyri, Brúarfoss er í
Reykjavík, Dettifoss er í Ham-
borg, Selfoss er á Akranesi.
Drottningin
fór frá ísafirði í morgun á-
leiðis bingað.
Súðin
var á Djúpavogi í gærkvöidi.
RH KTJA BM *
Daisy gerist
glettin.
Amerísk skemmtimynd frá
Warner Bros, um kenjótta
dollaraprinsessu. — Aðal-
hlutverkin leika:
Bette Davis og
Georg Brent.
Hér kynnast hinir mörgu
aðdáendur þessarar frægu
leikkonu listhæfileikum
hennar frá nýrri hlið, því
hlutverk hennar hafa hing-
að til verið alvarlegs efnis,
en hér leikur hún gaman-
samt hlutverk af mikilli
snild.
Aukamynd:
T ALM YND AFRÉTTIR.
Næsta hraðferð til Ak*
ureyrar er á mánudag
frá Stelndórl.
Dásamlegar bifreiðar með hita og útvarpl*
Aðstoðarljósméðurstaða
á fæðingardeild Landsspítalans er laus frá 1. sept. 1989.
Staðan er til 1 árs. Umsóknir sendist stjórnarnefnd ríkis-
spítalanna í Arnarhváli fyrir 30. júlí næstkomandi.
1. júlí 1939.
STJÓRNARNEFND RÍKISSPÍTALANNA.
Ljésmæðraskéli íslands
Námsárið hefst 1. október næstkomandi. Nemendur
skulu ekki vera yngri en 20 ára og ekki eldri en 30 ára,
heilsuhraustir (heilbrigðisástand verður nánar athugað í
Landsspítalanum). Konur, sem lokið hafa héraðsskólaprófi
eða gagnfræðaprófi, ganga fyrir öðrum. Eiginhandarum-
sókn sendist stjórn skólans á Landsspítalanum fyrir 1. sept-
ember. Umsókninni fylgi aldursvottorð, heilbrigðisvottorð
og prófvottorð frá skóla, ef fyrir hendi er.
Umsækjendur, sem hafa skuldbundið sig til að gegna
Ijósmóðurumdæmi að námi loknu, skulu senda vottorð um
það frá viðkomandi oddvita.
Landsspítalanum, 24. júní 1939.
GUÐM. THORODDSEN.
Umsækjendur Ljósmæðraskólans eru beðnir að skrifa
á umsóknina greinilegt heimilisfang, og hver sé næsta
símastöð við heimili þeirra.
SýaiBfl
Bæjarbúar, nú fer að verða hver síðastur að sjá
sýninguna í Markaðsskálanum.
Komið hefir verið fyrir á sýningunni áhaldi, sem
sýnir myndir frá atvinnulífi sjómanna okkar.
Vegna fjölda áskorana verður fáninn, sem gefinn
var Sjómannadeginum, hafður á sýningunni í nokkra
daga. — Sýningin opin alla daga kl. 2—10.
SÝNIN G ARNEFNDIN.
Siómaina.
Kveðjið
Keppa annað kvöld klnkkan 8.
Einnig sýna hinir rémuéu
Danmerkurlarar K.R.
stúlknaflokkurinn fimleika og
Færeyingar sýna þjóðdansa sína.