Alþýðublaðið - 21.07.1939, Blaðsíða 1
ALÞÝÐU
SllSTJém: F. K VALDraiAKSSON
ÚVCiEFANÐI: ALFÝÐUFLOSKDK^
IX. AM&M6VB
FÖSTUDAG 21. JÚLÍ 1939
165. TÖLUBLAÐ
Stækkw sildanrerksmlðj-
anna má nú teljast viss.
Stjórn ríkisverksmiðjanna öll sammála
um Raufarhafnarverksmiðjuna og SR 30
-----.-----
En ágreiningur er um Rauðku og SRP
ALÞÝÐUBLAÐIÐ skýrði
frá því nýlega, eftir viðtali
við Finn Jónsson, að síldveiði-
flotinn væri nú stærri en
nokkru sinni fyrr, og mikil
nauðgyn væri á að stækka síld-
arverksmiðjurnar þegar á næstu
vertíð. Einnig skýrði Alþýðu-
blaðið frá tillögum Finns Jóns-
sonar og Jóns Þórðarsonar: 1.
um að ljúka nú þegar byggingu
5 þúsund mála verksmiðju á
Kaufarhöfn, 2. um að leyfa
Siglufjarðarbæ að endurbyggja
,,Rauðku“ á Siglufirði með 5000
mála vinnslu, og 3. um að
stækka S.R. 30 á Siglufirði um
2500 mál.
Meirihluti síldarverksmiðju-
stjórnarinnar hefir nú skilað
áliti til ríkisstjórnarinnar, og er
það samhljóða áliti Finns Jóns-
sonar og Jóns Þórðarsonar að
öðru leyti en því, að meiri-
hlutinn vill neita Siglufjarðar-
bæ um leyfi til að endurbyggja
,,Rauðku,“ en stækka í staðinn
S.R.P.-verksmiðjuna um 2500
mál. Auk þess vill meirihlutinn
láta ríkið bjóða Siglufjarðarbæ
að kaupa ,,Rauðku“ fyrir 180
þúsund krónur.
Ríkisstjórnin hefir málið til
athugunar, og má telja fulla
vissu fyrir því, að eitthvað veru-
legt verði gert af hálfu ríkis-
stjórnarinnar til þess að koma
Raufarhafnarverksmiðjunni upp
fyrir næstu síldarvertíð og auka
afköst síldarverksmiðjanna á
Siglufirði, en ekki er enn vitað,
livort heldur atvinnumálaráð-
herrann samþykkir tillögur
minnihlutans eða meirihlutans.
Ágreiningar innu
SjálfstæðisfiokkS'
ins nni Rauðkn.
Morgunblaðið er í dag
að reyna að láta ifta svo
út sem einhver ágreiningur sé
um byggingu Raufarhafnarverk-
smiðjunnar, og þá einkum, að
Finnur Jónsson standi í vegi fyr-
ir því, að hún verði fullgerð, sem
er alveg tilhæfulaust, því að eng-
inn hefir gert eins mikið og F. J.
Nýtt Andersensævin-
týri byrjar í dag.
. til þess að koma því máli áleiðis.
Hér í 'blaðinu í gær var sann-
að:
1. Að eigi hefir skort heimild-
'ir til að byggja 5000 mála ve.rk-
smiðju á Raufarhöfn, þó að ráð-
herra Framsóknarflo'kksins, sem
fór með atvinnumálin eftir að
Haraldur Guðmundsson lét af
starfinu, léti undan falla að nota
heimildina.
2. Að F. J. hefir, ásamt Gísla
Guðmundssyni átt frumkvæði að
rannsókn hafnarinnar á Raufar-
höfn og flutningi hafnarlaga, sem
hvort tveggja gerir mögulegt að
dýpka höfnina á Raufarhöfn, eins
og nauðsynlegt er að gera í sam-
bandi við stóran atvinnurekstur.
Annars er einkennilegt hvers
vegna Morgunblaðið er að reyna
að láta líta svo út sem ágrein-
ingur sé innan verksmiðjustjórn-
arinnar um byggingu Raufarhafn-
arverksmiðjunnar og líklegast að
blaðið geri það í þeim tilgangi
að reyna að draga athygli les-
enda sinna frá þeirri staðreynd,
að það er stór ágreiningur um
það innan Sjálfstæðisflokksins,
hvort leyfi skuli veita til að end-
urbyggja Rauðku eða ekki.
Snmarskemmtnn
I Ranðhólnm á
sunnndaginn.
Margt til skemmtunar.
RAl
V)
m&MsrnX:
Pólskir liðsforingjar í eftirlitsferð við Iandamærin.
Pólland sendir Þýzkalandi
og ítaliu síðustu aðvörun.
— .. ■*---
Pólskur tollvðrður skotinn til bana af
nazistum innan við landnmæri Póllands.
LONDON í morgun. FÚ.
Tp* RÁ utvarpsstöðinni í
Varsjá var í gærkvöldi
send tilkynning á pólsku,
þýzku og ítölsku, þess efnis,
að Pólland myndi óhikað.
berjast til varnar Danzig.
ÆVINTÝRINU Þumalína er
nú lokið og hefst nýtt
ævintýri í dag, Svínahirðirinn,
Þau tvö ævintýri, sem þegar
hafa birzt, Snædrottningin og
Þumalína, hafa hlotið miklar vin-
sældir lesenda bláðsins, ungra
sem gamalla, og svo mun einn-
ig fara utn þetta ævintýri, sem
byrjar i dag. Fylgizt með frá
byrjun.
NemtamálaráO að kefja
stðrkostlega bókaútgáfu.
—---♦---•
Ætlunin er að gefa árlega út
margar innlendar og erlendar
drvalsbækur fýrir fast ársgfald.
CirORKOSTLEG útgáfu-
^ starfsemi er í undir-
búningi hér af hálfu Mennta-
málaráðs og Menningarsjóðs.
Hefir Menntamálaráð um
lengri tíma undirbúið þessa
útgáfustarfsemi og safnað
allmiklu fé til hennar. Mun
útgáfustarfsemin hefjast í
haust.
Enn er ekki fyllilega á-
kveðið um allt fyrirkomulag
þessarar starfsemi, en ákveð-
ið mun vera, að hún verði
rekin á félagslegum grund-*
velli, þannig, að menn geti
fyrirfram gerzt áskrifendur
að öllum bókum útgáfunnar
árlega, gegn vissu ársgjaldi,
sem verður mjög lágt.
AÍþýðublaðið hefir haft tal af
einum af fulltrúunum úr
Menntamálaráði og spurt hann
um mánari fregnir af þessari
nýju útgáfustarfsemi, en hann
svaraði, að á þessu stigi málsins
væri ekki hægt að gefa nánar
upplýsingar um hana, enda
kæmi tilkynning um þetta mál í
blöðunum á morgun.
Hann skýrði þó frá því, að í
ráði væri að gefa út árlega 8—
10 bækur, innlendar og erlendar
bókmenntir, og að ársgjaldið
fyrir allar bækurnar, ef til vill
að bókmenntalegu tímariti við-
bættu, sem kæmi út tvisvar á
ári, yrði um 10 krónur.
— Hafið þið ákveðið nokkrar
bækur til að byrja með?
„Það hefir verið rætt um ýms-
ar bækur. Og ég held, að óhætt
sé að skýra frá því, að með
fyrstu bókunum, sem út koma,
verður æyisaga Viktoríu Eng-
landsdrottningar, sem er raun-
verulega saga Englands í 60 ár.
Er hún skrifuð af hinum heims-
kunna enska ævisagnaritara
John Strachey, og mun áreið-
anlega vekja mikla athygli hér,
eins og annars staðar. Að sjálf-
sögðu munum við feta okkur á-
fram í þessari starfsemi, en það
er óhætt að fullyrða, að hjá
henni koma út 8—10 bækur ár-
lega, þegar hún er komin á góð-
an rekspöl, og að ársgjaldið fyr-
ir allar bækurnar verður ekki
hærra en 10 krónur.“
Þessi frétt mun vekja fögnuð
meðal bókelskra manna í land-
inu. Ásamt Menningar- og
Frh. á 4. síðu.
í yfirlýsingunni segir:
„Látum þá skilja til hlítar
þessi orð, sem halda, að hægt
sé að svæla .Pólverja á burt
úr Danzig. Látum stjórnend-
ur Þýzkalands skilja, að það
er á þeirra valdi og þeirra
einna, hvort til styrjaldar
kemur eða ekki. Þetta er hið
síðasta orð Póllands.“
í fregn frá Varsjá segir í gær,
að pólskur tollvörður hafi verið
skotinn til bana í gærmorgun
innan landamæra Póllands, og
gerðist það með þeim hætti, að
tollvörður frá Danzig réðst inn
yfir landamærin ásamt tveim
nazistum. Skipuðu þeir hinum
pólska tollverði að nema staðar,
og í þeim svifum var hann skot-
inn af öðrum nazistanum. Verð-
ur ekki séð af fregninni, hvort
hann hafi neitað að hlýðnast
fyrirskipuninni, eða hvernig
þetta hefir borið að.
Senaíið i Danzig biðnr
aliikuar.
í Varsjá, er það tilkynnt, að
senatið í Danzig hafi þegar beð-
izt afsökunar á þessum atburði.
í frétt frá Danzig um þennan
atburð segir hins vegar, að hinn
pólski tollvörður hafi verið
skotinn innan landamæra frí-
ríkisins Danzig, og hafi það ver-
ið tollembættismaður Dahzig-
borgar, sem skaut hann í sjálfs-
vörn.
Landsstjórinn í því pólska
héraði, þar sem atburður þessi
gerðist, hefir þgar fyrirskipað
nákvæma rannsókn málsins.
Uppskerovimm hraðað i
Ausíur-Prússianúi.
Farfuglar byggja
sér „tareiður."
B-j ANDALAG íslenzkra far-
A-J fugla bauð blaðamönnum
til sín í gær. Hefir það komið sér
upp nokkrum „hreiðrum“ til
þess að tryggja félögum gist-
ingu á ferðalögum.
Hafa „farfuglar“ útbúið þessa
gististaði á eyðibýlum á Suð-
vesturlandi, svo sem t. d. í Nýja-
bæ í Krýsuvík og Hrauntúni.
Enn fremur hafa þeir útvegað
sér ódýra gistingarstaði á Kol-
viðarhóli, í Grindavík, í Þrasta-
lundi, Hveragerði í Grafningn-
um og við Geysi.
Bandalagið hefir látið útbúa
sér félagsmerki, það er blár þrí.
hyrningur með merkisstöfum
bandalagsins í hvítum lit.
AUÐHÓLASKEMMTUN
erður haldin n.k. sunnu-
dag. Er þetta fyrsta sumar-
skcmmtunin á þessu sumri, sem
haldin er í Rauðhólum — og
verður sérstaklega til hennar
vandað, svo að allir geti skemmt
sér í hinum fögru og einkenni-
legu Ranðhólum, þar sem skipt-
ist á bert hraun og grasi grónar
lautir.
Lúðrasveit Reykjavíkur mun
skemmta þarna með sinum á-
gætá og velþekkta hljóðfæra-
slætti, Haraldur Guðmundsson
mun flytja ræðu, og einnig verða
fimleikasýningar og ’frjálsar í-
þróttir og að lokum dansað fram
eftir kvöldi.
Eflaust vorður margt manna
i Rauðhóium á sunnudag, ef veð-
ur verður gott, og er þvi bezt
fyrir fólk að komast sem fyrsl
uppeftir, svo að það lendi ekki
í neinni þröng við bílana, sem
fara frá Lækjartorgi fyrir og eft-
ir hádegið, en kl .21/2 hefst
skemmtunin.
Þeim er þess óska er heimiit að
tjalda innan Rauðhólagirðingar.
Verður nánar skýrt frá tilhög-
un skemmtunarinnar í biaðinu á
morgun.
Lingiaden
hófsi i gær
Frá fyrsta degi gessa
mikla alpiúdamóts.
A LÞJÓÐAFIMLEIKA-
mótið Lingiaden var
sett á aðalleikvanginum
í Stokkhólmi í gær kl. 18.30
(sænskur tími), en eins og
kunnugt er, þá taka um 38
þjóðir þátt í þessu fimleika-
móti og um 8 þúsund fim-
leikamenn og konur.
Frh. á 4. síðu.
Frá bæjarstjórnarfuadi:
Branðsðlnstðlknr og bafcarameist-
arar deila am loknnartfimann.
-----4.----—
Skýrslu um Miaveituna gaf borg~
arsfjéri á lokuðum fundi.
Meira en helmingur meðlim-
anna í æskuiýðsfélagsskap þýzkra
nazista, er nú starfandi við upp-
skeruvinnu, einkum í Austur-
Prússlandi.
O ÆJARSTJÓRNAR-
FUNDUR var haldinn
í gær. Á lokuðum fundi síð-
ast lét borgarstjóri bæjar-
fulltrúum í té skýrslu um
samningana við Höjgaard &
Schultz, og um það, hversu
langt undirbúningi málsins
er komið.
Nokkrar umræður urðu á
fundinum um lokunartíma
brauða- og mjólkursölubúða.
Vilja bakarameistarar lengja
opnunartímann um helgar og
fyrir hátíðar, en svo var helzt
að heyra á bæjarfulltrúum,
að þeir væru því andvígir,
hins vegar sagði borgarstjóri,
að reglugerðin þyrfti breyt-
inga við — og bæri nauðsyn
til, að hún yrði endurskoðuð
hið fyrsta.
Frú Soffía Ingvarsdóttir taldi
enga nauðsyn til að lengja opn-
unartímami. Húsmæður gætu vel
Frh. á 4. síðu.