Alþýðublaðið - 24.07.1939, Page 2

Alþýðublaðið - 24.07.1939, Page 2
MÁNUDAG 25. JÚLÍ 1939 ALÞYÐUBLAÐIÐ Við skulum nú sjá, hvað er í hinu skríninu, áður en við reiðumst, ságði keisarinn, og svo kom næturgalinn í ljós, og hann söng svo yndislega, að það var ekki hægt að segja neitt ljótt um hann. —• Superbe! Charmant! sögðu hirðmeyjarnar, því að þær töluðu allar frönsku, hver annarri verr. — En hvað fuglinn minnir mig á lírukassa keisarafrúarinnar sálugu, sagði gamall hirðmaður. — Já, sagði keisarinn, og hann grét, eins og barn. — Hann ætti nú bara líka að vera raunveru- legur, sagði prinsessan. — Jú, það er raun- verulegur fugl, sögðu þeir, sem með hann komu. — Jæja, látum þá þann fugl fljúga, sagði prinsessan, og hún vildi ekki sjá prinsinn. Maðurinn — sem hvarf. Þessi óvenjulega skemmtilega skáldsaga er skrifuð af 6 þekktustu skáldsagna- höfundum Bandaríkjanna, eftir hug- j mynd Franklin D. Roosevelts Banda- ríkjaforseta. Kostar 2 krónur. Fæst í Afgreiðslu Alþýðublaðsins. AMATÖRDEILD AMATORDEILD KemedíaIFI fafiu rist-r. 7 Útbreiðið Alþýðublaðið! UMRÆÐUEFNI Seinleg viðgerð á Vonar- stræti. Tjarnargatan og garðsteypan hjá borgarritar- anum. Rjómaísinn og hin nýju bráðabirgðaákvæði um sölu hans og framleiðslu. ATHUGANIR HANNESAR Á HORNINU. MÉR DATT í hug á laugardag- inn, þegar norrænu gestirnir á full- trúafund Norræna félagsins voru að safnast saman í Oddfellowhús- inu og verkamennirnir voru að vinna við Vonarstræti, að mikið gæti verið seinlæti okkar ástkæru bæjarstjórnar. Fyrir ári var byrjað að gera við Vonarstræti. — Það tók að minnsta kosti 9 mánuði að gera við spölinn frá Lækjargötu að Templarasundi, og ekki virðist það ætla að taka styttri tíma að gera við spölinn að IC.R.-húsinu. 1 : -v V - i i Bæjarbúar hneykslast ákaflega á þessu seinlæti, enda skilja þeir það ekki. Ef til vill getur þæjar- verkfræðingur gefið einhverja skýringu á þessu, og er þess að vænta, að hann geri það hið allra fyrsta. Ég væri fús til að birta bréf frá honum um þetta. Frá „frú X” hefi ég fengið eftir- farandi línur: Fyrir rúmum mán- uði var partur af Tjarnar- götunni rifinn upp, og þéldu í- búarnir við götuna, og aðrir þeir sem þarna gengu, að nú ætti að fara að malbika Tjarnargötuna. En það hefir ekki orðið enn. Strax og verkamennirnir voru búnir að grafa allt upp, svo að ekki var lengur viðlit að opna neinn glugga við götuna fyrir moldryki, hurfu þeir allir og fundust eklci aftur fyrr en ejjtir nokkurra daga leit við garðsteypu hjá borgarritaran- um.” HVERNIG stendur á því, að við, sem borðum um þessar mundir á matsöluhúsum, fáum aldrei. eða svo að segja aldrei saltfisk og sízt góðan, pressaðan saltfisk? Er á- stæðan sú, að saltfiskur fáist ekki í bænum um þessar mundir. Hálf- verkaður labri er ekki góður mat- ur, en það kemur þó fyrir, að hann sé borinn á borð fyrir mann. SVOKALLAÐUR rjómaís er mikið étinn — og þá mikið seldur hér í Reykjavík. Er stundum fremur ógeðslegt að sjá menn sleikjandi þessa „fæðutegund” í rykinu — á götum og gatnamót- um. Fyrir síðasta bæjarstjórnar- fundi lá fundargerð heilbrigðis- nefndar, og hafði hún sett nokkur bráðabirgðaákvæði um framleiðslu og sölu á rjómaís með eða án bragðbætandi efna. Þessi bráða- birgðaákvæði eru svohljóðandi: Allt „ískrem”, sem selt er til neyzlu skal vera rjómaís — og DAGSINS. hafa að minnsta kosti 10% fitu. Rjómi eða mjólk, sem í „ísinn” er notuð, skal vera gerilsneydd. Öll tæki og efni, sem notuð eru til framleiðslunnar, skulu fullnægja ströngustu hreinlætiskröfum, sbr. 11. gr. reglugerðar um tilbúning og dreifing matvæla o. s. frv. Nota skal einungis hreint salt og ís, til- búinn úr venjulegu drykkjarvatni til frystingar.” „HÚSAKYNNI framleiðslunnar fullnægi ákvæðum ofannefndra reglugerðargreinar um tilbúning og dreifingu matvæla o. s. frv. Starfs- fólk skal vera hreinlegt og heilbrigt samkvæmt læknisvottorði. „SALA Á RJÓMAÍS skal aðeins leyfð frá mjólkur- og brauðbúðum. Á viðurkenndum veitingastöðum má þó einnig selja rjómaís til neyzlu, þar á staðnum. Þó getur heilbrigðisnefnd veitt undanþágu öðrum, ef þeir hafa áður framleitt og selt rjómaís, enda uppfylli þeir að öðru leyti sett skilyrði. Svo má og heilbrigðisnefnd leyfa sérstakar ísbúðir til bráðabirgða, við einstök tækifæri með sömu skilyrðum og að framan getur.” „HEILBRIGÐISNEFND ákveð- ur í hverju einstöku tilfelli, hvort viðunandi skilyrði séu fvrir hendi til framleiðslu og sölu ofangreindr- ar vöru. Skal hún um það efni meðal annars miða við gerlamagn vörunnar.” VITA NÚ . rjómaíssneytendur, hvað. þeir leggja sér til munns. Hannes á horninu. ir áttatin ára. INGIBJÖRG VIGFÚSDÓTTIR TTATIU ÁRA er í dag Ingibjörg Vigfiisdóttir, Bragagötu 25 B hér í bæ. Hún var fædd að Söndum á Meóallandi. Ári'ð 1880 giftist hún Einari Jónssyni jámsmiði. Eignuðust þau 8 börn, og em 6 þeirra á lífi. Mann sinn missti hún árið 1907 og fluttist þá til Reykjavíkur með tvö börnin og vann fyrir þeim með stökum dagnaði, jafnvel á eyrinni, ef annað brást. Má segja, að ævi hennar hafi verið óslit- inn erfiðisdagur, sem þó hefir skapað henni mestu lífsgleðina, því að enginn hefir séð gömlu konuna við störf sín öðm vísi en með ánægjubros á andlitinu. Árið 1912 giftist hún í annað sinn Skúla Markússyni frá Hjör- leifshöfða, og búa þau nú hér í bæ. Þrátt fyrir áttatíu árin að baki, er gamla konan enn ern og hress, létt og kvik á fæti, eins og ung væri, en brjðstið þó farið að bila. Hún hugsar enn um kálgarðana sína, sáir, reitir illgresið úr þeim og uppsker svo með gleði. Hún á manga vini og kunn- íngja, sem í dag óska henni til hamingju á áttræðisafmælinu og vona, að hún megi enn um skeið gleðjast við störf sín og njóta á- vaxtanna. Störf Ingibjargar hafa verið margþætt um ævina, tóvinnan hjá henni byrjaði með því að klippa sauðina og endaði með því að sauma flíkina eða prjóna. Fá karlmannaverk munu það vera, sem hún hefir ekki unnið, jafn- vel róið til fiskjar, ef með þurfti. Þó er enn ótalið þaö. sem fátítt er um ólærða konu, að hún er ljósmóðir yfir 30 barna, ogíengu tilfelli henti nokkurt óhapp. Ingi- björgu féllust aldrei hendur né brast kjark, þegar aðstoðar þurfti með. Hún er ein af hinum þróttmiklu íslenzku alþýðukonunt, sem hafa tekið lífið og störfin föstum tök- um, og sem ekki voru mátaðar í silkiumbúðum 20. aldarinnar. Synt yfir Þrándheimsfjörð. Ung sundmær, Gudrun Dalde, f’synti í gær yfir Þrándheimsfjörð, ,‘frá Vanviken til Trondhe-im, en ifvegalengdin er 20 kíiómetrar. 'Hún var 8 klst. og 20 mínútur á leiðinni. Er þetta taliÖ glæsilegt afrek, ekki sízt vegna þess, að sjávarhiti var aðeins 10 stig. — Ungfrú Dahle hefir nú lýst yfir, að hún ætli að gera tilraun til að þreyta sund yfir Ermarsund. NRP.—FB. Útbreiðið Alþýðublaðið! CHARLES NORDHOFF og JAMES NQRMAN HALL: Uppreisnki á Bountji. 28. Kari ísfeld íslenzkaði. þeir brjóta eitthvað af flöskunum, verða þeir að fara út aftur og sækja meira. Ghristian þrýsti hönd mína kankvís í bragði, og við biðum meðan Bakkus gamli og Peckover hjálpuðu til að koma farm- inum í land. Brátt kom einn af Tahitiíbúunum upp í fjöruna og rogaðist með körfuna. Ég kynnti félaga mína fyrir hinum innfæddu vinum mínum. Hina og maður hennar leiddu gestina heim að þúsinu og við gengum á eftir. Maimiti varð okkur Christian samferða. Mér hafði geðjazt vel að Christian frá því að ég sá hann fyrst, en ég kynntist honum ekki vel, fyrr en á Tahiti. Hann var fallégur maður og vel vaxinn, og oftar en einu sinni varð ég þess var, að Maimiti leit á hann í laumi. Þegar við höfðum setzt á ábreiðurnar, gaf Bakkus burðar- mönnunum merki um að setja frá sér körfuna. Hann var ennþá móður eftir ferðalagið, þreifaði eftir tóbaksdósunum, bretti upp erminni, stráði tóbaki á handlegginn og saug það allt upp í nefið. Svo hnerraði hann nokkrum sinnum, tók síðan upp gríð- arstóran vasaklút og snýtti sér hreppsstjórasnýtu. Því næst stakk hann hendinni ofan í vasa sinn og dró upp tappatogara. Bakkus og Peckover urðu brátt sætkenndir. Tuatua kærði sig ekki um að yfirgefa þá, svo lengi, sem vín væri til, og Christian, Maimiti, Hina og ég gengum aftur til strandarinnar og létum hina mörgu matsveina Hitihitis um að matreiða, Þetta var lygn og bjartur morgunn — og okkur þótti gott a geta gengið í skugga hinna stórvöxnu trjáa, sem uxu við ströndina. Lítil á rann til sjávar um mílu vegar austan við bústað Hitihitis, og ósinn myndaði blátært stöðuvatn. Stúlkurnar tvær hurfu inn í runnana og komu aftur klæddar stuttum pilsum úr nærri því vatnsheldu efni. Engar konur eru jafn siðlátar og konur á Tahiti, en þær eru ekki feimnari við að sýna brjóst sín en enskar konur við að ganga blæjulausar. Christian stóð við hlið mér í baðfötum, og kom hinn fallegi vöxtur hans vel í ljós. Hann leit á stúlkurnar og sagði lágt: — En hvað þær eru fallegar, Byam! IV^imiti stóð þama grönn og vel vaxin á vori æskunnar. Varir hennar voru eins og nýútsprungin rós og tinnusvart hár hennar hrundi niður um brjóst hennar og axlir. Slíka sjón hefði borgað sig að fara langar leiðir, til þess að sjá. Stundarkorn stóð hún og studdi annarri hendinni á öxl hinnar konunnar. Svo sveip- aði hún að sér kyrtlinum og hljóp upp á háan bakka. Andartak vó hún salt hátt yfir vatnsfletinum. — Svo steypti hún sér skríkjandi í vatnið, og ég sá hana niður við botn á tveggja faðma dýpi. Christian var fyrirtaks sundmaður. Hann stakk sér í vatnið og Hina á eftir. í meir en klukkutíma skemmtum við okkur 1 vatninu. Tahitibúar baða sig sjaldan í sjónum, nema þegar brim er. Þá leika hugdjarfir karlmenn og konur íþrótt, sem kölluð er horus. Þeir synda út með stærstu brotsjóunum með létta fjöl, sem er um tveir metrar á lengd. Svo láta þeir freyðandi brot- sjóinn bera sig að landi. En daglega baða þeir sig í hinum tæru, svalandi ám og lækjum, sem víða renna niður af fjöllunum. Og enda þótt þeir baði sig tvisvar eða þrisvar á dag, hlakka þeir til næsta baðs. Menn, konur og börn baða sig saman með hrópum og gleðilátum. Þetta er þeirra ,,Aðalstræti,“ þar sem kunningjar mætast, þvaðra saman og segja hver öðrum nýjustu fréttir. Að loknu baðinu létum við sólina þurrka okkur, en stúlkurnar greiddu sér með einkennilega smíðuðum bambushárgreiðum. Christian var prúðmenni hið mesta og fjarri því að vera flagari, enda þótt heitt væri í honum blóðið. Ilann gekk á eftir við hlið Maimitis heim að húsinu. Og einu sinni, þegar ég leit við, sá ég, að þau leiddust. Það var fallegt par, þessi ungi, enski sjómaður og Tahitistúlkan. Örlögin, sem af miskunn sinni draga tjald fyrir svið framtíf urinnar, létu mig grunlausan um það, sem átti eftir að koma íyrir þau tvö, sem ég nú sá leiðast, og áttu fyrir höndum löng ferðalög, þjáningar og torfærur. Maimiti leit niður, roðnaði cg* reyndi að losa hönd sína. En Christian sleppti ekki hönd hennar, en brosti til mín. — Sérhver sjómaður þarf að eiga unnustu, sagði hann bæði í spaugi og alvöru. — Og nú hefi ég fundið mína unnustu. Ég þori að veðja um það, að ekki finnst fallegri né betri stúlka á þessari eyju! Hina brosti, og greip um handlegg mér til merkis um, að ég skyldi ekki ónáða þau. Henni hafði geðjast vel að honum strax og hún vissi, að hann var næstæðsti maður um borð. VII. Christian og Bligh. ‘C' RÁ þeim degi, er Christian hitti Maimiti, lét hann ekkert tækifæri ónotað til þess að hitta okkur. Hann heimsótti okkur, þegar hann hafði ekki skyldustörfum að gegna um borð, hvort sem var nótt eða dagur. Þau reikuðu óft um skógana á nóttunni, og þau fengu sér stundum máltíð á nóttunni, þegar fiskimennirnir komu að. Hitihiti gamli vakti mig oft á nótt- unni, aðeins til þess að þvaðra. við mig, eða vegna þess, að hann mundi eftir orði, sem hann hafði ekki munað eftir því um daginn. Ég vandist þessum næturtruflunum og fékk mér, til uppbótar, dúr á daginn, eins og gestgjafi minn. Fjölskyldan viðurkenndi Christian fljótt sem elskhuga Mai- mitis. Hann kom sjaldan svo, að hann hefði ekki meðferðis smágjafir, bæði til hennar og annarra, og fjölskyldan hlakkgði

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.