Alþýðublaðið - 13.09.1939, Side 4
MIÐVTKUDAGUR 13. sept. 1939.
iflGAMLA B§6 MH
Ástney
ræningjans
Gullfalleg og hrífandi stór-
mynd eftir óperu Puccinis,
„The girl of the golden
West.“
Aðalhlutverkin leika:
Jeanetíe Mc Donald 1
og
Nilson Eddy.
Lyra
kom til Be.rgen á mánudags-
kvöld kl. 7.
5MBPAUTC EPÐ
rTrrV'pijn
Súðln
Austur um land í hringferð
laugardaginn 16. þ. m. Vör-
um sé skilað fyrir hádegi á
föstudag. — Farseðlar ósk-
ast sóttir á föstudag.
Grænmetissalan við Hótel
Heklu er flutt á torgið við Stein
bryggjuna. Þetta eru viðskipta-
vinir mínir beðnir að athuga.
Selt frá kl. 8—12 dag hvern.
Ur landsuðrl
Ljóðabók Jóns Helgasonar prófessors, kom út í al-
mennri útgáfu í dag. Verð kr. 6,00 heft og kr. 8,00 bundin.
Fæst hjá öllum bóksölum.
Bókaverzlunin Heimskringla.
Laugavegi 38. Sími 5055.
Tilkynning
frá ríkiss tjorninni.
Allar verzlanir, sem verzla með vörur þær,
, ' sem taldar eru í bráðabirgðareglugerð útg. 1.
sept. þ. á. skulu í síðasta lagi að kvöldi föstu-
dagsins 15. sept. leggja í póst til viðskiptamála-
ráðuneytisins skýrslur þær, sem getið er í 6.
gr. nefndrar reglugerðar, en það eru:
1) Skýrslur um birgðir 1. sept. 1939.
2) Skýrslur um innkaup á tímabilinu 1.—■
15. sept.
3) Söluskýrslu, þ. e. skrá um viðskipta-
menn og sölu til þeirra, er séð verður af, hve
mikið hver einstakur hefir keypt.
Reykjavík, 13. sept. 1939.
MATVÆLASKÖMMTUNIN.
Frh. af 1. síðu.
saman eða heimilisfeður í
þeirra stað.
Hreppsnefnd eða bæjarstjórn
á hverjum stað annast úthlut-
unina.
Þá er úthlutun seðlanna fer
fram í fyrsta sinn, skulu við-
takendur þeirra undirrita
dr'engskaparvottorð um, h|ve
mikinn forða þeir eigi af vöru-
tegundum, er seðlarnir hljóða
um, á þar til gerð eyðublöð.
Skal forðinn dreginn frá við
fyrstu eða aðra úthlutun og
hinar síðari, þar til honum er
lokið, með því að klippa af
seðlunum sem svarar því vöru-
magni, er forðanum nemur.
Eru allir heimilisfeður skyldir,
að viðlögðum sektum, að mæta
eða láta mæta til slíkrar
skýrslugjafar, jafnt þótt þeir
eigi nægar birgðir og þurfi því
eigi seðla fyrst um sinn.
Ríkisstjórnin setur á stofn
skömmtunarskrifstofu, sem
hefir yfirumsjón með matvæla-
úthlutun samkvæmt þessari
reglugerð og öðrum hliðstæð-
um ráðstöfunum.
Þá er úthlutun hefir farið
fram, skulu hreppsnefndir og
bæjarstjórnir senda skömmtun-
arskrifstofunni símleiðis
skýrslu um, hve miklar birgðir
hafi verið samtals á heimilum,
hve mikið af seðlum hafi orðið
afgangs og hve miklu magni
afklippingar hafa numið. Ónot-
aðir seðlar og afklippingar
skulu sendir skömmtunarskrif-
stofu með fyrstu póstferð, en
geyma skal drengskaparyfir-
lýsingar um birgðir til athug-
pnar við næstu úthlutanir.
Hinn 16.—17. sept. n.k. skulu
allir þeir, er verzla með fram-
angreindar vörutegundir, fram-
kvæma birgðatalningu og gefa
hreppsnefndum eða bæjar-
stjórnum drengskaparvottorð á
þar til gerð eyðublöð um birgð-
ir sínar af þessum vörutegund-
um.
Seðlaúthlutun fer þannig
fram, eftir að fyrstu úthlutun
er lokið, að í lok hvers mánað-
ar' eru afhentir seðlar fyrir
næsta mánuð til þeirra, sem
skila stofnum af eldri seðlum,
með áritun nafns og heimilis-
fangs, og enn fremur til þeirra,
sem fært geta sönnur á, að þeir
hafi ekki fengið seðla við fyrri
úthlutanir. Hreppsnefndum er
heimilt að gefa sveitaheimil-
um, sem vegna staðhátta geta
ekki dregið að sér matvæli
mánaðarlega að vetrinum, ávís-
anir um afhendingu á skömmt-
unarvörum hjá kaupmanni
þeim eða kaupfélagi, sem þau
skipta við. Jafngildi ávísananna
sé síðan klippt af seðlum heim-
ilismanna, áður en þeir eru af-
hentir og afhent verzlun þeirri,
sem látið hefir úti vörurnar
gegn framvísun ávísananna.
Hver skömmtunarseðill gild-
ir fyrir einn mann í eirin mán-
uð (að undanskildu því, að
fyrsti skömmtunarseðilinn gild-
ir til 1. okt. 1939, og er um
helming af því magni, sem hér
fer á eftir). Skiptist hann í
stofn og 30 reiti. Eru 12 reitir
fyrir hveiti eða hveitibrauð,
hver fyrir 200 g af hveiti eða
250 g af hveitibrauði, 6 reitir
fyrir rúgmjöl eða rúgbrauð,
hver fyrir 500 g af rúgmjöli eða
750 g af rúgbrauði, 4 reitir fyr-
ir haíragrjón, hver fyrir 250
g, 2 reitir fyrir hrísgrjón, baun-
ir og allt annað kornmeti en
það, sem hér er talið að framan,
nema fóðurbygg, hafra og fóð-
urmais, hvor fyrir 250 g, 2 reit-
ir fyrir kaffi, hvor fyrir 125 g
af brenndu og möluðu kaffi eða
150 g af óbrenndu kaffi og 4
reitir fyrir sykur, hver fyrir
500 g. Má klippa seðlana í sund-
ur og skúlu reitirnar afhentir
jafnóðum og kaup fara fram,
en stofninn ska! geyma þar til
næsta afhending fer fram. Skal
honum þá skilað, og verða nýir
seðlar aðeins afhentir gegn
eldri stofni,
Heimilt er að kaupa bygg-
grjón út á haframjölsseðla, ef
óskað er.
Ef svo er ástatt, að maður
má eigi borða rúgmjöl eða rúg-
brauð samkvæmt læknisráði,
getur hann sent skömmtunar-
skrifstofunni beiðni um skipti á
þeim seðlurii fyrir hveitiseðla,
og skulu rúgmjölsseðlarnir, er
óskað er skipta á, fylgja beiðn-
inni ásamt læknisvottorði.
Auk hinnar venjulegu
skömmtunar er leyfð auka-
skömmtun á rúgmjöli til notk-
unar í slátur. Er aukaskammt-
urinn ákveðinn 2 kg af rúg-
mjöli í hvert slátur. Skulu þeir,
sem kaupa slátur, sýna skilríki
frá seljanda um kaupin.
Skömmtunarskrifstofan af-
hendir brauðgerðarhúsum ávís-
anir til innkaupa á þeim
skömmtunarvörum, er þeim
kann að verða leyft að nota í
annað en hveitibrauð og rúg-
brauð eftir reglum, sem ríkis-
stjórnin setur henni. Á sama
hátt afhendir skömmtunar-
skrifstofan öðrum iðnfyrirtækj-
um ávísanir til innkaupa á
þeim skömmtunarvörum, sem
þau kunna að nota. Enn fremur
matsöluhúsum, sjúkrahúsum
og öðrum svipuðum stofnunum.
Smásöluverzlanir (og brauð-
gerðarhús) afhenda hrepps-
nefndum eða bæjarstjórnum þá
skömmtunarseðla, er þeir fá
fyrir seldar vörur, og eigi síð-
ar en 5. dag næsta mánaðar, og
fá í staðinn hjá þeim vottorð
um, hve miklu þeir hafi skilað.
Frá sama tíma eru eldri seðlar
ógildir. Vottorð þessi, eitt eða
fleiri, sem jafnframt eru leyfi
til innkaupa, skulu þeir láta
fylgja pöntunum sínum til
heildsöluverzlana. Hafi smá-
söluverzlun eigi fengið nægi-
legt seðlamagn til þess að fá
þær vörur, er hún þarf, sökum
þess, að hún hefir upphaflega
haft of litlar vörubirgðir, er
hreppsnefndum og bæjarstjórn-
um heimilt að gefa út innkaups-
leyfi fyrirfram, en leyfi þessi
skulu þær bókfæra og gæta
þess vandlega, að seðlum sé síð-
an skilað fyrir þeim.
Ef smásöluverzlun er inn-
flytjandi, má eigi afhenda
henni skömmtunarvörur til
sölu frá afgreiðslu skipsins eða
annarri geymslu, sem hrepps-
nefnd eða bæjarstjórn sam-
þykkir og hefir eftirlit með,
nema með Íeyfi hreppsnefndar
eða bæjarstjórnar, sem þær
gefa eigi nema smásöluverzlun-
in hafi skilað samsvarandi
seðlamagni, éða svo stendur á,
sem hér segir á undan. —
Hreppsnefndir og bæjarstjórnir
skulu síðan senda skömmtunar-
skrifstofunni seðlana, ásamt
skýrslum um innkaupsleyfi
þau, sem þær hafa gefið út.
Heildsöluverzlunum er bann-
að að afgreiða skömmtunarvör-
ur til smásöluverzlana nema
gegn innkaupsleyfi hrepps-
nefnda, bæjarstjórna eða
skömmtunarskrifstofu. Þær
skulu framkvæma birgðataln-
ingu 16.—17. sept. og
senda skömmtunarskrifstof-
unni skýrslu um hana og enn
fremur um öll innkaup sín
jafnóðum. Innkaupsleyfi smá-
söluverzlana, útgefin af hrepps-
nefndum eða bæjarstjórnum,
skulu þeir senda skömmtunar
skrifstofunni, er þeir hafa af-
greitt pantanir þær, sem voru
sendar með.
Nú telur skömmtunarskrif-
stofan nauðsynlegt að flytja
einhverja vörutegund, er reglu-
gerð þessi fjallar um, frá einum
landshluta til annars, en eig-
I DAG
Næturlæknir er Halldór Stef-
ánsson, Ránargötu 12, sími 2234.
Næturvörður er í Laugavegs-
og Ingólfsapóteki.
Næturvarzla bilfreiða: Bif-
röst.
ÚTVARPIÐ:
19.30 Hljómplötur: Létt lög.
20,20 Hljómplötur: Strauss-valsar
20.30 Útvarpssagan.
21,00 Útvarpskórinn syngur.
21,25 Hljómplötur: Ýmsar syrpur
21,50 Fréttaágrip.
Jób. P. Jósefsson
verðor fyrir árás-
nm Morgnnblaðsins.
JAhann er nú á Ieiö-
inni tii landsins.
JÓHANN JÓSEFSSON al-
þingismaður, fulltrúi út-
vegsma,nna í Síldarútvegs-
nefnd, er aðeins ókominn heim
frá útlöndum, þar sem hann
hefir dvalið sér til heilsubótar
síðan hann ásamt Erlendi Þor-
steinssyni gerði samninga fyr-
ir Síldarútvegsnefnd um sölu á
matjessíld til Þýzkalands og
Póllands.
Morgunblaði'ð í dag notar tæki-
færið rétt áður en Jóhann kemur
úr þessari dvöl sinni. utanlands
til þess að heimska hann fyrir
að hafa ekki sett styrjaldarfyrir-
vara inn í majessíldarsamningin
við þessi lönd. — Enn vill Al-
þýðublaðið ráða Mgbl- fastlega
til að ræða við fulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins í Síldarútvegs-
nefndinni, áður en það heldur á-
fram sínum heimskulegu árásum
á Síldarútvegsnefnd. Að þessu
sinni mun Mgbl. taka sér þessi
ráð Alþýðublaðsins til eftir-
breytni og mega menn sjá það
á því, að fyrst um sinn næstu
daga munu engar árásir koma í
blaðinu á Síldarútvegsnefnd.
CHAMBERLAIN I PARÍS.
Frh .af 1 .síðu.
sætis- og hermálaráðherra og
Gamelin yfirhershöfðingi.
Tilgangurinn með fundinum
var að ræða persónulega ástand
og horfur og ýmsar framtíðar-
fyrirætlanir.
RÚSSAR OG TYRKIR.
Frh. af 1. síðu.
ótta stjórnarvaldanna í Moskva
um það, að Englendingar muni
reyna að ná í sínar hendur lykl-
Inum að Svartahafi með tilstilli
bandalagsins við Tyrki.
7Ó ára
verður í dag Vilbogi Pétursson
verkamaður, Þórsgötu 22 A. Vil-
bogi hefir dvalið hér í bænum
næstum hálfa öld. Hann hefir
unnið lengst af í vegavinnu hjá
ríkissjóÖL eða yfir 30 ár. Hann
heíir alla tíð verið ágætur Dags-
brúnarfélagi, enda er hann trygg-
ur ma'ður og öruggur, þó að hann
láti ekki mikinn. Vilbogi nýtur
trausts og vináttu stéttabræðra
sinna og yfirleitt allra hinna
mörgu, sem honum hafa kynnzt.
Til hamingju með afmælið, Vil-
bogi.
Dagsbrúnarfélagi.
endur varanna vilja eigi láta
þær lausar, er ríkisstjóminni
joá heimilt að taka vörur þess-
ar eignamámi og selja þær aft-
ur á þeim stað, er skömmtun-
arskrifstofan telur nauðsyn-
legt.“
Brot á reglugerðinni varða
allt að 10 þús, kr. sektum.
mm nýja Bfó ím
¥ictor(a raiMIa Eng-
landsdrottniog
Söguleg störmynd, sem er
mikilfengleg lýsing á hinni
löngu og viðburðaríku
stjórnaræfi Victoríu
drottningar og jafnframt
lýsir húri einhverri aðdá-
Iunarverðustu ástarsögu
Veraldarinnar.
Aðalhlutverkin leika:
Anna Neagle og
Anton Walbrook.
Reykjavik - Hafnarfjðrður.
Frá og með deginum í dag verður, fyrst um sinn
ekið þannig,
Frá kl. 7 til kl. 11 árdegis á hverjum heilum
tíma, og frá kl. 11 árdegis til kl. 12,30 síðdegis
á hverjum heilum og hálfum tíma.
Sérleyfishaíar.
Kanpnm tómar flðskur
og bðkunardropaglðs
þessa viku tii fostudagskvölds.
Flðskunum veitt móttaka í Nýborg.
Afengisverzlun riklsins.
Auglýsi
um staðgreiðslu við kaup á kolum.
Vegna þeirra viðskiptaörðugleika, er stríðið hefúr
skapað, er nú þegar sjáanlegt, að ómögulegt verður að
kaupa kol til landsins nema gegn staðgreiðslu bæði á
farmi og flutningsgjaldi.
Þetta hefur aftur pær afleiðingar, að vér, við ný
kolakaup verðum að hafa handbært svo mikið fé, sem
mögulegt. Af peim ástæðum höfum vér ákveðið að
selja kol aðeins gegn staðgreiðslu, meðan örðugleikarn-
ir eru þeir sömu og nú.
Jafnframt pví að tilkynna vorum fjölmörgu skilvísu
viðskiptavinum pessa ákvörðun vora, pá viljum vér full-
vissa pá um, að pað er eingöngu nauðsyn vor, sem
knýr oss til pess að láta eítt yfir alla ganga í pessu efni.
Reykjavík, pann 12. sept. 1939.
h.f. Kol & Salt. Kolaverzlusi Guðna Einarssonar & Einars.
Kolasalan S. F. Kolaverzlun Ólafs Ólafssonar.
Koiaverzlnn Sígnrðar Ólafssonar.
um að verðlagsákvæði nái til kornvara, brauða,
nýlenduvara, citrona, hreinlætisvara, kola,
brennsluolía og benzíns.
Samkvæmt 3. gr. laga nr. 70, 31. des. 1937,
um verðlag á vörum, hefir ríkisstjórnin ákveðið
að verðlagsnefnd skuli ákveða hámarksverð
eða hámarksálagningu á kornvörum, brauðum,
nýlenduvörum, citronum, hreinlætisvörum, kol-
um, brennsluolíum og benzíni, eftir því sem
nefndinni þykir ástæða til.
Viðskiptamálaráðuneytið, 12. sept. 1939.
Ejrsteinn Jónsson.
Torfi Jóhannsson,
I. O. G. T.
MINERVA nr. 172. Fundur í
kvöld kl. 81/2. Félagar, mæti
stundvíslega. Æ.t.
ST. „SÓLEY“ nr. 242, Aukahtnd-
ur í kvöld kl. 8V2. Endurupp-
táka. — Æ.t,
DRENGJAFÖT.
Klæðið drenginn
smekklegum fötum frá
Sparta, Laugavegi 10.
Sími 3049.
Útbreiðið Alþýðublaðið!