Alþýðublaðið - 23.09.1939, Qupperneq 4
LAUGARDAGUR 23. SEPT. 1939.
GAMLA BI6 11111
Undir
Brooklyn-brúnni.
Araerísk stórmynd frá
skuggahverfum New York
borgar, og er gerð eftir
sakamálaleikriíinu „Win-
terset" eftir Maxwell An-
derson. — Aóa’.hlutverkin
leika:
Burgess Meredith,
Margo og
Edwardo Cianelli.
Börn yngri en 16 ára fá
ekki a'ðgang.
SMAflUELYSINGAR
ALÞÝÐUBLAÐSINS
Einbýlishús og tvær íbúðir í
öðru húsi til leigu 1. okt. A. v. á.
Vil kaupa útvarpstæki. Sími
5178 eftir kl. 61/2.
Smábarnaskóli minn byrjar
1. október á Ránargötu 12, sími
2024. Elín Jónsdóttir.
Geri við saumavélar, alls
konar heimilisvélar og skrár.
Sandholt, Klapparstíg 11, simi
2635.
DRENGJAFÖT.
Klæðið drengian
t, sraekklegum .fetum ‘frá
/• Sparta, Laugavegi 1§.
í’ Sími 3094.
I. O. G. T.
ST. FRAMTÍÐIN nr. 173. Fundur
'1 sunnudagskvöld kl. 8,30. Kenn-
arakvöld. Þrír kennarar ann-
ast fundinn.
ST. VÍKINGUR nr. 104. Fundur
n. k. mánudagskvöld. Inntaka
nýrra féla,ga. Bögglakvöld.
Upplestur o. fl. — Fjölsaskið
stundvíslega.
Þeir, sem óskað hafa eftir
skólavist fyrir böm sín hjá mér
í vetur, tali við mig sem fyrst.
JÓN ÞÓRÐARSON.
Leifsgötu 13. Sími 3318.
(Eftir hádegi.)
FRÁ ALÞJÓÐASKÁKMÓTINU
I ARGENTÍNU
Frh. af 2. síðu.
myndir og telja framkomu
hans vitlauss manns æði. Sjá-
anlega hefir slegið óhug mikl-
um á fólkið frá Mið-Evrópu, og
við borðið eru allir með blöð á
lofti og alls konar bollalegging-
ar um stríðið. Rétt í þessu var
einn þjónninn að reyna að gera
okkur skiljanlegt á sinni
spönsku, að nú ætti að hefja
loftárás á Berlín innan 24
stunda. Sýndi hann okkur með
ýmsum tilburðum hvernig far-
ið yrði með Hitler og hlakkaði
mikið í honum yfir því. Þannig
lýsir andúðin á Hitler sér, hvar
sem komið er hér í borginni.
Við leiðum nú þetta Evrópu-
stríð hjá okkur í bili, en höfum
hugann við annað stríð, sem
mæðir þyngra á okkur 1 augna-
blikinu, en með tilliti til þess,
að rás viðburðanna verði ef til
vill álíka alvarleg eins og 1914,
verður manni þó hugsað til
þess, hversu leiðin heim er ægi-
lega löng. Hér í þessari nægta-
borg, sem ekki virðist þurfa að
verða hart úti vegna stríðsins,
er mikil eftirvænting í mönn-
um, og hópast fólkið fyrir fram-
an skrifstofuglugga stórblað-
anna, svo að umferð truflast.
Lúörasveit Reykjavíkur
leikur á Austurvelli sunnudag-
inn 24. þ. m. kl. 4 e. h. Stjúrn-
andi Albert Klahn.
Iðja, félag verksmiðjufólks.
Fundur verður haldinn í Al-
þýðuhúsinu við Hverfisgötu
mánudaginn 25. þ. m., og hefst
hann kl. 8V2 síðd. Rætt verður
um uppsögn samninga o. fl.
IÐJA, Sélag verksmid|iifólks:
Félagsfiindnr
verður haldinn mánudaginn 25, september 1939 kl. 8,30
e. h í Alþýðuhúsinu (gengið inn frá Hverfisgötu)
Fund&refnis
Rætt um uppsögn samninga og fleira.
Mfög áríðandi að félagar fjölmenni og mæti stundvíslega.
Stjórnin.
Ferðafjðlgnn á leiðlnni
Reykjavík - Hafnarf jðrðnr
Frá og méð deginum í dag verður sú breyting á ferðum sér-
leyfisbíla á leiðinni Reykjavík — Hafnarfjörður, að ekið verður á
klukkutíma fresti frá klukkan 7 árdegis til klukkan 1 eftir há-
degi, og á 20 mínútna fresti frá klukkan 1 eftir hádegi til klukkan
9 síðdegis, og síðan á hálftíma fresti frá klukkan 9 síðdegis til
klukkan 12,30 eftir miðnætti.
SÉRLEYFISHAFAR.
Henging mín.
¥ ALÞÝÐUBLAÐINU er ný-
lega frá því skýrt, að ég
hafi heitið því að hengja mig,
ef Rússar réðust á Pólland.
Þetta er ekki rétt eftir mér
haft. Það, sem ég sagði og það
í votta viðurvist, vur þetta:
Ef Rússar fara í stríð með
nazistum, þá hengi ég mig,
og ég bætti við: ef þeir færu
með herafla til þess að hjálpa
nazistum gegn lýðveldum Vest-
ur-Evrópu og í því skyni að
gera þá að endanlegum sigur-
vegurum í styrjöldinni.
Þessa leiðréttingu bið ég yð-
ur að birta í næsta tölublaði
Alþýðublaðsins.
Reykjavík, 23. sept. 1939.
Þórbergur Þórðarson.
TVEIR LÖGREGLUÞJÖNAR
DÆMDIR
Frh. af 1. síðu.
hastað á hann, en hann kveðst
ekki hafa heyrt það og skipti
það engum togum, að annar
lögregluþjónninn greip um
munn hans. Jafnframt sveigði
hann hendi læknisins aftur fyr-
ir bak honum. Karl Jónsson
kveðst ekki hafa skilið, hvað um
var að vera og reyndi að slíta
sig úr fangbrögðum lögreglu-
þjónsins, en samstundis greip
annar lögregluþjónn um hann
ásamt hinum, og var lækninum
þeytt inn í bíl. Vissi hann síðan
ekkert af sér, að sjálfs hans
sögn, fyrr en morguninn eftir
— og þá í fangahúsinu. Hafði
læknirinn verið járnaður og
settur í kistu. Læknirinn var
meiddur á hálsi að aftan og á
hnakkanum. Telur hann sjálfur
mejðslin hafa stafað af kylfu-
höggum.
Dómarinn dæmdi lögreglu-
þjónana ekki fyrir áverkann,
sem læknirinn hafði fengið, þar
sem engin vitni voru að því, að
lögregluþjónarnir hefðu slegið
hann. Hins vegar voru þeir
dæmdir fyrir ólögmæta hand-
töku, enda voru lögregluþjón-
arnir ekki kallaðir að Hótel
Borg til að taka Karl Jónsson
lækni, heldur af öðru tilefni.
PÓLSKIR KAFBÁTAR
Frh. af 1. síðu.
leita enn að pólskum kafbátum,
sem sluppu frá Gdynia, og að
pólska kafbátnum „Odselle“,
sem kyrrsettur hafði verið í
Tallin í Eistlandi, en slapp
þaðan.
RÆÐA DALADIERS
Frh. af 1. síðu.
að koma á friði og öryggi í
heiminum. Margar verða þreng-
ingarnar og fómimar sárar. Herir
okkar hafa hið siðferðilega þrek,
'þrek, sem aldrei bilar. Frakkland
hefir gripið til vopna og mun
slgra, því að það berst fyrir rétt-
lætinu og fyrir rétti alls mann-
kynsins.“
Þýzkalandsfarar
Vals ®g Víkings keppa á morgun kl. 4 við
úrvalsllð úr Fr am og KJL
Sjálð góðan og skemmtllegan leik.
I D A 6
Næturlæknir er Halldór Stef-
ánsson, Ránargötu 12, sírni 2234.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
og Iðunnar-apóteki.
Næturvarzla bifreiða: Bifreiða-
stöðin Hekla.
ÚTVARPIÐ:
19.30 Hljómplötur: Létt lög.
19,45 Fréttir.
20,10 Veðurfregnir.
20,20 Hljómplötur: Gigli syngur.
20.30 Erindi.
20.55 Otvarpstríóið leikur.
21,15 Hljómplötur: a)Kórlög. b)
21,30 Gamlir dansar.
21.50 Fréttaágrip.
21.55 Danslög.
24,00 Dagskrárlok.
A MORGUN:
Helgidagslæknir er Karl S. Jón-
asson, Söleyjaigötu 13, sími 3925.
Næturlæknir er Alfreð Gísla-
son, Brávallagötu 22, sími 3894.
Næturvörður er í Laugavegs-
og Ingólfsapóteki.
Næturvarzla bifreiða: Bifreiða-
stöð íslands.
ÚTVARPIÐ:
11,40 Veðurfregnir. 11,50 Há-
degisútvarp. 17,00 Messa í dóm-
kirkjunni (séra Ragnar Benedikts-
son). 19,30 Hljómplötur: Létt lög-
19.50 Fréttir. 20,10 Veðurfregnir.
20,20 Hljómplötur: Skemmtilög.
20,30 Gamanþáttur: Guðbjörg
grannkona og frú Bekkhildur
Blaðran. 20,55 Útvarpshljómsveit-
in leikur alþýðulög (Einsömgur:
Daníel Þorkelsson). 21,30 Kvæði
kvöldsins (Guðm. E. Geirdal).
£1,40 Danslög. (21,50 Fréttaágrip).
23,00 Dagskrárlok.
MESSUR A MORGUN:
í dómkirkjunni kl. 10 (prests-
vigsla). Biskup vígir caind theol.
Pétur Magnússon, sem hefir
verið skipaður sóknarprestur í
Vallanesprestakalli. Séra Friðrik
Hallgrimsson lýsir vigslu. Kl. 5,
séra Ragnar Benediktsson. í ;bæn-
húsi kirkjugarðsins kl. 10, barna-
guðsþjónusta; cand. theol. Sig-
urbjörn Á. Gíslason.
1 frikirkjunni kl. 5, séra Árni
SigurÖsson.
! Hafnarfjarðarkirkju kl. 2, sérn
Garðar Þorsteinsson.
Landakotskirkja: Lágmiessa kl.
6V2, hámessa kl. 9, kvöldguðs-
þjónusta með predikun kl. 6.
ÓKEYPIS SJÚKRAHJÁLP
Frh. af 1. síðu.
skýrt frá, hafa ríkisstjórnir ís-
lands og Danmerkur gert með
sér samning um flutninga á
milli danskra og íslenzkra
sjúkrasamlaga, er menn flytja
búferlum milli landanna.
Er í flutningasamningnum á-
kvæði, sem heimilar Trygg-
ingastofnuninni og stjórnar-
nefnd dönsku samlaganna að
gera sín á milli samning um
sjúkrahjálp fyrir þá, sem
dvelja aðeins um stundarsakir
1 öðru hvoru landinu, t. d. á
ferðalagi, í heimsókn o. s. frv.
Meðlimir íslenzkra sjúkra-
samlaga, sem eru á ferðalagi í
Danmörku, geta hér eftir, ef
þeir veikjast á ferðalaginu snú-
ið sér til næsta Sjúkrasamlags
og fengið hjá því nauðsynlega
sjúkrahjálp, samkvæmt sam-
þykktum þess samlags. Samlag-
ið, sem hjálpina veitir, endur-
krefur síðan viðkomandi sam-
lag á íslandi.
Ætti þessi samningur að
geta orðið til mikils hagræðis
fyrir íslenzka sjúkrasamlags-
meðlimi, sem dvelja í Dan-
mörku um stundarsakir og
nauðsynlega þurfa á læknis-
hjálp að halda.
SMI
taiHcissigsss
I
ESJA
fer aukaferð f rá Reykjavík
vestur um land mánudaginn
25. þ. m. kl. 9 síðdegis. Kemur
við á þessum höfnum: Sandi,
Ólafsvík, Bíldudal, ísafirði,
Djúpuvík, Hólmavík, Hvamms-
tanga, Blönduósi, Skagaströnd,
Sauðárkróki, Siglufirði og Ak-
ureyri. Þaðan beint til Reykja-
víkur með viðkomu á Siglu-
firði og ísafirði.
Flutningur óskast tilkynntur
sem fyrst.
Næst fer skipið austur um
land samkvæmt áætlun 3.
október.
NYJA biö
Hofn
þokunnar
Frönsk stórmynd, er g«r-
ist í hafnarbænum Le
Havre og vakið hefir
heimsathygli fyrir frábært
listgildi. — Aðalhlutverkin
leika:
Michele Morgan og
Jean Gabin.
Börn yngri en 16 ára fá
ekld aðgang.
Hinir vinsælu
eldri dansar verða haldnir í
Góðtemplarahúsinu í kvöld. Ef
að vanda lætur með aðsóknina,
er rétt að tryggja sér miða tím-
anlega í síma 3355.
Danskliifobiiriiin Cinderella
DANSLEI
heldur dansklubburinn Cinderella í Oddfellow
húsinu í kvöld kl. 10 e. h. Hin vinsæla, —
hljómsveit Aage Lorange leikur
Aðgöngumiðar seldir frá klukkan 6. e.
h. sama dag í Oddfellowhúsinu.
Skemmtikliibburinn „Gaudeamus41
DANSLEI
verður haldinn í Oddfellow-höllinni sunnudag-
inn 24 sept. kl. 10 e. h. Hin vinsæla hljóm-
sveit Aage Lorange leikur (ath. 5 manna hljóm-
sveit).
Aðgöngumiðar verða seldir í Oddfellow frá
kl. 5 á sunnudag.
Tryggið ykkur aðgðngumiða í tíma!
í Iðnó í kvUM
Hin ágæta M|émsveit
Hótel Islands leikur
Tryggið yður að-
göngumiða tíman-
lega, seldir frá kl. S
TILKYNNING
Járniðnaðarpróf verður haldið í okt. n.k. Þeir, sem
óska að ganga undir það, sæki umsóknarbréf til
Ásgeirs Sigurðssonar forstjóra
1 Landssmiðjunni.