Alþýðublaðið - 13.10.1939, Blaðsíða 4
FOSTUDAGUR 13. OKT. 1939.
KGAMLA BÍOr*'!
ðlympfnleikarnlF 1
1936
Hin heimsfræga kvikmynd
Leni Riefenstahl.
Fyrri hlutinn:
„Hátíð þjóðanna“
sýndur i kvöld.
íþrótta- og fimleikaæfingar
Knattspyrnufélags
Reykjavíkur.
Úrvaisflokkur kvenna:
Mánudaga kl. 8,15—9,15
Miövikudaga — 8,15—9,15
Fimmtudaga — 8,15—9,15
1. flokkur kvenna:
Mánudaga kl. 9,15—10,10
Fímmtudaga — 9,15—10,10
Stúlkur 12—15 ára:
Miðvikudaga kl. 6,15—7,00
Laugardaga — 6,15—7,00
Telpur 9—11 ára:
Mánudaga kl. 5—6
Fimmtudaga — 5—6
Úrvalsflokkur karla:
Þriðjudaga kl.9—10
Föstudaga — 9—10
1. flokkur karla:
Þriðjudaga kl. 8—9
Föstudaga — 8—9
Unglingaflokkur karla:
Þriðjudaga kl. 7—8
Föstudaga — 7—8
Öldungadeild:
Mánudaga kl. 6,15—7,00
Fimmtudaga — 6,15—7,00
Skíða- og knattspyrnumenn:
Þriðjudaga kl. 6,30—7,00
Föstudaga — 6,30—7,00
Frjálsíþróttamenn:
Mánudaga kl. 7,45—8,15
Fimmtudaga — 7,45—8,15
Handknattleikur kvenna:
Miðvikudaga kl. 7,45—8,15
Handknattleikur karia:
Fimmtudaga kl. 7,45—8,15
Kennarar félagsins eru:
Benedikt Jakobsson, Vignir
Andrésson og í sundi Jón Ingi
Guðmundsson.
Sundæfingar verða á sama
tíma og verið hefir undanfarið.
Knattspyrnuæfingar og frjáls-
íþróttir byrja í íshúsinu 30.
okt. og verða auglýstar síðar.
K.R.-ingar, sækið vel íþrótta-
æfingar félagsins!
STJÓRN K. R.
S JÓM ANN AS AMNIN G ARNIR.
(Frh. af 1. síðu.)
Nýja Bíó þegar síðasta deila
stóð og aðeins 11 sjómenn af
hátt á 6. hundrað tóku undir
mál hans. Þá þrútnaði hann all-
ur — og sá þroti er enn ekki
horfinn. Það má glögglega sjá
í Moskvamálgagninu 1 dag.
Tilraun kommúnista til æs-
inga út af þessum málum er
gerð með sama hætti og alltaf
áður,, að rægja þá menn, sem
hafa verið fulltrúar sjómanna
í samningunum og trúnaðar-
menn og gefa í skyn að stjórn
félagsins hafi ein, vegna þess
að hún eigi ekki að fara á sjó-
inn, samið af sjómönnum.
Þetta skal tekið til athugun-
ar.
Þegar sjómenn gengu til
samninga við útgerðarmenn á
árinu 1937, var kosin nefnd
frá öllum starfsgreinum inn-
an Sjómannafélagsins til þess
að gera tillögur, sem félagið
síðan samþykkti að leggja fram
sem grundvöll fyrir kröfum í
samningum.
í þessari nefnd, sem var sam-
an sett úr öllum starfsgreinum,
voru eingöngu starfandi sjó-
menn.
Tillögur þessarar nefndar
voru lagðar fram á Sjómanna-
félagsfundi mánudaginn 21.
október 1937 og samþykktar í
einu hljóði. Jafnframt var sam-
þykkt fullt umboð fyrir stjórn-
ina til að semja.
Samningaumleitanir hófust
síðan og lauk, eins og mönnum
er kunnugt, með því, að samn-
ingar náðust ekki og deilan var
leyst með gerðardóminum 21.
marz 1938. Kröfur nefndarinn-
ar fengust ekki allar.
Ein krafan var á þá leið —
og höfðu sjómenn lagt ríka á-
herzlu á að fá hana fram — að
„Sigli skip á stríðshættu-
svæðum, skal lágmarkskaup
háseta og annarra skipverja
hækka um 100% þann tíma,
sem ferð tekur til útianda, mið-
að við burtferð úr íslenzkri
höfn og til íslenzkrar hafnar á
ný eða á fiskimið við strendur
landsins, þar, s'em skipið byrjar
veiðar. Stríðshættukaupið
reiknist sem dagkaup miðað við
hið fasta lágmarks-mánaðar-
kaup, og gildir sú upphæð sem
stríðshættudagkaup tii viðbót-
ar föstu mánaðarkaupi einnig
fyrir hina hærra launuðu menn
á skipinu, sem tilgreindir eru í
samningi þessum.
Skylt er útgerðarmanni að
slysatryggja hvern skipverja,
s'em um ræðir í samningnum,
fyrir stríðshættu með ekki
minni upphæð en kr. 8000,00,
enda sé slík trygging ekki á-
kveðin hærri að lögum, Trygg-
ingin sé þó aldrei lægri en hún
er ákveðin fyrir yfirmenn
skipsins.
Útgerðarmanni er skyit að
greiða skipv'erjum í erlendum
gjaldeyri 30% af mánaðartekj-
um hvers eins þann tíma, er
þeir sigla til eriendra hafna. í
Þýzkalandi séu skipverjum
tryggð ferðamannamrök.“
Gerðardómurinn felldi bæði
aftan og framan af þessari
kröfu og setti í staðinn svo-
hljóðandi ákvæði:
„Sigli skip á stríðshættu-
svæðum, skal lágmarkskaup
háseta hækka og um það sam-
ið sérstaklega, þegar nauðsyn
er fyrir hendi, og þá í samræmi
við það, sem um semst fyrir ís-
lenzka farmenn, sem sigla á
sömu hættusvæðum. Stríðs-
hættukaupið reiknast sem dag-
kaup miðað við hið fasta lág-
marksmánaðarkaup, jafnt fyrir
alla, sem samningur þessi ttekur
til, og gildir sú upphæð sem
stríðshættudagkaup til viðbótar
föstu mánaðarkaupi.
Skylt er útgerðarmanni að
slysatryggja hvern skipverja,
sem um ræðir í samningi þess-
um, fyrir stríðshættu, á sama
tíma og í fyrri málsgrein stegir,
með ekki minni upphæð en kr.
8000,00, enda sé slík trygging
ekki ákveðin hærri að lögum.“
Menn geta nú borið saman
tillögur hinna starfandi sjó-
manna og ákvæði gerðardóms-
ins. Þeir sjá að allar starfsgrtein-
ar sjómanna eru sammála um
það, að ofan á hið fasta mánað-
arkaup skuli öllum skipverjum
greitt jafnt fyrir áhættuna, sem
þeir leggja út í, en ekki, að hver
starfsgrein fengi álag á sitt
mánaðarkaup.
Hvað fékkst svo með samn-
ingum þeim, stem nýlega hafa
verið undirritaðir?
Flestar kröfurnar, sem settar
voru fram í samningsuppkasti
hinna starfandi sjómanna feng-
ust núna — og meira til. Þeir
fengu til viðbótar, að dánar-
bæturnar hækka úr 8 þús. kr.
og upp í 15 þúsund krónur, og
að örorkutryggingin er nú orðin
fullkomnari heldur en áður
hefir verið, teins og skýrt var
frá hér í blaðinu í gær.
Á þessu er alveg ljóst, að
stjórn Sjómannafélagsins hefir
framkvæmt vilja sjómannanna
og meira að segja fengið meira
heldur en sjómenn í upphafi
bjuggust við að fá.
Hitt er auðvitað létt hlutverk
fyrir ábyrgðarlausa og ill-
gjarna angurgapa og skrumara,
að koma eftir á og segja að
stjórn félagsins sé ekki í sam-
ræmi við félagsviljann.
Sjómennirnir hafa hvað eftir
annað á undanförnu márum
sýnt það, að þeir taka lítið
mark á slíku gaspri. — Verka-
mennirnir í Dagsbrún njóta
hins vegar blessunarríkra starfs
krafta kommúnista undir stjórn
Héðins Valdimarssonar. Þeir
spyrja um árangurinn — og
þeim eiga kommúnistar að
svara.
Tvð ný met sett ð
snndmeístaramðtinn
í geerdag.
¥ GÆRKVELDI voru -tvö ný
met sett á sundmeistaramót-
inu. Bæði m'etin setti stúlka frá
Akureyri, Steinunn Jóhannes-
dóttir.
Metin setti hún í 50 metra
bringusundi á 45,1 sek. og 200
m. bringusundi á 3 mín. 31,8
sek.
Önnur varð Þorbjörg Guð-
mundsdóttir (Æ) á 3:38,2,
þriðja Indíana Ólafsdóttir á
3:56,5.
í 400 m. bringusundi karla
varð meistari Ingi Sveinsson á
6:33,8 sek. Annar varð Sigur-
jón Guðjónsson (Á) á 6 mín.
35,6 sek. Þriðji Kári Sigurjóns-
son (,,Þór“) á 6:49,3.
Þá var keppt í 100 metra
bringusundi drengja innan 16
ára. Fyrstur varð Georg Thor-
berg (K.R.) á 1:30. Annar Jó-
hann Gíslason (K. R.) á 1:38,5
og þriðji Óttar Þorgilsson á
1:39.
Að lokum synti Jónas Hall-
dórsson (Æ) 1500 metra sund,
frjáls aðferð. Á móti honum
syntu 4 sundmenn til skiptis.
Tími Jónasar var 22 mín. 46,4
sek., en mettími hans er 21 mín.
30,2 sek.
RÆÐA CHAMBERLAINS.
Frh. af 1. síðu.
hafnaði öllum friðartillögum,
þangað til hann hafði sigrað
Pólland, en það er ekki hægt
að fallast á friðartillögur þeirra,
sem byrja á að afsaka ofbeldið
og heimta friðinn, er þeir
hafa beitt ofbeldi. Hitler hefir
ekki tekið neitt skref í friðar-
áttina með ræðu sinni og ekkert
í henni bendir til, að hann vilji
bæta fyrir misgerðir sínar. Og
jafnvel þótt hann hefði gert
það, hefði verið nauðsynlegt
fyrir hann að benda á, hvernig
hann ætlaði að sannfæra þjóð-
irnar um, að ágengni yrði hætt
og loforð haldin.
Frakkar og Bretar láta sér
ekki framar nægja loforðin ein.
Þeir krefjast frekari sannana
áður en þeir hætta stríðinu. —
Ekki fyrr en traust hefir verið
vakið þjóða milli, sagði Chamb
erlain, verður unnt að taka
vandamálin til meðferðar, svo
sem afvopnun, viðskipamál og
velferðarmál þjóðanna yfirleitt.
Þetta er frumskilyrði, sem þarf
að vera fyrir hendi, og það velt-
ur á þýzku stjórninni, hvenær
það verður fyrir hendi.
I DA6
Næturlæknir er í nótt Halldór
Stefánsson, Ránargötu 12, sími
2234.
Næturvörður er í Laugavegs-
og Ingólfsapóteki.
Næturvarzla bifreiða: Geysir.
OTVARPIÐ
19.30 Hljómplötur: Létt lög.
20,20 Hljómplötur: Orgellög.
20.30 Erindi: Um sparisjóðsstarf-
sami í bannaskólum (Snorri
Sigfússon skólastjóri).
20,55 Strokkvartett útvarpsins
leikur. Þættir úr kvartett
Op. 54, nr. 1, eftir Haydn.
21,15 Iþróttaþáttur.
21,25 Hljómplötur: Hannoníkulög
21,50 Fréttir.
Dagskrárlok.
Walterskeppnin, úrslit.
K. R.—VALUR á sunnud. kl. 4.
Kvöldskemmtun:
Landnám templara efnir tii
kvöldskemmtunar í Góötemplara-
húsinu annað kvöld kl. 9. Fjöl-
bneytt dagskrá og danz á eftir.
Aðgöngumiðar afhentir í góð-
templarahúsinu á morgun eftir
kl. 4 síðdegis.
Frá Isafirði
stunda allmargir bátar drag-
nótaveiðar, afla sæmilega og
selja aflann í ishús. Alls stunda
dragnótaveiðar um 30 bátar frá
tsafirði og nálægum veiðistöðv-
um. Auk þess stunda trillubátar
vei'ðar í djúpinu, en afla lítið.
Hluíafélagið Andvari
í Álftafirði hefir keypt nýjan
bát, Erling frá Siglufirði. For-
maður er Jakob Elíasson.
Bókmenntafélagsbækurnar
eru komnar út. Það er 2. hefti
af I. bindi Bréfa og ritgerða
Step'hans G- Stephanssonar skálds
Andvari og Almanakið. I And-
vara eru þessar ritgerðir: Tryggvi
Þórhallsson, eftir dr. Þorkel Jó-
hannesson. Heimferð á aðfanga-
dag jóla 1893, eftir Guðmund
Friðjónsson, Clemenceau, eftir
Baldur Bjarnason stud. mag„
Blóm og aldin, eftir Steindór
Steindórsson frá Hlöðum, Is-
lenzk þjóöerni, eftir Barða Guð-
mundsson þjóðskjalavörð og Ein-
okunaifélögin 1733—1758, eftir
dr. Björn K. Þórólfsson.
STEFANÓ ISLANDI
Frh. af 1. síðu.
unglega leikhúsið eru talin tákna
mikinn heiður honum til handa.
Innan skamms mun Stefano halda
hljómleik í norska rikisútvarpið-
Þýzkaland verður að leggja
fram sannanir fyrir góðum
vilja sínum, ákveðnar sannanir,
svo að það verði alveg öruggt,
að það standi við skuldbinding-
ar sínar og loforð, en ella mun
um vér þreyta styrjöldina á-
fram, þar til yfir lýkur. Valið
er nú Þýzkalands.
g„Svariil, sem Hitler
puriti að fá“.
LONDON í morgun. FÚ.
Blöð lýðræðislandanna lofa
Chamberlain fyrir ræðu þá,
sem hann flutti í neðri málstof-
unni í gær, en í ræðu þessari
svaraði hann Hitler og hafnaði
friðartillögum hans. Það, sem
er höfuðefni blaðagreinanna um
ræðu Chamberlains, er í fáum
orðum þetta:
„Ræðan var svarið, sem Hitl-
er þurfti að fá. Valið er nú
Þýzkalands.“
Þýzka útvarpið lét ræðu
Chamberlains fara fram hjá
sér, en ítalska útvarpið birti
ítarlegt yfirlit. ítalska blaðið
„Giornale d’Italia“ birti ræð-
una í heild í aukaútgáfu af
blaðinu. -
Saltað og rejfet
hestakjðt
Ný slátmð dilkakjöt.
Ný reykt sauðakjöt.
Úrvals gulrætur.
Kartöflur og gulrófur.
Harðfiskur.
Reyktur rauðmagi.
Saltfiskur.
Mjólkurostamir eru komnir
aftur.
KJðtbúðhi
Njálsgötu 23. Sími 5265-
mm NÝJA BiO B
Modagar
Am»rísk tal- og söngva-
mynd frá Universal Film,
um æskugleði og æskuþré.
Aðalhlutveriö leikur og
syngur hin óviðjafnleg*
DEANNE DURBIN.
Aðrir leikarnr »ru:
Melvyn Douglas,
Jackie Cooper o. S.
Hér með tilkynnist ættingjum og
Björn Hieronyi
andaðist að heimili sínu, Bergstaðastræti
12. október,
13. okt. 1939.
Guðrún H, Guðmundsdóttir og sonur.
heldur Félag harmonikuleikara i Oddfeliowhásinu
sunnudaginn 15 p. m, kl. 10 siðdegis.
Nýju dansarnir niðri.
Eldrl dansarnir uppi.
Ha rmonikuhlj ómsveitir og
hljómsveit Aage Lorange leika.
Aðgöngumtðasalan hefst M. @. s. d.
Danslelk
I. O. O. T.
Landnám Tempfiaras
KVÖLDSKEMMTUN
í Góðtemplarahúsinu annað kvöld (laugardaginn 14. okt.) klukkan 9.
1. Skemmtnnin sett: Guðjón Halldórsson.
2. Ávarp: Andrés Wendel.
3. Upplestur: Brynjólíur Jóhannesson.
4. Ávarp: Guðmundur Einarsson. f
5. Einleikur á píanó (frumsamin lög): Sigfús Halldórsson. '"í
DANS. (Gömlu og nýju dansarnir.)
Refrain-söngur: Helga Gunnars.
Kl. 12 NÝR VALS eftir Guðmund Jóhannesson, sungina *t
Kjartani Sigurjónssyni.
Aðgöngumiðar afhentir í Góðtemplarahúsinu frá kl. 4 e. h. á laugar-
dag. (Sími 3355.)
NEFNDIN.
Dansleik
heldnr Sundfélagið Ægir í Oddfellow-höll-
inni annað kvöld (laugardag).
Aðgöngumiðar seldir á sama stað eftir kl. 5.
AUir íþróttamenn velkomnir!