Alþýðublaðið - 08.12.1939, Qupperneq 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XX. ÁRGANGUR
FÖSTUDAGUR 8. DES. 1939.
287. TÖLUBLAÐ
KommAnlstaflokknrinii
er f upplausn um alt land
—--».-
Héðinn og meirlhlnti miðstjórnarinnar
sagði sig úr flokknum seinnipartinn í gær
--
Helmingur flokksfélagsins í Reykjavík og flokksfélög-
in á Siglufirði og Norðfirði sögð munu fara á eftir.
Hðggormur er á
ferðipni!
Ástæða til ai vera vel
ð verði!
r \
FRUMVARP um nokkrar
ráðstafanir vegna styrj-
aldarástandsins er flutt á al-
þingi af þeim fjárveitinga-
nefndarmönnunum Jónasi, Þor-
steini og Bernharð. Kennir þar
margra grasa og kemur ekki
allt við styrjöldinni.
Er frumvarp þetta líkast lög-
ijm þeim, sem kölluð eru band-
ormurinn, en þar voru þrædd
á eitt band ýms sparnaðarmál.
Þingmenn höfðu almennt búizt
við að fjárveitinganefnd myndi
nú gera tillögu um að bæta
nokkrum liðum við þessi lög og
halda sér við þau atriði, sem
varða fjárhaginn. En raunin
hefir orðið önnur. Nokkrir fjár-
veítinganefndarmenn virðast
nú standa í þeirri meiningu, að
nefndin sé nokkurs konar alls-
herjarnefnd eða jafnvel ríkis-
stjórnarnefnd, og fara nú út á
þá braut að ætla að breyta
möfgum almennum lögum í at-
riðum, sem ekkert koma við
fjárlögum, með einu frumvarpi.
Hér er farið út á hættulega
braut og heggur nærri stjórn-
arskránni. Þar er svo fyrir
mælt, að almennum lögum
megi ekki breyta með fjárlaga-
ákvæði. Þessi nýi bandorms-
bróðir hefir meðal þingmanna
verið skírður: höggormurinn.
* TZ’ OMMÚNISTAFLOKKURINN, eða Sameiningarflokk-
r I' ur alþýðu — sósíalistaflokkurinn, eins og hann hefir
kallað sig síðan í fyrrahaust, er nú að liðast í sundur.
Sex af 11 meðlimum miðstjórnar hans sögðu sig úr
flokknum í gær. Voru það þeir Héðinn Valdimarsson, Pét-
ur G. Guðmundsson, Þorlákur G. Ottesen, Ólafur H. Ein-
arsson, Arnór Sigurjónsson og Þorsteinn Pétursson.
Þetta er aðeins byrjunin. Samkvæmt áreiðanlegum upp-
lýsingum, sem Álþýðublaðinu hafa borizt í morgun, mun
um helmingur flokksfélagsins hér í Reykjavík segja sig úr
flokknum í dag eða einhvern næstu daga. Þá hefir flokks-
félagið á Norðfirði samþykkt mótmæli gegn afstöðu flokks-
stjórnarinnar til árásarinnar á Finnland og gefið stjórn
félagsins heimild til þess að segja allt félagið úr flokkn-
um. Búizt er við að flokksfélagið á Siglufirði muni fara
sömu leið.
Frá þessum tíðindum var lít-
illega skýrt hér í blaðinu í gær,
en í útvarpinu var birt í gær-
kveldi greinargerð frá hinum 6
miðstjórnarmeðlimum flokks-
ins, sem í gær sögðu sig úr hon-
um.
Var í greinargerðinni skýrt
frá því, að fyrir helgina hefði
Héðinn Valdimarsson gert
kröfu til þess að flokkurinn
breytti um afstöðu til Rúss-
lands vegna árásar þess á Finn-
land og gæfi út opinbera sam-
úðaryfirlýsingu með Finnum.
Var tillaga hans svohljóða-
andi:
„Miðstjórn Sameiningarflokks
alþýðu — Sósíalistaflokksins
— ályktar að lýsa samúð
flokksins með fimísku þjóðinni
og baráttu hennar fyrir sjálf-
stæði og sjálfsákvörðunarrétti
gegn árás þeirri, er gerð hefir
Fraegasta skáldsaga ársins*
Bækur MFA koma
nú hver af annari.
1 'j* ÉLAGAR MFA og aðrir,
"*• sem ætla að fá bækur
sambandsins í ár, geta nú sótt
Borgarvirki, hina glæsilegu,
heimsfrægu skáldsögu A. J.
Cronins í þýðingu Vilmundar
Jónssonar á skrifstofu sam-
bandsins í Alþýðuhúsinu, G.
harð. Bókin kom út í gær. Þetta
er tvímælalaust bezta og mik-
ilfenglegasta skáldsagan, sem
út kemur á íslenzku á þessu ári.
MFA gaf út fyrstu bók sína
á þessu ári á sjómannadaginn í
vor: „í sjávarháska.“ Vakti hún
mjög mikla athygli og fékk
geysimikla útbreiðslu. Bækur
MFA verða alls 5 á þessu ári,
en enn er ekki hægt að ákveða
með vissu hvenær hinar bæk-
urnar koma. Stafar það af erf-
Frh. á 4- síðu.
verið á hana af núverandi
stjórnendum Sovétlýðveldanna
og herafla þeirra og telur árás
þessa um leið vera árás á
finnsku verkalýðshreyfinguna
og brot á grundvallaratriðum
sósíalistiskra baráttuaðferða.
Miðstjórnin felur ritstjórum
flokksblaðanna að stjóma þeim
samkvæmt þessu og formanni
flokksins að birta yfirlýsingu
þessa í þeim og útvarpinu nú
þegar.“
Að sjálfsögðu máttu Moskóv-
ítarnir ekki heyra slíka yfirlýs-
ingu nefnda af hálfu flokksins.
Hún var ekki samrýmanleg
hinni skilyrðislausu afstöðu
með Sovét-Rússlandi. Fór allt
í bál og brand á fundinum og
hótuðu báðir aðilar að kljúfa
flokkinn ef þeir hefðu ekki sitt
fram. Bar þá Sigfús Sigurhjart-
arson f ram tillögu til rök-
studdrar dagskrár, að þar sem
það væri sýnilegt, að það myndi
valda klofningi flokksins, hvort
sem tillaga Héðins yrði sam-
þykkt eða felld, þá væri henni
vísað frá, en hins vegar lagt
fyrir blöð flokksins, að vera al-
gerlega hlutlaus gagnvart styrj-
öldinni á Finnlandi.
Þessa hlutleysistillögu(!) vildu
Moskóvítarnir styðja, en þegar
til atkvæðagreiðslu (kom um
hana, var hún felld í miðstjórn-
inni með 6 atkv. á móti’ 5. —
Síðan var greitt atkvæði um til-
lögu H. V. og hún samþykkt
með 6 atkvæðum á móti 5. Með
tillögunni greiddu atkvæði þeir
sömu 6 miðstjórnarmeðlimir,
sem nú hafa sagt sig úr flokkn-
um, en á móti henni: Brynjólf-
ur Bjarnason. Einar Olgeirsson,
Sigfús Sigurhjartarson, Ársæll
Sigurðsson og Guðbrandur Guð
mundsson. Við þessi málalok
vildi minnihlutinn ekki una og
heimtaði atkvæðagreiðslu í allri
flokksstjórninni, þ. e. a. s. einn-
ig meðal meðlimanna úti um
land, en í henni eiga sæti auk
miðstjórnarmeðlimanna 11 hér
í Reykjavík 22 menn, samtals
33. Voru báðar tillögurnar lagð-
ar fyrir flokksstjórnina til að
velja á milli þeirra, og fór sú
atkvæðagreiðsla svo, að tillaga
Sigfúsar fékk 18 atkvæði, en
Héðins ekki nema 14, einn sat
hjá.
Frh. á 4. síðu.
Aftur í stríði eftir 21 ár: Franskir hermenn á bæn við hermannæ
grafir úr heimsstyrjöldinni á 21. afmælisdegi vopnahlésins, sem
samið var 11. nóv. 1918.
Rússar nota eitnrgas!
11 finnskir hermenn liggja I gaseitrnn
eftir stórskotaárás norðan við Ladoga.
-.—....4-
Suðurströnd Finnlands lýst í hafnbann.
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins, KHÖFN í morgun. *
SAMKVÆMT opinberri tilkynningu frá Helsingfors eru
Rússar byrjaðir að nota eiturgas í bardögunum við
Finna.
Rússneskt stórskotalið á vígstöðvunum við austur-
landamæri Fnnlands norðan við Ladogavatnið skaut á
miðvikudaginn eiturgassprengjum á varnarstöðvar Finna
og liggja ellefu finnskir hermenn, sem þar voru, nú á sjúkra-
húsi með gaseitrun.
Rússum hefir hvergi miðað neitt til muria áfram á víg-
stöðvunum og sú frétt, sem þeir sendu út í gær um að þeir
hefðu brotizt í gegnum Mannerheimlínuna á Kyrjálanesi,
hefir reynst vera uppspuni einn.
Hins vegar hefir sovétstjórnin nú lýst yfir hafnbanni á Finn-
landi, og á það að koma til framkvæmda strax um hádegi í dag.
Er ætlun Rússa að hindra alla aðflutninga til Finnlands á vopn-
um og vistum um Eystrasalt, en frá Norður-Svíþjóð geta þeir
'ekki hindrað slíka aðflutninga, þar eð rússneski flotinn kemst
ekki inn í Botneska flóann fram hjá Álandseyjum.
Samúðaraldan með Finnlandi 4________________________•
Monið
AWnflokksfélags-
ins annað kvðld.
A LÞÝÐUFLOKKSFÉLAG-
IÐ heldur eitt af sínum
venjulegu, vinsælu skemmti-
kvöldum annað kvöld kl. 8%.
Meðal skemmtiatriða, meðan
setið verður undir borðum, er
ræða, sem Einar Magnússon
menntaskólakennari flytur. Þá
les Tómas Guðmundsson skáld
upp kvæði, en Sigfús Halldórs-
son syngur.
Á eftir verður svo dansað
fram eftir nóttu.
Frh. á 4- sí&u.
rís stöðugt hærra og hærra úti
um allan heim. Stórkostleg
fjársöfnun fer fram handa
Finnum um öll Norðurlönd.
Landssamband norsku verka-
lýðsfélaganna samþykkti í gær
að gefa 25 000 krónur. Norska
sjómannasambandið gaf 10 000
krónur. Þá hefir og fé verið
safnað til þess í Svíþjóð, að
kosta sænskan sjúkraleiðangur
tli Finnlands um þriggja mán-
aða skeið.
Kvenfélag Alþýðuflokksins
í Hafnarfirði iieldur skemmti-
fund annað kvöld með sameigin-
legri kaffidrykkju. Allt Alþýðu-
flokksfóik, konur og karlar, vel-
komið.
Taka Bretar og Frakkar op-
inbera afstððn með Finnnm
Háværar kröfur um það í Frakklandi.
LONDON í morgun. FÚ.
ÞAÐ vekur mikla athygli.
að frakknesk blöð eru far-
in að lýsa yfir þeirri skoðun
sinni, að bandamenn ættu að
hallast alveg á sveif með Finn-
um^ og aðstoða þá á hverja lund
gegn Rússiun,
Yfirlýsingar eru væntanleg-
ar um afstöðu Bretlands og
Frakklands, og er það lcunnugt,
að brezka stjórnin hefir haft til
íhugunar, hvort hún skuli
breyta afstöðu sinni gagnvart
Sovét-Rússlandi, vegna innrás-
arinnar í Finnland.