Alþýðublaðið - 20.12.1939, Page 3
>r
ii
MIÐVIKUDAGUR 20. DES. 1939
ALÞYÐUBLAÐIÐ
ALÞYÐUBLAÐIÐ
RITSTJÓRI:
F. R. VALDEMARSSON.
1 íjarveru bana:
STEFÁN PÉTURSSON.
AFGREIÐSLA:
ALÞÝÐUHÚSINU
(Inngangur frá Hverfisgötu).
SÍMAR:
4900: Afgreiðsla, auglýsingar.
4901: Ritstjórn (innl. fréttir).
4902: Ritstjóri.
4903: V. S. Vilhjálms (heima).
4905: Alþýðuprentsmiðjan.
4906: Afgreiðsla.
5021 Stefán Pétursson (heima).
ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN
ifdrtf hðgg-
ormsins.
EGAR þingmönnunum
. hafði tekizt að handsama
höggorminn, skömmu eftir að
honum hafði verið hleypt inn
í þingið, í lok vikunnar, sem
leið, gerði Jónas frá Hriflu síð-
ustu tilraun til þess að bjarga
honum með því að skrifa í Tím-
ann eins konar biblíuskýringar
á eðli hans og ætlunarverki.
Jónas sagði, að menn hefðu
hingað til misskilið höggorm-
inn, sem endur fyrir löngu varð
þess valdandi, að Adam og Eva
voru rekin úr aldingarðinum
Eden. Sá staður hefði ekki ver-
ið nein paradís. Það líf, sem
þau hefðu lifað þar, hefði verið
iðjuleysislíf og engu tapað, þótt
þau misstu það. í raun og veru
hefðu þau fyrst fundið paradís,
„paradís starfsins“, eins og
hann komst að orði, við það, að
þau fóru að ráðum höggorms-
ins. Sú skepna ætti því allt aðr-
ar og meiri þakkir skildar af
mönnunum, en hún hefði feng-
ið hingað til.
Þessar nýju biblíuskýringar
áttu að gera þingmönnunum
það skiljanlegt, hve göfugt dýr
það væri, sem fjárveitinga-
nefnd þingsins hefði hleypt inn
í sali þess og þeir hefðu nú
höndum tekið. Eins og högg-
ormurinn í aldingarðinum Ed-
en forðum ætti þessi nýi högg-
ormur að leiða íslenzku þjóð-
ina í hina sönnu paradís, para-
dís sveitarflutninganna og allra
arinarra herlegheita, sem í hin-
um einstöku liðum höggorms-
iris fólust. Þá fyrst hefði þjóðin
fundið paradís, þegar þriggja
manna nefnd hefði verið stofn-
uð hér með alræðisvaldi til þess
að flytja styrkþega til vinnu
hvert á land sem henni sýnd-
ist, þegar fækkað hefði verið yf-
irmönnum á skipunum til frek-
ara öryggis fyrir sjómennina,
allar takmarkanir á tölu iðn-
nema verið afnumdar til trygg-
ingar atvinnu iðnaðarmanna,
hætt hefði verið að prenta
ræðupart þingtíðindanna til
þess að auka álit alþingis,
vinnutíminn á skrifstofum rík-
isins verið lengdur starfsfólk-
inu til hvíldar, starfstími barna-
skólanna styttur börnunum til
aukinnar fræðslu og menntun-
ar og eins árs skylduvinna
við öll algeng heimilisstörf uppi
í sveit með ólastanlegum vitn-
isburði einhvers bóndans að
henni lokinni verið gerð að skil-
yrði fyrir því að mngir menn
gætu fengið að ganga á skóla
hins opinbera, sérstaklega stýri-
mannaskólann!
En þetta var meira en þing-
mennirnir væru með^tækilegir
fyrir. Þeir höfðu með undrun
k»yrt um hin margvíslegu og
Mæðurnar og jólin
ÞAÐ hefir verið skrifað langt
mál og töiuð mörg orð til
þess að brýna fyrir konum að
gleyma því ekki, að fyrsta, æðsta
og háleitasta hlutverk hennar í
iífinu sé að verða móðir — fyrst
og fremst móðir. En hvort sem
áminningarnar, hvatningarnar og
fyrirheiiin valda þar nokkru, þá
bíða þau örlöig ian,gflestra kvenna
að verða mæður.
Og hvert verður þá hlutskipti
konunnar og stúlkunnar, sem
verður móðir? Ég skal ekki eyða
tíma ykkar, góðir lesendur, með
því að lýsa því nákvæmlega. Á-
hyggjur, erfiði, þreyta, kvöl og
kvíði, — það er hennar saga.
Og þó ekki öll. Því eins v og
pálmalundarnir eru það eina, sem
gera eyðimerkurfarir mögulegar,
eiga og jafnvel hinar þjökuðustu
toæður sína sólskinsbletti, sem
gefa þeim ótrúlega krafta í lífs-
ins hörðu baráttu. Og þá fyrst
og fremst það, að sjá að öli
þeirra sjálfsafneitun og allt þeirra
stríð sé ekki álveg unnið fyrir
gýg, að þeim geti tekizt að veita
börnunum sínum það allra nauð-
syntegasta, að þær fái að njóta
una'ðarins, sem fylgir því að
vemda, hjálpa og gleöja þá, sem
okkur þykir vænt iun. En eins
og nú er ástatt okkar á meðal,
skortir mikið á að einstæðar
mæður, sem berjast áfram með
böm sín, geti veitt þeim jafnvel
hið allra nauðsynliegasta, þrátt
fyrir ’sinn góða vilja og átakan-
Iegu viðleitni. Orsakir þessa eru
mangar, og verða þær ekki raktar
fi'ér.
En tiigangurinn með þessum
fáu línum er að biðja góða menn
um að láta sem allra fæstar ein-
stæðar og yfirgefnar mæður
þurfa nú um þessi jól að líða Tiá
sáru raun að geta enga gleðli
veitt börnunum sínum, ekki gefið
þeim neina nýja flík, ekki gefið
þeim betra að borða þessa dag-
ana en endranær. Ekki einu sinni
haft heitt í herberginu, jafnvel
ekki vitað þau fyllitega södd,
þessa margrómuðu barnanna há-
tíð. Það ve.it enginn, nema sá,
sem reynir, hvað það er, að sitja
ei-namana og yfirgefin, þrotinn að
öilum bjargráðum, svift voninni
um þá einu jólagleði, sem um
var beðið og eftir óskað, að
gteðja börnin sin ofurlítið Um
jólin. Fá að létta fargi umkomu-
leysis og örbirigðar af þeim, þótt
ekki sé nema stutta stund, fá
að sjá gleðina yfir nýrri flík, 6-
þekktu leikfangi eða bara góðum
matarbita, kveikja eins og ljós
við ljós í litlu, bláu augunum
þeirra, fá að sjá fölu kinnarnar
þeirra roðna, þegar fögnuðiurinn
yfir voninni, sem rættist, grípur
þau.
Þið, hjartagóðu Reykvíkingar!
Látið þetta ekki verða hlut-
skipti ekknanna og mæðranna nú
um jólin. Leyfið Mæðrastyrks-
nefndinni að stuðla að því, að
svo þurfi ekki að verða.
nýstárlegu hlutverk. sem for-
maður fjárveitinganefndar hafði
tekizt á hendur á þessu þingi.
En fyrir því hafði þá ekki órað,
að hann teldi það nú einnig að
endingu skyldu sína að skýra
fyrir þeim biblíuna á ný. Þeim
þótti líka vissara að halda sig
við gömlu skoðunina á högg-
orminum og haga sér sam-
kvæmt því. í fyrradag var því,
þrátt fyrir hinar nýju biblíu-
skýringar Jónasar, hausinn tek-
inn af þessu forlátadýri í efri
deild alþingis. Hvað um hina
liðina verður, er óvíst enn. En
inn í paradís sveitarflutning-
anna fer þjóðin í öllu falli ekki
í þetta sinn.
„Þeir vita ekki hvaÖ þeir gera.“
— Það vita heldur ekki þeir, sem
góðverkin vinna. Þeir vita sjaldn-
ast hvaða verkanir jafnvel hin
smæsta gjöf getur haft, þegar
hún berst Jnn í dimmu allsleysis
og örvæntiingar, hvernig hún get-
ur lífgað lamaðar vonir og endur-
vakið táp og vilja.
Eða kannske komið eins og
svar við ákálli, sem steig upp i
þögn og myrkri langrar ömur-
legrar andvöku. En hinni þyngstu
andvökunótt fylgir á stundum
dagur huggunarinnar.
S.
bók:
voru karlar,
skáldsaga eftir Jolin
Stelnbeck.
Karl isfeld íslenzkaði. —
Heimdallur, bókaútgáfa,
Reykjavík.
John Steinbeck er í röð fremstu
skáldsagnahöfunda amierískra af
yngri kynslóðinni, og eru þó ékki
nema eitthvað 8 ár síðan fyrsta
skáldsaga hans kom út. Með
þriðju bók sinni, „TortiIIa FIat“,
sem nú kemur á íslenzku undir
nafninu „Kátir voru karlar“, vakti
hann fyrst á sér verulega athygli
sem nýstárlegur rithöfundur. En
með þeirri fimmtu „Of Mioe and
Men“ (1937) mátti svo heita, að
hann legði allan hinn enskules-
andi heim að fótum sér á svip-
stundu. Nú eru bækur Stein-
bedks lesnar á flestum þjóðtung-
um Norðurálfu.
Fer vel á því, að Steiinbeck
Skuli einmitt vera kynntur ís-
lenzkum lesendum með þeirri
skáldsöguinni, sem fyrst ávann
ho'nurn viðurkenmngu og varð
eins og innigangur að ritferli hans
síðan.
Þetta er saga um nokkra slæp-
ingja af guiðs náð, landeyður,
sem aldrei nenna að taka til
hendi, nema til þess að hnupla
sér einhver ju í gogginn: grísum,
hænsnum, eggjum, grænmeti o. s.
frv. og eru harðánægðir með
tilveruna, ef þeir að auki geta
orðið sér úti um einn eða tvo
brúsa af víni. Þeim þykir ekkert
fyrir því að sofa úti í skögi, geti
þeir að kvöldi hnuplað sér góðu
ullarteppi, sem þeir svo selja að
morgni fyrir einum eða tveimur
brúsum af víni. Svona er þeirra
daglega líf, þangað til Daníei
erflir tvö thriburhús á Fortilla
Flat eftir afa sinn. Þá lifa þeir
kóngalífi; Daníel sefur meira að
segja í rúmi, sem enginn annar
má snerta við, en hinir
gera sér gólfið að góðu. Þótt þeir
Daníel dg vinir hans séu á mæli-
kvarða hins stranga velsæmis
hálfgerðir gallagripir, þá eru þeir
allra beztu skinn inni við beinið,
hjálpsamir hverjir við aðra, fá-
tækar ekkjur og flakkara. — Það
ber að vísu stundum við, að þeir
ógáðir komast í kast við löigregl-
una og lenda í steininum, en þá
bæta þeir fyrir brot sín, hafi þeir
gjaldtniðil í vasanum, með því
að senda fangavörðinn eftir víni.
Síðan njóta fangi og fangavörður
vínsins í sátt og samlyndi —
— unz báðir strjúka úr faingels-
inu!
Æfíntýri Daníels og vina hans,
Píions, Pablos, Jesú María, feita
Portugals-Jóa og Sjóræningjans,
eru mörg hin spaugilegustu.
Vegna síns góða hjartalags fyll-
ast þeir féiagar oft og tíöum
sárustu iðrún og heita yfirbót,
jen í stað yfirbótar kemur ný á-
virðing, tilefni nýrrar iðrunar.
Af ótta við að útgefendurnir
kunni að kæra fyrir atvinnuróg,
skal því sleppt að rekja þráð
sögunnar. En hún er þeim tveim
meginkostum búin, að vera
',,spennandi“ frá upphafi til enda
og á góöu máli. Stíllinn er með
afbrigðum fjörlegur og frásögn-
in hin fyndnasta.
Leifur Haraldsson.
Útbreiðið Alþýðublaðið.
Spilin gefa menD með áoægjn.
Hanskar,
Lúffur,
Samkvæmistöskur,
Treflar,
Sokkar frá kr. 3,90,
Handgerðir dúkar,
Undirföt,
Gjafakassar,
Ilmvötn,
Barnadagkjólar.
Barna ballkjólar,
Kjólablóm,
og ekki sízt
ávísun á fallegan kjól.
Lítið í gluggana!
VERZLUNIN QULLFOSS
Austurstræti 1.
Litla blómabúðin,
Baiakastræti 14.
Sími 4957.
Hef ávait til fallegustu jóla^
köífurnar og blómaskálarnar
ásamt mörgu fieira til jóla.
Litla biómabúðin.
Flóra,
Austursfræti 7.
Sími 2039.
Esinþá stért sírva! af:
Skraufgreiiium,
kerfasflökum eg bjöllum,
skreyttum með greni;
Keramikvörum, i
PeftaisSémum.
VELJIÐ JÓLAKÖRFUNA I DAG.
Jólakveðja
8 viosæl daoslðg
í skemmtilegri kápu
aðelias Mr. 8,09
HUÓBFÆMBðSIfl
við allra hæfi.
Ekkert kostar að koma
og skoða.
JólabazariDD
Laugaveg 26. Sími 3697.
FALLEG
KVENTASKA
er kærkomnasta jóla-
gjöfin
Verð frá 14,50 úr
©fgtss leðri
IL JÓÐFÆR ARÚSIÐ
Útbreiðið Alþýðublaðið.
Allir, sem vilja kynn-
ast sálarrannsóknum
nútímans, ættu að lesa
Dnlrænar gátur
hyernig með þær- ber j
að fara og þroska þær.
í flestum hinna .22 ]
kafla, þar sem rætt er j
um ýmsar tegundir
dulrænna hæfileika,
eru merkilegar og
fræðandi frásagnir um
ýms dularfull fyrir-
brigði.
Fæst hjá öllum bók-
sölum. Verð 5 kr.
hft. 6,50 ib.
Ódýrt
Hveiti, bezta teg. 0,50 kg,
— 7 lbs. pokum, 2,00.
— 10 Ibs. pokum, 2,50.
Flórsykur.
Skrautsykur.
Möndlur.
Súkkat.
Kókosmjöl.
Gerduft.
Gerið innkaup yðar í
mmwww jí
liSiaal
Símar 1678 og 2148,
Tjaraarbúðin. — Sími 3570.
PAPPÍ8S - KA8FA
ER NYTSÖM JÓLAGJÖF
aðeins fáein
Verzlunin opin til kl. 12 í kvðld.
Edinborg.
DLJðBFÆBADÚSID
Útbreiðið Alþýðublaðið!
Austurlönd eiga
auðlegð nóga.
„Vedantisminn“
er vizkan frjóa.
Andið að yður
„ILMI SKÓGA.“