Alþýðublaðið - 27.12.1939, Side 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
ÚTGEFAN.ÐI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XX. ÁRGANGUR
MIÐVIKUDAGUR 27. DES. 1939.
301. TÖLUBLAÐ.
Flnnar komnir fimmtín kilómetra inn
f Rússland fyrlr norðan Ladogavatn!
Þeir sækja fram í áttina
til Murmanskbrautarinnar.
Rilssnesk skriðdrekasveit
gengnr i lið með Flnnum.
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun.
U INNAR héldu uppi látlausri sókn við austurlanda-
mærin háða jóladagana, og hafði í gær tekizt að
hrekja Rússa á einum stað, um 240 km. fyrir norðan La-
dogavatn, alveg út úr Finnlandi og eru Finnar á þeim
slóðum nú komnir um 50 km. vegar inn í Rússland.
Það er álitið, að ætlun Finna sé sú, að halda áfram sókn
sinni þarna í því skyni að komast austur að járnbrautinni frá
Leningrad til Murmansk, sem á þessum stað liggur ekki
nema 180 km. frá landamærunum, og reyna að eyðileggja
hana. Ef það tækizt, væru herflutningar Rússa til Norður-
Finnlands stöðvaðir og sá her, sem þeir hafa þar nú, slit-
inn úr sambandi við Leningrad.
Finnskar flugvélar eru á stöðugu sveim-i yfir vígstöðv-
um Rússa og varpa flugmiðum niður með áskorunum til
hermannanna um að rísa upp á móti harðstjórninni og
ganga í lið með Finnum.
Þessar áskoranir báru í gær merkilegan árangur. Heil
rússnesk skriðdrekasveit gekk í lið með Finnum og afhenti
þeim skriðdrekana alla óskemmda. Rússnesk sprengjuflug-
vél lenti einnig á bak við vígstöðvar Finna og flugmaður-
inn lýsti því yfir, að hann væri kominn til þess að afhenda
þeim flugvélina!
í tilkynningum Finna segir, að þrátt fyrir sóknina og
bárdagana hafi finnsku hermennirnir haldið jólin hátíðleg
í bækistöðvum sínum. Hafi guðsþjónustur verið haldnar og
víða verið jólatré og allir fengið jólagjafir og jólamat.
Frá stríðinu í Finnlandi: Til vinstri finnskir loftskeytamenn í tjaldi á Petsamovígstöðvun-
um. Til hægri einn af yngstu sjálfboðaliðum Finna.
Bðssnesku áblanpi ð
Kyrjálanesl hrnndlð.
Rússar gerðu í gær eitt mesta
áhlaupið á víggirðingar Finna
á Kyrjálanesi, sem þeir hafa
gert hingað til, en því var
hrundið eftir blóðuga viðureign.
Áhlaupið hófst með stór-
skotahríð og loftárás, en síðan
sóttu fram skriðdrekasveitir og
fótgöngulið. Að áhlaupinu
loknu lágu 700 Rússar fallnir á
vígvellinum, en Finnar segjast
auk þess hafa tekið 50 manns
til fanga.
í stórskotahríð, sem Rússar
hafa haldið uppi á Kyrjálan’esi
síðustu þrjá daga, hafa þeir
skotið á Viborg, sem er langt
fyrir aftan víggirðingar Finna,
og valdið þar töluverðu tjóni.
Nokkrar byggingar í borginni
standa í björtu báli, og það er
í óða önn verið að flytja íbúa
borgarinnar burtu.
Á Petsamovígstöðvunum hef-
ir ekkert verið barizt um jólin
sökum fannfergis. Frostið er
enn um 30 stig á þeim slóðum.
Loftárásir á flelsingfors
og Viborg.
Fólkið. sem eftir er í borgun-
um á Suður-Finnlandi, átti óró-
lega daga um jólin. Loftárásir
voru gerðar á margar þeirra,
þar á meðal á Helsingfors og
Viborg, og varð fólkið á jóla-
daginn klukkustundum saman
að hafast við í neðanjarðar-
byrgjum og öðrum skýlum
gegn loftárásum.
Skotið var af loftvarnabyss-
um á hinar rússnesku árásar-
flugvélar og neyddust þær þess
vegna til þess að fljúga í mik-
illi hæð þannig að margar
sprengikúlur misstu marks.
Það er talið að farizt hafi um
13 manns í þessum loftárásum.
Brezku skipi sökkt af jijzk-
■ kafbát á jóladagign.
— —»....-
SklpshHfsiin var viö jóiafagnað
pegar fundurskeytiö hitfi skipið
i
LONDON í gærkveldi. FÚ.
BREZKRI tilkynningu
segir, áð áhöfnin á þýzk-
um kafbát hafi valið jóladaginn
til þess að gera árás á brezka
flutningaski]*ið „Stanhome.“ —
Var skotið á það tundurskeyti
fyrirvaralaust.
Flestir skipsmanna voru und-
ir þiljum og höfðu efnt þar til
jólafagnaðs. Allt í einu heyrð-
ust ógurlegir br'estir og varð
öllurn þegar ljóst, að skipið
hefði rekizt á tundurdufl eða að
skotið hefði verið á það tund-
urskeyti.
Kornust flestir skipsmanna
upp á þilfar, en skipið var þeg-
ar tekið að sökkva og vannst
ekki tími til að koma niður bát-
um. Það tókst þó að henda út
planka og tíu menn af skips-
höfninni hentu sér út og tókst
Hjálparstarfsemi fyrir jólin:
Vetrarhjálpin aðstoðaði om
eitt þúsnnd heimili I bænum
----«----
Margar fátækar mæður mifu að*
stoðar Mæðrasf|rrksn©fnáar.
u
M 1200 umsóknir komu
til Vetrarhjálparinnar
frá bágstöddum heimilum
fyrir jólin.
Af þeim var úthlutað til 965
fjölskyldna og einistaklinga; auk
þess var úthlutað jiölagjöfu'm til
160 ©instakiiniga, gamalmenna á
Elliheimilinu og sjúkliníga á Far-
sóttahúsinu.
Fatnaði var úthlutað til 787
fjiölskyldna, matvælum til 799
fjölskyldna og 5 tonnum af kol-
Um til 619 fjölskyldna. Enn
fremur var úthlutað 8530 lítrum
af mjiólk.
í peningum safnaðist til skrif-
stofu Vetrarhjálparinnar kr.
24 281,73, auk þess til blaðanna
Frh. á 4. síðu.
að halda sér í hann dauðalialdi,
unz þeim var bjargað.
Fjórtán menn fórust.
Einn af þeim, sem bjargað var,
var á þilfari, þegar árásin var
gerð, oig sá hann kafbátinn i
þeim svifum, er tundurskeytinu
var skotið, en það var of sein1
til þess að aðvara þá, sem niðri
voru.
Norskt skip var statt í níokkurri
fjarlægð, og sáu skipverjar á því
hvað gerzt hafði. Bjargaði hið
niorska skip þeim 10 mönnum,
sem fyrr var um getið.
„Stanhome“ var 2500 smálestir
að stærð.
flllí rðlegt á vesturvig-
stðflvnnnm nm jélli.
LONDON í morgun. FO.
I gær var allt með svc kyrrum
kjörum á vesturvígstö ðvunum,
þar sem brezku hersveitirnar eru,
að ekki var hleypt af einu einasta
skioti — hvorki af Bretum eða
Þjóðverjum.
Hitler var í heimsókn hjá
þýzku hermönnunum og úthlutaði
gjöfurn og járnkrossum, en
brezku hermennirnir fengu alls 3
milljónir jólapakka.
Yörleitt var allt með kyrruin
kjiörum á vesfurvígstöðvunium ð
aðfangadagskvölrl og jóladag. 1
hverju einasta virki í Maginot-
línunni var messað um miðnætti
á jiölakvöld og í hverju einasta
þorpi fyrir aftan vígstöðvar Breta
tóku þeir þátt í jólafagnaði
þorpsbúa.
St. Framtíðin nr. 173
gengst fyrir áramótadanzleik í
G.-T.-húsinu á gamlárskvöld. —
Verða þar eingöngu danzaðir
gömlu dansamir.
1
Úthlnttin skðmtDD-
arseðla fjrrir jaiiáar
UTHLUTUN skömmt-
unarseðla fyrir jan-
ú^irmánuð hófst í morgun
og stendur hún aðeins til
nýjárs.
Skrifstofan minnir fólk
á að koma og sækja seðla
sína og framar öllu öðru
að koma með stofnana og
hafa skrifað nöfnin á þá.
Skrifstofan verður opin
til afgreiðslu kl. 10—6
daglega. Allur skammtur
er hinn sami og var í nóv-
ember. Nú er enginn auka-
skammtur af kaffi.
Verðnr vetrarþmg?!
Fjárlflgin tll 3. umræfluj
siðdegis I dag eða ál
morgnn.
»»
f^AÐ er ætlast til þess
að alþingi verði slit-
ið fyrir áramót og mun
verða mikið að gera í þing-
inu í dag og næstu daga,
því að hraða verður af-
greiðslu á mörgum málum.
— Talið er þó líklegt að
þing muni koma aftur
saman síðar í vetur.
Fjárlögin verða til
þriðju umræðu síðdegis í
dag eða á morgun.
Samtals 80 púsnnd
króDDr til Finnlands.
Alþingisraeim, neraa kommún-
istar, gefa vibukanp sitt.
P INNLANDSSÖFNUN-
■*• IN er nú komin upp í
80 þúsundir króna, heldur
hún stöðugt áfram og fer
iangt fram úr öllum vonum.
í gær bárust 2000 krónur og
auk þess ákváðu allir alþingis-
mennirnir fyrir jólin, að undan-
skildum kommúnistum, að gefa
þingfararkaup sitt í eina viku
til söfnunarinnar og er þetta
allmikið fé,
Auk þessa hefir söfnuninni
borizt allmikið af fatnaði og
prjónlesi og^ er þó allmikið af
slíku á leiðimn hingað utan af
landi.
í gær bárust skeyti og bréf
frá forseta Rauða Kross Finn-
lands og forseta Finnlands-
deildar Norræna félagsins •—
Frh. á 4- síðu.
Eldurinn í íshúsinu.
Fiskur og imbúðir fyrir ura
hundrað gúsund krðnurtal-
ið hafa eyðiiagzt i eldinim
IX ÆTTA er á því, áð full-
■*■ unninn hraðfrystur
fiskur, sem metinn er á 85
þúsund krónur, og auk þess
umbúðir og ýmsar smávörur
fyrir 10—15 þúsund krónur
hafi skemmst eða jafnvel
eyðilagst alveg í brunanum,
sem varð í ísbiminum,
frystihúsi Fiskimálanefndar
við Tjörnina á aðfangadag.
Hinsvegar er þetta ekki rann-
sakað til fulls, en það mun verða
gert i dag.
Ennfremur hefir ekki fengist
full vissa fyrir því, hvort vélar
frystihússins hafa skemmst
mikið, því að húsið er rafmagns-
laust og ekki hægt að setja vél-
arnar af stað af þeim sökum.
Aðaltjónið er talið hafa orð-
ið af vatni og reyk, því að eld-
ur var ekki mikill, að minnsta
kosti ekki í aðalsalnum, véla-
salnum niðri.
Fiskimálanefnd hafði vá-
tryggt hjá Sjóvátryggingafélagi
Islands fisk, umbúðir og véla-
innréttingar fyrir 130 þús.
króna.
Þessi mikli fiskur, sem
þarna var, hafði beðð nokkurn
tíma framskipunar vegna þess,
hve ervitt hefir gengið að fá
skip til að flytja fiskinn.
Eldurinn kom upp um kl. 9
að morgni aðfangadags. Þegar
slökkviliðið kom á vettvang
logaði vesturgafl hússins og laest
ust logarnir upp í þakið. Gekk
afarerviðlega að slökkva
Frh. á 4- síðu.