Tíminn - 06.04.1918, Page 1
TÍMINN
■kemur út einu sinni i
viku og kostar A kr.
árgangurinn.
AFGREIÐSLA
i Regkjavik Laugaveg
18, simi 286, át um
land ÍLaufási, simi 91.
II. ár.
Suðaustanblika.
Balkanskaginn hefir löngum þótt
anesta illviðrabæli. Þaðan hafa löng-
um dregið upp ófriðarblikur yfir
Norðurálfuna. Svo var og 1914. Á
landamærum Serbíu og Austurríkis
kviknaði sá neisli, sem brátt varð
að eldhafi er náði um flest lönd.
ög enn er þar sá eldsmalur ó-
brunninn að ætla má að þar verði
síðast slökt.
Flestum kemur nú saman um
að nýlendu og markaðsþörf hinna
miklu iðnaðarþjóða, og þá einkum
Þjóðverja, hafi verið frum orsök
stríðsins. Þjóðverjar höfðu komið
helzt til seint til skjalanna. Bretar,
Frakkar, Rússar og Tyrkir höfðu
eignarhald á beztu nýlendunum.
Frá þrem hinum fyrsttöldu varð
ekkert tekið nema með vopnadómi.
Tyrkir voru hinsvegar veikir fyrir.
Þá mátti sigra í friði; gleypa þá
án þess þeir vissu af — og fá þar
landauka handa þýzka þjóðstofn-
inum.
Eftir því sem skýrum rithöfund-
um meö Vesturþjóðunum segist frá,
var ráðagerð Þjóðverja sú, að
mynda voldugt ríkjasamband frá
Hamborg að Persaflóa. Þjóðverjar
væru þar höfuð þjóðin. Austur-
riki í bandalagi, en þó lítils ráð-
andi. Balkan og Tyrkjalönd í Asíu
germönsk nýlenda. Ríkjasamband
þetla hefði orðið eins og íleygur
milli Rússa að austan og Frakka
og Breta að vestan. Engin ríkis-
heild í heimi hefði verið sterkari
en þessi, eða fjölbreyttari að lands-
háttuin og náltúrugæðum. Undir
forustu Prússa myndi samband
þetla hafa orðið ægilegt herveldi.
í stríðsbyrjun 1914 stóðu Prúss-
ar furðu nærri þessu takmarki.
Austurríki og Búlgaria voru banda-
menn þeirra og Tyrkir höfðu um
mörg ár verið hreinir og beinir
skjólstæðingar. Fjöimargir af leið-
andi mönnum Tyrkja höfðu ment-
ast í Þýskalandi, en þar að auki
voru þýzkir menn settir til að
gegna mörgum vandamestu em-
bættunum. Leiðin virtist opin
Þjóðverjum til að gera Litlu-Asíu
og Mesepotamiu að þýzkum ný-
lendum.
En á þessari leið stóðu Serbía
t>g SvartQalIaland eins og »klettur
úr hafinu«. Serbia Iét sig jafnvel
dreyma stóra drauma um að bæta
við sig slavneskum landshluta und-
an Austurríki og verða stórveldi á
Balkanskaga. Tækist það var íleyg
skotið inn í hið mikla veldi Þjóð-
verjanna.
Stríðið hefir engu breytt um
óskir beggja aðila viðvíkjandi
Reykjavík, 6. apríl 1918.
14. blað.
Balkan. Þjóðverjar munu leggja alt
kapp á að hafa óhindraða götu
suðaustur í Tyrkjalönd — til að
finna þar viðnám mannafla sínum og
auði. Hinsvegar munu Vesturþjóð-
irnar leggja alt kapp á að efla
Serbíu, og liða út úr Austurríki
þá þjóðflokka, sem heldur vilja
vera óháðir en undir þ}Tzk-austur-
rískri stjórn.
Dýrtíðarmálin.
ii.
Margar miljónir hinna vinnandi
manna í heiminum hafa verið teknir
frá vinnu sinni. í ófriðarlöndunum
er allur vinnukraftur, sem mögu-
legt er að ná til, tekinn í þjónustu
stríðsins og framleiðslunnar.
Engu að síður er sú ein afleið-
ing stríðsins í hlutlausu löndunum
að svo mikill ijöldi manna verður
atvinnulaus, að til stórvandræða
horfir. Erfiðleikarnir að reka ýms-
ar atvinnugreinar eru orðnir svo
margir og margvíslegir, að atvinnu-
rekendur verða sumpart að hætta
að reka atvinnu, sumpart að draga
mjög saman seglin. Þeir veita
miklu færri mönnum atvinnu en
áður.
Það er augljóst að ekki verður
undan stýrt voðanum sem hér er
fyrir dyrum, án þess að þjóðfé-
lagið sem heild skerist í leikinn
og útvegi vinnu á einlivern hátt.
Það sem skiftir mestu máli er að
finna grundvöllinn sem á verði
reist.
Hvað verður þá fyrst og fremst
að gera?
Það er það, að reyna að komast
að raun um það hversu margir þeir
eru sem þur/a á vinnu að halda.
Til þess að komast að raun um
þelta verður að leita upplýsinga
um land alt
a. um alla þá menn sem þurfa
að fá vinnu og hve langan tíma
úr árinu og
b. um hina sem vinnu veita,
hversu marga menn þeir myndu
taka til vinnu og hve langan tíma
úr árinu.
Það yrði allmikið verk að safna
slíkum skýrslum, en langt frá að
vera óframkvæmanlegt. Og eigi
nokkur föst stefna að komast á,
um dýrtíðarráðstafanir, til frambúð-
ar, sem sé gengið út frá því að
stríðið standi lengi, kreppi meir
að, og það er ekkert vit í að
ganga út frá öðru — þá getur það
ekki talist verjandi að reisa fram-
kvæmdir á öðrum grundvelli en
þessum.
Að sjálfsögðu mætti láta þessar
skýrslur sýna það, hvaða verk hver
einstakur kynni einkum að vinna,
hverjir væru ráðnir, hverjir hefðu
fullráðið, auk þess sem þær bæru
það með sér hvar þeir menn væru
á landinu sem vinnulausir eru. —
Þeir sem kunnugir eru ástandi
atvinnuveganna íslenzku nú, munu
ekki vera í neinum efa um það, að
slík rannsókn myndi leiða það í
ljós að þeir eru mjög margir á ís-
landi nú sem að meira eða minna
leyti þurfa að fá vinnu, til þess
að forða sér og sínum frá neyð.
Þeir eru nálega áreiðanlega svo
margir, að þá verður það öllum
Ijóst, að dýrtíðarvinna, rekin í
líkri stefnu og var í vetur, verði
hún látin ná til allra, verður slík
voðaleg Qárhagsbyrði á landinu,
að það ris ekki undir henni nema
stuttan tíma.
Það verður lífsnauðsyn að finna
nýjar leiðir.
Og þá verður þjóðin að skilja
það, að því að eins verður það
tvent sameinað, að allir fái svo
arðberandi vinnu að þeir geti lifað
þolanlega, og landið fari ekki á
höfuðið, — að bœði vinnendur og
vinnuveitendur sœtti sig við það, að
landið verði cf til vill að setja ijmis-
konar hömlur á frelsi þeirra — að
báðir flokkarnir láti niður jalla all-
an innbyrðis rig og styðji hvor
annan um að framkvœma það sem
verður að teljast nauðsynlegt til þess
að bjarga heildinni — að allir taki
saman höndum um að halda sem
sparast á í hvivetna.
III.
Það sem undir öllum kringum-
stæðum er sjálfsagt er það, að
þjóðfélagið beinlínis og óbeinlínis
stuðli að því að menn geti og fáist
til þess að leggja stund á frain-
leiðslu.
í sambandi við rófu- og kartöflu-
rækt má t. d. nefna, að landsstjórn
og bæja- og sveitastjórnir sjái um
að nóg sé til allstaðar af fræi og
útsæði, hjálpi til um verkfæraút-
vegun ef þess gerist þörf og veiti
mönnum, þar sem svo á stendur,
hinn greiðasta aðgang að landi
til ræktunarinnar. Hitt er annars
eðlis að hið opinbera reki slíka
framleiðslu sjálft.
Sama er um eldiviðaröílun, að
veita mönnum sem notað geta,
aðgang að landi til þess.
Sérstakt dæmi inætti nefna um
fráfærur. Auknar fráfærur í stórum
stil gera hvorttveggja að veita meiri
vinnu og auka framleiðsluna. Það
sýnist liggja alveg beint við nú,
að verði ekki farið lengra, þá eigi
a. m. k. að skora alvarlega á alla
bændur í landinu að færa frá, jafn-
vel að bregða nú við og senda á-
hugasama menn út um sveitir til
þess að kalla saman fundi og tala
við bændur og sýna það svart á
hvítu með tölum, hversu það muni
vera mikill hagur að því nú —
beinlínis og óbeinlínis — bæði ein-
staklingnum og heildinni — að
færa frá. Og þær tölur má leggja
á borðið. Og það er nálega víst
að slík aðferð hefði góðan árang-
ur í för með sér.
En hún væri ónýt nema annað
væri gert líka. Sem sé það, að eitt
hvað yrði gert um leið til þess að
tryggja bændum það að fá fólk —
smala og mjaltakonur eða menn,
til þess að þeir geti fært frá.
Það yrði að gera með því að
landið setti á stofn ráðningaskif-
stofur og væri þá ef til vill heppi-
legast að hreppsnefndir söfnuðu
skrá um hve margt fólk þyrfti í
hverja sveit af slíku fólki og léti
ráðningastofurnar ráðstafa til sín.
Þetta eru óvenjulegar ráðstafan-
ir. En hver mun þora að neita
því að hér sé á aðra hönd um
möguleika að ræða til þess að
bæta ástandið að miklum mun.
Og ekki í þessu eina skyni virð-
ist það liggja beint við að komið
sé á fót ráðningaskrifstofum alstað-
ar í bæjum og þorpum, þar sem
mikið er um þá menn sem vantar
vinnu, til þess að aldrei fari þó
svo að atvinna falli niður af því
einu, að á einhverjum stað er eftir-
spurnin of mikil.
Sviðin eru ærið mörg, þar sem
þjóðfélagið getur gripið inn í hvetj-
andi og hjálpandi. Ónefnt er t. d.
að sjá um að efni og áhöld sé til
til þess að smíða opna báta, riða
net og gera annað sem mætti verða
til að fjölga þeim sem sjó gætu
stundað.
En aðal spurningin er sú, hvort
þjóðfélagið þurfi ekki að fara
lengra en að stuðla þannig að
framleiðslu einstaklinganna.
Til fulls verður þeirri spurning
ekki svarað án þess að hafa við
hendina þær skýrslur sem getið er
um hér að framan.
Brnuðgcrð á gasstöðinni. Til-
raunir hafa verið gerðar að baka
brauð á gasofninum í Gasstöð
Reykjavíkur. Hafa tilraunirnar bor-
ið góðan árangur. Er nú jafnvei
gert ráð fyrir að takast megi að
baka öll rúgbrauð sem Reykvíking-
ar þurfa á þennan hátt og myndi
það spara mikiö fé. Hefir bæjar-
stjórnin málið til meðferðar.