Alþýðublaðið - 20.05.1952, Blaðsíða 1
GSA
' --------------N '
70 þúsund krónum sfolið
úr læsfusn peningaskáp!
(Sjá 8. síðu.)
V___________________________________________)
XXXIII. árgangur. Þriðjudagur 20. maí 1952. 112. tbl.
Lík eins af áhöfninni fannsf í flak-
inu, en
Carlsen aftur á siónum, Kurt cariæn, hinn
J dpnsk-ameríski skip-
stjóri. sem frægur varð af hetjudáð sinni siðastliðinn vetur, er
hann barðist hálfan mánuð við storma og öldur Atlantshafsins,
einn síns liðs, á sokkvandi skipi sínu, ,,Flying Enterprise“, hef-
ur nú fengið nýtt skip og er kominn á því til Le Havre á Frakk-
landi. Hið nýja skip kallar hann „Flying Enterprise II”, og um
borð í því hefur hann ekki aðeins hina gömlu stýrimenn sína,
heldur og 18 aðra af sinni gömlu skipshöfn. Á myndinni sést
Carlsen skipstjóri í aðdáendahóp meðan hann dvaldi heima í
Ameríku og beið hins nýja skips síns.
Orænland ekki samfellf land,
heldur eyjar undir ísnum!
--------------
Brezkur leiðangur ætiar að kanna þetta
með sprengingum i ísnum í sumar.
------*-------
,SOCIAL-DEMOKRATEN‘ í Kaupmannahöfn flytur þá
frétt, að stór, brezkur rannsóknarleiðangur, sem gerður verði
út til Grænlands í sumar, ætli mcð sprengingum viðs vegar á
Grænlandsjökli að ganga úr skugga um það, hvort Grænland
sé samfellt land eða máske tvær eða fleiri eyjar, þó að ísbreiðan
sé svo samfelld, sem kunnugt er.
Neyðarsendisloftnef, sem fannst, bendir
þójil, að einhver hafi Hfað flugslysið af.
........♦---------
AMERÍSKA björgunarflugvélin, sem týndist á
föstudaginn, fannst skömmu eftir hádegi í gær allhátt
á Eyjafjallajökli suðvestanverðum. Hún var á kafi í
snjó, mikið brotin og á hvolfi, og lík eins manns úr
áhöfn hennar fannst í flakinu. Hinir fjórir af áhöfninni
voru ófundnir, er síðast fréttist í gærkveldi, og ókunn-
ugt um afdrif þeirra.
Ncyðarsendiloftnet sem
fannst á sunnudaginn norð-
austan á jöldinum bendir þó
til þcss að einhver eða ein-
liverjir af áhöfn vélarinnar
hafi komizt lífs af úr sjálfu
flugslysinu, hváð scm síðar
hefur hent. Slíkt loftnet
höfðu flugmennimir með-
ferðis og þykir engin önnur
skýring koma til greina en
sú, að einhver af áhöfninni
hafi eftir slysið náð að setja
það upp til að koma skeyt-
um til manna, en það síðan
foki’ð og borizt með vindin-
um norður á jökul, enda vind
j áttin mjög í stefnu frá flak-
k inu á þann stað, þar sem loft
netið fannst.
Of falleg.
Miss : Audrey,
White heitir
þessi unga, fallega stúlka og er
„mannequin", í Lonöon. Hún
varð skyndilega fræg, er blögðin
sögðu frá því, að henni hefði
verið neitað um þularstöðu við
brezka sjónvarpið vegna þess,
að hún væri of falleg! Forráða-
menn sjónvarpsins óttuðust, að
hún myndi draga svo að sér
athygli áþorfenda, að þeir gæfu
sjálfu prógrammi sjónvarpsins
engan gauml
Hinn brezki rannsóknarleið-
angur, sem sagður er munu
verða sá stærsti, sem Bretar
haía gert út til heimskautalanda
síðan Scott fó rhina frægu suð-
urskautsför sína, verður undir
stjórn Dr. R. A. Hamilton og
fer til Norðaustur-Grænlands í
júlí. Þaðan ætlar hann upp á
Grænlandsjökul og býst við að
hafa aðalbækistöð á ísnum um
600 km. norðar en hinn þekkti
franski Grænlandskönnuður,
Paul Emile Victor, undanfarin
ár.
Hinn brezki leiðangur mun
leggja mikla áherzlu á að
kanna þykkt jökulbreiðunnar,
og ætlar hann að gera það með
sprengingum víðs vegar í ísnum
með um 20 km. millibilum. Er
talið að með mælingum á berg-
málstitringi neðan úr djúpun-
um sé hægt að ákveða þykkt
jökulsins, og eins hitt, hvort
land eða ,sjó rer undir honum.
En sú sköðun hefur skotið upp
kollinum hin síðari ár, að Græn
land sé ékki eitt samfellt land,
heldur tvær eða fleiri eyjar,
bundnar saman af ísbreiðunni.
Joy ilolaforingi á
förum frá Kóreu
Harrington tekur
við þar af honum.
JOY flotaforingi, sem verið
hefur formaður samninganefnd-
ar sameinuðu þjóðanna í Pan-
munjom í Kóreu, hefur nú ver-
ið skipaður embættismaður í
landvarnamálaráðuneytinu í
Washington og cr væntanlegur
þangað innan skamms.
í Panmunjom mun einn a£
samningamönnum sameinuðu
þjóðanna, Harrington, taka yrð
af honum.
Stjórn leitarinnar hefur flug
umferðarstjórnin á Reykjavík
' urflugvelli, svo og stjórn flug-
björgunarsveitarinnar, sem
jlagt hefur til mestallan mann-
I afl, en auk þess hefur verið
'haft allt samráð við Keflavík-
urflugvöll. Milli þrjátíu og
fjörutíu leitarmenn voru aust
ur á Eyjafjallajöldi og við
hann í gær og allt að því fimm
flugvélar tóku þátt í leitinni
og voru til aðstoðar, eftir að
flakið fannst. Leitarmenn hafa
talstöðvar, en sakir slæmra
hlustunarskilyrða voru fregnir
að austan nokkuð á reiki í gær
og dálítið óljósar.
ÓVEÐUR TAFÐI LEITINA.
Leitin var í upphafi skipu-
Framh. ai 2. síðu.
Russar slöðva far-
þegalesl frá Berlfn
R.ÚSSAR stöðvuðu í gær :ar-
■þegalest á leið frá Berlín til
Vestur-Þýzkalands. Engin skýr-
ing var gefin á þessu tiltæki.
Yfirlýsing Bernharðs Stefánssonar:
r
Obundinn af ákvörðun miðstjórn-
ar Framsóknar um forsetaframboð
--------4-------
Framsóknarblaðið Dagur telur og ,fiokks
“menn óbundna* af henni við kjör forseta
--------------------■»------
DAGTJR, blað Framsóknarflokksins á Akureyri,
flutti 14. þ. m. yfirlýsingu frá Bernharði Stefánssyni
alþingismanni, þess efnis, að hann telji sig óbundinn
af ákvörðun miðstjórnar Framsóknarflokk.sins um
framboð forseta, enda hafi sú ákvörðun aldrei verið
borin undir hann sem miðstjórnarmann.
Yfirlýsing Bernharðs Stef-
Nýja íslenzka land-
helgin rædd I gær
í brezka þinginu
Alvarlegt máí fyrir
Breta, segir Lloyd
SELWYN LLOYD, aðstoðar
utanríkismálaráðherra Breta,
sagði við umræður í neðri mál
stofu brezka þingsins í gær,
að hinar nýju íslenzku fiski-
veiðatakmarkanir væru hér
um bil eins alvarlegt mál fyr-
ir Breta og fiskiveiðatakmark
anirnar við Noreg. Hann skýrði
þingdeildinni frá því, að ís-
lenzka stjómin hefði í vik-
unni, sem leið, neitað að gera
nokkrar breytingar á hinni
nýju landhelgi; en málið væri
nú til frekari athugunar hjá
brezku stjórninni.
Nokkrar umræður urðu um
þetta í neðri málstofunni. og
Framh. á 4. síðu.
anssonar er, orðrétt, svohljóð-
andi:
„Samkvæmt gildandi
stjórnskipun er forseta ís-
lands ætlað að vera óhlut-
drægur þjóðhöfðingi, en ekki
pólitiskur leiðtogi. Kosning
hans, ef ekki er allsherjar-
samkomulag um hana, á því,
að mínu áliti, að vera ópóli-
tísk kosning um menn, en
ekki um stjórnmálastefnur.
I annan stað var ákvörðun
miðstjórnar Framsóknar-
flokksins um framboð for-
setaefnis aldrei borin undir
mig sem miðstjórnarmann.
Af greindum ástæðum tel
ég mig því óbundinn af á-
kvörðun mi'ðstjórnar Fram-
sóknarflokksins um fram-
boð forseta.
Bláðið Tíminn er vinsam-
lega beðið að birta þessa yf-
irlýsingu“.
„FLOKKSMENN ÓBUNDNIR"
í sama tölublaði gerir Dag-
ux forsetaframboð miðstjórn-
armeirihluta beggja stjórnar-
Framh. a, 2. síðu.
%