Morgunblaðið - 23.07.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.07.1999, Blaðsíða 1
B L A Ð A L L R A LANDSMANNA 1999 IMtögtstiMJiMfr ■ FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ BLAD Saric þjálfar Skallagrím KÖRFUKNATTLEIKSDEILD Skallagríms hefur ráðið Dragisa Saric næsta þjálfara karlaliðs félagsins. Samningur Saric er til eins árs en hann verður einnig leikmaður með liðinu. Saric er 37 ára og 2,03 m á hæð. Hann hef- ur leikið lengi með júgóslavneskum félagslið- um og varð meðal annars Evrópumeistari meistaraliða með Partizan Belgrad árið 1993. Óvíst er hvort Skallagrímsmenn fá til sín fleiri erlenda leikmenn fyrir tímabilið í úr- valsdeildinni, en slík mál eru til skoðunar. Gengið hefur verið frá nýjum samningum við flesta af leikmönnum liðsins sem léku með því á síðasta tímabili. KNATTSPYRNA Þórey með brjósklos? „SUMARIÐ hefur verið mjög erfitt fyrir flesta af okkar fremstu frjálsíþróttamönnum. Þeir eru meiddir og hafa verið það og jafn- vel er óvíst með framhaldið hjá sumum," segir Vésteinn Haf- steinsson, verkefnisstjóri Frjálsíþróttasambands íslands. „Jón Arnar Magnússon hefur verið meiddur um nokurra mánaða skeið, Guðrún Arnardóttir hefur átt í meiðslum undanfarnar vik- ur og sömu sögu er að segja af Þóreyju Eddu Elísdóttur, Magn- úsi Aroni Hallgrímssyni og Einari Karli Hjartarsyni. Einar er að vísu að ná sér á strik, en tímabilið gæti verið á enda hjá Magn- úsi og útlitið er ekkert alltof bjart hjá Þóreyju miðað við þá greiningu sem hún hefur fengið á sínum meiðslum," segir Vé- steinn ennfremur. Jón Amar hefur verið meiddur á hné frá því síðla vetrar en að sögn Vésteins eru meiðslin úr sög- unni en hins vegar er tíminn sem hann hefur til þess að komast í æf- ingu fyrir HM ekki mikiil, en mótið fer fram í Sevilla eftir einn mánuð. „Gísli Sigurðsson, þjálfari Jóns, er bjartsýnn á að tíminn sem þeir hafa til þess að komast í þokkalega góða æfingu muni nægja til þess að Jón geti keppt með sóma á heimsmeist- aramótinu. Þórey Edda stangarstökkvari hefur lítið keppt í sumar og ekkert frá því hún stökk 4,22 metra í lok júní. Hún hefur verið slæm í mjó- baki frá því í vor og m.a. þurft að af- þakka boð um þátttöku á fimm al- þjóðlegum mótum, að sögn Vé- steins. „Þórey hefur ekkert getað æft um tíma og ákvað að fara heim til íslands og slaka aðeins á þar með fjölskyldu sinni. Heima hefur hún verið skoðuð af læknum sem telja vel hugsanlegt að hún sé með brjósklos. Ef það er staðreynd gæti keppnistímabÚið verið á enda hjá henni og ósennilegt að hún keppi á HM. Hún hefur hins vegar tekið ákvörðun um að reyna að vera með á Norðurlandamóti 22 ára og yngri í Svíþjóð um aðra helgi og þá ætti að skýrast hvað verður hjá henni.“ Guðrún Amardóttir hefur verið meidd í lærvöðva síðan fyrri hluta júní. Fyrir rúmum hálfum mánuði tók hún ákvörðun um að fara tO Ge- orgíu í Bandaríkjunum og æfa þar í hita og fá leiðsöng hjá þjálfara sín- um þar og því hjúkrunarfólki sem hún hefur þar aðgang að. Magnús Aron Hallgrímsson kringlukastari er meiddur á hægra hné og hefur lítið getað einbeitt sér að æfingum og keppni síðustu vik- ur. „Hægra hnéð má ekki við neinu álagi. Magnús hefur verið í skoðun hjá læknum í Svíþjóð þar sem hann býr og greinilegt er að þetta eru sömu meiðsli og hann var skorinn upp við síðastliðinn vetur. Nú hefur hann verið í sprautumeðferð í hálf- an mánuð og verður áfram. Hann mun því ekkert æfa eða keppa næstu vikumar. Þess vegna er úti- lokað að hann nái HM-lágmarki,“ sagði Vésteinn, sem einnig er þjálf- ari Magnúsar. Einar Karl hástökkvari hefur sl. vikur átt í meiðslum í hægri ökkla en segist vera að ná sér á strik. „Þetta hefur verið erfiður tími en ég vonast til þess að nú sé ég kominn inn á beinu brautina og geti farið nærri HM-lágmarkinu á Meistara- mótinu um helgina," sagði Einar Kai-1 í gær. Einar hefur stokkið 2,22 metra í ár, en það er 3 sentímetrum frá lágmarki til þátttöku á HM í Sevilla. „Martha Ernstsdóttir hlaupa- kona er sú eina af HM þátttakend- unum sem gengur heil til skógar. Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson Tvö rauð spjöld á lofti á Akranesi ÓLAFUR Ragnarsson, dómari, sýndi tveimur leikmönnum rauða spjaldið á Akranesi í gærkvöldi - Stefáni Þórðarsyni, ÍA og David Winnie, KR. Stefán var rekinn af leikvelli eftir aðeins þrettán mín. fyrir að slæma hendi til Kristjáns Finnbogason- ar, markvarðar KR, sem heldur hér utan um Stefán. Þormóður Egils- son og Ólafur eru einnig á myndinni. Brottvísun Stefáns var vendipunkt- ur leiksins, en fram að henni höfðu Skagamenn verið hættulegri. KR- ingar nýttu sér liðsmun- inn og fögnuðu sigri, 2:0. Keflvíkingar lögðu Vík- inga í Keflavík, 3:2, og Grindvíkingar skelltu Fram á Laugardaisvell- inum, 3:1. Allt um leik- ina á C4, C5, C8. Vésteinn Hafsteinsson „Hef áhyggj- uraf Völu“ „VALA Flosadóttlr hefur æft vel frá því innanhús- skeppnistímabilinu lauk auk þess að hafa verið al- veg laus við meiðsli. Einnig er hún heldur léttari en verið hefur þannig að það er ekkert sem mælir gegn því að hún stökkvi hærra en hún hefur gert til þessa í sumar. Hver skýringin er veit ég ekki,“ segir Vé- steinn Hafsteinsson, verk- efnisstjóri Fijálsiþrótta- sambandsins, um slakan ár- angur Völu Flosadóttur stangarstökkvara í sumar. Vala hefur hæst stokkið 4,15 metra sem er 21 sentí- metra frá Islandsmetinu utanhúss. Á sama tíma og þessu hefur farið fram hafa flestir keppinautar Völu verið að stökkva frá 4,30 til 4,55 metrum og því ljóst að Vala stendur ekki eins vel að vígi og undanfarin ár sé litið til stöðu á afrekslista Alþjóða frjálsíþróttasam- bandsins. „Vala hefur tekið þátt í einum tíu mótum í sumar og stokkið frá 3,80 til 4,15 en ekki komist yfir 4,25 og 4,30. Mín skoðun er sú að hún þarf að minnsta kosti að fara að stökkva yfír þessar hæðir til þess að vera með í keppninni á HM. Hins vegar er Vala nokkuð hress andlega og hefur fulla trú á sjálfri sér og að hún taki framförum. Það er jú aðalatriðið að íþróttamenn hafi trú á sjálfum sér. Því má ekki gleyma að Vala átti í erfið- leikum fyrir HM í vetur, en hristi það allt af sér þegar á mótið var komið, stökk 4,45 metra og vann silfur- verðlaun. Hún er keppnis- manncskja en eigi að síður verð ég að játa að ég hef nokkrar áhyggjur af henni eins og staðan er nú,“ sagði Vésteinn. FRJÁLSÍÞRÓTTIR KNATTSPYRNA: RÚNAR KRISTINSSON ÁTTI STÓRLEIK MEÐ LILLESTRÖM / C5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.