Morgunblaðið - 23.07.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 23.07.1999, Blaðsíða 6
í 6 C FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ BÖRN OG UNGLINGAR í sól, sum aiýl og fótbolta OFT hefur Kópavogsdalurinn iðað af lífi en þegar 800 knattspyrnupæjur léku þar knattspyrnulistir sínar í sól og sumaryl iðaði hann sem aldrei fyrr. Gull- og silfur- mótið, sem er knattspyrnumót fyrir yngstu flokka stúlkna, fór þar fram á völlum Breiðabliks í 16. sinn og var talið að með fylgdarliði hafi rúmlega 1.100 manns verið í kringum mótið auk rúmlega 200 sjálfboðaliða úr Breiðabliki. Það var ekki bara knattspyma á dagskrá því pæjurnar voru að upplifa mikið ævintýri, margir gistu í Smáraskóla, boðið var upp á heit- an mat tvisvar á dag, frítt í sund og kvöld- vökur öll kvöldin. Þar á meðal sýndu Pétur pókus og Magnús Scheving listir sínar og hljómsveitin Skítamórall fór á kostum. Tæplega 80 lið spiluðu 237 leiki á 10 völlum frá föstudags- morgni fram á sunnudag og öll úr- slit að finna á heimasíðu Breiða- bliks. „Við byrjuðum að undirbúa mótið í vetur og það gekk mjög vel þó að tiltölulega nýtt fólk hafi komið til starfa í ár en það voru rúmlega tvö hundruð manns í sjálfboðavinnu fyrir utan að meistaraflokkur karla hjá Breiða- bliki sá um grillið," sagði Jörund- ur Áki Sveinsson mótsstjóri er hann leit yfir svæðið við mótslok á sunnudeginum þar sem meistara- flokkur karla Breiðabliks grillaði pylsur af miklum krafti en sú veisla var að margra mati rúsínan í pylsuendanum. „Síðustu dagana var stressið mikið en nú líður mér BIRTA Helgadóttir úr Stjörn- unni brosti sínu blíðasta þeg- ar hún fékk loks grillaða pylsu í hendurnar eftir langa bið. Morgunblaðið/Stefán Stefánsson AKURNESINGAR voru með verðuga fulltrúa á mótinu um helgina. Það voru stelpur úr 6. flokki, sem röltu um svæðið á sunnudeginum með nammipoka. Aðspurðar sögðust þær ekki hafa mátt vera með sælgæti fyrr en síðasta dag mótsins og það var greinilegt að þeim fannst tímabært að fá sinn nammidag. HRAFNHILDUR Aradóttir úr Breiðabliki sleppti helst ekki bikarn- um, sem hún vann með vinkonum sfnum, og gerði sitt besta til að borða pylsuna sína og drekka gosið sitt með annarri hendi. mjög vel. Krakkarnir hafa verið til fyrirmyndar og það er mjög mikill áhugi hjá stelpunum, leik- gleðin er mikil, sérstaklega hjá yngstu stelpunum í 6. flokki og gaman að fylgjast með þeim bera sig að.“ Jörundur Aki þjálfar meistara- flokk kvenna hjá Breiðabliki og telur að framtíð íslenskrar kvennaknattspyrnu sé björt. „Það var Mka greinilegt að stelpunum hefur farið mikið fram, sem sýnir að kvennaknattspyrna á Islandi er á uppleið enda hefur þjálfun og að- staða tekið miklum breytingum til batnaðar. Hér komu lið frá öllum landshlutum og það sýnir enn bet- ur að við erum á réttri leið,“ bætti Jörundur Aki við. T Kjöt- bollur vinsæl- astar MARGA munna þurfti að metta á Gull- og silfurmótinu enda var nokkuð víst að stelpurnar þyrftu að bæta á orkubirgðir sínar eftir hörkuleiki í blíðunni í Kópa- voginum. Heiðrún Hansdóttir var einn af sjálfboðaliðunum sem sáu um að fylla þessa maga og stóð vaktina alla daga frá klukkan hálfsjö að morgni þar til yfir Iauk en það var oftast um klukkan níu að kveldi. Boðið var upp á súpu og brauð og einnig kjúklinga, en að sögn Heiðrúnar vöktu kjötbollurn- ar mesta lukku enda sagðist hún enga hugmynd hafa um hve mörgum hefði verið torg- að - vissi aðeins að hver bakkinn á fætur öðrum var fram borinn og jafnóðum tæmdur. Heiðrún bætti við að krakkarnir væru mjög þægi- legir og skemmtilegir, allir hjálpuðust að og ef einhver vandræði kæmu upp, væru málin strax leyst á ljúfan hátt. EYJAPÆJUR unnu í 3. flokki á Gull- og silfurmótinu um helgina. Þúsunda krakka kór ERNA Þorleifsdóttir, einn af þjálfurum ÍBV, átti afmæli á sunnudaginn og laumuðu stelpurnar í liðinu hennar því að Hjálmari Hjálmars- syni, sem kynnti sigurveg- ara. Hann var ekki lengi að biðja alla f salnum að taka undir í afmælissöng fyrir Ernu. Krakkarnir voru held- ur ekki lengi að taka við sér og sungu afmælissöng fyrir Ernu, sem sagði að aldrei hefði þvílíkur kór sungið fyr- ir sig fyrr. Úrslit réðust á hlutkesti SPENNAN í 3. flokki var mikil, enda fór svo að úrslitaleikur IBV og KR var framlengdur. Það dugði þó ekki til svo að varpað var hlutkesti um hvort liðið yrði sigurvegari og ekki væru allir sáttir við það. Reglurnar lágu hins vegar fyrir og þeim varð að framfylgja. „Ég hefði frekar vilj- að að úrslitin yrðu ráðin með vítaspyrnum en ekki hlutkesti, það hlýtur að vera mjög leiðin- legt að tapa þannig," sagði Berg- lind Þórðardóttir, fyrirliði ÍBV, sem vann leikinn. „Hins vegar held ég að það ætti ekki að vera vítaspyrnukeppni í yngri flokk- unum því það gæti orðið of mikið fyrir margar stelpur þar,“ bætti Berglind við en fannst samt úr- slitaleikurinn skemmtilegur. „Þetta var alveg geggjaður úr- slitaleikur og ég var orðin nyög þreytt og þyrst síðustu mínúturn- ar enda erfíðasti leikur mótsins." Berglind, sem er 14 ára, skemmti sér vel á mótinu. „Ég held að ég hafi komið á öll mótin hérna og það er mjög gaman, eins og venjulega, enda höfum við oft unnið hér. Ég hef líka séð okkur og aðrar stelpur taka framförum,“ sagði Berglind áð- ur en hún fór að undirbúa sig með landsliðinu sem hún var valin í.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.