Morgunblaðið - 23.07.1999, Síða 3

Morgunblaðið - 23.07.1999, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1999 C 3 Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Guðmundsson KELLY Shimmins, einn af sóknarleikmönnum Eyjaliðsins, á fullri ferð með knöttinn t leik gegn ÍA. Eyjastúlkur eiga harma að hefna LEIKIÐ verður í undanúrslitum bikarkeppni kvenna í kvöld. ís- landsmeistarar KR fara þá til Vestmannaeyja, öðru sinni á fjór- um dögum, og leika við ÍBV, liðið sem vesturbæjarliðið sigraði, 5:1, í deildarkeppninni á þriðjudagskvöld. í hinum undanúrslita- leiknum taka Grindvíkingar á móti Blikastúlkum, sem hafa orðið bikarmeistarar þrjú ár í röð. AndyColeá von á lögsókn ANDY Cole, miðherji Manchester United og enska landsliðsins í í knattspyrnu, á von á lögsókn frá áströlskum starfsbróður sinum, * varnarmanninum Simon Colosimo. Þeim félögum lenti saman í leik Man. Utd. og ástralska landsliðsins á dögunum með þeim af- leiðingum að Ástralinn meiddist illa og verður frá keppni í hálft | ár hið minnsta. Colosimo verður að fara í hnéaðgerð, en Cole braut illa á hon- um í leiknum sl. sunnudag - var þá með löppina fuilhátt á lofti og rak hana illa í andstæðing sinn. Þar með eru vonir varnarmanns- Iins um hagstæðan samning hjá evrópsku stórliði settar í sait um stundarsakir, en hann var undir smásjá nokkurra stórliða í Evr- ópu. Carlton, félagslið Colosimos í Ástralíu, fundaði í gær með lög- fræðingum sínum og ræddi næstu skref í málinu. Fulltrúar fé- lagsins hafa gagnrýnt Cole mjög eftir atvikið, sagt það algjör- lega óviðeigandi í vináttuleik. Hefur Cole snúist sjálfur til varn- ar, sagt að aðeins hafi verið um óviljaverk að ræða og undir það hefur Alex Ferguson, stjóri Man. Utd., tekið. Reuters JOHN Toshack, þjálfari Real Madrid, og leikmenn hans komu saman í gær eftir sumarfrí. Real Madrid safnar liði órður Lárusson, landsliðsþjálf- ari kvenna, sejgir að óvænta við- burði þurfti til að Islandsmeistaram- ir og núverandi bikarmeistarar mæt- ist í úrslitaleik á Laugardalsvelli hinn 12. september. „Það er náttúru- lega mjög líklegt að Breiðablik og KR leiki til úrslita ujn bikarinn," segir Þórður. KR og IBV mættust síðast á þriðjudagskvöld í Vest- mannaeyjum og fóru KR-ingar með sigur af hólmi, 5:1. Þórður, sem var á meðal áhorfenda í Eyjum, á von á að leikurinn í kvöld verði með öðru sniði. „Ég hef trú á að leikurinn þró- ist á allt annan hátt í fyrra skiptið. KR-stúlkur gætu orðið eilítið væru- kærar eftir fremur auðveldan sigur síðast, sem var raunar ekki svo auð- veldur því leikurinn var þeim erfiður allt þar til staðan var orðin 3:1, þeim í hag. Heimavöllur IBV er einnig sterkur og Eyjastúlkú'r hafa svo sem engu að tapa. Það kæmi mér því ekki á óvart ef ÍBV ynni sigur í leiknum, en KR-sigur er öllu líklegri,“ segir þjálfarinn. En hvað þurfa Eyjastúlkur að gera til að eiga möguleika á sigri? Því svarar Þórður: „Þær þurfa fyrst og fremst að trúa því að þær geti unnið KR. Ef þær koma til leiks með já- kvæðu hugarfari, fullar sjálfstrausts, gætu úrslitin orðið óvænt. Ég hef trú á að Vanda [Sigurgeirs- dóttir, þjálfari KR] hvetji lið sitt til dáða með því að benda á að liðinu hefur ekki gengið sem skyldi þegar liðið mætir sama andstæðingnum í tveimur leikjum í röð í deildar- og bikarkeppni - hafa ekki náð að knýja fram sigur í báðum leikjum. KR- stúlkur hafa hug á að losa sig undan þeim álögum.“ Til marks um reynsluskort Grindvíkinga í bikarkeppni hefur lið- ið unnið tvo leiki í henni frá upphafi, en báðir þeirra hafa náðst í ár. Liðið leikur nú í fyrsta sinn í efstu deild og er í undanúrslitum bikarkeppn- innar í fyrsta sinn í sögu félagsins, eins og IBV. „Grindavíkurstúlkur eru á heimavelli, en ég reikna með að Breiðablik fari með sigur af hólmi. Þó geta leikmenn Grindavík- ur bitið frá sér þegar þær ná upp helsta vopni sínu, baráttu og aftur baráttu. Þessi lið mættust ekki alls fyrir löngu í Kópavoginum og þá lauk urðu lokatölur 3:1 fyrir Breiða- blik, en þessi leikur á að reynast Kópavogsliðinu auðveldur," segir Þórður. Grindvíkingar styrkjast með hverjum leiknum „Grindvíkingar styrkjast með hverjum leiknum. Þeir komu upp í efstu deild sem nýliðar í vor og eru að venjast því að leika á þeim vett- vangi. Blikaliðið hefur misst mikið, en unglingastarfið í Kópavoginum er virkilega öflugt og þar er engu líkara en sterkar knattspyrnukonur komi á færibandi. Ég held að lið Breiðabliks styrkist líka eftir því sem líður á - er að stilla saman strengina. Margrét Ólafsdóttir er þar fremst í flokki, ein besta knattspyrnukona landsins, en liðið er skipað ellefu góðum leik- mönnum. Blikastúlkur mega ekki falla í þá gryfju að vanmeta Grind- víkinga og ég hef trú á að Jörundur [Áki Sveinsson, þjálfari Breiðabliks] reyni að koma í veg fyrir það. Ég held að hann hafi mun meiri áhyggj- ur af því en nokkru öðru,“ segir landsliðsþjálfarinn. Real Madrid ætlar sér stóra hluti á komandi keppnistímabili. Má með sanni segja að forráðamenn liðsins hafi safnað liði að undan- fömu. Þeir festu kaup á sjöunda leikmanninum á stuttum tíma í gær, er Real Madrid fékk til liðs við sig brasilíska varnarmanninn Julio Cesar, sem er 20 ára miðvörður og hefur leikið með Valladolid sl. þrjú ár. Hann skrifaði undir fimm ára samning og bætist í hóp nýliðanna Steve McManaman, Élvir Balic, Edwin Congo, Geremi Njitap, Michel Salgado og Ivan Helguera. í KVÖLD Knattspyma Bikarkeppni kvenna, undanúrslit: Vestmannaeyjar: ÍBV - KR...............20 Grindavík: Grindavík - Breiðablik......20 1. deild karla: Borgarnes: Skallagrímur - Stjarnan.....20 Dalvík: Dalvík - KVA...................20 ÍR-völlur: ÍR - Þróttur R..............20 Kaplakriki: FH - Fylkir................20 2. deild karla: Ármannsvöllur: Léttir - Ægir...........20 3. dcild karla: Ásvellir: Haukar - Augnablik ..........20 Hvolsvöllur: KFR - Fjölnir.............20 Ólafsvík: Víkingur Ó. - Njarðvík.......20 Sandgerði: Reynir - KFS................20 Vogar: Þróttur V. - GG ................20 Blönduós: Hvöt - Nökkvi................20 Grenivík: Magni - HSÞB.................20 Hofsós: Neisti H. - Kormákur...........20 Skeiðsvöllur: KÍB - Hamar..............20 1. deild kvenna: Keflavík: RKV - Selfoss................20 Real Madrid fær erfitt hlutverk á fyrsta keppnisdegi - 22. ágúst, er liðið heldur til Mallorca og leikur í Parma, þar sem liðið tapaði sl. keppnistímabil, 2:1. Barcelona tek- ur á móti Real Zaragoza á Nou Camp. Nýliðar Numanica, sem leik- ur í fyrsta skipti í 1. deild, fær heimaleik við Valladolid. Rayo Val- lecano, sem kom upp sl. keppnis- tímabil, fékk ósk sína uppfyllta með því að fá nágrannaslag við Atletico Madrid. Nýliðar Malaga, sem leika í 1. deild á ný eftir langt hlé, leika við Espanyol heima og Sevilla tekur á móti Real Sociedad. ÍÞRÓmR FOLK ■ EMIL Kostadinov, fyrrverandi landsliðsmiðherji Búlgaríú, sem hefur leikið í Mexíkó, er á leið til þýska 2. deildarliðsins Mainz, sem Helgi Kolviðsson leikur með. Kostadinov, sem er 31 árs, lék á sínum tíma með Bayern Miinchen. ■ EDUARD Berizzo hefur verið seldur fyrir um 250 milljónir króna frá River Plate í Argentínu til Marseille í Frakklandi. Berizzo er ætlað að taka stöðu Laurents Blanc sem nýlega gekk Internazionale á hönd. Argentínumaðurinn undirrit- aði þriggja ára samning við franska félagið. ■ MÓNAKÓ hefur gert samning við landsliðsmann Chile, Pablo Contreras frá Colo Colo. Leikmað- ur sem tvítugur að aldri er vamar- maður og lék mjög vel með landslið- inu í S-Ameríkukeppninni sem lauk um sl. helgi. ■ ASTON Villa hefur gengið frá kaupum á ísraelska varnarmannin- um Najuan Garayeb og holienska miðvallarleikmanninum George Boateng. Boateng, sem kom frá Coventry, skrifaði undir fimm ára samning. Garayeb kom frá Hapoel Haifa og skrifaði hann undir fjög- urra ára samning. Þess má geta að fyrir stuttu keypti Aston Villa írska miðherjann Robbie Keane frá Úlf- unum. ■ BRYAN Robson, knattspymu- stjóri enska úrvalsdeildarliðsins Middlesbrough, hefur verið tjáð af vinnuveitendum sínum að hann fái að eyða fimmtán milljónum sterl- ingspunda til að styrkja liðið svo það eigi möguleika á sæti í Evrópu- keppni. ■ ROBSON er nú önnum kafinn við að fá þýska bakvörðinn Christian Ziege, sem tók þátt í heimsmeist- arakeppninni í Frakklandi síðasta sumar, og Paul Ince frá Liverpool í lið sitt. ■ MIDDLESBROUGH greiðir um fimm milljónir sterlingspunda ef af leikmannakaupunum verður, en Ince er sagður kosta aðeins um eina mOljón. Ástæða þess ku vera mikið ósætti Ince og samherja hans Phil Thompson. Gerard Houllier, franskur knattspymustjóri liðsins, hefur einnig sagt að Ince hafi slæm áhrif á yngri leikmenn liðsins. ■ STEPHANE Chapuisat, sviss- neski sóknarmaðurinn snjalli, hefur snúið aftur til heimalands síns og mun leika með Grasshoppers eftir að hafa leikið með þýska liðinu Bor- ussia Dortmund í átta ár. Nýir eig- endur halda nú um stjórnar- taumana hjá svissneska liðinu, sem greiddi tæpar 50 mUljónir króna fyrir Chapuisat. Golfklúbbur Sandgerðis Vallarhúsavöllur ^ Opið styrktarmót - sunnudaginn 25. jiilí Ræst út frá kl. 8.00 - Skráning í síma 423 7802 Þátttökugjaid 2.500 kr. (innifalið í gjaldi: mót og matur) Spilað verður stabclford 7/8 forgjöf Forgjöf: karlar 24 - konur 28 Verðlaun fyrir fyrstu sex sætin. Fyrstu verðlaun að verðmæti 30 þús. Myndlistarkona mótsins er Ásta Páls, stórgolfari. Þrenn nándarverðlaun. Teiggjöf frá Karl K. Karison heildverslun. Allur ágóði af mótinu rennur óskiptur tii líknarmála barna. Styrktaraðilar mótsins cru: TOYOTA-salurinn Fitjum - ÍÁV Karl K. Karlsson heildverslun Hitaveita Suðurnesja - Keflavíkurverktakar ___________________ Mótshaldarar Veldu besta leikmanninn www.simi.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.