Morgunblaðið - 04.02.1986, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 04.02.1986, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1986 Morgunblaðið/Bjami • Hart barist undir körfu ÍBK í leik þeirra gegn Valsmönnum á sunnu dagskvöld. Naumur sigur ÍBK gegn Val KEFLVÍKINGAR náðu Valsmönn- um aö stigum í úrvalsdeildinni er þeir unnu innbyröis viöurelgn liöanna í Seljaskóla á sunnudags- kvöld meö 78 stigum gegn 76. Valsmenn fengu gott tækifæri á síðustu sekúndum leiksins til aö hremma sigur, en allt kom fyrir ekki og Keflvíkingar unnu naum- an en sanngjarnan sigur. Keflvíkingar hófu leikinn af mikl- um krafti og náðu strax um 10 stiga forystu og héldu því forskoti til hlés, er staðan var 44-34 fyrir ÍBK. Munaði hér miklu um frábæra frammistöðu Hreins Þorkelssonar, Sigurðar Ingimundarsonar og Jóns Kr. Gíslasonar. Hreinn skoraði fjór- ar þriggja stiga körfur í f.h. og alls öíleiknum. Valsmenn, aö Sturlu undan- skildum, áttu erfitt uppdráttar í fyrri hálfleik gegn 2-3 svæðisvörn, sem Keflvíkingar beittu allan leik- inn. Valsmenn léku betur í s.h. og er þeir pressuðu mót Keflvíkingum tókst þeim að minnka muninn. En sunnanmenn börðust vel og náöu að rétta úr kútnum og það var ekki fyrr en er tæpar þrjár mínútur voru eftir að veruleg spenna hljóp í leikinn. Valsmenn jöfnuðu, 74-74, er mínúta var eftir, og var þá allt á suðumarki. Misstu Valsmenn klaufalega af knettinum í næstu sókn og Keflvíkingar skoruðu, 76-74. Enn jöfnuðu Valsmenn, 76-76, er 40 sekúndur voru eftir, en Jón Kr. kom ÍBK yfir með því að skora úr víti 24 sekúndum fyrir leikslok og átti það eftir að reynast dýrmætt stig. Valsmenn fengu tækifæri til að komast yfir á loka- sekúndunum en mistókst. Hjá Val voru Sturla og Torfi beztir, lék Torfi mjög vel í vörn og sókn í s.h., en hjá ÍBK Hreinn, Sigurður, Guðjón Skúla og Jón Kr. Stig Vals: Torfi Magg 21, Sturia 16, Kristjón Ágústsson 11, Leifur Gústafs 8, Jón Stein- gríms 6, Tómas Holton 4, Einar Ólafs 3, Póll Arnar, Björn Zoega 2, Jóhannes Magg 2. Stig ÍBK: Hreinn 20, Guöjón Skúla 12, Sig- uröur Ingimundar 11, Ólafur Gottkálks 10, Ingólfur Haralds 10, Jón Kr. Gíslason 9, Hrann- ar Hólm 4 og Magnús Guðfinns 1. Pólskur sigur ÍSLENSKA landsliöiö í handknatt- leik tapaði fyrir því pólska meö 16 mörkum gegn 24. Pólverjar höföu yfir í hálfleik, 11-8. Pólverj- ar voru með yfirhöndina í leiknum allan tfmann og náöi íslenska liöið aldrei aö komast nær þeim en eitt mark. í fyrri hálfleik var munurinn mestur þrjú mörk. (slendingar komu síðan ákveðnir til leiks í upphafi seinni hálfleiks og náðu að minnka muninn í eitt mark, 10-11, eftir fimm mínútur. Þá var eins og allur vindur væri úr íslend- ingum og Pólverjar gengu á lagið og skoruðu hvert markið á fætur öðru og er upp var staðið var munurinn átta mörk. Það er greiniiegt á þessu að allan stöðugleika vantar í leik liðs- ins. þetta eru eins og tvö ólík lið frá degi til dags. Nú þegar mánuð- ur er til stefnu í fyrsta leik í heims- meistarakeppninni ríður á aö und- irbúningurinn verði sem bestur, það eru margir hlekkir í liðinu sem þarfað laga. Mörk islands: Krístján Arason 5, Páll Ólafs- son 3/2, Siguröur Gunnarsson 3, Bjami Guð- mundsson 2, Atli Hilmarsson, Þorbjöm Jens- son og Steinar Birgisson eitt mark hver. Mörk Póllands: Wenta 6, Konitz 6, Robert 4, Dziuba og Pielhoc 3 mörk hvor og Fiedorow og Urbanbwicz eitt mark hvor. — Val. B-liðið vann B-landsliö íslands í handknattleik sigraði Bandarfkin, 21-16, f Laug- ardalshöll f gærkvöldi. Staðan f hálfleik var 12-9 fyrir ísland. Haukar íbasli með spræka ÍR-inga HAUKAR áttu í mestu erfiðleikum með sprækt lið ÍR-inga f úrvals- deildinni í körfuknattleik á laugar- dag. ÍR-ingar höföu undirtökin í fyrri háifleik og fram eftir þeim seinni en á lokakaflanum náöu Haukarnir yfirhöndinni og unnu Atli skoraði WERDER Bremen hefur örugga forystu eftir 21 umferö f Bundes- ligunni f knattspyrnu f Vestur- Þýskalandi. Liðið sigraöi Hamb- urger á heimavelli, 1-0 og er.fátt sem viröist geta komiö f veg fyrir aö Bremen veröi Vestur-Þýskur meistari f knattspyrnu. Atli Eð- valdsson skoraöi þriðja mark Bayer Uerdingen í sigri liðsins á 3-2 gegn Bochum. Urslit leikja um helgina voru þessi: Bayer Uerdingen — Ufl Bochum 3:2 Bayem MuUnchen — Hannover 6:0 Boruasia Gladbach - - Saarbrúcken 3:1 FC Nuernberg — Borussia Dortmund 0:0 UFB Stuttgart — Schalke 2:1 Werder Bremen — Hamburg SV 1:0 Du8seldorf — Kaisersiautern 0:0 Staöan er nú banniq eftir 21 umferð: Werder Bremen 15 3 59:30 33 Bayern Múnchen 13 3 5 45:23 29 Bor. M. Gladbach 11 7 3 48:30 29 Bayer Leverkusen 10 6 5 45:31 26 Hamburger SV 11 3 7 34:21 25 Bayer Uerdingen 9 5 7 33:47 23 SV Waldh.Mannh. 8 5 7 30:25 21 UFB Stuttgart 8 5 8 33:34 21 UFL Bochum 9 1 9 38:32 19 Borussia Dortmund 7 5 9 34:43 19 1.FC Köln 5 8 7 31:36 18 1. FC Kaiserslautern 6 6 26:30 18 Eintracht Frankfurt 4 10 7 23:33 18 1. FC Nuernberg 7 3 11 32:34 17 Schalke 04 6 5 10 32:35 17 1. FC Saarbriicken 4 7 10 27:38 15 Hannover 96 5 4 12 34:62 14 Fortuna Dússeldorf 4 4 13 28:48 12 Sjö með 12 rétta SJÖ RAÐIR komu upp með 12 réttum hjá íslenskum Getraunum um síðustu helgi. Hver röð gefur kr. 154.514.- 236 raðir komu upp með 11 réttum og fær hver 1.964.- í sinn hlut. Vinningspotturinn var kr. 1.545.165.- Alls seldust 824.088 raðir. KR-ingar voru söluhæstir þessa vikuna með 57.000 raðir seldar. Rétt röð á getraunaseðlinum var þessi: 1X1-111-21X-111. Nýtt heimsmet BANDARÍKJAMAÐURINN Joe Dial setti nýtt heimsmet f stangarstökki innanhúss á frjálsfþróttamóti f Bandarfkj- unum á laugardaginn. Hann bætti vikugamalt met Billy Olson um tvo sentimetra er hann stökk 5,91 metra. Joe Dial sem er 23 ára á bandaríska metið í stangar- stökki utanhúss, sem er 5,85 metrar. Heimsmetið í stangar- stökki utanhúss á Sovét- maðurinn Sergey Bubka. Hann stökk 6,00 metra í París í júlí í fyrra. meö 101 stigi gegn 96 í fjörugum og skemmtilegum leik. I hálfieik var staðan 50—49 fyrir ÍR. Fyrstu mínúturnar var jafnræði með liðunum en síðan tóku ÍR- ingar af skarið, breyttu stöðunni úr 36 'h—36 í 48—37 og 50—40, en á tveimur síðustu mínútum fyrir hlé réttu Haukar hlut sinn við og skildi aðeins eitt stig að í hléi. Framan af seinni hálfleik héldu ÍR-ingar forystu, en um hann miðj- an gerðust þeir bæði óhittnir og óheppnir og tóku einnig að skjóta í ótíma. Náðu Haukarnir knettinum því hvað eftir annað og komust yfir, er 12 mínútur voru eftir, 73—65. ÍR-ingar minnkuðu muninn á ný og var leikurinn galopinn er 6 '/? mín. voru eftir en þá var stað- an 84—83 fyrir Hauka. Barátta beggja liða var mikil það sem eftir liföi og Haukar tryggðu sér sigur meðskynsömum leik. Bæði liðin áttu nokkuð góðan dag, en reynsluleysi háir enn hinu unga ÍR-liði. Pálmar og (var Web- ster voru í sérflokki hjá Haukum og áttu stórleik báðir. Henning var góður í seinni hálfleik. ÍR-ingar voru nokkuð jafnir en Ragnar Torfa, Karl Guðlaugs og Björn Steffens atkvæðamestir. Sá síð- astnefndi var mjög góður í seinni hálfleik. STIG |R: Ragnar Torfa 24, Karl Guðlaugs 21, Björn Steffensen 20, Jón öm Guðmundsson 8, Vlgnlr Hilmarsson 8, Jóhannes Sveinsson 7, Björn Leósson 4 og Hjörtur Oddsson 4. STIG HAUKA: Pálmar Sigurðs 31. ivar Web- ster 29, Ólafur Rafns 17, Henning Hennings 13, Eyþór Árnason 6, Ivar Ásgrímsson 4 og Kristinn Kristins 1. — ágás Sigurður stóðsigvel með Barnsley Frá Grétari Norðfjörð f Bamsley á Eng- landl. MJÖG mikil harka hefur veriö í ensku knattspyrnunni í vetur og fjöldi leikmanna komnir í bann eða á leiðinni í bann. Margir hafa hlotið meiösli. Barnsley sem leik- ur í 2. deild hefur misst fjóra af bestu leikmönnum sínum f leik- bann. Framkvæmdastjóri þess hefur þurft að leita af hæfum leikmanni úr 1. deild til að leika með liðinu meðan þetta ástand varir. Þannig komst Sigurður Jónsson til Barnsley. Hann er á lánssamning í einn mánuð frá Sheffield Wednesday. Það hefur vakið mikla athygli hér í Englandi að Sigurður skuli vera komin til Barnsley. Sigurður meiddist á æfingu í nóvember skömmu fyrir leik Sheffield Wed- nesday og Chelsea, síðan hefur hann aðeins leikið tvo leiki við varaliði Sheffield. Það var álit Howard Wilkinson, þjálfara, að það væri mjög nauðsynlegt fyrir Sigurð að ná upp leikreynslu í deildarleikj- um frekar en með varaliðinu. Hann haföi leikið níu leiki í deildinni áður en hann meiddist. Sigurður mætti nokkrum klukku- stundum fyrir leik Barnsley og Norwich City á laugardaginn, þá fyrst kynntist hann sínum nýju leik- félögum. Venjulegt leikkerfi Barns- ley eru 4-2-4, en því var breytt vegna tilveru Sigurðar í 3-3-4. Lék hann stöðu mið tengiliðs. ( upphafi var leikurinn mjög harður en róaðist er á leið. Barns- ley lék á móti mjög sterkum vindi í fýrri hálfleik en þó tókst þeim að skora fyrsta mark leiksins en Norwich svaraði síðar með tveim- ur mörkum. Frammistaða Sigurðar var mjög góð í fyrri hálfleik miðað við að- stæður hans. Það bar ekki mjög mikið á honum en styrkleiki hans var mikill. Hann dreifði spilinu út á kantana og átti skemmtilegar sendingar fram miðjuna, þar sem hann nýtti vindinn betur en nokkur annar leikmaður liðsins. Það var greinilegt að þeir voru óvanir þess- ari nákvæmni sem Siguröur beitti. í seinni hálfleik var liðið gjörbreytt og lék mjög yfirvegað og var engin vafi að aðrir leikmenn tóku upp leikaðferðir íslendingsins sem skil- aði tilætluðum árangri með því að skora jöfnunarmarkið, sem þó var mjög umdeilt vegna mistaka dóm- ara og línuvarðar. Að leik loknum var það sam- •Sigurður Jónsson dóma álit forystumanna Barnsley að vera Sigurðar í liðinu hafi haft frábær áhrif á aðra leikmenn þess. Erik Vindsley telur að nýjir vindar frá norðri hafi leikið um lið hans, eftilvill af öllu óþekktu áður. Áhangendur Sheffield Wednes- day voru óánægðir með lánið á Sigurði Jónssyni til Barnsley. Þeir4K-» voru hræddir um að missa hann. Það er athyglisvert að Sigurður er það besta sem fyrstu deildarliðin gátu lánað til Barnsley í svo skam- man tíma. Verulega var skrifað um þetta í Sheffield og Barnsley, svo var þetta í sjónvarpi og útvarpi eftir leikinn og fékk hann mjög góða dóma fyrir þátttöku sína í leiknum. Aðspurður hvaðst Sigurður vera mjög ánægður með að fá að leika með Barnsley, áður en hann byrjar aftur með aðalliði Sheffield. Telur hann það mjög nauðsynlegt vegnai^ reynslu sinnar eftir meiðslin. Næstu þrír leikir sem Sigurður tekur þátt f með Barnsley veröa gegn Sheffield United, Leeds og Grimsby. Það má með sanni segja að Sigurður Jónsson sé sómi svert og skjöldur íslenskrar knattspyrnu áenskrigrund.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.