Morgunblaðið - 04.02.1986, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR1986
■Meqinelds-
rieytistank-
Aftari miðhluti
Afturhluti
Fcamhluti
Fremri miðhluti
Hér kann elds-
neytislekinn að
hafa orðið
IHjálpareldflaug með
föstu eldsneyti.
Trjona
Stúfur
Jaðarhluti
Geimferjan
AP/Símamynd
nú er hallast að þvi, að hún hafi rifnað og eldur úr
Challengerslysið:
Verður næsta geimför í júní?
Kanaveralhöfða, 3. febrúar. AP.
FUNDIST hafa fleiri líkamsleifar á Florida-
strönd, þar nærri sem brot úr Challenger lentu
i sjónum. Er nú verið að kanna hvort um er að
ræða jarðneskar leifar geimfaranna. Leit stend-
ur enn að stjómklefa geimfeijunnar.
Rannsóknamefndin hélt sinn fyrsta formlega fund
í dag og var þar farið yfir myndir og aðrar upplýs-
ingar, sem hugsanlega geta varpað einhvetju ljósi
á orsakir slyssins. Er helst hallast að því að rifa
hafi komið á aðra hjálparflaugina og eldur úr henni
kveikt í megineldsneytistanknum. Embættismenn
NASA, Bandarísku geimferðastofnunarinnar, kváð-
ust bjartsýnir á, að skýring fengist á slysinu og að
unnt væri að hefja geimfeijuferðimar aftur innan
tíðar, jafnvel þegar í júní nk.
Fillippseyjar:
Corazon ætlar að leysa
upp einokunarfyrirtæki
Manilla, Filippseyjum, 3. febrúar. AP.
Corazon Aquino, mótframbjóðandi Marcosar, Filippseyjaforseta,
sagði í dag, að ef hún næði kjöri í forsetakosningunum myndi hún
koma á fullum borgararéttindum í landinu og leysa upp einokunar-
fyrirtækin, sem em í eigu vina og vandamanna Marcosar. Formaður
bandarískrar sendinefndar, sem ætlar að fylgjast með framkvæmd
kosninganna, sagði I dag, að ekki yrði látið undir höfuð leggjast
að skýra frá kosningasvindli ef upp um það kæmist.
„Á fyrstu 100 dögum mínum í
embætti mun það koma í ljós, að
horfið verður af þeim glötunarvegi,
sem Marcos hefur gengið, og hafist
handa við endurreisnina," sagði
Veður
víða um heim
Lngst Hnat
Akureyri 3 alskýjað
Amsterdam +4 +2 heiðsklrt
Aþena 10 16 heióskírt
Barcelona 12 þokum.
Berlin +6 +3 skýjað
Briissel +3 4 skýjað
Chicago 0 3 rigning
Dublín 2 6 skýjað
Feneyjar vantar
Frankfurt 1 4 skýjað
Genf +5 2 skýjað
Helsinki +15 +5 skýjað
Hong Kong 16. 17 skýjað
Jerúsalem 6 16 skýjað
Kaupmannah. +2 0 heiðskírt
Las Palmas vantar
Lissabon 4 12 skýjað
London 1 3 skýjað
Los Angeles 12 18 heiðskírt
Lúxemborg 1 alskýjað
Malaga 13 skýjað
Mallorca 12 skýjað
Miami 21 24 skýjað
Montreal +12 +6 skýjað
Moskva +20 +10 skýjað
NewYork 4 9 rigning
Osló +5 +3 skýjað
París 2 4 skýjað
Peking +11 +1 heiðskirt
Roykjavik 6 rigning
Ríóde Janeiro 23 40 skýjað
Rómaborg B 12 rigning
Stokkhólmur +9 +4 heiðskirt
Sydney 20 22 skýjað
Tókýó 0 15 heiðskírt
Vínarborg 1 3 snjókoma
Þórshöfn 3 skýjað
Corazon, sem hét því jafnframt að
leysa upp fjöldann allan af einokun-
arfyrirtækjum, sem vinir og vanda-
menn Marcosar ráða yfir. Corazon
lét þessi orð falla á fundi nærri
3000 manna og var í þeim hópi
margt kaupsýslumanna frá Banda-
ríkjunum, Evrópu, Ástralíu og Jap-
an.
í viðtali við fréttamann AP sagði
Coraxon, að aðstoðarmenn hennar
teldu, að hún yrði að fá allt að 65%
atkvæða ef hún ætti að geta gert
sér vonir um að sigra. Væri ástæðan
AlvaMyrdal
látin
Stokkhólmi, 2. febrúar. AP.
SÆNSKI nóbelsverðlaunahafinn
Alva Myrdal lést í sjúkrahúsi í
Stokkhólmi á laugardaginn var,
84 ára að aldri.
Olof Palme minntist hennar í
ávarpi í dag fyrir glaðbeittan og
sannfærandi málflutning hennar
gegn vígbúnaði, og sagði að með
honum hefði hún glætt vonir
margra sem fyllst hefðu örvæntingu
vegna hins glórulausa vígbúnaðar-
kapphlaups.
Alva Myrdal gegndi ýmsum
ábyrgðarstörfum fyrir Sameinuðu
þjóðimar og sænska ríkið, starfaði
meðal annars fyrir UNESCO, varð
ambassador fyrst sænskra kvenna,
á Indlandi, sat á þingi fyrir Sósíal-
demókrataflokkinn og var ráðherra
afvopnunarmála. Hún dró sig í hlé
frá opinberri umsýslu árið 1973 og
það „stórkostlega kosningasvindl"
sem nú væri í undirbúningi af hálfu
stuðningsmanna Marcosar.
Richard Lugar, formaður utan-
ríkismáladeildar bandarísku öld-
ungadeildarinnar, er í forsvari fyrir
21 manns sendinefnd, sem ætlar
að fylgjast með framkvæmd for-
setakosninganna á Filippseyjum.
Sagði hann í dag, að ef nefndin
fengi fyrir því sönnur, að kosninga-
svindl væri viðhaft á kjördag, myndi
hún ekki láta það liggja í þagnar-
gildi.
Bandaríkjamenn hafa miklar
áhyggjur af hugsanlegu kosninga-
svindli og óttast, að ef Marcos
heldur völdunum með bolabrögðum
af því tagi, muni það verða vatn á
myllu kommúnista.
Alva Myrdal
helgaði sig rannsóknum, ritstörfum
og fyrirlestrum í þágu afvopnunar.
Hún hlaut friðarverðlaun Nóbels
árið 1982 og deildi þeim með
Mexíkananum Garcia Robles.
Eftirlifandi maður Ölvu er Gunn-
ar Myrdal, 87 ára. Hann hefur
hlotið Nóbelsverðlaunin í hagfræði.
Suður Afríka:
\
Verða passa-
lögin afnumin?
Jóhannesarborg, 3. febrúar. AP.
P.W. BOTHA, forseti Suður-Afríku og ríkisstjóm hans reka nú
mikinn áróður fyrir því, að unnið sé að endurbótum og auknum
réttindum svartra manna í landinu. TU nokkurra óeirða kom um
helgina og skutu lögreglumenn til bana þijá svarta menn.
í öllum helstu dagblöðum í Suð- afnumin fyrir 1. júlí í ár. í augum
ur-Afríku birtist nú um helgina
tveggja síðna auglýsing frá stjóm-
völdum þar sem áhersla var á það
lögð, að stjómin stefndi að því að
auka réttindi svartra manna og
veita þeim meiri hlutdeild í stjóm
landsins. í auglýsingunni vom
endurtekin helstu atriðin, sem fram
komu í ræðu Botha á þingi sl. föstu-
dag, og dvaldist flestum við þá
yfirlýsingu, að passalögin yrðu
svartra manna hafa þessi lög, sem
takmarka mjög ferðir þeirra um
sitt eigið land, löngum verið tákn-
ræn fyrir aðskilnaðarstefnuna. Á
öðmm stað í auglýsingunni er þó
hafður fyrirvari á fullu ferðafrelsi
svertingja.
Til óeirða kom á nokkmm stöðum
í landinu um helgina og féllu þá
fyrir kúlum lögreglunnar tvær
svartar konur og einn karlmaður.
Haiti:
Enner
St. Marc, Haiti, 3. febrúar. AP.
IIM 2000 manns efndu í dag til
mótmæla gegn stjóm Jean-
Duvaliers í bænum St. Marc. Fór
fólkið dansandi um bæinn, barði
bumbur og hrópaði ókvæðisorð
um „Baby Doc“.
„Niður með Jean-Claude, hann
er þjófur," hrópaði fólkið en öiygg-
islögreglumenn, sem stóðu álengd-
ar, höfðust ekki að. Bar fólkið fyrir
sér bandaríska fánann, sem það
sagði tákn þess frjálsræðis, sem það
ókyrrt
vill fá að njóta. „Sjáið ameríska
fánann. Við viljum fá Bandaríkja-
menn hingað, þeir munu gefa okkur
nóg af peningum," hrópuðu sumir
mótmælendanna.
Síðastliðinn föstudag lýsti Duv-
alier yfir 30 daga neyðarástandi en
meðan það gildir má handtaka
menn án dóms og laga. Almenning-
ur í landinu og erlendir fréttamenn
benda hins vegar á, að þannig hafi
það þó alltaf verið.
Hér segirfrá því hvemig gera má ræstinguna mun fljótlegri, ódýr
ari og auðveldari en hingað til - jafnt á litlum sem stórum vinnu
stöðum. Nýju moppurnar frá Burstagerðinni og fylgihlutir þeirra
sem spara þérfé, tíma og fyrirhöfn, eru svo sannarlega...
Nýju moppurnar eru léttar og liprar
í notkun og láta einstaklega vel að
stjóm. Þær eru ferkantaðar, hafa
stærri snertiflöt en eldri gerðir og
þrifa því betur. Moppumar eru úr
sérstakri blöndu af bómull og akrýli,
taka vel til sín raka og óhreinindi og
skila þeim líka vel af sér í vindingu
og eftirþvotti.
Nú er auðveldara en áður að
komast inn í horn og skot vegn.
þess að moppan er á ferkantaði
festiplötu, en ekki á rúnnaðri gri
eins og á eldri gerðum. Einnig næ
mjög góður árangur við hreingei
ingu á stigum og veggjum - aul
þess sem moppurnar dreifa bón
afar vel.