Morgunblaðið - 04.02.1986, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 4. FEBRÚAR1986
Bæjarsljóm Akureyrar:
Umræðu um fjárhags-
áætlun bæjarsjóðs
var frestað um viku
Akureyri, 31. janúar.
FIJNDI bæjarstjórnar Akureyrar
næsta þriðjudag, þar sem fara
átti fram siðari umræða um fjár-
hagsáætlun bæjarsjóðs fyrir
1986, hefur verið frestað um eina
viku.
Ástæðan er fyrst og fremst sú
að í ljós hefur komið að gjöld vegna
sjúkratrygginga urðu verulega
hærri í fyrra en reiknað hafði verið
með og eru menn ekki á eitt sáttir
hvemig bregðast skuli við því. Við
óbreyttar aðstæður hækkar
greiðsla bæjarsjóðs á þessu ári um
tíu milljónir króna - vegna hækk-
unar frá því í fyrra og viðbótar í ár.
Bæjarráð fundaði um ^árhags-
áætlunina frá því klukkan 16.00 til
miðnættis í gær en þá var fundi
hætt og ákveðið að fresta síðari
umræðu um ijárhagsáætlun í bæj-
arstjóm.
Hugmyndir em uppi um að
kanna hvort Akureyrarbær sé með
eðlilega hlutdeild í rekstri sjúkra-
trygginga. Ifyrirkomulaginu var
breytt fyrir fáeinum ámm - og nú
þykir ýmsum sem bærinn beri of
mikinn hluta kostnaðar.
INNLENT
Akureyri:
Framkvæmdastj óri
Plasteinangrunar
segir upp
Akureyri, 1. febrúar.
SIGURÐUR Amórsson, fram-
kvæmdastjóri Plasteinangrunar
hf. á Akureyri, sagði upp og
hætti störfum sínum hjá fyrir-
tækinu í gær, föstudag. Ástæðan
er ósamkomulag við stjórn fyrir-
tækisins.
Stjóm Plasteinangmnar skipa
Valur Amþórsson, Kaupfélagsstjóri
KEA og stjómarformaður SIS, Jón
Sigurðarson, forstjóri iðnaðardeild-
ar SÍS, Aðalsteinn Jónsson, forstjóri
efnaverksmiðjunnar Sjafnar, Hjört-
ur Eiríksson, framkvæmdastjóri
Vinnumálasambands Samvinnufé-
laganna og Þorgeir Þórhallsson,
fulltrúi iðnaðar- og þjónustusviðs
KEA.
Sigurður hefur verið fram-
kvæmdastjóri Plasteinangmnar í
störfum
tæpt ár — áður var hann aðstoðar-
framkvæmdastjóri iðnaðardeildar
SIS, yfirmaður ullariðnaðar.
„Menn hafa séð ýmsar leiðir til
að reka fyrirtækið — ég mínar,
stjómin sínar. Það er því vegna
ágreinings um stefnu, sem ég segi
upp,“ sagði Sigurður í gær. Hvemig
hefur fyrirtækið gengið? „Það hefur
gengið erfiðlega undanfarin ár.“
Breyttist það eftir að þú tókst við?
„Já, til batnaðar vona ég, en sjónar-
mið fóm ekki saman," sagði Sigurð-
.ur.
Plasteinangmm framleiðir meðal'
annars fiskikassa, netakúlur, ein-
angmnarplast og plastpoka og
hefur útflutningur fiskikassa verið
stór þáttur í starfsemi þess. Fyrir-
tækið er að miklum meirihluta í
eigu KEA og SÍS.
Hér er verið að undirbúa að draga gufuketilinn upp á flutningavagninn.
Togarinn Coot:
Gufukatlinum bjargað
Hafnarey SF komin á flot
Höfn, Homafirði, 31. janúar.
í NÓTT tókst björgunarsveitar-
mönnum hér á Höfn að ná vél-
bátnum Hafnarey upp úr höfn-
inni. Hafnarey sökk fyrir þrem-
ur vikum þegar togarinn Þór-
hallur Daníelsson slitnaði upp
í ofsaveðri, festist í bakkgír og
bakkaði á bátinn, sem lá við
bryggju hinum megin i höfn-
inni.
Aðeins 20 mínútur tók að ná
bátnum upp eftir að kraftmiklar
loðnudælur fengust til að dæla úr
honum sjó. Um tíma óttuðust
menn að bátnum myndi hvolfa,
enda lagðist hann á hliðina þegar
hann var að koma upp — en sem
betur fer lagðist hann í rétta átt,
upp að bryggjunni.
I ljós hefur komið, að báturinn
er mun minna skemmdur en talið
var í fyrstu. Björgunarfélagið á
Höfn er nú eigandi Hafnareyjar
og verður á næstu dögum unnið
af fullum krafti við að bjarga úr
henni verðmætum, að sögn Sigur-
geirs Benediktssonar, formanns
björgunarfélagsins.
— Haukur
Vestmannaeyjar:
Stofnað fyr-
irtæki til ís-
framleiðslu
V<H»tmHnn«i>yjiim, 30. janúar.
UM helgina var.stofnað hér nýtt
fyrirtæki sem ætlar að reisa og
reka verksmiðju til framleiðslu á
ís. Hlaut fyrirtækið nafnið Eyjaís
hf. og eru stofnendur þess flestir
úr röðum fiskverkenda og út-
gerðarmanna.
Um 30 manns sóttu stofnfundinn
á laugardaginn, en ákveðið hefur
verið að þeir teljist stofnfélagar sem
ganga til liðs við félagið fyrir 15.
febrúar næstkomandi. Hlutaféð í
félaginu hefur verið ákveðið 10
milljónir kr. í stjóm félagsins eru:
Hilmar Rósmundsson, Magnús
Kristinsson, Óskar Þórarinsson,
Sigurður Oskarsson og Jóhannes
Kristinsson.
Þegar hefur sótt um lóð undir
ísverksmiðjuna til hafnarstjómar
og hafa forráðamenn hennar auga-
stað á hafnarkanti í Friðarhöfn,
enda ætlunin að hægt verði að
afgreiða ís beint i skip sem legðust
undir rennu frá verksmiðjunni.
Leitað verður tilboða í hús og vél-
búnað og standa vonir til að verk-
smiðjan verði komin í gagnið fyrir
árslok. Stefnt verður að því að
afkastageta verksmiðjunnar verði á
milli 60 og 90 tonn af ís á sólar-
hring og geymslurými verði fyrir
500-600 tonn.
Samkvæmt könnun sem gerð var
er hér dagleg þörf fyrir 50 tonn
af ís til veiða og vinnslu.
— hkj.
Um klukkan þrjú tókst að koma
honum á ný upp á vagninn og var
hann kominn í Skipasmíðastöðina
Dröfn um klukkan sex. Þar verður
ketillinn sandblásinn ogtjargaður,
því í framtíðinni er líklegt að hann
verði geymdur utan dyra.
Þijú fyrirtæki, Sjóvá, ÍSAL og
Jóhann Ólafsson og Co. tóku að
sér að bjarga gufukatlinum. Hann
verður afhentur Sjóminjasafni ís-
lands á sjómannadaginn í sumar,
en þann dag er gert ráð fyrir að
Sjóminjasafnið verði formlega
opnað.
Hafnarey við bryggju á ný.
Morgunblaðið/Haukur
GUFUKETILLINN úr togaran-
um Coot, sem legið hefur í
fjörunni við Keilisnes á Vatns-
leysuströnd síðan togarinn
fórst árið 1908, var fluttur tíl
Hafnarfjarðar á laugardaginn.
Flutningabíll, með spili og drifí
á fjórum hjólum, kom að Keilis-
nesi um klukkan 10 á föstudags-
morguninn til þess að sækja ket-
ilinn. Ketillinn var frosinn við
jörðina en eftir mikið stímabrak
tókst að losa hann. Þetta verk tók
um tvo tíma. Þá var hafist handa
við að draga þennan 15 tonna
þunga gufuketil upp á flutninga-
vagninn, en þá vildi það til að
hann valt ofan af vagninum og
féll á annan endann.
Skipadeild SÍS:
Vikulegar
siglingar
til Evrópu
- bætir einu skipi
við vegna
aukinna flutninga
SKIPADEILD SÍS hefur ákveðið
að hefja í þessum mánuði viku-
legar áætlunarsiglingar til helstu
viðkomuhafna á Englandi, meg-
inlandi Evrópu og Norðurlönd-
um. Skipadeildin hefur verið
með hálfsmánaðarlegar sigling-
ar til þessara hafna og eykst
viðkomutiðnin því í flestum til-
vikum um helming, að sögn
Ómars Jóhannssonar fram-
kvæmdastjóra skipadeildarinn-
ar.
Ómar sagði að skipadeildin vildi
“með þessu veita viðskiptavinum sín-
um betri þjónustu. Hann sagði að
stöðug aukning væri í flutningum
skipadeildarínnar og hefði svo verið
undanfarin tvö ár, en aukningin
hefði þó náð hámarki að undan-
förnu vegna fækkunar skipafélag-
anna.
Skipadeildin mun bæta einu skipi
við vegna aukinna siglinga, og
verða með þijú skip í Evrópusigling-
um í stað tveggja nú. ■ -
Morgunblaðid/Július
Siguijón Pétursson framkvæmdastjóri Sjóvá og Ragnar Halldórs-
son forstjóri ÍSAL önnum kafnir við spilið.