Morgunblaðið - 04.02.1986, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1986
Grænlensk-
• *
ir sjonvarps-
menn hér
í GÆR héldu af landi brott eftir
um vikudvöl og störf hérlendis hóp-
ur sjónvarpsmanna frá grænlenska
sjónvarpinu í Nuuk. Var hópurinn
ánægður með árangur ferðarinnar
en allvíða höfðu Grænlendingamir
leitað fanga í Reykjavík og víðar.
Meðal þeirra sem þeir áttu samtal
við var Davíð Oddsson, borgarstjóri,
í tilefni af 200 ára afinæli Reykja-
víkur. Einnig ræddu þeir við Hall-
dór Ásgrímsson sjávarútvegsráð-
herra. Grænlensku sjónvarpsmenn-
imir voru fimm, þar af ein kona,
og létu vel yfir íslandsleiðangrinum.
Sagði foringi þeirra, Isak Kleist,
að þakka mætti það mjög góðum
undirtektum hinna mörgu er til var
leitað í efnisöflun.
Leiðrétting
í BRÉFI Þórarins St. Sigurðssonar
til Grundfirðinga í blaðinu sl. föstu-
dag segir að mestu erfiðleikamir
hafi verið að baki 1979. Hér átti
að standa 1969.
INNLENT
33
Stöðvarfjörður:
Talsvert tjón í hvassviðri
Stððvarfirði, 27. janúar.
AÐFARANÓTT sunnudagsins
26. jan. sl. varð þó nokkurt tjón
I suðaustan roki á Stöðvarfirði.
Félagar úr Björgunarsveit-
inni Björgólfi voru fyrst kallað-
ir út skönxmu eftir miðnætti,
en þá höfðu m.a. fokið járn-
plötur af húsum, rúður brotnað
og ýmislegt fleira gengið úr
lagi. Um kl. 2 hafði verið Iokið
við lagfæringar á helztu
skemmdunum og var þá mikið
farið að lægja. Bjuggust flestir
við því að eiga náðugar stundir
það sem eftir lifði nætur.
En það var bara lognið á undan
storminum því um.kl. 5 sömu nótt
hvessti hann aftur. Var áttin þá
austlægari og sýnu hvassara en
í fyrra áhlaupinu. Fyrst fauk stór
hluti útihúsa og í sömu rokunni
þeyttist lítill árabátur 2—300 m
og gjöreyðilagðist. Höfðu þó fest-
ingar hans verið treystar fyrr um
nóttina. Brak úr útihúsunum mun
hafa skemmt 2 íbúðarhús og bíl,
en rúður brotnuðu í nokkrum
farartækjum.
Mesta tjónið varð þó við höfn-
ina, en þar skemmdust 2 bátar,
sem stóðu uppi á landi. Tókst þó
að afstýra frekara tjóni með
dyggri framgöngu smábátaeig-
enda og björgunarsveitarmanna,
sem voru á þönum þar til veðrið
fór að lægja. Ekki urðu teljandi
skemmdir á smábátum þeim, er
voru á floti í höfninni.
Félagar úr björgunarsveitinni
unnu allan sunnudaginn meðan
að birtu naut við að tína saman
jámplötur og hreinsa til eftir
óveðrið.
Steinar
Brak úr útihúsum fauk á tvö íbúðarhús og bifreið.
Tveir bátar skemmdust allmikið þó reynt hefði verið að ganga tryggilega frá þeim. Morgunblaðið/Steinar
Fyrirlestur um
rannsóknir á
lestrar-
örðugleikum
ERNIR K. Snorrason, sálfræðingur,
flytur fyrirlestur þriðjudaginn 4.
febrúar í Kennaraskólahúsinu við
Laufásveg og hefst hann klukkan
16.30. Fyrirlesturinn er á vegum
Rannsóknarstofnunar uppeldismála
er um „Lífeðlisfræðilegar rann-
sóknir á lestrarörðugleikum". Öll-
um er heimill aðgangur.
(Úr fréttatilkynningu)
uittíaá
- - —*-•
Útsala
-60%
afsláttur af flísum, Marmara
baðherbergisinnréttingum
Baðherbergisflísar nú kr. 300.- áður kr. 960.*
Frostheldar flísar nú kr. 780.- áður kr. 1.280.-
Stakir baðskápar nú kr. 1.260.- áður kr. 2.600.-
Gólf og veggkorkur nú kr. 300.- áður kr. 560.-
Baðherbergisinnréttingar með 35% afslætti
Marmarahandlaugar með 30-60% afslætti
Gerið góð kaup strax í dag
Nýborgc§)
á nýjum stað....
Skútuvogi 4, Sími 686755