Morgunblaðið - 04.02.1986, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1986
Morgunblaðið/Bjami
• Hart barist undir körfu ÍBK í leik þeirra gegn Valsmönnum á sunnu
dagskvöld.
Naumur sigur
ÍBK gegn Val
KEFLVÍKINGAR náðu Valsmönn-
um aö stigum í úrvalsdeildinni
er þeir unnu innbyröis viöurelgn
liöanna í Seljaskóla á sunnudags-
kvöld meö 78 stigum gegn 76.
Valsmenn fengu gott tækifæri á
síðustu sekúndum leiksins til aö
hremma sigur, en allt kom fyrir
ekki og Keflvíkingar unnu naum-
an en sanngjarnan sigur.
Keflvíkingar hófu leikinn af mikl-
um krafti og náðu strax um 10
stiga forystu og héldu því forskoti
til hlés, er staðan var 44-34 fyrir
ÍBK. Munaði hér miklu um frábæra
frammistöðu Hreins Þorkelssonar,
Sigurðar Ingimundarsonar og Jóns
Kr. Gíslasonar. Hreinn skoraði fjór-
ar þriggja stiga körfur í f.h. og alls
öíleiknum.
Valsmenn, aö Sturlu undan-
skildum, áttu erfitt uppdráttar í
fyrri hálfleik gegn 2-3 svæðisvörn,
sem Keflvíkingar beittu allan leik-
inn. Valsmenn léku betur í s.h. og
er þeir pressuðu mót Keflvíkingum
tókst þeim að minnka muninn. En
sunnanmenn börðust vel og náöu
að rétta úr kútnum og það var
ekki fyrr en er tæpar þrjár mínútur
voru eftir að veruleg spenna hljóp
í leikinn. Valsmenn jöfnuðu, 74-74,
er mínúta var eftir, og var þá allt
á suðumarki. Misstu Valsmenn
klaufalega af knettinum í næstu
sókn og Keflvíkingar skoruðu,
76-74. Enn jöfnuðu Valsmenn,
76-76, er 40 sekúndur voru eftir,
en Jón Kr. kom ÍBK yfir með því
að skora úr víti 24 sekúndum fyrir
leikslok og átti það eftir að reynast
dýrmætt stig. Valsmenn fengu
tækifæri til að komast yfir á loka-
sekúndunum en mistókst.
Hjá Val voru Sturla og Torfi
beztir, lék Torfi mjög vel í vörn og
sókn í s.h., en hjá ÍBK Hreinn,
Sigurður, Guðjón Skúla og Jón Kr.
Stig Vals: Torfi Magg 21, Sturia 16, Kristjón
Ágústsson 11, Leifur Gústafs 8, Jón Stein-
gríms 6, Tómas Holton 4, Einar Ólafs 3, Póll
Arnar, Björn Zoega 2, Jóhannes Magg 2.
Stig ÍBK: Hreinn 20, Guöjón Skúla 12, Sig-
uröur Ingimundar 11, Ólafur Gottkálks 10,
Ingólfur Haralds 10, Jón Kr. Gíslason 9, Hrann-
ar Hólm 4 og Magnús Guðfinns 1.
Pólskur sigur
ÍSLENSKA landsliöiö í handknatt-
leik tapaði fyrir því pólska meö
16 mörkum gegn 24. Pólverjar
höföu yfir í hálfleik, 11-8. Pólverj-
ar voru með yfirhöndina í leiknum
allan tfmann og náöi íslenska liöið
aldrei aö komast nær þeim en
eitt mark.
í fyrri hálfleik var munurinn
mestur þrjú mörk. (slendingar
komu síðan ákveðnir til leiks í
upphafi seinni hálfleiks og náðu
að minnka muninn í eitt mark,
10-11, eftir fimm mínútur. Þá var
eins og allur vindur væri úr íslend-
ingum og Pólverjar gengu á lagið
og skoruðu hvert markið á fætur
öðru og er upp var staðið var
munurinn átta mörk.
Það er greiniiegt á þessu að
allan stöðugleika vantar í leik liðs-
ins. þetta eru eins og tvö ólík lið
frá degi til dags. Nú þegar mánuð-
ur er til stefnu í fyrsta leik í heims-
meistarakeppninni ríður á aö und-
irbúningurinn verði sem bestur,
það eru margir hlekkir í liðinu sem
þarfað laga.
Mörk islands: Krístján Arason 5, Páll Ólafs-
son 3/2, Siguröur Gunnarsson 3, Bjami Guð-
mundsson 2, Atli Hilmarsson, Þorbjöm Jens-
son og Steinar Birgisson eitt mark hver.
Mörk Póllands: Wenta 6, Konitz 6, Robert
4, Dziuba og Pielhoc 3 mörk hvor og Fiedorow
og Urbanbwicz eitt mark hvor.
— Val.
B-liðið vann
B-landsliö íslands í handknattleik
sigraði Bandarfkin, 21-16, f Laug-
ardalshöll f gærkvöldi. Staðan f
hálfleik var 12-9 fyrir ísland.
Haukar íbasli
með spræka ÍR-inga
HAUKAR áttu í mestu erfiðleikum
með sprækt lið ÍR-inga f úrvals-
deildinni í körfuknattleik á laugar-
dag. ÍR-ingar höföu undirtökin í
fyrri háifleik og fram eftir þeim
seinni en á lokakaflanum náöu
Haukarnir yfirhöndinni og unnu
Atli
skoraði
WERDER Bremen hefur örugga
forystu eftir 21 umferö f Bundes-
ligunni f knattspyrnu f Vestur-
Þýskalandi. Liðið sigraöi Hamb-
urger á heimavelli, 1-0 og er.fátt
sem viröist geta komiö f veg fyrir
aö Bremen veröi Vestur-Þýskur
meistari f knattspyrnu. Atli Eð-
valdsson skoraöi þriðja mark
Bayer Uerdingen í sigri liðsins á
3-2 gegn Bochum.
Urslit leikja um helgina voru
þessi:
Bayer Uerdingen — Ufl Bochum 3:2
Bayem MuUnchen — Hannover 6:0
Boruasia Gladbach - - Saarbrúcken 3:1
FC Nuernberg — Borussia Dortmund 0:0
UFB Stuttgart — Schalke 2:1
Werder Bremen — Hamburg SV 1:0
Du8seldorf — Kaisersiautern 0:0
Staöan er nú banniq eftir 21
umferð:
Werder Bremen 15 3 59:30 33
Bayern Múnchen 13 3 5 45:23 29
Bor. M. Gladbach 11 7 3 48:30 29
Bayer Leverkusen 10 6 5 45:31 26
Hamburger SV 11 3 7 34:21 25
Bayer Uerdingen 9 5 7 33:47 23
SV Waldh.Mannh. 8 5 7 30:25 21
UFB Stuttgart 8 5 8 33:34 21
UFL Bochum 9 1 9 38:32 19
Borussia Dortmund 7 5 9 34:43 19
1.FC Köln 5 8 7 31:36 18
1. FC Kaiserslautern 6 6 26:30 18
Eintracht Frankfurt 4 10 7 23:33 18
1. FC Nuernberg 7 3 11 32:34 17
Schalke 04 6 5 10 32:35 17
1. FC Saarbriicken 4 7 10 27:38 15
Hannover 96 5 4 12 34:62 14
Fortuna Dússeldorf 4 4 13 28:48 12
Sjö með
12 rétta
SJÖ RAÐIR komu upp með 12
réttum hjá íslenskum Getraunum
um síðustu helgi. Hver röð gefur
kr. 154.514.-
236 raðir komu upp með 11
réttum og fær hver 1.964.- í sinn
hlut.
Vinningspotturinn var kr.
1.545.165.- Alls seldust 824.088
raðir. KR-ingar voru söluhæstir
þessa vikuna með 57.000 raðir
seldar.
Rétt röð á getraunaseðlinum var
þessi: 1X1-111-21X-111.
Nýtt
heimsmet
BANDARÍKJAMAÐURINN
Joe Dial setti nýtt heimsmet
f stangarstökki innanhúss á
frjálsfþróttamóti f Bandarfkj-
unum á laugardaginn. Hann
bætti vikugamalt met Billy
Olson um tvo sentimetra er
hann stökk 5,91 metra.
Joe Dial sem er 23 ára á
bandaríska metið í stangar-
stökki utanhúss, sem er 5,85
metrar. Heimsmetið í stangar-
stökki utanhúss á Sovét-
maðurinn Sergey Bubka. Hann
stökk 6,00 metra í París í júlí
í fyrra.
meö 101 stigi gegn 96 í fjörugum
og skemmtilegum leik. I hálfieik
var staðan 50—49 fyrir ÍR.
Fyrstu mínúturnar var jafnræði
með liðunum en síðan tóku ÍR-
ingar af skarið, breyttu stöðunni úr
36 'h—36 í 48—37 og 50—40, en
á tveimur síðustu mínútum fyrir
hlé réttu Haukar hlut sinn við og
skildi aðeins eitt stig að í hléi.
Framan af seinni hálfleik héldu
ÍR-ingar forystu, en um hann miðj-
an gerðust þeir bæði óhittnir og
óheppnir og tóku einnig að skjóta
í ótíma. Náðu Haukarnir knettinum
því hvað eftir annað og komust
yfir, er 12 mínútur voru eftir,
73—65. ÍR-ingar minnkuðu muninn
á ný og var leikurinn galopinn er
6 '/? mín. voru eftir en þá var stað-
an 84—83 fyrir Hauka. Barátta
beggja liða var mikil það sem eftir
liföi og Haukar tryggðu sér sigur
meðskynsömum leik.
Bæði liðin áttu nokkuð góðan
dag, en reynsluleysi háir enn hinu
unga ÍR-liði. Pálmar og (var Web-
ster voru í sérflokki hjá Haukum
og áttu stórleik báðir. Henning var
góður í seinni hálfleik. ÍR-ingar
voru nokkuð jafnir en Ragnar
Torfa, Karl Guðlaugs og Björn
Steffens atkvæðamestir. Sá síð-
astnefndi var mjög góður í seinni
hálfleik.
STIG |R: Ragnar Torfa 24, Karl Guðlaugs 21,
Björn Steffensen 20, Jón öm Guðmundsson
8, Vlgnlr Hilmarsson 8, Jóhannes Sveinsson
7, Björn Leósson 4 og Hjörtur Oddsson 4.
STIG HAUKA: Pálmar Sigurðs 31. ivar Web-
ster 29, Ólafur Rafns 17, Henning Hennings
13, Eyþór Árnason 6, Ivar Ásgrímsson 4 og
Kristinn Kristins 1.
— ágás
Sigurður
stóðsigvel
með Barnsley
Frá Grétari Norðfjörð f Bamsley á Eng-
landl.
MJÖG mikil harka hefur veriö
í ensku knattspyrnunni í vetur og
fjöldi leikmanna komnir í bann
eða á leiðinni í bann. Margir hafa
hlotið meiösli. Barnsley sem leik-
ur í 2. deild hefur misst fjóra af
bestu leikmönnum sínum f leik-
bann. Framkvæmdastjóri þess
hefur þurft að leita af hæfum
leikmanni úr 1. deild til að leika
með liðinu meðan þetta ástand
varir. Þannig komst Sigurður
Jónsson til Barnsley. Hann er á
lánssamning í einn mánuð frá
Sheffield Wednesday.
Það hefur vakið mikla athygli
hér í Englandi að Sigurður skuli
vera komin til Barnsley. Sigurður
meiddist á æfingu í nóvember
skömmu fyrir leik Sheffield Wed-
nesday og Chelsea, síðan hefur
hann aðeins leikið tvo leiki við
varaliði Sheffield. Það var álit
Howard Wilkinson, þjálfara, að það
væri mjög nauðsynlegt fyrir Sigurð
að ná upp leikreynslu í deildarleikj-
um frekar en með varaliðinu. Hann
haföi leikið níu leiki í deildinni áður
en hann meiddist.
Sigurður mætti nokkrum klukku-
stundum fyrir leik Barnsley og
Norwich City á laugardaginn, þá
fyrst kynntist hann sínum nýju leik-
félögum. Venjulegt leikkerfi Barns-
ley eru 4-2-4, en því var breytt
vegna tilveru Sigurðar í 3-3-4. Lék
hann stöðu mið tengiliðs.
( upphafi var leikurinn mjög
harður en róaðist er á leið. Barns-
ley lék á móti mjög sterkum vindi
í fýrri hálfleik en þó tókst þeim að
skora fyrsta mark leiksins en
Norwich svaraði síðar með tveim-
ur mörkum.
Frammistaða Sigurðar var mjög
góð í fyrri hálfleik miðað við að-
stæður hans. Það bar ekki mjög
mikið á honum en styrkleiki hans
var mikill. Hann dreifði spilinu út
á kantana og átti skemmtilegar
sendingar fram miðjuna, þar sem
hann nýtti vindinn betur en nokkur
annar leikmaður liðsins. Það var
greinilegt að þeir voru óvanir þess-
ari nákvæmni sem Siguröur beitti.
í seinni hálfleik var liðið gjörbreytt
og lék mjög yfirvegað og var engin
vafi að aðrir leikmenn tóku upp
leikaðferðir íslendingsins sem skil-
aði tilætluðum árangri með því að
skora jöfnunarmarkið, sem þó var
mjög umdeilt vegna mistaka dóm-
ara og línuvarðar.
Að leik loknum var það sam-
•Sigurður Jónsson
dóma álit forystumanna Barnsley
að vera Sigurðar í liðinu hafi haft
frábær áhrif á aðra leikmenn þess.
Erik Vindsley telur að nýjir vindar
frá norðri hafi leikið um lið hans,
eftilvill af öllu óþekktu áður.
Áhangendur Sheffield Wednes-
day voru óánægðir með lánið á
Sigurði Jónssyni til Barnsley. Þeir4K-»
voru hræddir um að missa hann.
Það er athyglisvert að Sigurður er
það besta sem fyrstu deildarliðin
gátu lánað til Barnsley í svo skam-
man tíma. Verulega var skrifað um
þetta í Sheffield og Barnsley, svo
var þetta í sjónvarpi og útvarpi
eftir leikinn og fékk hann mjög
góða dóma fyrir þátttöku sína í
leiknum.
Aðspurður hvaðst Sigurður vera
mjög ánægður með að fá að leika
með Barnsley, áður en hann byrjar
aftur með aðalliði Sheffield. Telur
hann það mjög nauðsynlegt vegnai^
reynslu sinnar eftir meiðslin.
Næstu þrír leikir sem Sigurður
tekur þátt f með Barnsley veröa
gegn Sheffield United, Leeds og
Grimsby. Það má með sanni segja
að Sigurður Jónsson sé sómi svert
og skjöldur íslenskrar knattspyrnu
áenskrigrund.