Morgunblaðið - 25.04.1999, Blaðsíða 1
92. TBL. 87. ÁRG.
SUNNUDAGUR 25. APRÍL 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Árásir á Júgóslavíu halda áfram á meðan
leiðtogar NATO funda í Washington
Sprengjum
látið rigna
yfir Pristina
Beigrad, London, Washington, Moskvu. Reuters, AP.
ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ
(NATO) hélt í gær áfram loftárásum
sínum á Júgóslavíu á meðan leiðtog-
ar aðiidarríkja NATO funduðu í
Washington í tilefni fimmtíu ára af-
mælis bandalagsins. Loftvarn-
arflautur í Belgrad, höfuðborg Júgó-
slavíu, fóru í gang um níuleytið í
gærmorgun en fyrr um morguninn
höfðu loftvamarflautur í Pristina,
héraðshöfuðborg Kosovo, verið
þeyttar. Létu herþotur NATO
sprengjum rigna yfir Pristina, að
sögn Tanjug-fréttastofun nar júgó-
slavnesku en engar fregnir höfðu
enn borist af árásum á Belgrad.
Eftir þriggja daga loftárásir á til-
tekin skotmörk í Belgrad, þar sem
höfuðstöðvar Slobodans Milosevics
Júgóslavíuforseta urðu t.a.m. illa úti,
beindi NATO sjónum frá borginni í
fyrrinótt og í staðinn voru gerðar
loftái-ásir á borgina Nis í Suður-Jú-
góslavíu og Novi Sad í norðurhluta
landsins. Bretar sögðu í gær að aug-
ljós merki væru um að andrúmsloftið
í herbúðum Serba færi versnandi
vegna þess hversu umfangsmiklar
og nákvæmar loftárásir NATO
væru.
Arásimar í fyrrinótt hófust
skömmu eftir að leiðtogar NATO-
ríkjanna höfðu á hátíðarfundi banda-
lagsins í Washington lýst því yfir að
ekki yrði hvikað frá þeirri stefnu
sem mörkuð hefði verið, loftárásum
á Júgóslavíu yrði þá einungis hætt
þegar Milosevic samþykkti að verða
við öllum kröfum NATO. Wesley
Clark, yfirmaður herafla NATO í
Evrópu, sagði við fréttamenn að
Milosevic hefði sýnt að hann væri
reiðubúinn að þola mikil áfoll. „En í
stuttu máli sagt erum við að vinna
AP
LEIÐTOGAR NATO-rílq'anna komu saman til kvöldverðar í Hvíta húsinu í Washington á föstudagskvöld í
boði Bills Clintons Bandaríkjaforseta í tilefni af fimmtíu ára afmæli bandalagsins.
sigur. Hann er að tapa. Og hann veit
það vel.“
Tsjernómýrdin vill viðræður
Yiktor Tsjemómýrdin, fulltrúi
Rússlandsstjómar í málefnum ríkj-
anna á Balkanskaga, útilokaði í gær
að Rússar hefðu hemaðarleg afskipti
af Kosovo-deilunni en sagðist vilja
ræða við leiðtoga vesturveldanna um
hvemig binda mætti enda á átökin.
Tsjernómýrdin, sem hitti Milosevie í
Belgrad á fimmtudag, sagði jafn-
framt að Júgóslavíuforseti hefði gef-
ið í skyn að hann væri reiðubúinn að
veita Kosovo aukna sjálfstjóm.
Leiðtogar NATO hétu því í sam-
eiginlegri yfirlýsingu á föstudag að
Milosevic yrði beittur auknum þrýst-
ingi, bæði með hemaðaraðgerðum
sem og efnahagslegum, þar til hann
samþykkti að kalla serbneska herinn
frá Kosovo og leyfði þeim sex hund-
rað þúsund flóttamönnum, sem talið
er að hafi flúið Kosovo á undanfóm-
um mánuði, að snúa til heimkynna
sinna á nýjan leik. Jafnframt yrði
Milosevic að sætta sig við að flótta-
fólkið nyti verndar alþjóðlegra frið-
argæslusveita þar sem NATO léki
veigamikið hlutverk.
■ Hundblautir/6
Framkvæmdastjóri NATO um þjóðernishreinsamr í Kosovo
„Það sem nú er að gerast
má aldrei endurtaka sig“
Washington. Morgunblaðið.
Reuters
Hreiðrað
um sig
á bílþakinu
STORKUR einn hefur hreiðrað
vel um sig í góða veðrinu á þaki
Trabant-bifreiðar sem fest hefur
verið efst á turn í bænum Neur-
uppin i austurhluta Þýskalands,
um áttatíu kílómetra norður af
höfuðborginni Berlín. Mikil hlý-
indi hafa verið síðustu daga á
þessum slóðum og naut storkur-
inn sfn vel á heimili sfnu í gær.
JAVIER Solana, framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins (NATO),
lýsti yfir því í Hvíta húsinu í Was-
hington á föstu-
dagskvöld að her-
för Serba með
svonefndum
„þjóðemishreins-
unum“ í Kosovo
væri fyrirbrigði
sem aldrei yrði
aftur liðið. Solana
lét þessi orð falla
í ræðu er hann
flutti við upphaf
kvöldverðar 19 aðildarríkja NATO
sem leiðtogar bandalagsríkjanna
sátu ásamt eiginkonum sínum.
Framkvæmdastjórinn lýsti og yfir
því að átökunum í Kosovo, þar sem
herafli NATO fer gegn her- og sér-
sveitum Slobodans Milosevics Júgó-
slavíuforseta, myndi Ijúka með sigri
bandalagsins.
Javier Solana flutti stutta ræðu í
Hvíta húsinu á föstudagskvöld þeg-
ar leiðtogar aðildarríkja NATO
komu þar saman til kvöldverðar.
Solana kvað NATO hafa verið stofn-
að til vamar ákveðnum gildum fyrir
50 áram. Þau væra grandvölluð á
trúnni á lýðræðið sem samstaða og
samvinna hinna frjálsu ríkja í vestri
hefði náð að tryggja. Svo yrði áfram
um ókomna tíð en um leið myndi
Atlantshafsbandalagið leitast við að
innleiða þessi gildi og verja þau í
Suð-austur-Evrópu.
Framkvæmdastjóri NATO sagði
að átökin í Kosovo hefðu sýnt að
bandalagið væri tilbúið að standa
vörð um þessi grandvallargildi.
Solana sagði síðan að eins og al-
kunna væri hefði hann ekki komið til
starfa á vettvangi NATO sem sendi-
fulltrúi og embættismaður. Hann
væri menntaður eðlisfræðingur og
sem slíkur hefði hann m.a. þurft að
meðtaka lögmál hreyfingar. „Hreyf-
ingin er afstætt hugtak. Hvað Atl-
antshafsbandalagið varðar er sagan
baksvið þehrar hreyfingar. En í nú-
tímanum þarf bandalagið að
hreyfast hraðar en sagan," sagði
Solana.
í ávarpi sínu vék Solana beint að
átökunum í Kosovo en herför NATO
gegn Serbum er sú fyrsta sem
bandalagið fer gegn fullvalda sjálf-
stæðu ríki í 50 ára sögu þess. „Sam-
an munum við lifa erfiðar stundir, en
við munum sigra. Það sem nú er að
gerast má aldrei endurtaka sig,“
sagði framkvæmdastjórinn er hann
bað viðstadda að skála fyrir NATO,
sögu þess og framtíðarhlutverki.
Bond hafði
betur
London. Morgunblaðið.
JAMES Bond á sannarlega vini
á æðstu stöðum. Framleiðendur
nýjustu Bond-myndarinnar,
Heimurinn dugar ekki til (The
World is Not Enough), vildu
nýverið kvikmynda eltingaleik á
Thames-ánni í London, þar sem
leikurinn bærist m.a. framhjá
höfuðstöðvum MI6 við Vaux-
hall-brú. Leyniþjónustan lagð-
ist eindregið gegn þessu og leit-
uðu kvikmyndaframleiðendum-
ir þá ásjár listaráðherrans Ja-
net Anderson. Hún brást við
hart, enda hefur ríkisstjórnin á
stefnuskrá sinni að laða kvik-
myndaframleiðendur til Bret-
lands. Haft var samband við ut-
anríkisráðuneytið, sem leyni-
þjónustan heyrir undir, og þar
voru menn á því að auðvitað
ætti Bond að fá að bjarga sér
undan óvinum sínum á Thames:
„Eftir allt sem Bond hefur gert
fyrir Bretland er þetta nú það
minnsta sem við getum gert
fyrir hann í staðinn!"
A LIFRÍKIÐ 10
EÐA ATVINNULÍFIÐ
AÐ NJOTA VAFANS?
Kæfisvefn er van-
greindur meðal barna
VIÐ ERUMAF
GAMLA SKÓLANUM
VIDSKIPn MVINNULÍF
Á SUIMNUDEOI