Morgunblaðið - 13.06.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.06.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 131. TBL. 87. ÁRG. SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Ekkert fararsnið á rússneskum hersveitum í Pristina og Jeltsín hækkar foringja þeirra í tign Biace, Pristina, Brussel, Lundúnum, Washington. FRIÐARGÆSLUSVEITIR Atlants- hafsbandalagsins (NATO) streymdu loft- og landleiðina inn í Kosovo-hérað frá Makedóníu í dagrenningu á laug- ardag aðeins örfáum klukkustundum eftir óvænta atburði næturinnar er um 200 manna rússnesk hersveit fór inn í héraðið úr Serbíu í norðri og tók sér stöðu við flugvöllinn í Pristina, héraðshöfuðstað Kosovo. Síðdegis á laugardag lokaði rússneska sveitin flugvellinum og meinaði blaðamönn- um aðgang. Klukkan þrjú að staðar- tíma komu fyrstu sveitir breska hers- ins til Pristina þar sem höfuðstöðvar friðargæslusveitanna verða. Vænst var komu Sir Michaels Jacksons, hershöfðingja og yfirmanns KFOR- friðargæslusveitanna, flugleiðis síðar um daginn. Þrátt fyrir yfirlýsingu Igors Ivanovs, utanríkisráðherra Rúss- lands, aðfaranótt laugardags um að innreið rússnesku hersveitarinnar í Kosovo hafi verið „óheppileg“ og að foringjum hennar hafi verið fyrirskip- að að hverfa frá héraðinu og bíða frekari fyrirmæla halda Rússar enn kyrru fyrir í Pristina. Síðdegis í gær var tilkynnt að meira en eitt hundrað rússneskir hermenn úr friðargæslu- sveitum Rússa í Bosníu væru á leið þaðan til Kosovo og að ekki væri óhugsandi að fleiri yrðu sendir. Inn- reið rússnesku hersveitarinnar að- faranótt laugardags kom leiðtogum NATO í opna skjöldu og var í mót- sögn við yfirlýsingar stjómvalda í Moskvu á fostudag þess efnis að Rússar myndu ekki halda inn í Kosovo fyrr en samþykki NATO lægi fyrir. I fararbroddi innreiðar KFOR, friðargæslusveita NATO í Kosovo, vora bandarískar Apache-árásarþyrl- ur og breskar Chinook-herþyrlur. Landleiðina hófu vagnar breska stór- skotaliðsins sókn sína inn í héraðið auk fyrstu hersveita KFOR, sem taka mun stjómina í Kosovo. Ferð her- sveitanna um fjallaskörðin frá landa- mærum Makedóníu til Pristina sóttist þó fremur seint og er aðgerðin hafði staðið í um fjórar stundir höfðu sveit> ir Breta og Frakka aðeins lagt um 25 km að bald. Voru tafimar raktar til Reuters, AFP, AP. þess að sérsveitir NATO urðu að gera jarðsprengjur og sprengjugildr- ur er á leið þeirra urðu óvirkar. Gert var ráð fyrir því í undirbúningi að- gerða að tafir gætu orðið en vitað var að í Kacanik-fjallaskarðinu væri mik- ið um sprengjugifdrur sem Serbar höfðu skilið eftir. Um 1.500 breskir hermenn og 1.200 franskir vom í fyrsta hópnum er hélt inn í Kosovo. Fyrirhugað var að senda af stað ítalska hersveit, um 2.000 hermenn, síðdegis á laugardag og áttu um 8.500 þýskir hermenn að halda inn í héraðið frá Albaníu á sunnudag. Þá verða bandarískar her- sveitir landgönguliða sem gengu á land í Grikklandi á fóstudag sendar inn hið fyrsta. Lítið gert úr ágreiningi Talsmenn NATO sögðu á laugardag að innreið friðargæsluliðs bandalags- ins gengi vel fyrir sig. „Brottflutning- ur hersveita Serba er að aukast. Landhersveitir Serba hafa fram að þessu farið eftir fyrirmælum um brottflutninginn,“ sagði Jamie Shea, talsmaður NATO, í Bmssel í gær. Þá gerðu embættismenn lítið úr ágrein- ingi NATO og Rússlands vegna inn- reiðar rússnesku hersveitarinnar að- faranótt laugardags. „Við tökum fregnunum með mikilli ró,“ sagði embættismaður NATO við Reuters í gær. Jamie Shea sagði að atburður- inn væri ekki alvarlegur og sagðist hann vera í góðu sambandi við stjóm- völd í Moskvu. Embættismenn bandaríska vamarmálaráðuneytisins sögðu að á þetta atvik bæri að líta sem „kynningarbrellu“ rússneskra stjómvalda. Þá sagði George Robert- son, vamarmálaráðherra Bretlands, í viðtah við BBC í Lundúnum í gær að innreið rússnesku herdeildarinnar væri einangrað tilfelh og að hermenn- imir hefðu látið heragann víkja fyrir ákefð sinni. Ekki er ljóst hver gaf fyrirskipun- ina til rússnesku herdeildarinnar sem hélt inn í Kosovo aðfaranótt laugar- dags og segja rússneskar fréttastofur að atburðurinn hafi jafnvel komið háttsettum embættismönnum þar í landi á óvart. Borís Jeltsín Rúss- NATO Kosovo Reuters BRESKAR hersveitir sem komu með Chinook-herþyrlum breska flughersins til Kosovo taka sér stöðu við út- jaðar borgarinnar Kacanic í suðurhluta héraðsins á laugardagsmorgun. landsforseti fundaði með þeim ígor Sergejev vamarmálaráðherra og ígor Ivanov utanríkisráðherra í Kreml á laugardagsmorgun þar sem farið var yfir þróun mála. Ekkert hef- ur verið upplýst um fundinn en tals- maður forsetans sagði að honum loknum að Jeltsín hefði gefið fyrir- skipanir um að „hrinda alþjóðlegum aðgerðum í Kosovo í framkvæmd“. Þykja viðbrögð stjómvalda í Moskvu afar misvísandi í Ijósi fyrmefndra ummæla Ivanovs á sjónvarpsstöðinni CNN aðfaranótt laugardags. Eftir fund ráðherranna og forsetans sagði embættismaður í Kreml í viðtah við AFP að Jeltsín hefði lagt blessun sína yfir innreið rússnesku hersveitarinn- ar. Þá bámst fréttir af því að síðdegis hefði forsetinn fyrirvaralaust hækkað Viktor Zavarsin, hershöfðingja og foringja rússnesku hersveitarinnar í Pristina, í tign. Rússneska Interfax- fréttastofan sagðist í gær hafa heim- ildir fyrir því að rússnesk stjómvöld hefðu ákveðið að fjölga fljótlega her- mönnum sínum í Kosovo. Strobe Talbott, aðstoðamtanríkis- ríkjamenn hafi farið fram á skýringar frá Rússum. I yfirlýsingu Hvíta húss- ins í gær kom fram að Clinton Banda- ríkjaforseti og Jeltsín myndu ræðast við um stöðuna í dag, sunnudag. ■ Þúsundir NATO-hermanna/6 Flutti messu þrátt fyrir óhapp GREINA inátti sáraumbúðir á höfði Jóhannesar Páls páfa í gær er hann fiutti messu í bænum Sandomierz í Póllandi. Greindu talsmenn páfagarðs frá því að páfí hefði hrasað á föstudag og meitt sig lítillega, með þeim af- leiðingum að sauma þurfti þrjú spor. Þrátt fyrir óhappið lét páfi engan bilbug á sér finna og engar breytingar voru gerðar á dagskrá Póllandsheimsóknar hans. ráðherra Bandaríkjanna, sem stadd- ur er í Moskvu, fundaði í gær með embættismönnum rússneska utanrík- isráðuneytisins um hlutverk Rússa í KFOR-friðargæsluliðinu. Þá er talið að vera rússnesku hersveitarinnar í Pristina hafi verið rædd og Banda- Hersveitir halda inn í Yfirlýsing um vilja eða stjórnarskrá? „VÍÐTÆKARI SÁTT ER MARKMIÐIГ ÞETTA BJARGAST * B saínarsasíITr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.