Morgunblaðið - 13.06.1999, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.06.1999, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 1999 23 ið, að sjávarútvegsráðherra skyldi láta meta áhrif þess á framsal aflaheimilda og fleiri þætti. Eg er að undirbúa það mat. Hver svo sem niðurstaðan verður, er alveg ljóst að Kvótaþingið hefur verið mjög umdeilt og gagnrýnt harkalega. Maður hittir varla þann mann sem mælir því bót. Eg vil þó gjaman láta meta þetta, áður en ég kveð upp úr með það, hvort það hafi verið til góðs eða ills. Það er ljóst að dregið hefur úr framsali og kvóta- leiga hefur hækkað á þeim tíma, sem Kvóta- þingið hefur starfað. Markmiðið getur hafa verið að minnka viðskipti með aflaheimildir með því að hækka verðið. Þá hefur ákveðnu markmiði verið náð, en því gæti hafa verið náð á kostnað þeirrar hagræðingar, sem gæti ella hafa átt sér stað í greininni. Eins á kostnað endurnýjunar í greininni. Endurnýjun getur ekki átt sér stað án viðskipta með aflaheimild- ir, hvort sem þau viðskipti eru á milli þeirra, sem fara með aflaheimildirnar, eða, hugsan- lega í einhverjum útfærslum, viðskipti hins op- inbera við einstaklinga." Rýmra framsal kemur til greina Kemur til greina að rýmka reglur um fram- salið? ,Auðvitað kemur það til greina og það verð- ur örugglega eitt af stærri atriðunum, sem tekið verður á í þessari endurskoðun. Annað af tveimur helztu markmiðum fiskveiðistjórnun- arinar, er að veiðarnar verði stundaðar á sem hagkvæmastan hátt. Viðskipti með aflaheim- ildir eru til þess fallin að ná fram því mark- miði.“ Kemur byggðakvóti til greina? „Eg held að það sé mjög erfitt að taka upp byggðakvóta. Eg hef ekki heyrt neina raun- hæfa útfærslu á slíkum kvóta. Eg hef hins veg- ar haldið því fram, og geri það enn, að það sé ákveðin byggðatenging fólgin í núverandi kerfi. Kvótinn er tengdur við skipin og skipin eru skrásett í ákveðnum byggðum og gerð þaðan út. Þrátt fyrir þessa tengingu við byggðimar var hún ekki hindrun á þá hagræð- ingu, sem nauðsynleg er. Hún skapaði í upp- hafi ákveðinn stöðugleika en hindraði ekki eðlilegar breytingar. Byggðakvóti gæti á hinn bóginn orðið dragbítur á þá hagræðingu, sem er leiðarljós núverandi fiskveiðistjórnunar. Við þurfum að leita nýrra leiða til að styrkja byggðirnar" Nú gætir í auknum mæli þeirrar þróunar að fyrirtækin verða færri og stærri og það hallar á margar af minni byggðunum. Hvaða augum lítur þú þessa þróun? „Það er erfitt að fella þann dóm um ein- hverja ákveðna þróun sem átt hefur sér stað eða er að ganga yfir, að hún sé jákvæð eða nei- kvæð. Niðurstaðan hlýtur að ráðast á þeim forsendum, sem gefnar eru. Hún getur verið neikvæð fyrir suma og jákvæð fyrir aðra. Við þurfum að hafa kerfið þannig að heildaráhrifin séu jákvæð. Það skiptir mestu. Öll þvingun í kerfinu, sem hindrar eðlilega þróun, hefur nei- kvæð áhrif. Þegar hefur verið sett þak á kvótaeign ein- stakra fyrirtækja með lögum og ég hef ekki séð þörf á því að lækka það þak, að minnsta kosti ekki enn sem komið er, en þau mál má endurskoða eins og öll mannanna verk.“ Má þá telja það jákvætt að hér rísi öflug fyr- irtæki, sem geti betur staðið undir þeim kostn- aði hins opinbera sem af sjósókninni hlýzt? „Ég held að ekki þurfi að vera þarna sam- hengi á milli. Séu minni fyrirtæki rekin með jafnmikilli hagkvæmni og þau stærri, geta þau jafnt og þau stærri staðið undir kostnaðinum við fiskveiðistjómunina. Það eru dæmi um það í mörgum atvinnugreinum að þau tímabil ganga yfir að mikið er um sameiningar og fyr- irtækin verða stærri, en svo koma önnur tíma- bil þar sem þróunin er á hinn veginn. Það er ekkert algilt í því að þróunin sé alltaf í þá átt að fyrirtækin stækki. Við sjáum það í smábáta- útgerðinni, sem hefur efizt og aukizt mjög á þessum áratug." Fara varlega í breytingar „Hvernig sérð þú fyrir þér framtíðarstjóm- un á veiði smábátanna? „Þróunin þar hefur orðið nokkuð sérstök, enda eram við með kerfi þar, sem er tiltölulega flókið. Það væri vafalaust til bóta, ef hægt væri að einfalda það. Ég held þó að það sé ekkert sérstakt markmið. Þarna er í flestum tilfellum um að ræða einstaklinga, sem hafa lagt allt sitt undir og byggt á ákveðnum forsendum. Við verðum því að gæta þess vel að slá ekki stoð- irnar undan slíkum rekstri. Ég myndi því viija fara mjög varlega í breytingar. Veiðar smábát- anna era að mestu leyti orðnar kvótabundnar, þó um 300 bátar séu enn í dagakerfinu. Það kerfi er nú orðið skynsamlegra en áður, þar sem dagarnir verða brátt framseljanlegir. Smábátakerfið tengist byggðunum ehn bet- ur en stóra kvótakerfið gerir. Út frá því sjón- armiði efast ég um að skynsamlegt sé að tengja kerfin saman. Ég tel að smábátarnir gegni mikilvægu hlutverki í fiskveiðum okkar og skynsamlegt sé að halda þeim veiðum áfram. Við verðum þó auðvitað að gæta okkur í því, vegna þess að ýmsar hættur era fylgjandi sókn á smábátum, sem ekki eiga við um stærri bátana.“ Smábátamenn hafa náð að auka hlutfall sitt úr heildarþorskafla veralega frá upphafi kvótakerfisins. Attu von á því að svo verði áfram? „Ekki á ég von á því. Þeir hafa nú, lögum samkvæmt, fast hlutfall þorskaflans og mögu- leiki til aukningar felst nú aðeins í sóknardaga- kerfinu. Bátum þar hefur fækkað verulega og möguleikum á aukningu að sama skapi. Þeir eiga því ekki að hafa nein teljandi áhrif á heild- araflann." Afnám sjómannaafsláttar ekki á stefnuskránni Kemur til greina að afnema sjómannafslátt- inn? „Það er ekki á stefnuskránni að afnema sjó- mannaafsláttinn. Það má náttúrlega deila heil- mikið um hann, en það væri ekki jákvætt inn- legg stjómvalda að fara að hreyfa við honum. Kjarasamningar standa nú fyrir dyram og samningar sjómanna og útvegsmanna hafa Við berum ábyrgð á þessari auðlind, ekki bara fyrir okkur sjálf, heldur einnig kynslóðir framtíðarinnar. Við höfum ekki efni á öðru en vera í fremstu röð í rannsóknum á haf- inu og auðlindum þess. Það er stefna ríkis- stjórnarinnar að atvinnu- greinin greiði stærri hlut af þessum kostnaði. Byggðakvóti gæti á hinn bóginn orðið dragbítur á þá hagræðingu, sem er leiðarljós núverandi fisk- veiðistjórnunar. ekki gengið sérstaklega vel að undanförnu. Stjómvöld hafa þurft að grípa þar inn í með lagasetningu. Það væri því ekki til bóta í því samhengi að fara að hreyfa við sjómannaaf- slættinum." Er ekki óeðlilegt að Alþingi grípi inn í kjara- deilur af þessu tagi með lagasetningu? „Ég held að ákvörðun um það hvort og hvenær slíkt sé gert, byggist ekki á hvað sé eðlilegt og hvað sé óeðlilegt. Slík ákvörðun byggist einfaldlega á því hvað nauðsynlegt sé að gera til að höggva á hnútinn. Við verðum að horfast í augu við það, að sjávarútvegurinn er okkar höfuðatvinnugrein. Við höfum ekki efni á því að hún stöðvist til lengri tíma. Því verða stjórnvöld stundum að grípa inn í, hvort sem þeim er það ljúft eða leitt.“ Sjávarútvegsráðuneytinu hefur verið stefnt vegna meints ólögmæts kvótaálags við útflutn- ing á óunnum fiski. Má gera ráð íyrir breyting- um á þessu álagi? „Það er rétt að það er dómsmál í gangi. Við höfum einnig fengið kvartanir að utan vegna þessa álags. Mál eins og þetta þarf auðvitað alltaf að vera í skoðun og við munum fara yfir það á næstunni.“ Þurfum að gera sem mest verðmæti úr fiskinum Þegar rætt er um stjórnun í sjávarútvegi, er yfirleitt talað um fiskveiðistefnu, ekki fisk- vinnslustefnu. Er engin sérstök opinber stefna mótuð um nýtingu aflans? „Við þurfum að hafa þó stefnu að reyna til hins ýtrasta að ná sem mestum verðmætum úr þeim fiski, sem dreginn er úr sjó hér við land. A hinn bóginn er hvorki hægt að fyrirskipa einum né neinum að vinna fisk, feli sú vinnsla engan virðisauka í sér. Við getum hins vegar reynt að skapa þær almennu aðstæður að fisk- vinnslan sé atvinnugrein, sem skili góðum arði, bæði til atvinnurekenda og þeirra annarra sem starfa við greinina." Er um einhvem aðstöðumun milli land- vinnslu og sjóvinnslu að ræða og ef svo er, verður eitthvað gert til að draga úr honum? „Það er eflaust einhver aðstöðumunur þarna. Hvort það er eitthvað sem hægt er að minnka, er erfitt um að segja. Svo getur þetta virkað í báðar áttir, að það er eitthvað sem ekki er hægt að gera úti á sjó, en aðeins í landi og svo öfugt. Við þurfum að hafa ákveðna blöndu í sjávarútvegi okkar. Hann má ekki vera einhæfur og vinnsluskipin eiga sér sinn stað í kerfinu. Þetta ræðst allt af mjög breyti- legum aðstæðum, en við verðum að gæta þess að með reglum séum við ekki að hygla einum á kostnað annars. Ég vil alla vega vinna þannig að svo sé ekki gert.“ Möguleikar í eldi sjávarfiska Má vænta aukinnar áherzlu á uppbyggingu eldis sjávarfiska á næstunni? „Ef horft er til lengri tíma, held ég að svo verði. Ég mun reyna að styðja við það eins og hægt og skynsamlegt er. Við höfum lært tals- vert erfiða lexíu af laxeldinu á sínum tíma. Því tel ég óvarlegt að fara út í nýsköpun í eldi sjáv- arfiska á þeim mælikvarða sem þá var. Það era vissulega möguleikar fyrir hendi í lúðueldi, sandhverfu og sæeyra, svo dæmi séu tekin. Það þarf að fara vel yfir þessa starfsemi og hlúa að henni svo hún geti vaxið hægt og sígandi á góð- um granni, en ekki gera hlutina í bráðræði. Það höfum við lært af því, sem áður hefur gerzt. Það tekur einfaldlega langan tíma að þróa nýja atvinnugrein. Menn verða að horfa á framvinduna með þá staðreynd í huga. Sem dæmi um það má nefna að Japanir hafa verið að þróa hafbeit hjá sér síðan fyrir síðustu alda- mót. Það verður að horfa á þetta á öðram tíma- kvarða en gert hefur verið. Ég tel það mun far- sælla og að þá geti útkoman orðið eitthvað sem muni standa traustari fótum.“ Óeðlilega lítil sókn í nám í sjávarútvegi Að undanförnu hefur sú skoðun orðið æ al- gengari að menntun í sjávarútvegi sé ábóta- vant. Er það svo? „Ég hef verið í skólanefnd Fiskvinnslu- skólans frá 1995, þegar Fiskvinnsluskólinn var settur undir skólanefndina í Flensborg. Aðsókn hefur verið nokkur, en ekki mikil. Mér finnst hún reyndar óeðlilega lítil miðað við hve mikið við byggjum á þessari atvinnu- grein. Ég vildi því gjarnan sjá menntun innan greinarinnar skipa veglegri sess en nú er. Vonandi tekst það í framtíðinni. Ég hef stundum sagt að eitthvað hljóti að hafa verið að í menntakerfi okkar. Þegar ég var að velja mér framhaldsnám, var það nánast ekki til umræðu í mínum hóp að fara í sjávarútvegs- fræði, eins og nú er kennd á Akureyri og var þá kennd í Tromsö í Noregi og er enn. Mér sýnist þetta afskaplega áhugavert nám. Þeg- ar ég kom heim sjálfur frá námi sem dýra- læknir og fisksjúkdómafræðingur, kynntist ég mönnum sem höfðu verið við nám í Trom- sö. Eg held þeir hafi fengið mjög góða menntun. Það er boðið upp á ágætis möguleika í námi í sjávarútvegi. Það era Fiskvinnsluskólinn, Sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri og Háskóli Islands sjálfur, sem í auknum mæli bjóða upp á sjávarútvegsnám. Von mín er sú að íslendingar nýti sér þessa möguleika í meiri mæli en nú er. Það er gaman að skoða gamlar skólamyndir úr Fiskvinnsluskólanum. Þar sjást andlit margra sem era í forystu í sjávarútveginum í dag. Það sýnir betur en nokkuð annað hve vel sú menntun hefur nýtzt þeim.“ Útrásin eflir útveginn Útrás íslenzkra fyrirtækja í sjávarútvegi hefur verið mikil. Áttu von á framhaldi þessar- ar úrásar? „Þessi útrás er mjög jákvæð, svo fremi sem hún er byggð á traustum þekkingar og fjár- hagslegum granni. Slík útrás eflir íslenzkan sjávarútveg, íyrirtækin era fyrir vikið ekki með öll eggin í sömu körfunni og því má búast við því að útrásin skili tekjum inn í íslenzka þjóðarbúið með ýmsum hætti. Ég vona því að vel takist til og framhald verði á útrásinni. Menn geta auðvitað lent í erfiðleikum, ef ekki er farið að á réttan hátt og því verður að standa vel að verki.“ Þarf ekki í ljósi þessa að létta af hömlum á fjárfestingum útlendinga í íslenzkum sjávarút- vegi? „Ég veit ekki hvort það þarf endilega. Það er kannski þeirra erlendu aðila, sem vilja fjár- festa hér, að knýja á um að þessum hömlum verði aflétt. Við höfum haft þessa stefnu á grundvelli smæðar okkar. Ég held að það hafi verið skynsamlegt fyrir okkur. Auðvitað sér maður það í hendi sér, að séum við að fjárfesta annars staðar, gætu aðrir viljað fjárfesta hér.“ Smugusamningurinn mikilvægur Nú er stutt síðan samið var um veiðar okkar í Barentshafi og unnið er að gerð tvíhliða samnings við Rússa um samstarf í sjávarút- vegi. Hvaða áhrif hefur þetta á möguleika okk- ar á auknum viðskiptum við Rússa svo sem kaup og sölu á fiski, samstarfi í útgerð og kaup á aflaheimildum? „Ég held að þessi samningur hafi mjög já- kvæð áhrif á þessa þætti í samskiptum við Rússa. Þess vegna var það mjög mikilvægt að setja niður þá deilu sem snérist um veiðar okk- ar í Smugunni í Barentshafi. Þetta era þjóðir sem verða að starfa mikáð saman og því var það slæmt að þessi deila skyldi hafa komið í veg fyrir það.“ Nú gætir mikillar andstöðu við samkomu- lagið innan norska sjávarátvegsins og hafa að- ilar þar hvatt norska þingmenn til að fella samkomulagið. Óttastu að svo fari? „Ég hef ekki beina ástæðu til að óttast það, en það væri slæmt ef svo færi“ Hvenær má gera ráð fyrir að íslendingar hefji hvalveiðar á ný? „Alþingi hefur ályktað um það að við mun- um hefja hvalveiðar sem fyrst. Það var reynd- ar innifalið í þeirri niðurstöðu, sem varð í vet- ur, að hefja ekki hvalveiðar á þessu ári. Það er gert ráð fyrir því að mikið kynningarstarf hefj- ist á erlendum vettvangi til undirbúnings hval- veiðum. Það starf er ekki hafið og því finnst mér frekar ólfklegt að hvalveiðar hefjist á næsta ári. Aðalatriðið er ekki hvort þær hefj- ast á næsta ári eða þarnæsta. Aðalatriðið er að ákvörðun hefur verið tekin um hvalveiðar og ríkisstjórnin hefur ályktun Alþingis til að fara eftir í þessu máli.“ Verðum að skammta aðganginn að auðlindinni Sérðu fyrir þér að í framtíðinni verði öllum þegnum landsins tryggður jafn réttur til fisk- veiða innan lögsögu okkar? „Það eru auðvitað allir jafnir fyrir lögunum og stjórnarskránni. Það er enginn sem hindrar það að sá sem vill stunda fiskveiðar, geri það. Hann þarf bara að hafa réttu „græjurnar" tO þess. Áður fólst það í því að eiga skip eða bát og veiðarfæri. Nú er hluti af þessu að hafa kvóta. Þessi þáttur er umdeildur og stefna rík- isstjórnarinnar er að ná meiri sátt um þetta kerfi. Eins og málum er komið, verður aldrei kom- izt hjá því að skammta aðganginn að auðlind- inni. Getan til þess að veiða er miklu meiri en afrakstursgeta fiskistofnanna leyfir. Þess vegna kemur til þessi sérhæfing í atvinnulíf- inu, sem er í nokkuð fastara formi nú vegna kvótakerfisins, en hún var áður.“ Eðlilegt að deilt sé um ráðgjöfina Það hafa verið skiptar skoðanir um störf Hafrannsóknastofnunar og mat hennar á veiðiþoli fiskistofna og ráðgjöf um heildarveiði. Erum við á réttri braut þar? „Það er eðlilegt að deilt sé um þessi mál, enda miklir hagsmunir í húfi. Vísindamenn Hafrannsóknastofnunar verða að byggja á þeirri beztu vísindalegri þekkingu, sem fyrir liggm- á hverjum tíma. Þeir verða líka að nálg- ast viðfangsefnið á vísindalegan hátt, vera opnir fyrir því, að það sem þeir hafa verið að segja og gera, geti verið rangt og vera þá til- búnir tO að breyta sínum kenningum og vinnu- brögðum, komi það á daginn. Ég vil að öll gagnrýni verði tekin alvarlega og skoðuð mál- efnalega." Hvernig finnst þér hafa til tekizt? „Það fer eftir því af hvaða sjónarhóli er horft. Sé litið til þess að fyrir nokkram árum var þorskstofninn kominn niður í 500.000 tonn, en er nú kominn yfir 1.000.000 tonn, hefur góð- ur árangur náðst. Ef staðan er hins vegar met- in út frá því hvað við höfum veitt mikið á ári að meðaltali á síðustu 50 árum, geta menn kannski sagt að við séum að veiða minna en við ættum að geta. Síðan era kannski eðlilegar skýringar á því. Menn verða að vera tilbúnir til að skoða þetta allt á hlutlægan hátt og láta efnisatriðin og niðurstöður rannsókna ráða, en ekki óskhyggjuna. Nýtt hafrannsóknaskip mun auka mögu- leika okkar til að bæta þekkinguna og gera niðurstöður rannsókna áreiðanlegri og ráð- gjöfina betri. Sjálfsagt er aldrei svo að nægu fé sé varið til rannsókna. Ég vO gjarnan auka fé til rannsókna á fiskistofnunum og hafinu sjálfu. Við höfum ekki efni á öðra en vera í fremstu röð í rannsóknum á hafinu og auðlind- um þess.“ Framtíðin björt Hvernig sérðu fyrir þér framtíð íslenzks sjávarútvegs? „I stóram dráttum held ég að hann eigi sér bjarta framtíð. Við höfum náð mjög góðum ár- angri á undanförnum áram. En það er vandi að halda rétt á spilunum. Það þarf ekki mikið að bregða út af hjá okkur til að við lendum í erfiðleikum. Sumt af því er undir okkur komið, sérstaklega nýting auðlindarinnar og hvernig við högum fiskveiðistjórnuninni. Annað er háð ytri skilyrðum eins og verði á sjávarafurðum á heimsmarkaði. Það tengist auðvitað efnahags- þróun á hverjum stað. Einnig er í gangi ákveðin þróun í umhverfis- málum. Þó okkur gangi vel að stýra fiskveiðum okkar og nýtum fiskistofna okkar af skynsemi og á sjálfbæran hátt, gætum við orðið blóra- bögglar fyrir aðra, sem ekki gera eins vel. Því skiptir miklu máU fyrir okkur að við kynnum vel erlendis, hvernig við stöndum að málum og séum tilbúnir til að miðla af reynslu okkar, bæði því sem hefur verið jákvætt og neikvætt. Við verðum að gera svo, því við beram ábyrgð á þessari auðlind, ekki bara fyrir okkur sjálf, heldur einnig kynslóðir framtíðarinnar. Þó at- vinnulífið hér sé fjölbreyttara en nokkra sinni fyrr, sé ég engin teikn á lofti um það að sjávar- útvegurinn hætti að vera grandvallaratvinnu- vegur landsmanna,“ segir Árni Mathiesen, sj ávarátvegsráðherra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.