Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1998, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1998, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 1998 MIÐVTKUDAGUR 9. SEPTEMBER 1998 41 Iþróttir Meistararnir aftur komnir í toppsætið - höfðu sætaskipti við KR eftir sigur á Fram í Eyjum íslandsmeistarar Eyjamanna í knattspyrnu höfðu sætaskipti við KR-inga um efsta sætið þegar þeir lögðu Fram, 2-0, á heimavelli í gærkvöld. Eyjamenn þurftu ekki á neinum stórleik að halda til að knýja fram sigur og hafa þeir reyndar oft í sumar leikið mun betur. Sigurinn skipti þá auðvitað öllu máli og var hann sanngjarn á heildina litið. Heimamenn voru mun beittari framan af en gestimir voru lengi í gang. Ingi Sigurðsson var í tvígang nærri því að skora í upphafi leiks- ins en Framarar sluppu með skrekkinn. Framarar væru nærri því á 16. minútu að taka forystu þegar Jón Sveinsson átti hörkuskot í stöngina af 25 metra færi. Aðeins þremur minútum síðar kom Sindri Grétarsson, sem leysti Steingrím Jóhannesson af hólmi, ÍBV yfir með ágætu marki. Jón Kristján Sigurðsson skrifar frá Eyjum Framarar hófu síðari hálfleikinn af krafti, gerðust ágengir en sköp- uðu sér ekki hættuleg tækifæri. Eyjamenn færðust allir í aukana eft- ir því sem á leikinn leið. ívar Bjarklind kom sigrinum i örugga höfn eftir að rangstöðutaktík Fram- ara gekk ekki upp og eftirleikurinn var ívari auðveldur. Vöm ÍBV var sterkasti hlekkur liðsins í leiknum. Zoran Miljkovic var mjög traustur ásamt Hlyni Stef- ánssyni. Jón Sveinsson var áberandi best- ur Framara. Ólafur Péturssonmark- vörður átti einnig góðan leik. „Ég er ekki rosalega ánægður með leikinn sjálfan en stigin þrjú skiptu þó öllu máli í þeirra baráttu sem fram undan er. Það má ekkert fara úrskeiðis því KR-ingar em á bullandi siglingu og gefa sinn hlut ekki eftir. Það var markmið okar fyrir mótið að verja titilinn og það ætlum við okkur að gera. Við eram komnir í efsta sætið og þar líður okkur best. Leikimir, sem við eig- Eyjamenn fagna sigrinum eftir leikinn á móti Fram í búningsklefanum í gærkvöld. Þar með voru þeir búnir að endurheimta efsta sætið á nýjan leik og var að vonum mikil kátína í herbúðum þeirra. Á innfeldu myndinni fagnar einn áhangandi ÍBV ívari Bjarklind sem skoraði síðara mark ÍBV t leiknum. DV-mynd Ómar 0 X KR 15 8 6 1 23-6 30 tBV 15 10 2 3 36-14 32 ÍA 15 8 4 3 24-17 28 Keflavík 15 7 3 5 17-21 24 Leiftur 15 6 3 6 18-17 21 Fram 15 4 4 7 16-18 16 Valur 15 3 6 6 21-28 15 IR 15 4 2 9 17-27 14 Grindavík 15 3 4 8 19-30 13 Þróttur R. 15 3 4 8 22-35 13 16. umferðin hefst á laugardaginn meö fjórum leikjum. Kl. 14 leika: Grindavik-ÍBV, ÍR-Þróttur og Leiflur-Keflavík og kl. 16 KR-ÍA. Á sunnudagskvöldið kl. 20 mætast svo Fram og Valur. Kjarabarátta hjá körfuboltadómurum - vilja 20 prósenta hækkun, félögin neita Körfuboltadómarar eiga þessa dagana í kjaradeilu við félögin um greiðslur fyrir komandi tímabil. Talsvert ber á milli, samkvæmt heim- ildum DV, því dómarar vilja 20 prósenta hækkun en samninganefnd á vegum félaganna hafhar því að hækka greiðslumar. Dómarar fá 4900 krónur fyrir leik í úrvalsdeildinni og 8200 fyrir leik í úrslitakeppninni og í undanúrslitum og úrsiitum bikars. Þeir vilja að greiðslumar hækki í nálægt 6000 og 10.000 krónum. Félögin hafna þessu og benda á að dómarar hafi fengið 20 prósenta hækkun á miðju síöasta tímabili en þá höfðu greiöslumar verið 3900 og 6500 krónur. Deilan hefur haft áhrif á Reykjanesmótið sem nú stendur yfir. Þar hafa verið greiddar 2500 krónur á leik en dómarar vilja nú 3500 krónur. Flest félaganna hafa svarað þvi með því að láta réttindalausa menn dæma leik- ina, þannig að verkefhi dómara á undirbúningstímabilinu em í lág- marki. íslandsmótið hefst 1. október og ljóst að stórt vandamál blasir við, takist ekki að ná sátt í málinu fyrir þann tíma. -VS Guðjón Þórðarson í Bolton Evening News: Arnar I mikilli framför Enska blaðið Bolton Evening News hefur eftir Guðjóni Þórðar- syni, landsliðsþjálfara íslands, að Arnar Gunnlaugsson, leikmaður Bolton, hafi allt til að bera til að ná langt í ensku knattspymunni. „Arnar hefúr burði til að verða frábær leikmaöur. Hann lagði hart að sér í landsleiknum við Frakka og stóð sig vel. Hann hefur greini- lega tekið miklum framfómm eftir að hann kom til liðs við Bolton. Hæfileikamir hafa verið fyrir hendi, þetta var spuming um sjálfstraustið sem virðist nú vera að koma. Ég tók hann af velli í landsleiknum vegna þess að við vorum að verja eitt stig og ég þurfti á líkamlega sterkari leikmanni aö halda á lokakafla leiksins," segir Guðjón í samtali við blaðið. Sagt er að Amar hafi oft leikið Christian Karembeu, leikmann Real Madrid, grátt í Frakkaleikn- um. Arnar var boðaður á aukaæfmgu hjá Bolton strax á sunnudag ásamt þremur öðmm landsliðsmönnum. Colin Todd framkvæmdastjóri vildi sjá ástand þeirra fyrir leikinn gegn WBA í 1. deildinni sem fram fór í gærkvöld. -VS um eftir, em allir úrslitaleikir. Það er núna í hendi okkar að klára þetta dæmi og það ætlum við að gera,“ sagði Hlynur Stefánsson, fyrirliði ÍBV, í samtali við DV eftir leikinn í gærkvöld. ÍBV (1)2 Fram (0)0 1- 0 Sindri Grétarsson (19.) eftir hornspymu Inga Sigurðssonar barst boltinn til Hlyns sem kom honum til Sindra sem skoraði af stuttu færi. 2- 0 ívar Bjarklind (81.) slapp inn fyrir vöm Framara, lék á Ólaf í markvörð og renndi boltanum i autt markið. Lið ÍBV: Gunnar Sigurðsson - Hjalti Jóhannesson @, Zoran Milj- kovic ®, Hlynur Stefánsson @, Guðni Rúnar Helgason - Steinar Guð- geirsson, Ingi Sigurðsson (ívar Bjarklind 77.), ívar Ingimarsson, Kristinn Hafliðason @ - Sindri Grét- arsson (Jens Paeslack 67.), Kristinn Lámsson ® (Sinisa Zibljic 85.). Lið Fram: Ólafur Pétursson @ - Þorvaldur Ásgeirsson,, Ásgeir Hall- dórsson, Sævar Guðjónsson, Þórir Áskelsson - Anton Bjöm Markússon (Eggert Stefánsson 87.), Baldur Bjamason (Daði Guðmundsson 82.), Ámijótur Davíðsson ® (Freyr Karls- son 70.), Jón Sveinsson @, Ásmund- ur Amarson - Kristófer Sigurgeirs- son. Markskot: ÍBV 9, Fram 9. Horn: tBV 5, Fram 5. Gul spjöld: Miljkovic (ÍBV), Sæv- ar (F), Anton (F). Dómari: Guömundur Stefán Marí- asson, ágætur. Áhorfendur: Um 700. Skilyröi: Vöilurinn góður og gott veður til knattspynuiökana. Maöur leiksins: Zoran Milj- kovic, ÍBV. Sýndi mjög góða bar- áttu allan leikinn og var eins og klettur 1 vöminni. Steingrimur Jóhannesson missti af fyrsta deildaleik ÍBV síðan í ágúst 1992. Hann hafði leikið 108 leiki í röð meö liðinu í efstu deild frá þeim tima. Ásgeir Halldórsson lék sinn fyrsta leik í sumar með Fram en hann átti i langvarandi meiðslum. Bland í poka Fimm leikmenn úr úrvaisdeildinni í knattspymu vora úrskurðaðir í eins leiks bann á fundi aganefndar KSÍ í gær. Þetta er KR-ingamir Siguröur Örn Jónsson og Sigþór Júltusson, Vilhjálmur Vilhjálmsson og Ingvar Ólason úr Þrótti og Valsmaðurinn Stefán Ómarsson. Þeir leika því ekki með liðum sínum um næstu helgi. Brann tryggöi sér sæti í undanúr- slitum norsku bikarkeppninnar í knattspymu í gær með því að vinna stórsigur á Molde, 4-0. Ágúst Gylfa- son lék allan tímann með Brann en Bjarka Gunnlaugssyni var skipt út af á 57. mínútu. I undanúrslitunum mætb- Brann liði Rosenborg og Moss liði Stabæk. Moss lagöi Strömsgodset, 3-1, i norsku úrvalsdeildinni í gær. Hvorki Óskar Hrafn Þorvaldsson né Valur Fannar Gislason léku með Ströms- godset. Breiöablik lagöi Stjömuna, 3-1, i úr- valsdeild kvenna í knattspymu 1 gær. Margrét Ólafsdóttir skoraði 2 mörk fyrir Breiðablik og Kristrún Liija Daöadóttir eitt en Erna Siguröar- dóttir skoraöi mark Stjömunnar. Þýska handknattleiksliöiö Gum- mersbach er mjög illa statt flárhags- lega. Leikmenn liðsins hafa ekki fengið greidd laun sín í marga mán- uði og félagiö er á barmi gjaldþrots. -GH íþróttir Olga Færseth, markadrottningin í úrvalsdeild kvenna, hampar íslandsmeistaratitlinum og með henni í fögnuðinum eftir leikinn eru, frá vinstri: Guðlaug Jónsdóttir, Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, Helena Ólafsdóttir, fyrirliði, og Sigríður Pálsdóttir. DV-mynd Brynjar Gauti íslandsmeistarar annað árið í röð eftir sigur á Val í hreinum úrslitaleik KR vann Val með sigurmarki fyrir- hða síns Helenu Ólafsdóttur í Frosta- skjólinu í gær og tryggðu KR-konur um leið áframhaldandi vem íslands- bikarsins í bikarsafni KR-inga næsta árið. Hver veit nema hann fái félags- skap í vetur því KR er líka komið í bikarúrslitin gegn Breiðabliki þar sem þær hafa aldrei fagnað sigri áður. KR spilaði mjög skynsamlega í leiknum enda með vænlegri stöðu fyr- ir leikinn þvi Valsstelpum dugði ekk- ert annað en sigur í leiknum til að næla í bikarinn. Þær spiluðu með 9 menn i vöm mestan hluta seinni hálf- leiks og héldu marki sínu hreinu. Leikurinn byrjaði ekki vel og ein- kenni fyrri hálfleiks var mikil tauga- spenna innan beggja liða. KR hafði þó undirtökin og fékk flest þau færi sem buðust en Valur komst þó næst því aö skora er Hjördís Símonardóttir átti skot í slá beint úr aukaspymu á 33. mínútu. Olga Færseth ásamt Guð- rúnu Jónu Kristjánsdóttur stríddi Valsstelpum stíft og stöðugt allan hálfleikinn og það var í framhaldi af góðu skoti Olgu sem Helena Ólafsdótt- ir kom KR yfir og gerði stöðu Vals þegar á reyndi allt of erfiða. Valsstelp- ur vissu að til að eiga möguleika máttu þær alls ekki fá á sig mark því þá þurftu þær að skora tvö mörk til aö ná í bikarinn. Þær vom því nokk- uð stuðaðar það sem eftir var hálf- leiksins og Guðrún Jóna hefði allt eins getað nánast tryggt sigur KR er hún komst í gegn eftir einleik en góð- ur markvörður Vals, Ragnheiður Jónsdóttir, varði vel. Seinni hálfleikur var að mestu eign Valsliðsins en örlítið meiri áræðni upp við markið vantaði til að þær næðu að skapa sér eitthvað að ráði. Þær em tapliö kvöldins en í margra augum þó sigurvegarar sumarsins og ömgglega verðandi sigurvegarar framtíðarinnar. KR var með iLlviðráðanlegt lið í sumar og á bikarinn skilinn. Krafa um meiri meistarabrag í þessum leik er þó hávær enda hugsuðu KR-konur aðeins um að halda sínum hlut. Sókn- arleikurinn sem hafði skilað 59 marki í 13 leikjum var hvergi sjáanlegur að þessu sinni. „Ég tók við góðu búi er við byrjuð- um í október og það var bara að halda utan um hlutina, við stefndum á báða titlana, fyrsti titillinn er nú í höfii og við stefnum að sjálfsögðu á að ná hin- um líka en leyfúm okkur að fagna þessum í nokkra daga. Þetta var rosa- legt stress en við náöum að skora á móti vindinum og þá þurftu þær að skora tvö mörk og það var bara of mikið fyrir þær,“ sagði Arna Stein- sen, þjálfari KR. Helena Ólafsdóttir, fyrirliði KR, skoraði eflaust eftir- minnilegasta mark sitt er hún tryggði liði sínu titilinn. „Ég bjóst nú ekki við að gera það en þrátt fyrir að vera pot- mark er það eitt það sætasta. Við vissum að við yrðum að vera á undan að skora því þá fór öll pressa af okk- ur og yfir á þær sem þurftu að skora 2 mörk. Nú verður ekki aftur snúið og nú ætlum við að taka allt og vinna bikarinn líka“. „Ef við hefðum byrjað leikinn eins og við byijuðum seinni hálfleikinn hefðum við getað gert þetta auðveld- ara fyrir okkur. í seinni hálfleik þéttu þær vömina sína mikið og þá var mjög erfitt að skora," sagði íris Ey- steinsdóttir, leikmaður Vals. „Fyrsta markið breytti leiknum, við þurftum að skora tvö og þær gátu spilað meiri varnarbolta. Þetta var góður leikur og við getum þrátt fyrir úrslitin borið höfuðið hátt. Við erum með ungt lið sem á eftir að komast í spor KR-liðsins hér í kvöld, spurning- in er bara hvenær," sagði Ólafur Þór Guðbjartsson, þjálfari Vals. -ÓÓJ Ratliff til ÍA? DV, Akranesi: Úrvalsdeildarlið ÍA er að leita sér að sterkum bandarískum körfuknattleiks- mcmni fyrir komandi tímabil. Jesse Ratliff, sem lék með Þórsurum á Akureyri í fyrravetur, er þar efstur á blaði, en einnig hafa Skagamenn reynt að ná í Ron- ald Bayliss, sem lék meö þeim fyrir tveim- ur árum. Lijah Perkins, enski risinn sem var til reynslu hjá ÍA, stóð ekki undir vænting- um í Valsmótinu á dögunum. Hann er nú kominn til reynslu hjá KR. Talsverðar líkur vom á að Grindvíking- urinn Unndór Sigurðsson gengi til liðs viö ÍA. Hann ristarbrotnaði á dögunum og verður frá keppni í nokkrar vikur, og þar með verður sennilega ekkert af því að hann fari á Skagann. -DVÓ Sá sjötti á 8 árum Þrátt fyrir að hafa ekki haft hendur á sjálfum íslandsbikam- um í þetta skiptið var Ásthildur Helgadóttir, sem er farin út i nám til Bandaríkjanna, að vinna sinn 6. íslandsmeistaratitil á síð- ustu 8 árum. Hún hefúr unnið 4 með Breiðabliki (1991, ‘92, ‘95 og ‘96) og tvisvar með KR (1993 og ‘98). Hin 2 árin 1994 og ‘97 var hún síðan í 2. sæti. „Við söknuð- um Ásthildar enda hún góður leikmaður en vora bara enn stað- ráðnari í að þjappa okkur saman og vinna titilinn fyrir hana,“ sagði Arna Steinsen þjálfari KR um fjarveru Ásthildar. -ÓÓJ „Alla leið í ár“ - hjá Rögnu Lóu Ragna Lóa Stefánsdóttir, aðstoðarþjálf- ari og leikmaður hjá KR, missti af sigur- hátíð sinna stelpna í fyrra sökum fót- brots en nú fékk hún að vera með alla leið til enda. „Það er alveg frábært að fá að taka þátt í þessu og vera með alla leið til enda. Ég skrapp heim í leikinn enda farin út til Englands. Leikurinn var erfiður en ég held að það hafi aldrei verið spuming um að KR væri með besta liðið í ár. Okkur dugði jafntefli og þvi ákváðum við að detta í vöm og halda okkar hlut. Við tökum næsta leik með stæl og þá munu KR-ingar sýna hvað þeir geta,“ sagði Ragna Lóa eftir leik. -ÓÓJ Iþróttir einnig á bls. 42 Ama Steinsen, þjálfari KR, er hér lengst til vinstri í sigurvímu ásamt stelpunum si'num úr KR. DV-mynd Brynjar Gauti KR (0)1 Valur (0)0 1-0 Helena Ólafsdóttir (38.) fylgdi eftir skoti Olgu Færseth utan teigs sem Olga fékk eftir mistök í vöm Vals og skoraöi af markteig. Liö KR: Sigríöur Pálsdóttir - Elln Jóna Þorsteinsdóttir, Guðrún Gunn- arsdóttir, Ragna Lóa Stefánsdóttir, Olga Einarsdóttir - Guölaug Jóns- dóttir (Sigurlín Jónsdóttir 88.), Guð- rún Jóna Kristjánsdóttir, Edda Garð- arsdóttir, Kristbjörg Ingadóttir (Embla Grétarsdóttir 78.) - Olga Fær- seth, Helena Ólafsdóttir. Lið Vals: Ragnheiöur Jónsdóttir - Erla Sigurbjartsdóttir (Ema Erlends- dóttir 76.) , íris B. Eysteinsdóttir, Soffia Ásmundsdóttir (Elísabet Gunn- arsadóttir 85.), Rósa Steinþórsdóttir - Hjördís Símonardóttir (Katrín Heiða Jónsdóttir 86.), Laufey Ólafsdóttir, Hildur Guöjónsdóttir, Rakel Loga- dóttir - Berþóra Laxdal, Ásgerður Ingibergsdóttir. Markskot: KR 15, Valur 10. Hom: KR 3, Valur 8. Gul spjöld: engin Dómari: Eyjólfur Ólafsson. Áhorfendur: Um 300 Skilyrði: Kaldur vindur á annað markið en völlurinn ágætur. Maöur leiksins: Helena Ólafs- dóttir, KR. Fyrirliðinn sá um aö tryggja titilinn í vesturbæinn ann- að árið i röð. W'jk ÚRVALSD. KV. Lokastaðan 1998: KR 14 13 0 1 60-7 39 Valur 14 12 0 2 50-13 36 Breiöablik 14 9 2 3 31-12 29 ÍBV 14 6 2 6 33-34 20 Stjaman 14 5 2 7 28-28 17 ÍA 14 2 3 9 20-35 9 Haukar 14 2 1 11 6-49 7 Fjölnir 14 2 0 12 5-55 6 Markahæstar sumarið 1998: Olga Færseth, KR ..................23 Ásgerður Ingibergsdóttir, Val ... 16 Laufey Ólafsdóttir, Val ............15 Helena Ólafsdóttir, KR.............12 Kristrún L. Daðadóttir, Breiðab. . 11 Ásthildur Helgadóttir, KR..........10 íris Sæmundsdóttir, ÍBV............10 Grindavik tekur sæti Fjölnis í deild- inni og Haukar mæta ÍBA í auka- leikjum um úrvalsdeildarsæti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.