Fréttablaðið - 22.03.2006, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 22.03.2006, Blaðsíða 30
MARKAÐURINN 22. MARS 2006 MIÐVIKUDAGUR10 F R É T T A S K Ý R I N G „Þessi aukni áhugi á félaginu ætti að vera núverandi hluthöfum fagnaðarefni,” sagði Örn Karlsson, stjórnarformaður Kögunar, á dramatískum aðalfundi félagsins sem hald- inn var í síðustu viku. Vísaði hann þar til kaupa Exista og Símans á 39 prósenta hlut í Kögun, stærstu samsteypu landsins í hug- búnaðargeiranum. Þrátt fyrir þessa sterku stöðu félaganna tveggja eru þau í minnihluta innan stjórnar eftir að stjórnendur Kögunar, í samstarfi við Straum-Burðarás, náðu þremur stjórnarsætum af fimm með 56 prósentum atkvæða fundarmanna. Stjórn Kögunar skipa: Örn og Vilhjálmur Þorsteinsson hugbúnaðarhönnuður, fyrir hönd stjórnenda, Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, og Orri Hauksson, fram- kvæmdastjóri hjá Símanum, fyrir hönd Símans og Exista, og Guðmundur Þórðarson, framkvæmdastjóri hjá Straumi-Burðarási. ÞRÝST Á YFIRTÖKU Síminn eignaðist tæplega 27 prósenta hlut í Kögun snemma í febrúar síðastliðnum með kaupum á bréfum sem áður voru í eigu FL Group og Straums-Burðaráss. Síminn leit á Kögun sem vænlegan fjárfestingarkost með frekari samtvinnun fjarskiptatækni og upplýsingatækni og vera í forystuhlutverki í þeirri trú að félögin tvö ættu samleið á mörg- um sviðum. Þá hafa verið mikil viðskipti milli Símans og félaga í Kögunarsamstæðunni í gegnum tíðina. Exista, stærsti hluthafinn í Símanum, keypti sjálft um tíu prósent af KB banka nokkrum dögum síðar til viðbótar við það eina prósent sem fjárfestingarfélagið átti fyrir. Nokkra daga á eftir fóru Exista og KB banki, hluthafi í Exista og Símanum, saman með yfir fjörutíu prósent hlutafjár í Kögun og kannaði Yfirtökunefnd hvort yfirtöku- skylda hefði myndast en ákvað að aðhafast ekkert frekar þar sem eignarhlutur KB banka í Símanum náði ekki þriðjungi atkvæða. Þegar Síminn kom inn í hluthafahóp Kögunar voru stjórnendur hans spurðir hvað þeir hygðust fyrir og þeir svöruðu að ekkert hefði verið ákveðið, einungis að þeir vildu fara inn í Kögun og kynna sér reksturinn og markmiðin. Samkvæmt heimildum munu stjórnar- menn í Kögun hafa óskað eftir því við Símann að hann færi í yfirtöku því það væri ómögu- legt fyrir aðra hluthafa að eiga bréf í Kögun ef Síminn og og tengdir aðilar ætluðu að „hanga“ í 39 prósentum og ekkert segja hvað þeir hygðust fyrir. Það myndi að mati ann- arra stórra hluthafa skaða hlutabréfaverð í Kögun. Síminn svaraði því þannig að hann ætlaði ekki að fara í yfirtöku og hefði ekki hug- myndir um slíkt. Þó er ljóst að Síminn tekur ekki yfir Kögun með lántöku einni saman vegna ákvæða í samningum við lánardrottna. Annað gildir hins vegar um Exista. VANMÁTU STRAUM OG STJÓRNENDUR Síminn og Exista höfðu óskað eftir því að fá þrjá menn í stjórn og þeir tveir sem eftir sætu yrðu þeir Örn Karlsson og Vilhjálmur Þorsteinsson hugbúnaðarhönnuður, fyrir hönd stjórnenda Kögunar. Þriðji fulltrúi Símans yrði óháður stjórnarmaður, það er Katrín Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Lýsis, sem náði ekki kjöri á endanum. Sjálfgefið þótti að Gunnlaugur M. Sigmundsson, forstjóri Kögunar, og Ingimundur Sigurpálsson færu út úr stjórninni. Höfðu Símamenn talið sig örugga með hreinan meirihluta án þess að þurfa að fara í yfirtöku. Stærstu mistök Símans og Exista í þessum slag kunna að hafa legið í því að halda að Straumur hefði ekki áhuga á sæti í stjórninni og væri eins konar þögull hluthafi en Straumur og dótturfélagið Iða eiga yfir fimmtán pró- sent hlutafjár í Kögun. Því tækjust á tvær blokkir, annars vegar Síminn og hins vegar stjórnendur og starfsfólk Kögunar, en ekki þrír hópar eins og síðar kom á daginn. Á þriðjudegi - daginn fyrir aðalfund - kom tilboð á markaðsverði frá ónefndum fjárfesti í eigin hlutabréf Kögunar sem stjórn sam- þykkti. Eftir því sem næst verður komist munu stjórnendur Kögunar, sem standa að eignarhaldsfélaginu Teton, hafa talið að staða þeirri væri það ótrygg að ekki væri á vísan að róa að fá tvo stjórnarmenn og myndu því klemmast á milli Símans og Straums með aðeins einn mann. Keyptu þeir því þrjú pró- sent á þó nokkru yfirverði og greiddu sjötíu krónur fyrir hvern hlut. Hlutur Tetons fór því í 11,8 prósent. Spurður hvort samkomulag um skiptingu stjórnar hefði legið fyrir aðalfundinn svar- ar Brynjólfur Bjarnason því þannig: „Menn höfðu rætt saman hvernig skipan stjórnar- innar gæti verið.“ ÚTRÁSIN SÖLTUÐ Í BILI Á aðalfundi Kögunar kom fram að áætluð velta félagsins á þessu ári yrði 21 milljarð- ur króna en þá hefur ekki verið tekið tillit til kaupa Kögunar á 58 prósenta hlut í EJS. Ljóst er að Kögun hefur vaxið gríðarlega á síðustu árum. Velta félagsins var um fjórir milljarðar króna árið 2004 og 17,4 milljarðar á síðasta ári. Hraður vöxtur félagsins beinist nú að erlendum miðum. Á hluthafafundinum umrædda vakti mikla athygli að fyrrum stjórn dró til baka tillögu um að hún fengi heimild til að auka hlutafé félagsins um 85 milljarða, eða fimm milljarða að markaðs- virði, sem yrði meðal annars nýtt til að greiða niður skammtímaskuldir vegna nokkurra fjárfestinga. Brynjólfur Bjarnason stóð upp og benti á að fyrir væri heimild til að auka hlutafé Kögunar um fjöru- tíu milljónir króna, um 2,8 milljarða að markaðsvirði, sem ætti að nægja. Taldi hann að tillaga stjórnar væri ekki tímabær þar sem stjórnin hefði ekki útskýrt hvernig heimildinni yrði ráðstafað. Samkvæmt upplýsingum sem komu ekki fram á fundinum ætl- aði stjórnin að nýta aukna heimild til frekari fjárfestinga erlendis og voru nokkur erlend félög á lista stjórnar. Samkomulagi var komið á við Straum um ráðgjöf vegna verkefnisins og umsjón með hluta- fjáraukningunni. Þessi útrás átti að stuðla að frekari vexti Kögunar og væntanlega meiri hækkkunum á hlutabréfaverði. SPILAÐ UPP Á YFIRTÖKU? En hver eru næstu skref í Kögun? Víst er að stjórnendur Kögunar og Straumur halda meirihluta innan stjórnar en Exista og Síminn eru í þeirri stöðu að gera yfirtökutilboð með því að bæta við sig einu prósenti hlutafjár eða svo. Miðað við þann herkostnað sem Gunnlaugur M. Sigmundsson og félagar í Teton hafa lagt út í með miklum kaupum á hlutabréfum munu hvorki þeir né aðrir stórir hluthafar selja hluti sína til Símans og Exista á núver- andi markaðsgengi. Þótt aðstæður séu vissulega einkennileg- ar í Kögun, þar sem hvorki ríkir vopna- né valdajafnvægi, er vart hægt að skynja mikla gremju eða reiði milli hluthafahópa sem gæti truflað starfsemi félagsins. Verður vart annað skilið en að stjórnendur Kögunar og Straumur séu reiðubúnir til að selja bréf sín fyrir viðunandi yfirtökuverð. NOKKRIR AF STJÓRNENDUM KÖGUNAR Mynduðu fyrir aðalfund bandalag við Straum sem tryggði þeim meirihluta innan stjórnar. Sú ákvörðun stjórnenda að kaupa hlutafé rétt fyrir aðal- fund bendir eindregið til þess að þeir meti félagið á hærra virði komi til yfirtöku af hálfu Símans og Exista. Markaðurinn/GVA Beðið við símann í Kögun Stjórnendur Kögunar og aðrir stórir hluthafar virðast vera reiðubúnir að selja hlutabréf sín til stærstu hluthafanna, Exista og Símans, fyrir viðunandi verð. Síminn taldi sig vera kominn með sam- komulag um skiptingu innan stjórnar Kögunar þegar stjórnendur keyptu hlutafé og náðu meirihluta í stjórn Kögunar með fulltingi Straums. Vopnin eru í höndum Símans og Exista en völdin í höndum stjórnenda og Straums, skrifar Eggert Þór Aðalsteinsson. 1 5 S T Æ R S T U H L U T H A F A R N I R Í K Ö G U N H I N N 2 0 . M A R S 1 Síminn 26,94% 2 Teton ehf. 11,79% * 3 Exista 11,04% 4 Straumur-Burðarás 8,78% 5 Iða fjárfesting 6,83% ** 6 Fjárfestingarfélagið Máttur 3,63% 7 Gildi - lífeyrissjóður 2,71% 8 Landssjóður hf., úrvalsbréfadeild 2,38% 9 Meson Holding S.A. 1,71% *** 10 Kögun 1,64% 11 Lífeyrissjóður Vestfirðinga 1,47% 12 K13 Holding S.A. 1,13% **** 13 Kaupþing banki 0,97% 14 Arion safnreikningur 0,94% 15 Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 0,92% * Eigendur Teton eru Gunnlaugur M. Sigmundsson, Vilhjálmur Þorsteinsson og Örn Karlsson ** Dótturfélag Straums *** Félag í eigu Vilhjálms Þorsteinssonar **** Félag í eigu Arnar Karlssonar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.