Tíminn - 03.11.1983, Blaðsíða 1

Tíminn - 03.11.1983, Blaðsíða 1
Siðumúla 15 - Pósthólf 370 Reykjavik - Rrtstjorn 86300- Auglýsingar 18300- Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvóldsimar 86387 og 86306 FISKIFRÆÐINGAR VlUfl DRAGA UM ÞRIÐJLNG ÚR ÞORSKVEHHIM — „Þetta eru mjög alvarleg tídindi’% segir Halldór Ásgrímsson ■ Hafrannsóknastofnun leggur til að aðeins verði veiddar 200 þúsund lestir af þorski á íslands- miðum á næsta ári. Verði farið að tillögum stofnunarinnar þarf að leita 35 ár aftur í tímann til að finna sambærilegar tölur um þorskveiði, en frá árinu 1949 hefur hann alltaf verið meiri. „Þetta eru að sjálfsögðu mjög alvarleg tíðindi. Við höfum vitað að ástandið væri slæmt, en við höfðum alls ekki reiknað með að það væri svona slæmt,“ sagði Halldór Ásgrímsson, sjávarút- vegsráðherra, í samtali við Tímann. Hann kvaðst ekki geta sagt um hvort farið yrði að tilmælum fiskifræðinganna á þessu stigi. Það að minnka þorskaflann um þriðjung frá því sem er í ár, væri svo alvarlegt mál gagnvart ýms- um þáttum í þjóðfélaginu, að menn hlytu að hika áður en slíkar ákvarðanir væru teknar. Hins vegar hikuðu menn einnig við að ganga nær stofninum en mælt er með. Einar Jónsson, fiskifræðingur, sagði að, nýja skýrslan um á- stand þorskstofnsins væri sú svartasta sem nokkru sinni hefði komið fram. Hann sagði að auð- vitað yrði að reikna með frávik- um, en með hliðsjón af afla- brögðum í ár væri rík ástæða til að taka niðurstöðurnar alvarleg- ar en áður. „í fljótu bragði sýnist mér að það sé í kringum 4% minni þjóðarframleiðsla sem þessi minnkun þorskafla hefði í för með sér“, sagði Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra. Hann sagði ennfremur að spár um þorskafla hefðu því miður reynst haldlitlar hingað til. „Það er ljóst að þarna vantar okkur langtum mciri þekkingu, svo unnt sé á að byggja," sagði forsætisráðherra. - Sjó/— AB - Sjá nánar bls. 2 og 3. Svartasta skýrsla Hafrannsóknarstofnunar Iftur dagsins Ijós: Skipbrotsmennirnir sem sluppu iifandi af Kampen: ■ „Við erum þakklátir þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóginn við björgun okkar. Við þökkum þá aðhlynningu sem við höfum fengið, bæði í Vestmannaeyjum og Reykjavik. Alúð ykkar og samúð hafa snort- ið okkur djúpt,“ voru orð skip- brotsmannanna þýsku af Kampen, er Tíminn hitti þá að máli á Hótel Esju síðdegis í gær, en þá voru þeir nýkomnir frá Vestmannaeyjum. Að öðru leyti sögðust skipbrotsmennimir ekki geta rætt við blaðamenn fyrr en eftir sjópróf sem hefjast í Reykjavík á morgun. Skipbrotsmennirnir dvöldu á Sjúkrahúsinu í Eyjum í fyrri nótt og voru furðu vel á sig komnir. Þeir komu til Reykjavíkur um þrjúleytið í gær, en þýski sendi- herrann hér gætti þess vandlega að þeir ræddu ekki við blaða- menn umfram það sem að ofan kemur fram. Skipverjamir sem fórust af Ms. Kampen voru: Hellmuth Thomsen skipstjóri 52ja ára, Ro- land Lesener, 2. sýrimaður 31 árs, Ruppert Riesenhuber 1. vél- stjóri 56 ára, Friedrich Scholl 2. vélstjóri 49 ára, Emmanuel Ye- boah matsveinn 38 ára, Guenter Schroeder háseti 40 ára og Wolf- gang Ulrich vélamaður 33ja ára. Þeir voru allir þýskir, nema rnat- sveinninn sem var Ghanabúi. Lík þeirra verða flutt til Reykjavíkur í dag og síðan til Þýskalands. Þeir sem af komust: Jan Gar- bers 1. sýrimaður 26 ára, Rudolf Neumair háseti 30 ára, Peter Hadamek, háseti 30 ára, Thomas Zimmermann háseti 20 ára, Eric Boellert háseti 18 ára, Peter Klitsch vélamaður 39 ára. Þeir eru allir þýskir. -BK Sjá nánar bls. 5 og baksíðu Skipbrotsmennimir á Hótel Esju í gær, laust eftir komuna til Reykjavíkur. Tímamynd Róbert Samgönguráðherra afturkallar aðgerðir flugmálastjóra: Tilkynntar ráðuneytinu eftir ad þær tóku gildi ÁTTA SÍÐNA BLAÐAUKI UM AKRANES FJÖLBREYTTfl OG BETRA BL RA m Fimmtudagur 3. nóvember 255. tölublað - 67. árgangu 1983 r „VIÐ ERUM ÞAKKUTIR” Tuddinn vildi ekki iáta slátra sér: FLÚÐI ÚT í LAGARFUÓT — náðist eftir mikinn eltingaleik ■ Egilsstaðabúar lentu í heil- miklum eltingarleik við mannýg- an tudda sem slapp út úr rétt við sláturhúsið þar í gær. Nautið stökk þar yfir grindur og gerði sig líklegt til að ráðast á nær- stadda menn en þegar fleiri komu þarna að lagði boli á flótta og tók strikið niður að Lagar- fljóti. Allmargir ráku flóttann að fljótinu en þar lagðist boli til sunds. Hann snéri þó fljótlega til sama lands aftur en þegar menn gerðu sig líklega til að handsama bola fór hann aftur út í fljót. Boli hélst þó ekki lengi við í vatninu og svamlaði aftur að iandi og var þá runninn af honum mesti móð- urinn. Hann var þá gripinn og fluttur aftur í réttina þar sem örlög hans voru ráðin. -GSH ■ „Samgöngumálaráð- herra er minn yfirmaöur og ég hlýði fyrirmælum hans, meira hef ég ekki um máiið að segja,“ sagði Pétur Ein- arsson, flugmálastjóri, í samtali við blaðið í gær, en samgönguráðuneytið gaf flugmálastjóra fyrirmæli um það í gærmorgun að draga til baka tilskipun um að ekki yrði ruddur snjór af flugvöllum eftir 1. nóvem- ber, nema þar sem flug- málastjórn ætti tæki til þeirra hluta og eldsneyti á þau en ekki yrði um viðhald á þeim að ræða né eldsneyt- iskaup. Sama átti að gilda um viðhald öryggistækja við flugvelli. í fréttatilkynningu sem sam- gönguráðuneytið sendi frá sér í gær um þetta mál segir að að- gerðir flugmálastjóra hafi komið ráðuneytinu algjörlega í opna skjöldu, enda hafi þær ekki verið tilkynntar ráðuneytinu fyrr en eftir að þær voru gengnar í gildi. Ráðuneytið hafði þá umsvifa- laust fyrirskipað að aðgerðimar yrðu dregnar til baka þegar í stað enda hefði þegar verið að skapast óviðunandi ástand í áætl- unarflugi innanlands. Jafnframt segir í fréttatilkynningunni að flugmálastjóri hefði rætt við sam- göngu- og fjármálaráðherra um rekstrarvanda flugmálastjórnar og í framhaldi af því hefði fjár- laga- og hagsýslustofnun verið falið að leita lausnar á vandanum og ynni hún að því nú. -JGK Sjá bls. 4.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.