Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.2000, Blaðsíða 22

Ægir - 01.09.2000, Blaðsíða 22
Myndir: Þórhallur Jónsson Hátíðleg móttökuathöfn er Vilhelm Þorsteinsson EA 11 lagðist að bryggju: Byltingarkennt fjölveiði- skip í íslenska flotann „Það er staðreynd að þrátt fyrir þær stórstígu breytingar sem átt hafa sér stað í íslensku atvinnulífi á undanförn- um áratugum er sjávarútvegur enn sem fyrr undirstöðu- atvinnuvegur þjóðarinnar og verður það væntanlega áfram um langa framtíð," sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja hf., við komu fjölveiði- skipsins Vilhelms Þorsteinssonar EA 11. hvort tveggja með því að hafa lagt í smíði þessa mikla og glæsilega skips, Vilhelms Þorsteinssonar EA 11. Við vonum og trú- um því að þessi mikla fjárfesting muni reynast félaginu farsæl," sagði Þorsteinn Már ennfremur frammi fyrir þúsundum gesta þegar hinu nýja fjölveiðiskipi fyrir- tækisins var fagnað á Akureyri þriðja degi septembermánaðar. Meðal viðstaddra voru Davíð Oddsson, forsætisráðherra, Valgerð- ur Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, Kristján Júlíusson, bæjarstjóri á Ak- ureyri og fjöldi framámanna í sjávarútvegi og viðskiptalífi. Vilhelm Þorsteinsson EA er fullkomið fjölveiðiskip, búið nýtxsku vinnslulínum hvort heldur er fyrir uppsjávarfisk eða botnfisk. Afkastageta skipsins í frystingu er um 120 tonn á sólarhring og burðar- „í þessari atvinnugrein eins og öðrum er nauðsynlegt að endurnýja atvinnutækin og laga sig að breyttum aðstæðum. Við hjá Samherja teljum okkur vera að gera Mikill mannfjöldi notaði tækifærið að skoða nýjasta skip flotans. Séð yfir togþilfar Vilhelms Þorsteinssonar. 22

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.