Skólavarðan - 01.05.2013, Blaðsíða 18
16
lífeyrismállífeyrismál
SKÓLaVarðan 1. tbl 2013
ert þú
á leið á
eftirlaun?
Ingibjörg Úlfarsdóttir.
Kennari þarf að huga að mörgu áður
en hann ákveður að hefja töku lífeyris.
Ótal spurningar vakna um lífeyrinn,
starfslokin og breytta aðild að KÍ og
hvort áfram sé hægt að sækja um í
sjóði KÍ. Hér verður fjallað um helstu
atriði sem kennarar velta fyrir sér þegar
kemur að þessum tímamótum.
HVenær getur Kenn-
ari Farið á LÍFeyri?
Innan KÍ eru margir hópar sem greiða
í mismunandi lífeyrissjóði, þó flestir
greiði í Lífeyrissjóð starfsmanna ríkis
ins (LSR) og Lífeyrissjóð starfsmanna
sveitarfélaga (LSS). Grunnskóla og
framhaldsskólakennarar eiga skyldu
aðild að LSR, en margir leikskóla og
tónlistarskólakennarar eru í LSS. Líf
eyrissjóðirnir halda utan um stöðu
sinna sjóðfélaga og hægt er að hafa
samband við þá til að fá upplýsingar
um persónulega stöðu sína eða sækja
um aðgang að sjóðfélagavef þar sem
hægt er að skoða stöðuna.
Það er mismunandi eftir lífeyrissjóðum
og deildum hvenær hægt er að hefja
töku lífeyris. Sjóðfélagar Bdeildar LSR
og LSS geta hafið töku lífeyris 60 ára
samkvæmt 95 ára reglunni, en 65 ára
samkvæmt almennu reglunni. Sjóð
félagar í A – deild LSR og A og V – deild
um LSS geta hafið töku lífeyris hvenær
sem er á aldrinum 60 til 70 ára og þurfa
ekki að vera hættir störfum þegar líf
eyristakan hefst. Þó ber að hafa það í
huga að hefjist taka lífeyris fyrir 65 ára
aldur kemur til skerðingar fyrir hvern
mánuð fyrir þann aldur. Ef sjóðfélagi
frestar töku lífeyris bætir hann hins
vegar við lífeyrisrétt sinn fyrir hvern
mánuð eftir að 65 ára aldri er náð.
HVað ÞarF að gera?
Sækja þarf sérstaklega um að fara á
lífeyri hjá þeim lífeyrissjóði sem síðast
var greitt til, eða þar sem sjóðfélagi
á mest réttindi, auk þess sem vinnu
veitandi fyllir einnig út starfslokatil
kynningu og sendir lífeyrissjóðnum.
Umsóknareyðublöð má nálgast á vef
lífeyrissjóðanna eða biðja um að fá
þau send í pósti. Greiddur er skattur
af lífeyrisgreiðslum eins og af launum
og því þarf lífeyrissjóðurinn einnig að
fá skattkort til þess að sjóðfélagi geti
nýtt persónuafslátt sinn hjá sjóðnum.
Afgreiðsla umsókna til lífeyrissjóðanna
tekur um fjórar til sex vikur og þeir
sem hafa verið á fyrirframgreiddum
launum halda þeim rétti þegar taka líf
eyris hefst.
Þegar grunn, framhalds, eða tónlistar
skólakennari hefur töku lífeyris skiptir
máli hvort hann var upphaflega sept
ember eða ágústráðinn. Ágústráðnir
segja upp fyrir 1. maí, septemberráðnir
fyrir 1. júní. Í þeim tilfellum þar sem
upphaf ráðningar miðast við skólaár
þá segir septemberráðinn kennari upp
fyrir 1. júní, en hefur enga vinnuskyldu
í ágúst og ágústlaun hans skulu vera
eins og skólaárið á undan.
Ellilífeyrir frá Tryggingastofnun ríkisins
Þeir sem eru orðnir 67 ára eiga mögu
lega rétt á ellilífeyri frá Tryggingastofn
un ríkisins og verður hver og einn að
sækja um hann sérstaklega til stofnun
arinnar. TR sendir öllum sem verða 67
ára bréf, ásamt eyðublaði fyrir umsókn
og tekjuáætlun. Þó að starfsmaður
haldi áfram að vinna eftir 67 ára aldur
á hann mögulega rétt á ellilífeyri, en til
skerðingar getur komið fari tekjur hans
yfir ákveðin mörk. Afgreiðslutími ellilíf
eyris er um fimm vikur eftir að öll gögn
hafa borist. Gott er að fara inn á vef
Tryggingastofnunar og skoða reiknivél
lífeyris, en hún gefur nokkuð glögga
mynd af mögulegum rétti til ellilífeyris
miðað við atvinnutekjur og/eða tekjur
úr lífeyrissjóði.
FéLag Kennara á
eFtirLaunum
Þegar kennari hefur töku lífeyris breyt
ist félagsaðild viðkomandi í KÍ. Kenn
arar á eftirlaunum, sem hafa fram að
töku lífeyris verið félagsmenn KÍ, geta
sótt um að verða félagar í FKE (Félagi
kennara á eftirlaunum). Félagar í FKE fá
senda Skólavörðuna og allan póst sem
sendur er út á vegum félagsins og geta
nýtt sér þjónustu Orlofssjóðs KÍ.