Tíminn - 02.08.1950, Blaðsíða 6
0
TÍMINN, miðvikudaginn 2. ágúst 1950
166. blað
TRIPDLI-BÍÓ
ÍSlóttug kona
Sýnd kl. 9.
Gullræning j aritir
Afar spennandi ný amer-
ísk kúrekamynd.
Aðalhlutverk:
Whip Wilson
I Andy Clyde
Sýnd kl. 5 og 7.
Bönnuð innan 14 ára.
I Sími 1182.
!
4 H—o — o — n — o — o^n — D —o — o — o—,« .
N Ý J A B í □
RaulSar rósir
(Roses are Red)
Ný amerísk sakamálamynd
spennandi og viðburðarík.
Aðalhlutverk:
Don Castle
Peggy Knutsen
Patricia Knigth
Aukamynd:
Holland og nýlendur þess.
(Marc of Time.)
Bönnuð börnum yngri en
16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Sendiboði
himnaríkis
(Heaven Only Knows)
Mjög spennandi og sér-
kennileg ný amerísk kvik-
mynd er fjallar um engil í
mannsmynd, sem sendur er
frá Himnaríki til jarðarinn-
ar og lendir þar í mörgum
hættulegum og skemmti-
legum ævintýrum.
Aðalhlutverk:
Robert Cummings,
Brian Donlevy,
Marjorie Reynolds.
Bönnuð börnum innan 16 ára
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Blmi lilN
1 ræningjahöndum
Afar taugaæsandi saka-
mynd. Aðeins fyrir sterkar
taugar.
Aðalhlutverk:
Jack La Rue
Hugh Mac Dermott
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Erlent yfirlit
(Framhald af 5. sUSu.)
um nazista. Af 136 þingmönn-
um jafnaðarmanna hafa 85 ver
ið ofsóttir af nazistum. Svipaðar
tölur má greina frá fylkisþing-
unum. 1 hópi þeirra þingmanna,
sem ekki hafa orðið fyrir ofsókn
um, er einkum að finna konur
og unga menn, sem ekki hafa
komið fram á sjónarsviðið fyrr
en eftir styrjöldina. Af þeim
ástæðum slapp þetta fólk við
ofsóknir nazista, en ekki vegna
þess, að það væri þeim hlið-
hollt.
Andstæðingar nazista
áhrifamiklir.
Sé litið í heild yfir þessi mál,
verður ekki annað sagt en að
aðstaða þeirra, sem voru and-
stæðingar nazista, sé nú sterk
í Þýzkalandi. Þetta er þeim
mun eftirtektarverðara, þegar
þess er gætt, að lýðræðisflokk-
arnir misstu ýmsa fremstu
leiðtoga sína á valdatímum
nazista. Margir þeirra féllu fyr-
ir böðulshendi þeirra. Einkum
cr það áberandi í jafnaðar-
mannaflokknum, að þar hafa
þeir menn tagl og hagldir, sem
voru í harðri andstöðu við haz-
ista. í engum flokki ber líka
öllu meira á þjóðræknisstefnu
og engir hafa ákveðnar en leið-
togar jafnaðarmanna mótmælt
þeirrí kenningu, að þýzka þjóð-
in í heild beri ábyrgð á styrj-
öldinni og sé samsek nazista-
foringjunum. Leiðtogi þeirra er
flokksformaðurinn Schuma-
cher, sem sat 11 ár í fangabúð-
um og aldrei vildi þiggja frelsi
gegn því skilyrði, að hann hætti
öllum afskiptum af stjórnmál-
um. Menn með slíka fortíð —
og þeir eru margir — eru skilj-
anlega ekki fúsir til þess að
láta færa syndir nazista á
reikning sinn eða þýzku þjóð-
arinnar.
'Utbreiíii 7wanH
TJARNARBID
■
Orlagaf jalllð
(The Glass Mountain)
Skemmtileg og vel leikin
nú ensk mynd. í myndinni
syngur m. a. hinn frægi
ítalski söngvari Tító Gobbi.
Aðalhlutverk:
Michael Denison
Dulcie Gray
Tito Gobbi.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Sala hefst kl. 1 e. h.
4...----------
GAMLA BÍ□
Dagdraumar
Walters Mitty
Hin bráðskemmtilega gam
anmynd í eðlilegum litum.
Aðalhlutverk:
Skopleikarinn óviðjafnlegi,
Danny Kaye
og hin fagra
Virginia Mayo
Sýnd kl. 5. 7 og 9.
Viðhorfifi til
nazismans.
(Framhald aj 5. slðu.)
skiptaleysið verður látið ráða
í skiptum við kommúnism-
ann.
Það er ekki sú barátta, sem
háð er með byssustingjum og
öðrum slíkum vopnum, er
mestu skiptir í þessu samb.
Hefði í tæka tíð verið vakin
nógu öflug andúð gegn yfir-
ðrotnnunarstefnnu nazista,
myndi hún að öilum líkind-
um hafa bognað, án íhlutun-
ar vopnanna. Hefði engin
Miinchensáttmáli eða þýzk-
rússneskur griðasáttmáli ver-
ið gerður, en nazismanum
verið mætt með samhentri
og skipulegri mótspyrnu,
myndi hann hafa orðið að
láta undan síga strax í upp-
hafi. Það var afskiptaleysið
og hlutleysið, sem gaf honum
byr í seglin.
Þess vegna má engin vera
FURIA
Heimsfræg ítölsk stórmynd
um öra skapgerð og heitar
ástríður.
Aðalhlutverk:
Isa Pola
Rossano Brassi
Gino Cervi
Bönnuð yngri en 16 ára
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
< i-.—>
BÆJARBÍD
HAFNARFIRÐI
Himna bmiin
Áhrifamikil ensk kvik-
mynd frá síðustu heims-
styrjöld.
Aðalhlutverk:
Múlvel Redwart
John Mills
Sýnd kl. 7 og 9.
Sími 9184.
!______—J
hlutlaus og afskiptalaus í
þeirri baráttu, sem háð er um
friðinn og frelsið í heimin-
um í dag. Það væri að bjóða
heim enn meiri háska og ógn
um en þeim, sem hlutust af
undanlátsseminni við naz-
ismann á sinni tíð. X-|-Y.
Lækningastofa
mín verður i Túngötu 5
Viðtalstími kl. 5—6 e. h.
Laugardaga kl 1—2 e. h.
Sími 4832
Heimasími 5326
Sérgr. Bæklunarsjúkdómar
Haukur Kristjánsson
læknir
Köld borð og heit-
ur matur
aendum út um allan bæ.
SlLD & FISKUR.
3 JOHH KHITTEL:
1 FRÚIN Á
GAMMSSTÖÐUM
-------------- 69. DAGUR ----------------------
Teresa starði hrædd og forviða á eftir honum. Hún hafði
starað framan í hann ,meðan hann talaði, og séð, hvernig
kvölin speglaðist í andlitsdráttum hans. Þegar hann sagðist
hata lífið, var eins og ofurþungri byrði væri skyndilega varp-
að á herðar henni. Ofsi hans lagðist á hana eins og farg.
Nú sá hún skaphöfn hans skyndilega í nýju ljósi. Og hann
hafði ekki sagt þetta í snöggri geðshræringu. Þannig var
Gottfreð Sixtusi í raun og veru innan brjósts. En hvers vegna
hafði hann hlaupið svo skyndilega brott? Henni fannst hann
vera sér fjandsamlegur, og þó skynjaði hún hina heitu ást
hans bak við orð hans og gerðir. Og sjálfum fannst honum
húnahafa verið óvingjarnleg í framkomu sinni.
Það fór allt í einu hrollkenndur skjálfti um hana, og illur
grunur um geigvænlega hluti rak hana inn til manns síns.
Hann svaf. Henni létti dálítið við það. Nokkrum klukku-
tímum síðar kom Gottfreð aftur, og þá sagði hann hirðu-
leysislega, að hann ætlaði að vera kyrr fyrst um sinn. Hann
vænti þess, að hún reyndi að gera honum dvölina skemmti-
lega, og hann stakk upp á því, að þau gengju dálitinn spöl
inn í hlíðarnar við og við, þegar hún mætti vera að þvl.
Hún lofaði þvi mótbárulaust — þagði og kinkaði aðeins
kolli. En þögn hennar var eins og tjáning um grun hennar.
Hún var hrædd við Gottfreð Sixtus, en hana brast kjark
til þess að segja það hreinskilnislega.
XVIII.
Litlu síðar hófust daglegar gönguferðir þeirra Gottfreðs
og Teresu.
— Hvernig getur fólk lagt okkur það tii lasts? sagði Ter-
esa. Þetta er ekkert öeðlilegt.
Engum, sem þekktu þau, þóttu þessar gönguferðir ein-
kennilegar. En smám saman urðu gönguferðirnar lengri og
lengri. Þau fóru fyrst aðeins spölkorn upp i hlíðina, komu
heim eftir fimmtán mínútur. Brátt kom þar, að þau voru
marga klukkutíma að heiman. Teresa minntist aldrei á vax-
andi ótta sinn. Hún var samt mjög hrædd og kviðin. En hún
óttaðist ekki um sjálfa sig, og samband þeirra Gottfreðs olli
henni ekki hugarangri. En hún var hrædd um mann sinn,
og hún var hrædd við mann sinn. Af einhverri ástæðu nefndi
hún aldrei við hann þessar gönguferðir.
Oftar en einu sinni sagði Anton Möller við hana: Ég hefi
beðið þín í meira efi klukkutíma.
En Teresa hafði alltaf einhverja afsökun á takteinum.
Hún hafði skroppið til konu Biihlers, hún hafði verið að
horfa á snjóhengju, sem hrapaði úr Gammi, hún hafði orð-
ið fyrir töfum niðri í þorpinu.
— Farðu ekki út* án þess að láta mig vita, sagði Anton
Möller. Mér er rórrá, ef ég veit, hvar þú ert.
— Já, Anton.
Og nú breytti hún um aðferð. í stað þess að afsaka brott-
veru sína eftir á, f-ánn hún nú upp alls konar tylliástæður
til þess að fara að heiman.
— Hvers vegna gr ég síljúgandi? sagði hún við sjálfa sig.
Ég get eins vel sagt honum sannleikann.
Á einni af þessum gönguferðum fór Gottfreð að tala við
hana um það, hversu mikils virði það væri að vera frjáls
og sjálfstæður maður, engum háður — sterkur og ósveigjan-
legur maður, ólíkur öllum öðrum. Það er æðsta keppikefli
mannsins að verá. 'írjáls, sagði hann — frjáls í hugsun og
athöfn, og geta farið sínu fram í trássi við alla aðra.
Teresa hlustaði fúslega á orð hans. Gáfur og skarpskyggni
Gottfreðs efaði hún ekki, og hún trúði öllu, sem hann sagði,
því að hún vildi trúa þvi. Samt hlustaði hún fremur eftir
hljómfallinu og bl.æbrigðum raddarinnar en orðum hans.
Orð Gottfreðs létu eins og söngur i eyrum hennar, og sá
söngur endurómaðt .í sál hennar. Hún var hinn yndislegi
akur, frjór og ósnortinn, og djöfullinn gat ekki fundið betra
sáðland. ! 'v
Lifsþrótturinn gffeistaði í augum hennar, og sá lífsþróttur
þekkti hvorki hieypidóma né ófrávíkjanleg lög. Örvænting-
in, sem ríkti í sál hins unga manns, vakti óhugnanlegan
fögnuð í huga hennar.
En þrátt fyrir allt var Gottfreð ekki sælli en áður. Hvers
hafði hann vænzt af Teresu? Hafði hann ekki þegar eign-
azt allt, sem hann gat gert sér vonir um að eignast? Hann
taldi sig sjálfan siðlátan mann og gædda-n sterkum vilja.