Alþýðublaðið - 22.10.1947, Page 8
ALÞfÐUBLAÐIÐ
vantar fullorðið fólk og ung-
linga til að bera blaðið í
þessi hverfi:
Njálsgötu
Seltjarnarnes.
Talið við afgr. Simi 4900.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
vantar fullorðið fólk og ung-
linga til að béra blaðið í
þessi hverfi:
Kleppsholt
Talið við afgr. Sími 4900.
Danskur frygginga-
fræðingur ræðir við
Tryggingast. ríkisins
DR. P. L. BORBERG heit
ir danskur tryggingafræð-
ingur, sem nú dvelst hér til
viðræðna við Tryggingastofn
un ríkisins. Er hann að semja
um það, að sjúkratryggingar.
hér og í Danmörku verði sam
ræmdar, svo að þeir, sem
fiytjast milli landanna, geti
haldið tryggingu sinni.
Sarnningar um þetta atriði
hafa verð í gildi milli ís-
lands og Danmerkur frá
1939, en nú vexður að endur-
skoða þá vegna nýju trygg-
ingalöggj af arin nar.
Drengir valda slysi
með „kínverja".
SÁ ATBURÐUR gerðist
hér í bænum fyrir skömmu,
að stálpaður drengur henti
„kínverja“ að aldraðri konu
með þeim afleiðingum, að
konan varð heyrnarlaus á
öðru eyra, er ,,kínverjinn“
sprakk. Hafði hljóðhimnan
rifnað við sprenginguna.
Þá skeði það og, er börn
voru að leik við Hverfisgötu
og Vitastíg, að drengur varp
aði „Kínverja“ að leikfélaga
sínum; sprakk „Kínverjinn“
við hnakka drengsins er fyr-
ir árásinni varð með þeim af-
leiðingum, að hár allt sviðn-
aði upp að hvirfli og skinn-
bruni varð á hálsinum.
Ættu atvik þessi að vera
næg ástæða fyrir því, að
banna sölu á „:kínverjum“,
enda munu þeir í engu hafa
nein bætandi uppeldisáhrif á
börn éða unglinga, og því al-
gerlega ónauðsynlegt leik-
fang.
Ný rafsföð é Fiafeyri
Frá fréttaritara Alþýðu-
blaðsins, FLATEYRÍ,
VERIÐ er að setja niður
nýjar rafvélar í rafstöð Flat
eyrarhrepps. en jarðstreng-
ur var lagður um þorpið i
fyrrasumar.
Vélar þessar eru samtals
100 kílówött, en fyrir voru
25 kílówatta vélar, og á nú
að vera hægt að framleiða
rafmagn til ljósa, suðu,
smærri iðnaðar og að ein-
hverju levti til hitunar.
En nú er helzt útlit fyrir
að engin itæki fáist. til þess
að nota þetta rafmagn. Veld
ur það bæði rafstöðinni fjár
hagslegum erfiðleikum og að
sjálfsögðu er það til mikilla
óþæginda fyrir almenning,
að geta ekki notáð sér þessi
þægindi.
Frá fréttaritara Alþýðu-
! blaðsins, FLATEYRÍ.
Myndin sýnir bifrsið, sem er að.fara um borð í pólska mótor-
skipið „Batory“ í New York og á að fara til Póllands. Bifreiðin
ekur inn í gegnum skipshliðina.
Siicién er foyrj&stl að veiðast á i€©Slafirliia
--------------------------«----------
SÍLDIN ER NÚ BYRJUÐ AÐ VEIÐAST á Kollafirði.
Hafa n-okkrir bátar lagt þar net sín og síÖdegis í gær lögðu
bátar frá Reykjavík net hér á Rauðarárvíkmni til reynslu. I
fyrradag fékk vélbáturinn Böðvar frá Akranesi 15 tunnur af
síld á Kollafirði, og nokkrir aðrir bátar urðu síldar varir í
Faxa-flóa og fengu sumir frá 1—2 körfur í togi.
Síðdegis í gær fóru tveir
bátar frá Reykjavík og einn
frá Akranesi upp í Kollafjörð
og lögðu net sín þar og munu
þeir hafa vitjað um þau aftur
•í morgun. Enn fremur lögðu
„Hekla" flýgur
milli'N. Y. og París.
nokkrir bátar net á Rauðarár-
víkinni síðdegis í gær og munu
þeir einnig vitja um í dag, svo
að ekki er enn vitað um, hvort
nokkuð að ráði er komið
þangað af síld.
I Hafnarfirði veiðist síldin
ennþá, en veiðin var fremur
treg í gær og í fyrradag. Þó
var hún öllu betrd í fyrradag
og fengu þá sumir af róðrar-
bátunum frá 3—4 tunnur af
síld.
Á Vestfjörðum veiðist síld-
jn 'daglega, og í fyrradag fékk
Úugixin II. allmikið af síld á
ýsafjarðardjúpi. Enn. fremur
eru bátar yið síldveiði á
Leirufirði og víðar um Jökul-
firðina.
Eins og áður hefur verið
getið, hefur síldin að miklu
leyti verið fryst til beitu, en
nú h-efur fyrsti farmurinn far-
ið norður til Siglufjarðar til
bræðslu og fór „Grótta“
þangað í fyrradag með um
1600 mál síldar. Og erm frem-
ur er vélbáurinn Einir um
HEKLA skymasterflugvél
Loftleiða lagði af stað frá
New York til Reykjavíkur
kl. 7 í gærmorgun og væntan
leg hingað seint í gærkvöldi
og átti að leggja af stað kl.
12 á miðnætti til París.
Þar tekur flugvélin 35—38
farþega og fer mað þá til New
York með viðkomu í Reykja
vík.
---------$----------
Lík Sverrís Jónasson-
ar fundið.
í FYRRADAG sást lík á
floti við vestari bryggjuna í
Hafnarfirði. Við rannsókn
kom í Ijós, að þetta var lík
Sverris Jónssonar, sjómanns,
frá Bændagerði við Akureyri,
er hvarf af vélbátnum „Ár-
sæli Sigurðssyni“ í fyrra mán
uði.
þessar mundir að lesta síld á
Isafirði og var í gær búinn áð
lesta á fjórða hundrað mál.
Naumasti mjólkurskammíur á
andinu er nú í Vestmannaeyjum
•--------------------
Börra innan 6 ára fá fiátfan ííter, börn 6
til 12 ára fjófSung líters, a'ðrir ekkert.
---------------------------<$---------.
Frá fréttariíara AlþýSublaðsins. VESTMANNAE'á JUM í gær.
MJÖG IVIIKILL mjólkurskortur er nú í Vestmannaeyjum
og er skömmtunin þar svo. ströng, að börn innan 6 ára fá
hálfan líter á dag, börn 6—12 ára kvartlíter og aðrir ekkert,
og er þetta án éfa n-aumasti mj ólkurskammtur á landinu. Staf-
j ar mjó'ikuxskortur þessi meðal annars af því, að mjólk hefur
ekki fengizt frá. fastalndinu, og kom það fram á bæjarstjórn-
arfundi hér fyrir nokkru, að mjólk muni ekki fást/fyi’r en.
Reykvíkingar leyfðu.
Undanfarið hefur nefnd
fjallað um mjólkurmál Vest
manneyj a, og var lögð fram
skýrsla frá henni á bæjar-
stjórnarfundinum. Var þar
mikið rætt um bót á mjólkur
I skortinum, og sagði bæjar-
stjóri sínar farir ekki sléttar
í sambandi. við útvegun á
mjólk frá fastalandinu. Sagð
ist hann hafa staðið í allmikl
utn bréfaskiptum við þá að-
I ila, sem um þessi mál fjalla,
! og fékk hann þau svör, að
engin mjólk fengist, fyrr en
Reykvíklngar leyfðu. Þá var
hljóðið í forseta bæjarstjórn
arinnar ekki skárra, og sagði
hann, að ef orðinu hallaði við
mjólkurframleiðendur í Eyj
um, hótuðu þeir jafnan að
drepa allar kýrnar.
Að lokum var samþykkt,
að bæjarstjórn beitti sér fyr-
ir því, að fá einn þingmánn
úr hverjum flokki til þess að
bera fram tillögu þess efn-
is, að Vestmanneyjar yrðu
teknar inn á mjólkurverðlags
svæði Reykjavíkur og Hafnar
fjarðar. Verði slík tillaga sam
þykkt, ætti það að vera fyr-
irbyggt, að Mjólkursamsalan
í Reykjavík neiti að afgreiða
mjólk til Eyja, eins og átt hef
ur sér stað.
Vestmanne3Tingar munu
hafa orðið að kaupa hey fyr-
ir kýr sínar alla leið norðan
af Akureyri.
--------«---------
AuraselsmáliS
úr sögunni
DÓMSMÁLARÁÐUNEYT-
IÐ hefur látið svo um mælt,
að rannsókn hins svonefnda
Auraselsmáls, bendi til, að
atburðir þeir, sem kærðir
voru, munu ekki hafa gerzt,
og verði því frekari aðgerðir
í málinu látnar niður falla.
—----«-----
TRUMAN Bandaríkjafor-
seti hefur boðað 'helztu ráðu-
nauta sína o.g leiðtoga hinna
tveggja stóru stjórnmála-
flokka á nýja ráðstefnu í
Washington á fimmtudaginn
til þess að ræða efnahagsá-
stand Evrópu og hjálparþörf
hennar.
íslenzkur læknanemi
fær sænskan sfjórn-
arsiyrk.
SENDIRÁÐ SVÍA í Reykja
vík hefur skýi't menntamála
ráðuneytinu frá því, að
sænska ríkisstjórnin hafi á-
kveðið að veita íslendingi
styrk, að fjárhæð 2.350, —•
sænskar krónur, til háskóla-
náms í Svíþjóð skólaárið
1947-8. Jafnframt var beiðst
tillagna um, hver hljóta
skyldi styrkixxn.
Að fengnum meðmælum
háskólaráðs, þefur ráðuneyt-
ið lagt til, að Ándrés Ásmunds
syni, sem nemur læknisfræði
í Stokkhólmi, verði veittur
styrkurinn.
íslendingar með-
limir í 8 sérsfofn-
unum SÞ.
----O---
ÍSLENDINGAR eru nú
meðlmir í átta stofnunum,
sem starfa á vegum samein-
uðu þjóðanna. Stofnanir þess
ar eru: ILO. alþjóða verka-
málasambandið; FAO, al-
þjóða matvælasambandið;
ICAO, alþjóða flugmálasam-
bandið, alþjóða viðreisnar-
bankinn; alþjóða sjóðurinn;
IRO, alþjóða flóttamanná-
stofnunin; alþjóða póstsam-
bandið og alþjóða símasam-
bandið.
Hins vegar eru íslending-
ar ekki í UNESCO menning
armálastofnun sameinuðu
þjóðanna, ekki í heilbrigðis-
málasambandinu og ekki í
undirbúningsnefnd viðskipta
sambands.
Talið er að enn geti kömið
til þess að Bandaríkjaþixxgið
verði kallað saman á auka-
fund í haust um Evrópuhjálp-
ina.