Tíminn - 19.08.1964, Síða 6
1
Sígursveinn D. Kristinsson kennir börnunum blokkfiautuleik
Fötluð börn í sumardvöi
Að Reykjadal í Mosfellssveit börn. Þar er þeim búin sumardvöl
dveljast nú 45 lömuð eða fötluð frá 18. júlí til 31. ágúst, og þar
NYTT GRILON MERINO GARN ER
KOMIÐ Á MARKAÐINN. ÞAÐ
HLEYPUR EKKI, ER MÖLVARIÐ
OG HVER HESPA ER NÚMERUÐ
SEM GEFUR LITARÖRYGGI.
GAMLA GÓÐA SLITÞOLIÐ.GEFJUN
fá þau margvísléga þjálfun til
líkamlegrar og andlegrar styrk-
ingar.
I>valarheimilið er rekið af
Styrktarfélagi lamaðra og fatl-
aðra. Heimilið tók til starfa í
fyrrasumar, en viðbótarbygging,
sem félagið lét reisa við húsa-
kynnin í Reykjadal, var gerð fok-
held þá og tekin í notkun á sumr-
inu. Þá voru 40 börn í Reykjadal.
Ætlun félagsins er að stofna þar
heimavistarskóla fyrir fötluð börn
og veita þeim líkamlega þjálfun
og munnlega kennslu, Slíkur skóli
mun ekki geta tekið við jafnmörg-
um börnum og nú dveljast í
Reykjadal, en félagið mun gang-
ast fyrir símahappdrætti í haust
til að lyfta undir nauðsyiRegar
framkvæmdir. Hapí)drájttl|:nið-
arnir> verða seldir^tfi'ánAlosaptem-
ber.
Svafar Pálsson formaður styrkt-
arfélagsins bauð fréttamönnum að
skoða dvalarheimilið s.l. mánudag
og kynnast starfsemi þess. Matt-
hildur Þórðardóttir skrifstofu-
stjóri fylgdi okkur þangað og
börnin heilsuðu henni glaðlega,
þegar við stigum út úr bifreið-
inni. Þau voru að leik á grasflöt-
inni fyrir sunnan húsið, sum léku
sér með bolta eða nutu þess eins
að vera úti í góðu veðri og hreyfa í
sig. Nokkrir strákar voru að tusk-
ast á flötinni. Magnea Hjálmars-
dóttir, forstöðukona heimilisins
og hjálparstúlkur hennar, voru
að líta eftir börnunum og inni í
vistlegri stofu hittum við sund-
kennarann, Friðrik Jónasson og
Sigursvein D. Kristinsson, sem
hefur komið að Reykjadal á hverj-
um degi í hálfan anpan mánuð og
kennt börnunum söng, nótnale.st-
ur og blokkflautuleik. Sigursveinn
hóf kennsluna að eigin frum-
kvæði, og hann hefur náð undra-
verðum árangri, eins og við urð-
um síðar áskynja.
Nseí' hélfti'fh'éur'HBáínlánná fær
sjúkraþjálfun samkvæmt læknis-
ráði, en dönsk stúlka, Vibekke
Hesselholt, annast þjálfunina.
Börnin læra öll sund, enda eiga
þau tiltölulega auðveldara með
hreyfingar í vatni en á þurru.
Sundlaugin var byggð í vor, en í
fyrra var notazt við plastlaug. Við
sáum nokkur barnanna fara ofan
í og synda, en kennarinn leið-
beindi þeim. Bersýnilega áhuga-
samir og góðir nemendur. Auk
þ^ssa fá börnin tilsögn í föndri
hjá forstöðukonunni, Magneu
Hjálmarsdóttur.
Eftir heimsóknina að lauginni
drukkum við kaffi, sem mat-
ráðskonan, Ásgerður Jónsdóttir,
hafði framreitt handa okkur, en
Sigursveinn D. Kristinsson hafði
lofað okkur sérstjfeðri skemmtun
undir borðum. Hann kom akandi
í hjólastól sínum inn í borðstof-
una og í fylgd með honum níu
börn, þau sem lengst eru komin í
blokkflautuleik. Þau röðuðu sér á
bekk og munduðu flauturnar, en
Sigursveinn lagði nótnablöðin á
borðið fyrir framan þau. Svo hófst
leikurinn. Sigursveinn taldi eða
sló taktinn í borðið en börnin spil-
uðu Frjálst er í fjallasal, Ó, fögur
er vor fósturjörð og fleiri lög.
Þetta var einstæður kon?ert. Sum
litu varla á nóturnar en spiluðu
eins og snillingarnir og fataðist
hvergi. Áheyrendur klöppuðu á
eftir hverju l.agi eins og vera ber
á konsertum.
Sigursveinn kvaðst hafa um 20
nemendur í blokkflputuleik þarna
á heimilinu. — Árangurinn, sagði
hann, er meðal annars því að
þakka, að börnin fá daglega til-
sögn og hafa þá ekki tíma til að
gleyma því, sem þau hafa lært,
eins og oft vill brenna við. Sum
eiga dálítið örðugt með handa-
stjórn, en leikurinn1 æfir fing-
urna og það er sjúkraþjálfun út
af fyrir sig. Kannski eru í þess-
um hópi upprennandi tónlistar-
menn, sem eiga éftir •eðimá langt
á þeirri .bjráut- .—.;SÓÁ i
ViS laugina í Reykjadal.
TÍMINN, miðvikudaginn 19. ágúst 1964 —