Tíminn - 19.08.1964, Side 15
FRÉTTIR AF LANDSBYGGÐINNI
ÞB-Kópaskeri, 18. ágúst.
Fyrri slætti er alls staðar lokið
hér í kring og nýting heyja hefur
verið mjög góð. Nokkrir voru
byrjaðir á seinni slætti, en nú
hefur tíð breytzt, þó ef til vill sé
ekki hægt að segja, að komin
sé ótíð. í morgun var hér aðeins
tveggja stiga hiti, en ekki snjóaði
eins og á Siglufirði, 'enda fjöllin
ekki há.
Menn hafa talað um það hér, að
þeir muni ekki jafnmikinn mun
Á júlí-mánuði eins og hann var í
sumar og svo í fyrrasumar, en
þá var með eindæmum kalt og
slæm tíð. í sumar var aftur á
móti hlýtt og ágætis tíð.
FZ-Hóli, Svarfaðardal, 18. ágúst.
Sumarið hefur verið gott og hey
skapur mjög vel á vegi, enda hef
ur veður verið sérlega hagstætt,
en þó hefur verið nokkuð skúra-
samt í dalbotninum. Hey hafa yfir
leitt ekki hrakizt heldur náðst
Lézt í gær
EJ-Reykjavík, 18. ágúst.
Síra Jósef Hacking, prestur í
Landakoti, andaðist í morgun, 45
ára að aldri. Hann hafði legið á
Landakotsspítala undanfarna sex
mánuði. Hacking var hollenzkur
að ætterni, en hafði dvalizt hér á
landí í éin 18 ár.
ÍÞRÓTTIR
Framhald af 5. síðu.
— eins og góðum fyrirliða sæmir
— tókst með góðum spretti að
vinna upp muninn og sigra. Tími
3:06.8 mín gegn 3:07.1 mín.
Það kom mjög á óvart, að Bret-
inn Alsop sigraði í þrístökki og
setti brezkt met — en þess má
geta, að Schmidt keppti ekki.
MINNINC
Framhald af 12. síðu.
bóxidi á Hraunum, kvæntur Rósu
Pálmadóttur, Sigurvaldi Sigurður,
pípulagningamaður í Kópavogi,
kvæntur Guðbjörgu Björgvinsdótt-
ur, Steinunn Jósefína, býr í
Reykjavík, gift Baldri Kristian-
sen pípulagningameistara, Sigur-
björg Sigríður, húsfreyja á Öxl
í Þingi, gift Svavari Jónssyni
bónda, Jón Unnsteinn, pípulagn-
ingamaður í Silfurtúni, kvæntur
Elínbjörgu Kristjánsdóttur, Fríða
Klara, búsett í Kópavogi, gift Páli
Valmundssyni bílstjóra.
Og nú kveð ég þennan vin minn
frá æskuárunum, hinztu kveðju
tneð kærum þökkum fyrir öll okk
ar samskipti. Ég veit, að öllum
samferðámönnum hans mum fara
eins og mér, að hugsa hlýtt til
hans að leiðarlokum og finna, að
þar er góður maður genginn.
Konu hans, börnum og ættingj-
iim öllum, sendi ég innilegar sam-
fiðarkveðjur.
Guðm. Tryggvasca.
inn og spretta hefur verið vel í
meðallagi í sumar, og ekkert kal
var í túnum í vor eftir góðan
vetur.
Framkvæmdir í byggingamálum
eru ekki mjög miklar í ár. Verið
er að byggja tvær hlöður og eitt
fjós, en íbúðarhús eru engin í
byggingu, en þau eru líka yfirleitt
í góðu ásigkomulagi, aftur á móti
vantar nokkuð af útihúsum. Nokk
uð er um nýræktir, og bæta menn
alltaf dálitlu við á hverju ári, þó
það sé mismikið.
Veðráttan hefur leikið við land
búnaðinn og margir bændur eru
búnir að hirða fyrri slátt og sum-
ir byrjaðir að. slá aftur.
FZ-Hóli, Svarfaðardal, 18. ágúst.
Hestamannsfélagið Hringur hélt
kappreiðar síðasta sunnudag hjá
Ytra Garðshorni og voru þær
vel sóttar. Þetta er í þriðja eða
fjórða skiptið, sem félagið efnir
til kappreiða, enda er mikill áhugi
ríkjandi um hestamennsku meðal
yngri sem eldri manna hér í
kring.
Mesti góðhesturinn í góðhesta-
keppninni var Jarpur, Ármanns
Gunnarssonar á Dalvík, en þarna
fór fram góðhestakeppni auk þess
sem keppt var í brokki, tölti,
skeiði og stökki. Kappreiðarnar
fóru fram á túni, en nú er verið
að byrja á skeiðvelli á vegum
félagsíns.
AS-Ólafsvík, 18. ágúst.
Heyskapur hefur gengið vel, en
ágúst breytti öllu um gang hans,
enda hefur það sem liðið er af
ágúst, verið sérlega gott. Geysi-
mikil umferð hefur verið hér af
ferðamönnum, einna líkast því,
sem er í Austurstræti. Fólk fer
mikið hringinn fyrir Qlafsvíkur
Ennið, og nú bætist berjafólkið
við ferðamennina, og er mikið af
því, þar sem alltaf er mikið um
ber á Snæfellsnesi.
HREINDÝRIN
Framnald af 1. síðu.
sem veiðitíminn er þegar byrjað-
ur, og' verður veiðileyfum því út-
hlutað eins og venjulega. Aftur
á móti bendir allt til þess, að hrein
dýrastofninn hér fyrir austan
verði algjörlega friðaður á næsta
ári, — sagði Egill Gunnarsson,
hreindýraeftirlitsmaður.
Forsætisráðh. ræddi
við Johnson
Johnson forseti tók á móti for
sætisráðherra Bjarna Benedikts
syni á hádegi í dag í Hvíta húsinu.
Forsetinn þakkaði hlýjar móttök
ur á s. 1. hausti, lét í ljós aðdáun
sína á íslenzku þjóðinni og kvaðst
meta mikíls vináttu íslendinga.
Forsætisráðherra þakkaði vinsam
leg ummæli, og þann sóma sem
íslandi væri sýndur. Forsetinn
og forsætisráðherra ræddust við
í hálfa klukkustund, og snérust
viðræður þeirra um almenn mál.
Thor Thors ambassador var í för
með forsætisráðherra.
Utanríkisráðherra í
Helsingfors
íslenzku utanríkisráðherrahjón
in komu í opinbera heimsókn til
Helsingfors laust eftir kl. 11 í
dag. Ainbassador Árni Tryggva
son og frú voru með í förinni.
Á flugvellinum tóku á móti þeim
Hallana utanríkisráðherra, amb-
assador Finna á íslandi og fleiri
háttsettir embættismenn. ^ Utan-
ríkisráðherra Guðmundur í. Guð-
mundsson átti viðtal við frétta-
menn útvarps og blaða við kom-
una. Eftir borðhald ræddi utan-
ríkisráðherra við Hallana utan-
rikisi'áðherra, Ottinen varaforsæt
isráðherra og Mattila viðskipta-
málaráðherra. Siðan var farið í
hringferð um Helsingfors.
Traktorarnir eru 200
Sú villa slæddist inn í blaðið í
gær að tegundai'heiti traktorsins
er getið var um á baksíðunni, var
sagt vera Farmall 200 B 414, en
á að vera Farmall B 414, Aftur
á móti er þetta tvöhundraðasti
ti'aktorinn af þessari gerð sem
Véiadeild SÍS hefur selt. Leið-
réttist þetta hér með, og eru hlut
aðeigendur beðnir velvirðingar á
mistökunum.
VIRKJUN LAXÁR
Framhald af 16. siðu.
áfanga virkjunar Laxár við Brúar,
en heildarvirkjun Laxár yrði full
nýtt á árunum 1985—1990 og tel
ur Sigurður ólíklegt, að hægt
verði að fullnægja orkuþörf Norð
ur- og Austurlands ódýrar en við
Brúar, ef virkjað er fyrir al-
pienningsnotkun eingöngu.
LANGT í HRINGVEG
Framhald af 1. síðu.
ará, væri sagan önnur. Rey.islan
hefur sýnt að hlaup kemur í ána
á fjögurra ára fresti, og öll sól-
armerki benda til þess að hlaups
ipeei vægta í. ár eða snernma á
næsta ári. Þegar hlaup er í ánni,
belja þar fram þetta 10—15 þ/s-'
und rúmmetrar af vatni, og þau
mega vera sterk mannvirkin, sem
þola eiga allau þann beljanda.
Það virðist því ekki fyrirsjáan-
legt, að fslendingar geti farið
landveg allt í kringum landið í
næstu framtíð, en sem tilbreyt-
ingu frá hinum venjulegu þjóð-
vegum má benda á Sprengisands-
leið norður í land.
SYSTIR UASTRO
Framhald af 1. síðu.
bróðir hennar Castro, vissi um,
hvers konar starfsemi hún ræki,
en skorti allar sannanir. Hún neit-
aði hins vegar afdráttarlaust, að
bandaríska leyniþjónustan hefði
hjálpað henní til að komast brott
frá Kúbu.
Þá sagði ungfrúin, að um 400.
000 manns hefðu flúið frá Kúbu,
síðan Castro, bróðir hennar, kom
til valda og í fangelsum á Kúbu
sætu nú milli 70 og 80 þúsund
pólitískir fangar. Það ríkir enn
ógnaröld á Kúbu og skotum er
hleypt af sagði Juanita Castro í
lok blaðamannafundarins.
BORGARSTJÓRNARMENN LAXASEíÐI
Framhald af 2. síðu.
undir borginni frá járnbrautar
stöðinni inn í miðborgina, og ráð
gert er að síðar verði aukið við
og tengist kerfið þá neðanjarðar
brautum, sem fyrir eru á stöðvum
við Majorstue eða Þjóðleikhúsið.
Sá áfangi neðanjarðarbrautarinn
ar, sem nú er unníð að og fullbú-
inn verður á næsta ári, mun kosta
um 400 milljónir norskra króna.
f umræðum um fjármál borg
arinnar kom fram, að Osló styrkir
þrjú leikhús í borginni með 5
millj. norskra kr. alls og leggur
auk þess tvær milljónir til óperu
og hlj ómlistarmála.
í borgarstjóm Oslóar eru 85
borgarfulltrúar. Þar af hafa Jafn
aðarmenn 39 fulltrúa og mynda
meírihluta í borgarstjórninni með
Þjóðflokknum, sem hefur 4, og
kommúnistum, sem hafa 1. Aðrir
flokkar í borgarstjóminni eru
íhaldsmenn með 35 fulltrúa,
Kristilegi þjóðflokkurinn með 3,
Frjálslyndir með 3. í borgarráði
eiga sæti 21 fulltrúi, og í undir
nefnd þess 5 fulltrúar.
Hínir norsku gestir munu skoða
borgina og ýmis fyrirtæki hennar
í dag en ferðast um Suðvestur-
land á morgun og föstudag.
LAUS LÆKNISHÉRUÐ
Framhald af 16. píðu.
Konráð Sigurðsson hefur verið
hér héraðslæknir á annað ár, en
í vor fluttist hann til Raufarhafn
ar, þar eð enginn læknir var þar,
og oft er mikil þörf fyrir lækní
yfir síldarvertíðina. Konráð er nú
á förum suður í vertíðarlokin,
þar sem hann mun ljúka námi.
Þegar Konráð fer verða bæði lækn
ishéruðin læknislaus.
Kópaskers- og Raufarhafnar-
læknishéruð ná til um 1200 manns
samanlagt. Á báðum stöðunum er
ágætis aðbúnaður fyrir læknana,
og læknisbústaðir góðir. Auðvelt
er að komast um þessi héruð,
nema ef vera skyldi hluta úr vetri,
þegar helzt er að vænta stijóa.
HÉLT DAGBÆKUR
sögunni. Landsbókasafnið hefir
starfað á sama stað í rúmlega
hálfa öld, húsið er enn borgar-
prýði, en orðið alltof lítið til
að fullnægja þorfum Landsbóka
safns og Þjóðskjalasafns. —
Eina lausnin í bili virðist vera
sú að fá safninu til umráða
gott geymsluhúsnæði utan
safnhússins . . . Þetta þolir
enga bið, segir landsbókavörð?
ur. Þrengslin í húsinu skapa svo
mikla örðugleika, að ekki verð-
ur lengur við unað.
Um dagbækur Magnúsar
Krístjánssonar smiðs í Ólafs-
vik .varðveittar í Landsbóka-
safni, segir Lúðvík -Kristjáns-
son m.a. í árbókinni: — Dag-
bækur Magnúsar byrja á nýj-
ársdag 1894 og lýkur 7. apríl
1963, svo að á skortir fáa mán-
uði til þess að þær nái yfir
70 ára tímabil. . . . Sem heim-
ildarrit hafa dtgbækurnar
langmest gildi fyrir sögu Ól-
afsvíkur. Þar myn vikið að
flestu því markverðasta, er
gerzt hefur í þit-pinu í rösk
60 ár. En auk þe<is geyma dag-
bækur Magnúsar fjölmargar
frásagnir af fólkí og atburðum
í nálægum sveiílxm og þorp-
um. H
Dagbækur Magnúsar eru í
17 bindum, en í átjánda bind-
inu er stutt æviágrip hans,
formáli að dagbókunum ásamt
lykli að helztu viðburðum. Þar
segir hann: „Ég hef loks kom-
izt að þeirri niðurstöðu, að bezt
mundu þær geymdar í Lands-
bókasafni, og geri ég því þá
ráðstöfun, að þær fari þangað,
þegar ég er dáinn.“
Börn Magnúsar afhentu
Landsbókasafninu dagbækurn-
ar skömmu eftir lát hans.
Framhald af 16. síðu.
nokkrum árum voru sett smáseiði
í ánna, en þau hafa ekki komið
fram.
Fossar sjá um veiðidaga í ánni
og eru leyfðar í henni fimm stang
ir á hverjum veiðidegi. í Svarfað-
ardal hefur verið starfandi Fiskí-
ræktarfélag Svarfdæla, en svo að
segja allir ábúendur í Svarfaðar-
dalshreppi eiga veiðirétt í ánni.
TRULOFUNAR
HRINGIR^
^AMTMANN SSTIG 2
HALLDÓR KRISTINSSON
gullsmigur. — Síml 16979.
EIMftEfÐfJf
Askriftarsími 1-61-51
Pósfhólt 1127
Reykjavk.
Til sölu
Hæð við Rauðalæk 6—7 herb.
Hálf húseign í Vesturbænum.
4 herb., eldhús og bað á 1.
hæð, sér inngangur, sér
hitaveita. 1 herbergi og eld-
unarpláss í kjallara. Bílskúrs
réttur. 1. veðréttur laus.
2ja herbergja íbúð við Mið-
bæinn.
3ja herbergja íbúð við Mið-
bæinn.
2ja herbergja jarðhæð við
Blönduhlíð.
3ja hcrbergja hæð við Grett-
isgötu.
4ra herbergja hæð á góðum
stað í Kópavogi.
Hæð og ris í Túnunum alls
7 herbergi.
3ja herbergja íbúð í Kvistþaga.
5 herbergja 1. hæð í miðbæn-
um. Steinhús.
Einbýlishús með verkstæðis-
húsi á lóðinni.
Einbýlishús í smíðum á völdum
stað í Kópavogi.
Fokhelt 2ja íbúða hús í
Kópavogi.
5 herbergja íbúð í Laugarásn-
um.
4ra herbergja íbúð í sambýlis
húsi.
Einbýlishús í Kópavogi.. Útb.
180 þús.
3ja herbergja jarðhæð á Sel-
tjarnamesi.
3ja herbergja íbúð í Skerja-
firði.
5 herbergja ris við Lindar-
götu.
Einbýlishús á eignarlóð við Mið
bæínn.
Rannveig
Þorsteinsdóttir,
hæstaréttarlögmaður,
Laufásvegj 2.
Sími 19960 og 13243.
Innilegar þakkir fyrlr auðsýnda vlnáttu og samúð við andlát og
iarðarför föður okkar
Jóhannesar Friðbjarnarsonar,
Brúnastöðum
Sigríður Jóhannesdóttir Ólafur Jóhannesson j
Eiglnmaður minn og faðir okkar, tengdafaðir og afl
Viktor Guðnason
frá Flatey á Brelðafirðl
andaðist 5. þ.m. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju flmmtu*
daginn 20. ágúst kl. 10.30 árdegis. Athöfninnl f kirkjunnl verður
útvarpað.
Jónína Ólafsdóttir
Ingólfur Viktorsson Ottó ViktorSSOh
Krlstrún Grímsdóttir og barnabörn.
% i M I N
N, miðvikudaginn 19. ágúst 1964
151