Tíminn - 19.08.1964, Side 16
Miðvikudagur 19. ágúst 1964.
186. tbl.
48. árg.
UPPIOLAFSVIK
AS—Olafsvík, 18. ágúst
Miklar framkvaemdir hafa verið'
í Ólafsvík og mikil atvinna í sum
ar. UnniS hefur verið að hafnar
gerð, kirkju- og skólabyggingu,
fjöldi íbúðarhúsa er í smíðum,
og verið er að undirbúa gerð leik
vangs í kringum skólahúsið auk
margs annars.
Nú er verið að setja niður stál
þil í endann á hafnargarðinum,
og hefur verkið gengið vel. Búizt
er við, að þessum áfanga hafnar
7 flugbátar væntan-
legir til viðbótar
KJ-Reykjavík 18. ágúst.
Flugbátarnir tveir, sem lentu á
Skerjafirðinum í gær, héldu áleið
is vestur um haf í dag, en alls
verða þeir 9 flugbátarnir er hafa
hér viðdvöl á leið sinni vestur
um haf. Bandaríkjamenn Iánuðu
Frökkum þá á sínum tíma og
voru þeir notaðir í frönsku flota
stöðinnl í Dakar þangað til hún
var lögð niður. Bátarnii tveir
fengu hér eldsneyti, og svo mun
einnig verða um hina sjö sem
staldra munu hér við.
gerðarinnar ljúki um miðjan
september. Annars þyrfti að
dýpka höfnina nokkuð, en ekkert
hefur verið ákveðið ennþá um,
hvað gert verður, þegar búið er að
setja niður stálþilið.
Verið er að ljúka við að steypa
upp íþróttahús, en undirstöður
þess og sundlaugin voru gerðar í
fyrra. Ekki verður meira gert í
íþróttahúsbyggingunni í vetur. Þá
er lokið við að byggja tvær
kennslustofur við barnaskólahús-
ið, og er nú verið að múra þær
innan. Verða þær teknar í notkun
í haust, þegar kennsla hefst.
Hafnar eru fraimkvæmdir við
fyrsta hluta íþróttasvæðis, sem
verður í kringum barnaskólann.
Verið er að grafa þar og jafna,
og er ætlunin að reyna að jafna
50x100 metra völl í haust, en
þarna á að verða leikvangur og fót
boltavöllur í framtíðinni.
Nú er lokið við að slá upp fyrir
kirkjunni, _pg verður hún steypt
einhvern næstu daga, en kirkjuna
á að gera vel fokhelda í haust, en
frekari framkvæmdir munu bíða
næsta sumars. Að minnsta kosti
10 íbúðarhús eru í smíðum, og
hafa menn haft nóg að gera við
allar þessar byggingarframkvæmd
ir í suimar.
HÉLT ÐAGBÆKUR I
NÆRRI SJÖTlU ÁR
BÓ-Reykjavík, 18. ágúst.
Árbók Landsbókasafns ís-
lamds 1962—1963 er komin út
og flytur greinargerð lands-
bókavarðar, dr. Finns Sig-
mundssonar, Lúðvík Kristjáns-
Magnús
son ritar um dagbækur Magn-
úsar Kristjánssonar, Ásgcir
Hjartarson um íslenzk rit 1961
og 1962, viðauka og leiðrétt-
ingar um ísl. rit 1944—1960
og rit á erlendum tungum eftir
íslenzka menn eða um ísl. efni.
Benedikt S. Bencdikz og Ólaf-
ur F. Hjartar, rita skrá um
doktorsritgerðir íslendinga,
prentaðar og óprentaðar, 1666
—1963. Árbók Landsbókasafns-
ins hefur nú verið gefin út í
20 ár.
Finnur Sigmundsson drepur
á íslenzku bókaskrána og segir
að útkoma hennar hafi dregizt
lengur en ætlað var, vegna
anna aðalhöfundct'- r-cfurs Sig-
urðssonar háskólaritara, við
önnur störf. — Nú hefir Pétur
látið af embætti sínu við Há-
skólann til þess að geta sinnt
bókaskránni, og er þess að
vænta, að útgáfa fyrri hlutans
(til 1844) sé nú skammt undan.
Landsbókavörður segir óhjá-
kvæmilegt að bæta úr hús-
næðisþörf Landsbókasafnsins,
en ný bókhlaða fyrir samein-
að Landsbókasafn og Háskóla-
bókasafn virðist nú vera úr
Framhald á 15 síðu
Atli GuSmundsson tók þessar myndir í nótt þegar enn logaði glatt í Vörubílastöðinni.
BÚKHALOIÐ BRANN ALLT
FB-Reykjavík, 18. ágúst.
Um þrjú-leytið í nótt kom
upp eldur í Vörubílastöðinni á
Akranesi og var byggingin brunn
in til ösku á klukkutíma. Vöru
bílastöðin var nýtt timburhús, sem
tekið var í uotkun í september-
byrjun í fyrra, og höfðu 19 bíl-
stjórar þar aðstöðu sína. Allt bók-
hald stöðvarinnar brann, og getur
það valdið nokkrum erfiðleikum
við innheimtu.
Ókunnugt er um eldsupptök, en
talið er líklegt, að kviknað hafi í
út frá rafmagni. Nýbúið var að
lakkbera bygginguna, og varð það
til þess að hún varð alelda á svip
stundu. Ekki var við neitt ráðið,
og því var aðalverk slökkviliðsins
að halda eldinum frá benzín- og
olíutönkum, sem voru fyrir utan,
og sjást hér á neðri myndinni.
Samkvæmt upplýsingum for-
stjóra stöðvarinnar var húsið ekki
nægilega tryggt, og hefur tjónið
því orðið tilfinnanlegt, ekki sízt
vegna þess að búið var að selja
gamla stöðvarhúsið, og bílstjórar
hafa nú ekki í neitt hús að venda
með starfsemi sína.
VIRKJUN LAXAR HAG-
KVÆMUST FYRIR NORD-
UR- OG AUSTURLAND?
Tjeká-Reykjavík, 18. ágúst.
Eins og kunnugt er hafa undir
búningsrannsóknir vegna fyrir-
hugaða vatnsaflsvirkjana staðið
yfir undanfarin misseri og beinast
rannsóknirnar einkum að þremur
vatnsföllum: Þjórsá, Laxá í Þing
eyjarsýslu og JökuIsá á Fjöllum.
Sigurður Thoroddsen verkfræðing
ur hefur annazt rannsóknir og
áætlanagerðir varðandi virkjun
Laxár, og hefur hann nú skilað
ýtarlegu áliti. Niðurstöður hans
benda til þess, að langódýrast yrði
að reisa stórvirkjun við Laxá, en
auk þess yrði sú virkjun margfalt
gangvissari en virkjanir jökul-
fljótanna.
Sigurður hefur gert áætlanir
yfir 10 mismunandi vírkjanir og
er í öllum áætlunum gert ráð
fyrir því að veita Suðurá í Laxá,
en það eykur orkuvinnslugetuna
um 30—40% og ennfremur gerir
hann ráð fyrir hárri stíflu í Laxár
gljúfrum í því skyni að skapa miðl
un og rekstursöryggi og auka fall
hæð. Miðað er við að virkjað sé
til almenningsnota. Áætlar Sig-
urður, að verð á kílóvattstund á
Akureyri með 8% árlegum kostn-
aði yrði frá 12.1 eyri upp í 18
aura eftir því hvaða tilhögun verð
ur fyrir valinu.
Sigurður hefur i áætlunum sín-
um tekið til til meðferðar 3
Laxaseiði í Svarfaðardalsá
FZ-Hóli, Svarfaðardal, 18. ágúst.
í fyrsta sinn í sumar var Svarf
aðardalsá leigð og eru leigutakinn
Stangaveiðifélagið Fossar á Dalvík,
en það er svo til nýtt félag. Leig-
an er aðeins til eins árs til að
byrja með. Svarfaðardalsá var áð-
ur fyrr ágætis bleikjuá, en veið-
inni hefur farið hnignandi og hef
ur lítíð veiðzt í sumar.
Veiðifélagið sá um, að sett voru
laxaseiði í ána í sumar. og voru
þessi seiði nokkuð stór. Fyrir
Framh. á 15. síðu
möguleika um orkuveitusvæði
virkjunarinnar, þar á meðal allt
Norður- og Austurland, allt suður-
fyrir Hornafjörð. Gert er ráð fyr
ir, að aflþörfinni verði fullnægt
með vatnsafli yfirleitt, en fram til
ársíns 1968 verði aflþörfinni full-
nægt á annan hátt, en talið er að
fyrr verði ekki lokið hinum fyrsta
Framhald á síðu 15.
RAUFARHAFNAR-
OG KÓPASKERS-
LÆKNISHÉRIJÐ
LÆKNISLAUS! '
ÞB-Kópaskeri, 18. ágúst.
Útlit er nú fyrir að Kópaskers-
og Ráufarhafnarlælcnishéruð verði
læknislaus áður en langt líður, og
lízt mönnum illa á, ef svo fer.
Bæði embættin hafa verið anglýst
Iaus, en ekki vitum við til, að um
þau hafi enn verið sótt.
Frarnh, á 15. síðu