Vísir - 09.05.1945, Síða 3
VlSIR
3
Miðvikudaginn 9. maí 1945.
Mannfjöldinn við bústað sendiherra Dana.
Fjöibreytt málverkasýning og skemti
kvöld í Listamannaskálanum.
Eintak af Friheten eftir Nordal Grieg
selt á 800 krónur.
Jjins og áður hefir verið
skýrt frá hér í blaðinu,
hafði Bandalag íslenzkra
listamanna undirbúið upp-
boð og sýningu á íslenzk-
um listaverkum til styrktar
Dönum og Norðmönnum.
Sýning þessi var siðan
lialdin í gær í myndlistarskál-
anum. Guðmundur Einars-
son frá Miðdal hefir skýrt
Vísi svo frá þessari sýningu:
— Sýninign var fjölsótt
mjög og fjölskrúðug að efni.
Voru þar alls sýnd og boðin
upp 34 verk eftir 25'islenzka
iistamenn. Gera má þó ráð
fyrir að hátíðahöldin í bæn-
um í gær vegna styrjaldarlok-
anna liafi dregið eilthvað úr
aðsókninni að sýningunni.
Um kvöldið efndi banda-
lagið til skemmtunar í lista-
mannaskálariúm. í forföllum
formanns bandalagsins, Páls
Isólfssónar, ávarpaði ritari
bandalagsins, H. K. Laxness,
sýningargesti. Voru þeir hátt
á annað liundrað. Meðal
þeirra voru þar viðsladdir
sendiberra Dana og Norð-
manna. Meðal skemmliatrið-
anna voru upplestur, Magnús
Ásgeirsson ritböfundur, las
;upp, þeir Björn Ólafsson og
Árni Ivristjánsson fluttu tón-
verk og að lokum las Lárus
Pálsson upp. Var listamönn-
unum tekið mjög vel og þeir
byltir mjög af áheyrendum.
' Að skemmtuninni lokinni
liófst sjálft uppboðið á yerk-
um þeim, er félag myndlistar-
manna liafði safnað saman.
Fulltrúi lögmanns fram-
kvæmdi uppboðið. Yfirleitt
seldust verkin vel, en ekki
bafði tekizt að ganga úr
skugga um bversu mikið fé
liefði komið samtals á upp-
boðinu. Ilæsta verð á einu
verki var kr. 2000. Var það
málverk eftir Ásgrím Jóns-
son.
Á uppboðinu var jafnframt
boðið upp eitt eintalc af minn-
ingarriti, sem gefið var út um
NÖrdal Grieg, Fribeten. Var
það bið síðasta af 50 árituð-
um eiritökum sem gefin voru
út af þessu riti. Var það i eigu
frú Gerd Grieg, en frúin hafði
gefið það til að seljast á sýn-
ingunni. Var það selt á 800
króriur.
Auk l>ess gaf frú Greta
Björnsson listmálari söfnun-
inni veglega altaristöflu. Er
þetta bið vandaðasta kaik-
málverk. Verður máiverkið
til sýnis í skemmuglugganum
hjá Haraldi næsiu daga. Verð-
ur úskað eftir verðtilboðum í
þetta listaverk og óskast þau
annaðbvort send til mín eða
gjaldkera sambandsins, Finns
Jónssonar málara. Persónu-
lega álít eg að bér sé mjög
gott tækifæri fyrir þá sem
vilja eitthvað hlinna að ein-
hverjum af hinum nýju kirkj-
um, sem verið er að undirbúa
byggingu á hér í bænum um
þessar mundir eða jafnvel er
búið að byggja, segir Guð-
mundur að lokum.
Baidagai
á Bomholm.
Þrátt fyrir að friður hafi
verið saminn halda bardag-
-iti3 unnjjou v iuujJ p jv
angruðum stöðum þar sem
anað hvort ekki hefir náðst
til herflokanna eða þeir hafa
neitað að hlýða fyrirskipun-
um Dönitz aðmíráls um að
leggja niður vopn.
Frá Kaupmannahöfn
komu þær fréttir að bardag-
ar hafi ekki verið hættir á
Bornholm klukkan 8 í gær-
kveldi. Rússar gerðu þrjár
árásir með sprengjuflugvél-
um á þýzka setuliðið í Rönne
og Nexö í gær. Ekki var vart
neins liðsauka brezkra her-
manna þegar síðast fréttist.
Búist er við að Rússar geri
innrás á eyjuna ef Bretar
koma ekki eyjarskeggjum 'il
hjálpar eða setuliðið gefst
upp án frekari bardaga.
Loítáiás þýzkia
flugvéla á Piag
í moigun.
Barizt víða í Tékkó-
slóvakíu.
I fréttum í gærkveldi og í
morgun berast stöðugt frétt-
ir af bardögum í Prag og víð-
ar í Tékkóslóvakíu, þrátt
fgrir að búið var að ganga
sérstalclega frá uppgjöf
þýzka setúliðsins í Tékkó-
slóvakíu, eftir að hann hafði
neitað að hlýðnast fyrirskip.
un Dönitz um að leggja nið-
ur vopn.
Ivlukkan ellefu j morgun
lieyrðist í útvarpi frá Prag,
að verið var að aðvara al-
Sveinn Björnsson forseti
flytur ræðu af svölum
Alþingishússins.
Framh. af 1. síðu.
bvor á annan og flugu þá
slærðar hnullungar á milli,
svo að hreinasta mildi var,
að ekki blauzt af stórslys.
Stóð lögreglan marga stráka
að því að kasta grjóti óg
egna til æsinga, og voru þeir
umsvifalaust teknir og settir
eins og við höfðum áður gert
ur lögreglustöðvarinnar
troðfullur af slíkum strák-
um, svo og önnur liúsakynni,
sem lögreglan hafði yfir að
ráða.
Lögreglustjóri brezka hers-
ins fór þess á leit við okkur,
íslenzku lögregluna, að við
notuðum táragas, en eg færð-
ist undan því í lengstu lög,
sagði lögreglustjóri, þar eð
eg vildi reyna að lialda
mannfjöldanum í skefjum
eins ó gvið höfðum áður gert
án þess að grípa til róttæk-
ari ráðstafana. Skömmu
seinna fór svo brezka lög-
reglan að nota táragas á eig-
in spýtur. Á 12. tímanum
logaði Arnarhóll enn á ný
í ólátum og ryskingum og
sáum við okkur þá ekki ann-
að fært en að stilla til friðar
og sundra mannfjöldanum
með táragasi. Dreifðum við
nokkurum sprengjum innan
um hópinn, með þeim á-
rangri, að allt svæðið var
autt á örfáum sekúndum.
Seinna dreifðum við smærri
hópum, sem voru í áflogum,
með táragasspi-engjum, og
livarvstna með þeim ágæta
árangri, að óróaseggirnir
tvístruðust sinn i hverja átt-
ina. Á öðrum tímanum í nótt
má beita, að allar stærri ó-
spektir og ólæti liafi verið
farin að réna svo, að ekki
liorfði lengur til vandræða.
Það má telja líklegt, ef ekki|
fulla vissu fyrir því, að meðí
þessum aðgerðum lögregl-l
unnar hafi hún komið í veg!
fyrir stórkostleg .vandræði,
ef ekki manndráp.
Eilt af því alvarlegasta,
sem kom fyrir i gær, var það
þegar brezkir sjóliðar not-
uðu skotvopn við sænska
frystihúsið í gærkveldi.
Sliutu þeir á hjólbarða vöru-
bifreiða, sem óku þar fram
hjá, og svo nálægt skall hurð
hælum, að einn unglingspilt-
ur kom á lögreglustöðina
með fjögur skotgöt á buxna-
skólmunum sínum.“
*
Þá gengu brezkir sjóliðar
með grjót og barelli um göt-
menning um að þýzkar flug-
vélar væru komnar til þess
að gera loftárás á borgina og
fólk beðið um að forða sér
í loftvarnabyrgi sem skjót-
ast.
Mannfjöldinn við bústað sendiherra Norðmanna.
urnar og brutu rúður fyrir
tugþúsundir króna. Eru sum
verzlunarhús þannig útleik-
in, að ekki er til ein einasta
heil rúoa í þeim.
Þess má gela, Bandaríkja-
bermönnunum til verðugs
lofs, að þeir béldu sig gjör-
samlega utan við öll ólæti
og komu í hvívetna mjög
prúðmannlega fram. Brezkir
flugmenn voru og prúðir.
Hiaðkeppni í hand-
knattleik karla á
Iþrótta^ellinum kl. 2
á morgun.
Hið árlega hraðkeppnismót
Ármanns í handknattleik
Iiefst á morgun kl. 2 (upp-
stigningardag) á íþróttavell-
inum. 8 flokkar taka þátt í
mótinu og eru 7 menn í
lrverju liði. Þetta er útsláttar-
keppni, þannig að það lið,
sem tapar leik, er úr mótinu.
Keppt verður um nýjan bik-
ar, sem gefinn er af Glímu-
félaginu Ármanni og vinnst
liann til eignar á morguin. I
v ctur, þegar innan-bússhand-
knattleiksmótið fór fram,
mátti ekki í milli sjá hvcr
sigra myndi, svo voru flokk-
arnir jafnir. Þá vann flokk-
ur Ármanns. I fyrravor vann
Valur. Mótið hefst kl. 2. Þá
keppa:
1) Ármann A—Ilaukar.
2) Víkingur—IR.
3) Valur—FH.
4) Ármann B—Fram.
Hver leikur stendur yfir í
30 mín. Kl. 8,30 hejast svo
úrslitaleikirnir. Þetta er
fyrsta keppnin á Iþróttavell-
inum í vor og þarf ekki að
efa, að mannmargt verður á
Iþróttavellinum á morgun.
Hvít og svört
Kjólajilúnda.
VERZL.
4ra suanna
modek 1941, fallegur, í
fyrsta flokks standi og út-
liti, aðeins keyrður 14.000
km. og alltaf verið í einka-
eign, er til sölu nú þegar
af sérstökuin ástæðum. —
Uppl. gefur Stefán Jó-
hannsson, sími 2640.
Góð sfálka
óskast. Hátt kaup.
Gott sérherbergi.
Sími 2577.
Ensk sumarfataefni
nýkomin.
acjCÆTisocem
imsrrm emiassoH
Hverfisgötu 59.
Síiílltiir
vantar frá 14. maí í
Tjamarcafé h.í.
Herbergi fylgir.
Upplýsingar á skrifstofunni. -— Sími 5533.