Vísir - 09.05.1945, Qupperneq 6
6
VISIR
Miðvikudaginn 9, maí 1945.
Saga siríðsins.
Framh. af 2. síðu.
mönnum Breta og Frakka
verið bjargað, um þrem
fjórðu hlutum þess liðs, sem
uppi stóð, þegar Belgíumenn
lögðu niður vopn.
Bretar bíða
innrásarinnar.
Það var þegar hér var
lcomið, scm Þjóðverjar
„misstu af strætisvagnin-
um“, svo að tekin sé upp
orð Chamberlains. Nú var
hægt að gera innrás i Eng-
land og þurfti ekki að fara
yfir lengra haf cn 33 km.
hreitt Ermarsundið. Brezki
herinn hafði neyðzt til að
skilja eftir á ströndinni við
Dunkirk öll hin þyngri og
__ skæðai'i vopn sín og var að
” auki þreyttur og að heita má
skipulagslaus.
Bretar bjuggust nú við inn-
rásinni. Heimavarnalið var
•-sett á laggirnar og það æfði
sig í lándvörnum með byssu-
stingjum eða lurkum einum
að vopni. Churchill forsætis-
ráðherra var ómyrkur í máli,
þegar hann gekk að hljóð-
nemanum og lofaði öllum
heiminum því, að Bretar
skyldu verjast „á ströndun-
um, flugvöllunum, ökrunum,
götunum og uppi í fjöllun-
um.“
Hann sagði: „Við munum
aldrei gefast upp!“
Á þessari stund hættunn-
ar rétti Bandaríkjastjórn
Bretum hjáíþarhönd, skeytti
ekkert um lagafyrirmæli og
sendi til Englands eina millj-
ón gamalla hermannabyssna
og margar franskar 75 mm.
byssur, sem smíðaðar höfðu
verið i síðasta striði. Church-
ill skýrði siðar frá þvi i ræðu,
sem íiann hélt í þingi Banda-
rikjanna, að þetta hefði i
raúninni verið einu vopnin,
sem Bretar höfðu þá til að
verjast hinni væntanlegu
iniirás Þjóðverja.
Þjóðverjar
"brjótast suður.
Það er sennilegt, að heim-
urinn fái aldrei að vita, hvað
réð því, að þýzka herstjórn-
in lét ekki heri sína nema
.staðar við Ermarsund og
taka þess í stað stefnu suður
á bóginn.
Franska stjórnin setti Ga-
melin frá herstjórninni, en
kallaði Weygand heim í
skyndi og setti hann yfir
herinn. Weygand lét það
verða sitt fyrsta verk, að
reyna að koma upp virkja-
kerfi fyrir sunnan Somme.
En Þjóðverjar réðust á það
með sæg steypiflugvéla, brut-
ust suður yfir ána, fundu
fljótlega veikan blett á vörn-
unum og ruddust i gegnum
þær. Þann tíunda júní voru
Þjóðverjar komnir suður yf-
ir Signufljót og nálguðust
París.
Þann dag, þegar ekki varð
“annað séð, en að striðinu
væri í rauninni lokið, til-
kynnti Benijo Mussolini, að
ítalir hefðu sagt Bretum og
Fröklcum stríð á hendur.
Þjóðverjar héldu innreið
sína í París 14. júní. Þrem-
ur dögum síðar bað Petain
marskálkur, sem hafði jafn-
an verið heiðraður fyrir vörn
sína við Verdun í síðasta
stríði, Þjóðverja um frið með
„sæmilegum“ skilmálum.
Þjóðverjar urðu við bón
Petains. Bardögum var hætt,
en skilmálar Þjóðverj a voru
harðir og ekki eins og Petain
hafði beðið um. Þann 22. júní
,var vopnahléið undirritað í
Compiégne-skógi, í sama
vagninum, sem undirskrift
vopnahlésins 1918 hafði far-
ið fram. Þjáðverjar til-
kynntu, að þeir múndu taka
hálft Frakkland og afvopna
herinn, llotann og flugher-
inn. Italir fengu því í'ram-
gangt, að afvopnun var látin
i'ara fram í nýlendum Frakka
í Norður-Afríku.
Næsta grein:
SIGURVONIR ÞJÓÐVERJA
URÐU AÐ ENGU I „ORUST-
UNNI UM BRETLAND“.
Nætiurvörður
• er i Lyfjabúðinni Iðunni.
Hélgidagslæknir
er ólafur Helgason, Garðastræti
33, sími 2128.
Næturlæknir
er í Lælcnavarðstofunni, sími
5030.
Næturakstur
í nótt annast B. S. í., sími 1540,
og aðra nótl Aðalstöðin, sími
1383.
Ræður forvígis-
manna —
Framh. af 4. síðu.
tfmi Noregs kominn, nú get-
um við fengið hindrunarlaust
að strita og starfa i okkar eig-
in landi eins og við óskum og
gert Noreg að betra landi að
i)úa i en hann hefir nokkurn
lima verið. Fyrsla lilutverk
vort er að sjá um að hin borg-
aralega stjórn geti aftur tekið
til slarfa á löglegan hátt.
S tj órn baráttuhreyfingarinn-
ar hafa verið fengin sérstök
hiutverk í hendur, heimild tii
ákveðinna frámkvæmda þar
(il önnur skipan verður gerð.
Þeir, sem því geta við komið,
eiga að hlusta á norska út-
varþið frá London og taka
við þeim fyrirskipunum, sem
gefnar verða og koma þeim
1 áleiðis.
Varist hverskonar orðróin,
hættulegasta vopn andstæð-
inganna. Haldið kyrru fyrir
heima, stundið störf ykkar.
Varðveitið þá ró og festu,
sem jafnan hefir verið styrk-
ur vor.
Sameinist um hið gamla
heit sem felst í orðunúm:
Lifi Noregur.
Ávarp Bretakonungs.
I dag þökku mvér almátt-
ugum Guði fyrir mikla björg-
un. Er eg nú ávarpa ykkur
frá elztu höfuðborg Breta-
veldis, sem er í- sárum eftir
harða og grimmilega styrj-
öld, þar sem aldrei ríkti ör-
vænting né nokkur lét á sér
bilbug finna, bið eg ykkur
að taka undir þakkir, sem
eg ber fram fyrir að Þjóð-
verjar, sem komu af stað
þessári styrjöld í álfunni,
hafa verið sigraðir.
Þjáningar okkar eru nú
hjá liðnar, en þeir, sem látið
liafa lífið í baráttunni, geta
ckki fagnað með okkur.
Enginn skilur það né veit
það betur en eg og eg þakka
ykkur öllum, sem börðust svo
djarflega, að sigurinn varð
mögulegur, og vannst, og
emnig þeim, sem borið hafa
miklar byrðar striðsáranna
möglunarlaust. I ljósi þess-
ara minninga skulum við
lmgsa um hvað það var, sem
gaf oss styrk í baráttunni.
Með vitundin um það, að
allt var í húfi, frelsi vort og
sjálfstæði og öll tilvera vor
sem þjóð. Meðvitundin um
J)að, að með þvi að verjast
vorum vér ekki eingöngu að
verja frelsi vort, heldúr og
frelsi annara þjóða, allra
])jóða heims. Vér vissum, að
ef vér brygðumst hefði allt
verið í voða. Á stund hætt-
unnar fólum vér almáttugum
Guði forsjá vora. Hann var
styrkur vor. Leggjum fram-
tíð vora í þessa sömu sterku
hönd.
Ræða Churchills.
Churchill flutti ræðu sína
kl. 1 i gær, eins og tilkynrn
Iiafði veri'ð. Hann sagði í upp-
hafi frá uppgjöf Þjóðverja
og undirritun hennar. Þá
sagði hann livenær vopna-
viðskipti ættu að hætta, en að
síðustu sagði hann:
Þýzkalandsstyrjöldinni er
lokið óg við getuin leyft okk-
ur stntta fagnaðarstund, en
við skulum ekki gleyma því
sem framundan er. Japan
með allri sinni sviksemi er
ennþá ósigrað.
Við verðúm nú að verja
öllum • kröf tinn okkar óg
styrkleika til þess að full-
BÆJAEFRCTTIR
Þakkarguðsþjónustur á morgun.
Prestarnir hér í bænum og víðs
vegar á landinu efna til þakkar-
guðsþjónustu á morgun (upp-
stigningardag)'.
Messur á morgun.
Dómkirkjan: Messað kl. 11 f. h.
Sira Bjarni Jónsson. MessaS kl.
5 e. h. Síra Friðrik Hallgríms-
son.
Frjálslyndi söfnuðurinn: Há-
tíðainessa kl. 2 í Fríkirkjunni.
Síra Jón Auðuns.
Fríkirkjan: Hátíðarguðsþjón-
usta á morgun kl. 10 f. h. Síra
Árni Sigurðsson. AChygli safnað-
armanna er sérslaklega vakin ú
þessum breytta messutíma.
Nesprestakall: Messað í kapellu
Háskólans á morgun kl. 2 e. h.
Sira Jón Thorarensen.
Elliheimilið: Þakkarguðsþjórt-
usta kl. 10 árdegis. ólafur ólafs-
son kristniboði predikar.
Hafnarfjarðarkirkja: Altaris-
guðsþjónusta á morgun kl. 2 e.
h. Síra Garðar Þorsteinsson.
Útvarpið í kvöld.
19.25 Hljómplötur: Söng\'ar úr
óperum 20.30 Hallveigarstaða-
kvöld. — Upplestur og! íónleikar.
— Samfelld dagskrá. 22.00 Fréttir
Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun
(Uppstigningardag).
8.30 Morgunfréttir. 11.00 Morg-
untónleikar (plötur): a) -Fiðlu-
konsert, i G-dúr, eftir Mozart. b)
Píanókonsert eftir sama höfund.
12.10—13.00 Hádegisútvarp. 14.00
Messa í Fríkirkjunni (sírá Jón
Auðuns). 15.15—10.30 Miðdegis-
tónleikar (plötur): a) Ástir
skóldsins eftir Schumann. b)
Valsar eftir Brahms. c) Gaukur-
inn eftir Delius. d) Lævirkinn
eféir Vaughan Williams. 19.25
Hljómplötur: Brúðkaupskantatan
eftir Bach, o. fl. 19.40 Lesin dag-
skrá næstu viku. 20.20 Útvarps-
hljómsveitin (Þórarinn Guð-
mundsson stjórnar): a) Ossian-
forleikurinn eftir Gade. b) Caro
mio ben eftir eftir Giordani. c)
Draumsjónir eflir Schumann. d)
Iívöldljóð eftir sama höfund. e)
Judex eftir Gounod. 20.50 Kvöld
Slysavarnadeildarinnar ,,Ing-
ólfs“. — Ávörp. — Frásögur. —
Upplestur. — Tónleikar. 22.00
Fréttir. — Dagskrárlok.
KR0SSGÁTA nr. 49
Skýringar:
Lárétt: 1 fátæklingur, 6
verksnúðja, 8 frumefni, 9 fá,
lCTnáttúruundúr, 12 málmur,
13 skáld, 14 félag, 15 ekki, 16
mjúkan.
Lóðrétt: 1 vissa, 2 sams-
konar, 3 lireyfast, 4 ósam-
stæðir, 5 atv.orð, 7 hinn líf-
lausi, 11 samtenging, 12 tvíl-
ir, 14 fóður, 15 ósamstæðir.
Ráðning 48:
Lárétt: 1 þúsund, C kráin,
8 ot, 9 M. A„ 10 mær, 12 ámu,
13 ur, 14 öl, 15 æra, 16 starað.
Lóðrétt: 1 þrumur, 2 Skor,
3 urt, 4 ná, 5 dimm, 7 nautið,
11 ær, 12 álar, 14 öra, 15 æt.
komna verk vort, baiði heima
og erlendis.
Áfram Bretland. Lcngi lifi
frel&ið. Guðblessi konupginn.
Jáinsmiðnr.
Okkur vantar nú þegar góðan járnsmið vanan logsuðu
og rafsuðu, til vinnu í Hvalfirði. Séð verður fyrir liús-
næði og fæði á staðnum. Sömuleiðis friar ferðir til
Reykjavíkur og til baka á frídögum.
Umsækjendur komi til viðtals i skrifstofu okkar í
Hamarshúsinu.
H.L „SHELL"
Nýkomið:
mikið úrval af
drengja- og sportfataefnum úr Chevioti.
Ennfremur teppi, lopi og garn.
Veiksmiðjuútsalan Geíjun - Iðunn
Hafnarstræti 4. — Sími 2838.
Aðalfundur
Byggingaiíéiags veikamanna
verður lialdinn 13. þ. m. í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu
og hefst liann kl. 2 e. h. — Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Byggingarfélag verkamanna.
UNGLING
vantar þegar í stað til að bera út blaðið um
KLEPPSHOLT.
Talið strax við afgreiðslu blaðsins. Sími 1660.
Dagblaðið Vísir.
Hestamannafélagið Fákur
heldur
íiamhaldsaðalíund
föstu,daginn 11. maí kl. 8,30 síðdegis í Veitingahúsinu
Röðli.
• Fundarefni: Lagabreytingar. Næstu kappreiðar.
Hesthúsmál o. fl.
Stjórnin.