Morgunblaðið - 17.03.1937, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 17. mars 1937
ll)) ftlM IÖLSEINI ((
Hið íslenika íornritaffelag.
Grettis saga Verð: Hvert bindi:
Eyrbyggja saga „ f k, 9 00.
Laxdæla saga
Egils saga ! skinnbandi kr. 15,00.
Kaupið fornritin jafnóðum og þau koma út.
Fást hjá bóksölum.
Aðalútsala í
Bókaverslun Sigfúsar Eumundssonar
og Bókabúð Austurbæjar B. S. E. Laugaveg 34.
Timbtirversluii ©
P. W. Jacobsen & Sön. |
Stofnuð 1824. 0
Símnefni: Granfuru - Carl-Lundsgade, Köbenhavn C. ^
Selur timbur í stærri og smærri sendingum frá Kaup- ©
mannahöfn. - Eik til skipasmíða.-Einnig hoila ®
skipsfarma frá ' Svíþióð. ©
Hefi verslao við ísland í meir en 80 ár. g
••••••••••••••••••••••<1
Unxbúðapappír.
Getum ennþá útvegað umbúðapappír frá
Svíþjóð með hagkvæmu verði.
Eggert Kristjánsson B Co,
Sími 1400.
Kartöflumjol
í 50 og 100 kg. pokum.
5ig. Þ. Skjalöberg,
(HEILDSALAN).
Sími 1380. LITLA BILSTOÐIN Er nokknð stór
Opin allan sólarhringinn.
• —wninui .. ■■ —mmmm
MorgunblaðiO með morgunkafflnu
Brfef send MorgutiblaOInu.
Þýski Gauss ieiðangurinn
til Suðurheimsskautsins.
Hr. ritstj.
Jeg beindi í blaði yðar tveim-
ur lítillátum spurningum til
iir. Jóns Eyþórssonar út af' út-
varpserindi hans um Suðurför
Scotts. Onnur spurninjriii var á
þá leið, hvort honum væri ókunn-
ngt um leiðangurinn, sem Þjóð-
verjar gerðu út til Suðurpólslands
ins 1901—1903 undir forustu
Erich v. Drygalski (svonefndan
Gauss-leiðangur). Hiu spurningin
var aftur þess efnis, hvort hann
(J. Ey.) teldi ef til vill þann leið-
angur hafa haft svo litla vísinda-
lega þýðingu, að ekki væri í frá-
sögur færandi.
Svarið, sem J. Ey. birtir í Mbl.
á laugardaginn er einkennilega
vandræðalegt. Þótt gegna megi
furðu, er svo að sjá, sem veður-
fræðingurinn taki það óstint upp,
að memi skuli dirfast að spyrja
út í þau mál, sem hann af miklum
lærdómi sínurn er að fræða fávísa
hlustendur um.
Mjer refsar hann fyrir þá
dirfsku með því að bera það upp
á mig, að jeg spyrji „all-drýginda
lega“. Sjer eru nú hver drýgindin!
mun víst margur segja. En þessi
ummæli hans hafa, án þess jeg
geti að því gert, fjarskalega skop-
lega hlið, því að lýsingarorðið
„drýgindalegur“ er í seinni tíð bú-
ið að fá sjerstaklega lifandi merk-
ingu meðal úívarpshlustenda. Orð-
ið er nefnilega einkum notað um
Jón Eyþórsson, og það sem hann
flytur.
Þá segir Jón, að í einu útvarps-
erindi verði þess ekki með sann-
girni krafist að „landfræðisaga“
Suðurskautsins sje rakin til hlítar.
Það hefir víst heldur enginn ætl-
ast til þess af honum, að hann
rekti þá sögu til hlítar í einn
stuttu erindi um Suðurför Scotts.
En hann rakti þá sögu samt sem
áður nægilega langt til þess, aS
allir, sem henni eru kunnugir,
hlutu aS búast við því svo að segja
í næsta orðinu, að Gauss-leiðang-
urinn yrði nefndur. En svo varð
ekki, og þess vegna spurði jeg.
Svo telur Jón Eyþórsson það
koma fram í fyrirspurn minni, að
jeg beri honum á brýn, að hann
hafi „eignað sjerstökum þjóðum
allan heiðurinn af heimskauta-
rannsóknúnum“.
Jeg nefndi hvergi heimskauta-
rannsóknir alment. Jeg var að
tala um fund Suðurpólslandsins
(Antarktisk eða Antarktika), og
jeg endurtek það, að hann ljet
óminst á þátttöku Þjóðverja í
þeim landfundum.
Loks segir Jón Eyþórsson, að
þegar hann tali um Norðurlanda-
menn, þá eigi hann einnig við
Þjóðverja. Telst þá Þýskaland til
Norðurlanda? Jeg verð að segja,
að sú skifting Evrópu kernui- mjer
nýstárlega fyrir sjónir, og svo
mun vera um fleiri.
En það er ein hlið á þessum
orðaskiftum okkar Jóns Eyþórs-
sonar, sem jeg- vil benda þeim út-
varpshlustendum á, sem þessar
línur lesa. Útvarpsráðið hefir valct
til að dæma tækt eða ótækt það
efni, sem því býðst. Gerum ráð
fyrir, að það sje skipað mönnum,
sem sjeu færir úm þetta án hleypi
dóma og hlutdrægni.
En þegar útvarpsráðsmenn sjálf-
ir koma fram í útvarpinu, eiga
þeir þá að vera hafnir yfir alla
gagnrýni? Á það að skoðast svo
framvegis, að það sjeu aðeins
„drýgindi“ — öðru nafni merki-
legheit og tilsletni, ef við eigend-
ur útvarpstækja og aðrir hjust-
endur gerumst svo djarfir að hiðja
þessa háu herra um skýringar á
því, sem þeir eru að þruma yfir
okkur og heimafólki okkar,
Eigum við framvegis að gera
okkur það að góðu, að þessir vald-
hafar stökkvi upp á nef sitt, ef
verk þeirra kynnu að vera gagiv-
rýnd?
Knútur Arngrímsson.
Þegar sökudðlgur neitar —
1 Hr. ritstj.
Undir umræðunum á Alþingi um
„hlutleysi“ útvarpsins var það
með skýrum stöfum sannað á
frjettamann Ríkisútvarpsins ís-
lenska (S. E.) að hann m. a.
hefði flutt yfirlitserindi um er-
lenda viðburði á mjög hlutdrægan
hátt, og einkanlega liallað á „ein-
ræðisríkin“, sem hann kallaði (þ.
e. Þýskaland og Italíli, því að
liússland átti hann ekki við). •—
Hafði Gísli Sveinsson horið það
fram, sem vitanlega fleiri vissu
nm, að þessi frjettamaður ljet sjer
sæma í erindi, er hann flutti í
janúar s.l., að bera það á þessi
rílsi, að þau „fölsuðu lieimildir og
staðreyndir", og ætluðu sjer að
| ráða niðurlögum smáþjóðanna, ef
' ekki með vopnum, þá (eins og
okkur íslendinga) „með viðskifta-
samningum“ ! Fyrir þessu kvaðst
frjettamaðurinn hafa „í fórum
sínum“ gögn, að því er haft er
eftir honum, sem hann hjest um
að koma með o. s. frv.
I Þegar þetta gerðist í útvarpinu.
var verið að undirbúa nýjar samn-
ingagerðir milli íslands og Þýska-
lands.
Þetta vakti að vomim mikla eft-
irtekt og var því beint. til ríkis-
stjórnarinnar af Jóliamii Jósefs-
syni, að gera hjer nokkur skil á,
en svo brá við, að ráðherrarnir,
einnig sá, er fer með utanríkis-
málin, atvinnumálaráðherra H .G.,
Ijet sem ekkert væri og neituðu
hlátt áfram að taka þetta trúan-
legt. Og er á herti, gerði H. G.
sig sekan í þeirri glópsku að lýsa
yfir því, að hann tæki sinn flokks-
mann, Sigurð Einarsson, trúanleg-
an, þegar hann„neitaði“ þessum
staðreyndum, enda myndi S. E.
nú birta erindið „á prenti“, og
myndu menn þá geta sjeð og sann-
prófað sannleiksgildi ummæla G.
Sv., — rjett eins og mark væri á
slíku takandi, því vitanlega væri
þessum frjettamanni í lófa lagið
að breyta erindi sínu frá því, sem
hann flutti það, er í óefnið var
komið. Enda fullyrti tí. Sv. í heyr
anda hljðði, undir ræðu ráðherr-
ans, að hann að öllu stæði við
mál sitt, er hann flutti í þing-
ræðu.- S. E. hefði viðhaft tilvitn-
uð orð og ummæli, hvað sem hann,
skelkaður orðinn, fyndi nú upp á
að segja eftir á.
Allir heilvita menn sjá, áð hjer
er framin hin mesta óhæfa. Hið
íslenska Ríkisútvarp lætur við-
gangast að slíkt mál sje flutt af
föstum starfsmöilnum símmt,
glæfralegur áburður á vinveittai*
viðskiftaþjóðir okkar, og sjálf
ríkisstjórnin skel'lir vísvitandi við
því skollaeyrum.
Það er í rauninni ekkert nýtt,
að þessi maður og hans nótar fari
í ræðu og riti rasanda ráði gegn
öllum, sem þeim er ekki að flokks-
legu skapi, þeim, er ekki hylla
hina „rauðu fylking“. En hitt er
á móti öllum heilbrigðum regl-
nm, er þeir, sem völdin hafa og
ábyrgðina, taka neitnn sjálfs
sökudólgsins á verknaði sínum
fram yfir alla gilda vitnishurði.
Þá er siðspillingin komin í há-
sætið. Hlustandi.
Hið íslenska garðyrkjufjelag.
Framhalds*
aðalfundur
Hins íslenska garðyrkjufjelags
verður haldinn laugardaginn 20.
þ. mán. kl. 20 í kvikmyndasal Aust-
urbæjarbarnaskólans.
A dagskrá meðal annars:
Lagabreyting og kvikmyndasýri-
ing. Áríðandi að allir mæti.
STJÓRNIN.
Nýfísku
húseign.
óskast keypt.
Útborgun kr. 10.000.—
Tilhoð merkt „333“ leggist inn á
afgreiðslu blaðsins fyrir hádegi n.
k. laugardag.