Morgunblaðið - 01.06.1939, Qupperneq 2
2
M ^RGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 1. júní 1939.
Þjóðverjar fóru með blekkingar árið 1936
Þjóðverjar stuððu Franco ‘JJJJ1
frá 12LÖegi styrjalðarinnar bandalaglO
Þýsku hersveilirnar
komnar heim
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
JÓÐVERJAR og ítalir flagga nú með afrek-
um þeim, sem hersveitir þeirra unnu í Spán-
arstyrjöldinni. Þýsk blöð segja m. a. frá því,
að áttatíu þýskir sjálfboðaliðar, sem dulist hafi sem ferða-
mannahópur, hafi verið sendir til Spánar, tólf dögum eftir
að borgarastyrjöldin hófst.
Tilefnið til þessarar óvæntu hreinskilni blaðanna, er
heimkoma þýsku hermannanna frá Spáni í dag. Þeir komu
í fimm „Kraft durch Freude“ skipum og fór Hermann
Göring á móti þeim á skemtisnekkju sinni úti á Elbe.
GÖRING STOLTUR
Hamborg var fánum skreytt í tilefni dagsins. Hermann
Göring flutti ræðu og sagðist vera stoltur af þýsku hermönn-
unum. Hann sagði, að kjarkur sá, sem þeir hafi borið með
sjer, hafi unnið Spánarstyrjöldina. Einn af þýsku hershöfðingj-
unum, sem börðust á Spáni, von Richthofen (blöðin benda á
að hann sje frændi Manfreds von Richthofens, sem gat sjer
mestan orðstýr í heimsstyrjöldinni) flutti svarræðu og sagði að
hann væri viss um, að hermenn sínir myndu gera alt það, sem
Hitler fæli þeim að gera.
Síðan veitti Göring heiðursmerki þeim, sem skarað höfðu
fram úr.
Þýsku blöðin segja að „ferða-
mannahópurinn“, sem fyrst kom
til Spánar hafi haft með sjer
sex flugvjelar. Flugvjelar þessn
ar hafi flutt mörg þúsund
Mára-hermenn yfir Gibraltar-
sundið.
Síðar hafi Condor-hersveitin
verið> stofnuð, en í þeirri her-
sveit börðust allir Þjóðverjar,
sem tóku þátt í styrjöldinni.
Samtals börðust 20 þús. Þjóð-
verjar á Spáni. En þó voru þar
aldrei samtímis nema 5 þús.
þýskir hermenn. Var oft skift
um menn, til þess að sem flestir
gætu aflað sjer hernaðar-
reynslu. Þessir hermenn tóku
þátt í öllum aðalorustunum.
Auk þess stofnuðu Þjóðverjar
þjálfaradeild. Þessi deild kendi
60 þús. Franco-liðsmönnum
h ernað arvísihdi.
--------Og-------------
Italir
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Viktor Emanuel konung-
ur, Mussolini og Ciano
greifi, verða meðal þeirra sem
taka á móti ítölsku hersveit-
unum, sem börðust á Spáni,
þegar þær koma til Neapel.
Ciano greifi birtir grein í
ítölsku tímariti þar sem hann
rómar frammistöðu ítala á
Spáni. Meðal annars segir
hann að ítölsku flugmennirn-
ir hafi flogið samtals yfir 130
þús. flug-klukkustundir, gert
á fjórða þúsund loftárásir,
tekið þátt í öllum mikilvæg-
um orustum o. s. frv.
Þýsfea flotamálastjórnin hafði
flotadeildir við Spánarstrendur
frá því í ágústmánuði 1936 og
tóku þær oft þátt í mikilvægum
sjóhernaðaraðgerðum (samkv.
FÚ).
SPÁNVERJAR í
ÞÝSKALANDI.
Þýsku blöðin halda á lofti
ýmsum afrekum hermanna. M.
a. birta þau mynd af flugfor-
ingjum, sem skotið hafi niður
fjórar rússneskar flugvjelar á
einum degi.
Með þýsku hermönnunum
komu í dag til Hamborgar
6 spanskir herforingjar, þ.
á m. Yague, foringi Mára-
hersveitanna, sem komu
fyrstar til Barcelona. Enn-
fremur óæðri liðsforingjar
Spánverja. Þessir foringjar
verða gestir þýsku stjórn-
arinnar á meðan þeir
dvelja í Þýskalandi.
(Lundúnaútvarpið skýrði frá
því 8. ágúst 1936, eða þremur
vikum eftir að borgarastyrjöld-
in hófst, að þýski sendiherrann
í London hafi þann dag tilkynt
breska utanríkismálaráðuneyt-
inu, að þýska stjórnin hefði
engin hergögn sent til uppreisn-
armanna á Spáni, þaðan af síð-
ur flugvjelar, og að ekki hafi
heldur nein. hernaðartæki ver-
ið send frá Þýskalandi af ein-
stökum mönnum. Ennfremur að
þýska stjórnin myndi gefa her->
skipum sínum fyrirskipanir um,
að koma ekki fram á neinn hátt,
sem talist gæti hlutdrægnr).
i
i
Þegar þýsk-ítalsxi hernaðarsáttmálinn um bandalag var undirritaðnr í Berlín, von Ribbentrop (t. h.)
undirritaði sáttmálann fyrir hönd Þjóðverja og- Ciano greifi (lengst t. v.) fyrir hönd ítala. Hitler var
viðstaddur, sitjandi á miðri myndinni.
Samningar Rússa
og Breta
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Frönsk blöð birta samhljóða fregnir um það, að
samkomulag hafi náðst milli Breta, Frakka og Rússa
í aðalatriðum.
Dráttur sá, sem enn hefir orðið á því, að sam-
komulagið verði birt, er sagður stafa af því, að
Rússar vilja fylla upp í öll húgsanleg skörð á varnar-
bandalaginu. Hjer valda Eystrasaltsríkin nokkrum örð-
ugleikum, þar sem þau eru treg til þess að þiggja á-
byrgð af hálfu Breta og Rússa. Þau óttast að Þjóð-
verjar firtist við það.
Sendiherra Breta í Moskva ræddi lengi við Molo-
toff í gær, og í dag hafa farið fram viðræður milli
Maisky og fulltrúa breska utanríkismálaráðuneytisins.
Er talið að viðræður þessar standi í sambandi við af-
stöðu Eystrasaltsríkjanna
Molotoff flytur fyrstu ræðu sína um utanríkismál
síðar í kvöld og er litið svo á, að hann myndi hafa
frestað að flytja þessa ræðu, ef ekki væri komið á sam-
komulag við Breta.
Vígbúnaður
Breta
Pólverjar bjóða
Danzig-búum
London í gær F.tJ.
reska hermálaráðuneytið
tilkynti í dag, að stofnuð
muni verða á ný tvö herforingja
embætti, sem ekki hafa verið
skipuð síðan á styrjaldarárun-
um.
Tilkynningar og auglýsingar
hafa verið birtar hvarvetna í
Bretlandi í dag, til þess að boða
nýliða til herþjónustu sam-
kvæmt hinum nýju lögum. 200,-
000 nýliðar eiga að gefa sig
fram til herþjónustu á laug'ar-
dag.
samninga
London í gær F.Ú.
ólska stjórnin hefir hafnað
þeirri kröfu senatsins *í
Danzig, að hún kallaði heim
Danzigfulltrúa sinn og tvo
starfsmenn hans.
Jafnframt hefir forseta sen-
atsins verið afhent orðsending
þar sem pólska stjórnin kveðst
þess albúin að hefja samkomu-
lagsumleitanir við senátið um
bætta sambúð pólskra og þýskra
manna í Danzig. *
Hitler tekur
á móti Páli
ríkisstjóra
Frá frjettarítara vorum.
Khöfn í gær.
Sjaldan mun þjóðhöfðingja
hafa verið tekið með eins
mikilli viðhöfn í Berlín og Páli
ríkisstjóra í Júgóslafíu og
QJgu konu hans verður sýnd, er
þau koma þangað á morgun.
Þau eru væntanleg til Berlín kl.
3V2 e. h.
Hitler hefir sjálfur skoðað í
dag höllina, þar sem þau eiga
að búa, á meðan þau dvelja í
Þýskalandi.
Göbbels hefir birt ávarp, þar
sem skorað er á Berlínarbúa að
hylla ríkisstjórahjónin. Frí
verður gefið í verslunum og
verksmiðjum frá kl. 12 á há-l
degi.
í kvöld verður borgin öll upp-
lýst með „flæði“-ljósi.
Þjóðverjar leggja eins og
kunnugt er mikið kapp á að fá
Júgóslafa til fylgis við sig.
Nýjung!
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Kosningar eiga að fara
fram í Rúmeníu á morgun.
Sú nýung hefir verið tek-
in upp, að kjósendur fá
mynd af frambjóðendum
við kjörborðið, svo að þeir
geti kosið þá, sem þeim líst
best á.